Morgunblaðið - 03.02.2000, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vonbrigði í Króatíu
fcipncka íandsliöiö i handbolta var langt frá því aö
standa undir væntingum i Evrópukeppnmni sem hald-
in var í Króatiu. Væntingamar sem gerðar voru til
liösins reyndust langt frá því að vera raunhæfar -
væntingar sem landsliöiö sjálft haföi kynt undir áöur
en á móti& var komiö.
Heldur þú að það geti verið að það hafi gleymst að fara yfir kerfið í honum, Haukur minn?
Hlýr janúar en þó ekki sá hlýjasti frá upphafí mælinga
Heitast rúm 18 stig á Eskifírði
NYLIÐINN janúar var hlýrri en í
meðallagi á nokkrum stöðum á land-
inu og snjóléttur. Mestur hiti varð á
Eskifirði, rúmlega 18 stig, og mestur
hiti í Reykjavík 8 stig og á Akureyri
14,2 stig.
Meðalhiti í Reykjavík var 0,7 stig,
sem er 1,2 stigum ofan við 30 ára
meðallag. Er mánuðurinn í 30. sæti
yfir hlýja janúarmánuði frá árinu
1924 en mjög hlýtt var í janúar árin
1991, 1997 og í fyrra. Úrkoma var í
meðallagi og sólskinsstundir með
færra móti. Trausti Jónsson veður-
fræðingur sagði að kalt hefði verið í
Reykjavík kringum þrettándann og
aftur síðustu helgi mánaðarins, en
mánuðurinn annars nokkuð hlýr.
Mestur hiti varð 8 stig í Reykjavík
en kaldast 8,8 stiga frost.
A Akureyri var meðalhitinn einnig
0,7 stig í janúar og er hann sá hlýj-
asti frá 1991 og í 16. sæti frá árinu
1926. Úrkoma var aðeins yfir meðal-
lagi. Trausti sagði að nokkrir hlýir
dagar hefðu mælst á Akureyri en
mestur hiti varð þar 14,2 stig, sá
næstmesti sem mælst hefur í janúar.
Mest frost á Akureyri mældist 11
stig.
A Austurlandi var talsvert um hlý-
indi um miðjan mánuðinn og aftur
kringum 24. janúar. Á sjálfvirkum
mæli á Eskifirði mældist rúmlega 18
stiga hiti og svipaða sögu er að segja
frá Dalatanga og sagði Trausti að
hitabylgja hefði gengið yfir fjórð-
unginn í nokkra daga.
Trausti sagði að almennt hefði
mánuðurinn til dæmis verið snjólétt-
ur, lítið um snjó í fjöllum og sjaldan
snjóflóðahætta.
áby
• Taumagn: 5 kg • Vinduhraði: 1000/600 sn/mín.
• Fuzzy- Logic: SjáHvirkt magnskynjunarkerfi, notar aldrei
meira vatn en jjört er á • Ryöfrfr belgur og tromla.
• ðll þvottakerfi ásamt sérstöku blettakerfi. • Ullarvagga.
• Taumagn: 5 kg • Vinduhraði: 1400/1000/800/600/400 sn/mín,
• Ryðfrfr betgur og tromla. • Fuzzy- Logic: Sjálfvlrkt
magnskynjunarkerfl, notar aldrei meira vatn en þörf er á
• UKS: Jafnar tau í tromlu fyrir vindingu.
> Ullarvagga
Æ Ð U R N I R
Lógmúla 8 • Simi 530 2800 www.ormsson.is
RÖDIOg’ÍÍlÍIS! 5
Geislagðtu 14 • Sfmi 462 1300
UMBOÐSMENN
Vesturland: Hljómsýn, Akranesi. Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrimsson, Grundarfiröi. Asubúð,
i Búðardal. Vestfirðir: Geirseyrarbúðin, Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, (safirði. Pokahomiö, Tálknafiröi. Noröuriand:
IRadionaust, Akureyri. Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauðárkróki. Urð, Raufarhöfn.
Austuriand: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Kf. Vopnafirðinga, Vopnafirði. Kf. Stöðfirðinga. Verslunin Vík, Neskaupstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði.
KASK, Höfn, KASK Djúpavoai. Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Poriákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum.
Klakkur, Vík. Reykjanes: Ljosbogin Keflavík. Rafborg, Grindavík.
Nýtt leiklistarnámskeið fyrir almenning
Forskóla í
leiklist vant-
ar hérlendis
Jón Viðar Jónsson
laugardag klukkan
fimmtán verður
haldinn kynning-
arfundur á nýju leiklistar-
námskeiði sem þau Inga
Bjarnason leikstjóri og
Jón Viðar Jónsson leik-
listarfræðingur standa að.
Fundurinn verður haldinn
í húsnæði nýbúa við
Skeljanes (endastöð leið
5). Jón Viðar var spurður
hvort mikil þörf væri fyrir
svona námskeið.
„Ég held tvímælalaust
að það sé mikil þörf íyrir
námskeið af þessu tagi.
Nú er rétt að taka strax
fram að þótt við tölum um
leiklistarnám og leiklist-
arkennslu þá er leiklistin
sem slík fyrirbæri sem
ekki er hægt að kenna.
Hún byggist hins vegar á
ákveðnum þáttum í mannlegu at-
ferli og mannlegum samskiptum
sem er ekki aðeins hægt að
rækta og hlúa að heldur skipta
miklu máli fyrir þroska og vel-
ferð hvers einstaklings. Við erum
öll eins og leikarar á sviði að því
leyti að við erum sífellt að tjá
hugsanir okkar, tilfinningar og
vilja og til þess verðum við að ná
athygli umhverfis okkar, sann-
færa það um að við höfum eitt-
hvað fram að færa og að við eig-
um rétt á því að hlustað sé á
okkur og teldð tillit til okkar.“
-Hvaða gagn getur fólk haft
af svona námskeiði?
„Ég held að fólk geti haft ým-
islegt gagn af svona námskeiði.
Við ætlum okkur að reyna að
koma til móts við dálítið ólíkar
þarfir, annars vegar þeirra sem
langar til að kynnast eða rifja
upp frumatriði munnlegrar og
leikrænnar tjáningar í von um að
það geti komið þeim að gagni í
starfi og daglegu lífi. En hins
vegar erum við líka að hugsa um
fólk sem hefur í hyggju að leggja
út í alvöru leiklistarnám. Hér á
landi vantar í raun og veru allan
forskóla undir slíkt nám. Tónlist-
arskólar og myndlistarskólar
sem hér eru raunar að komast á
háskólastig taka ekki við fólki
nema það geti sýnt fram á
ákveðna kunnáttu og færni en
hvað varðar leiklistina vantar
mikið á að þetta sé í góðu lagi.
Mér skilst að vísu að ýmsir fram-
haldsskólar bjóði upp á leiklist-
aráfanga en annars eru það aðal-
lega skólaleikir og
áhugamannafélög sem kenna
mönnum undirstöðuatriði á
þessu sviði. Ég efast ekki um að
menn geta lært margt nytsam-
legt á þeim vettvangi en þó því
aðeins að það sé kunnáttufólk
með góða uppalendahæfileika
sem heldur um taumana."
- Hvað verður kennt á nám-
skeiðinu ykkar?
„Kennslan verður
aðallega fjórþætt, í
fyrsta lagi verður
kennd framsögn og
munnlegur flutningur
með hjálp verklegra æfinga. Þar
verða fyrst og fremst notaðir
ljóðatextar enda er ljóðaflutning-
ur afskaplega góður skóli fyrir
verðandi leikara. Hann kennir
mönnum einmitt þetta, sem er
svo nauðsynlegt, að ná tangar-
haldi á athygli hlustenda og
halda henni meðan á flutningi
stendur. Jafnframt venur hann
menn við að umgangast listræna
► Jón Viðar Jónsson fæddist 7.
júlí 1955 í Reykjavík. Hann lauk
stúdentsprófi 1975 frá Mennta-
skólanum í Reykjavík og
fíl.kand-prófi í leiklistarfræði,
sagnfræði og heimspeki frá
Stokkhóimsháskóla 1978, fil.lic-
prófi í leiklistarfræði lauk hann
1993 og doktorsprófi frá sömu
stofnun lauk hann 1996. Jón Við-
ar var leiklistarstjóri Ríkisút-
varpsins frá 1982 til 1991, eftir
það hefur hann aðallega unnið að
fræðiútgáfustörfum. Hann hefur
starfað um árabil sem leiklistar-
gagnrýnandi, einkum hjá Ríkis-
útvarpi og Sjónvarpi.
texta, gefa gaum að öllum blæbr-
igðum hans og miðla þeim til
áhorfenda. í öðru lagi er ætlunin
að kenna leikritalestur, skoða
helstu einkenni dramatískra
bókmennta og fara yfir helstu
hugtökin sem eru notuð við
greiningu þeirra. í þriðja lagi
verður fremur stutt almenn
kynning á leiklistarsögu og leikl-
istarfræði. í fjórða lagi verða æfð
leikatriði eftir því sem hugur og
geta þátttakenda standa til.“
- Hvernig stendur á því að
skólakerfið hefur ekki lagt meiri
rækt við kennslu í leikrænni
tjáningu en raun ber vitni?
„Skýringar eru sjálfsagt ýms-
ar en mér hefur stundum dottið í
hug að ein meginskýringin sé sú
hversu pólitísk menning okkar
var frumstæð um langan aldur
og stórir þjóðfélagshópar útilok-
aðir frá þátttöku í stjórnmála-
starfi. Þetta var auðvitað allt
öðruvísi á þjóðveldistímanum,
hið forna Alþingi var auðsjáan-
lega mjög góður skóli í fram-
komu og munnlegri tjáningu því
þar þurftu menn vitanlega að
geta flutt mál sitt. Þetta breytt-
ist svo þegar hið pólitíska vald
fluttist úr landinu á seinni hluta
miðalda. Þegar maður
hugsar út í það er aug-
ljóst að þetta átti sinn
þátt í því að hér voru
það ekki bara lærðir
klerkar sem kunnu að
koma fram, tala til áheyrenda og
segja frá, heldur einnig leikmenn
sem hafa þá væntanlega skrifað
okkar fornu bókmenntir. Á milli
leikrænnar tjáningar og opin-
berrar stjórnmálaþátttöku hafa
alla tíð verið náin tengsl, allt frá
dögum Forn-Grikkja og Róm-
verja sem stunduðu mælskulist-
ina sem hefðbundna náms- og
vísindagrein."
Ljóðaflutning-
ur afskaplega
góður skóli