Morgunblaðið - 03.02.2000, Síða 18

Morgunblaðið - 03.02.2000, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2000 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Ingimundur Flestir þátttakendur á námskeiðinu hjá Unni Halldórsdóttur. Að læra vísu list er góð Borgarnesi - Símenntunarmiðstöð Vesturlands efndi fyrir skömmu til námskeiðs í vísnagerð er nefndist; „Að setja saman vísur“. Leiðbein- andi var Unnur Halldórsdóttir í Borgamesi. Á námskeiðinu lærðu þátttakend- ur að setja rétt saman visur, frædd- ust um hina ýmsu bragarhætti og margt annað er viðkemur vísnagerð. Allir nemendur ortu vísur á nám- skeiðinu og varð afreksturinn mjög fjölbreytilegur. Hér á eftir fara sýn- ishorn af ljóðagerð þátttakenda á námskeiðinu. Philippe Reichard var einn nem- enda. Hann er fæddur í Frakklandi en hefur búið á íslandi um tvo ára- tugi. Vísa hans sýnir hve góðum tök- um hann hefur náð á íslenskunni. Hulin snæ er freðin fold, farinsuðurlóan. Kári bítur, herðir hold, hesturábeitviðflóann. Gunnar Gauti Gunnarsson var nýráðinn héraðsdýralæknir og fékk þessa vísu frá einum á námskeiðinu. Gunnar vanar folafjöld, fumlaus gilda handtök stinn. Hugsar sér að hafa völd, héraðsdýralæknirinn. Ein hestakonan í hópnum fékk þessa vísu. Lilja Ósk, ég leit á þig leggja á jó með prýði. Hestarætíðheillamig hratt þó ekki ríði. Einn nemenda setti saman vísur um þátttakendur og kennara. Við uppfinningar Filip fæst, fáka Lilja temur. Hjá Gauta róast geitin æst, Grétavísursemur. Imba i körfu er sæt og sæl Sigurbjörg ostinn býður. Verkalýðs-Begga er vön í ræl. vökru Magnús ríður. Unnur gjaman yrkir ljóð Ingi sjaldan þegir. Aðlæravísulistergóð, þó litla stund þú eigir. Morgunblaðið/Sigurgeir Sameining bj örgunar sveita í Hrunamannahreppi Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Stjóm Björgunarfélagsins Eyvindar. Frá vinstri: Steingrímur Jónsson, formaður, Pálmar Þorgeirsson, Jón Matthías Helgason, Ölver Karl Em- ilsson og Bjöm Kjartansson. Hrunamannahreppi - Hjálparsveitin Snækollur og Björgunarsveitin Fannar sem starfað hafa hér í Hruna- mannahreppi frá árunum 1983 og 1984 hafa nú verið lagðar niður og sameinast í eina. Nýtt félag hefur verið stofnað sem ber heitið Björgun- arfélagið Eyvindur. Efnt var til samkeppni um nafn á þessu nýja félagi og nafnið valið til að minna á einn kunnasta útilegumann íslandssögunnar, Fjalla-Eyvind, sem fæddur var hér í sveitinni. I hinni nýju björgunarsveit eru 30- 40 félagsmenn, þar af 10 sem eru mjög virkir. Þeir hafa hlotið þjálfun og kunna helstu atriði í almennum björgunarstörfum og eru jafnan í við- bragðsstöðu. Björgunarsveitin er all- vel tækjum búin miðað við félaga- fjölda, hún á einn snjóbfl, þijá vél- sleða og björgunarkerru auk Landrovers sem er sérbúinn sem fjallabfll. Þá á sveitin von á nýjum fjórhjóladrifnum Econoline sem verð- ur með öflugum búnaði m.a. tfl fjalla- ferða og tekur hann 15 manns, hægt er að koma sjúkrabörum að auki. Að sögn Steingríms Jónssonar á Fossi, formanns björgunarsveitar- innar, verður reynt að stunda æfingar reglulega m.a. með öðrum björgunar- sveitum. Næsta stóræíing verður í Reykjavík með öllum björgunarsveit- um í Reykjavík og nágrenni. Steingrímur tjáði fréttaritara að útköll hefðu verið tvisvar til þrisvar að jafnaði á ári en sem betur fer aftur- kölluð. Hefðu félagar í Fannari og Snækolli farið til leitar frá Hornafirði að Hellisheiði og einnig inn á hálend- ið. Vonandi þyrfti ekki að nota þau góðu tæki sem björgunarsveitin ætti nema til æíínga. Þá sagði Steingrímur að stefnt væri að því að þjálfa unglinga til að byggja upp sveitina í framtíðinni. Einnig vildi hann sjá konur koma inn í sveitina, þær væru ekki síðri en karl- menn í björgunai’störfum. Hinn ný- kjömi formaður vildi koma á fram- færi þakklæti fyrir allan góðan stuðning sem björgunarsveitin hefði fengið frá eldri félagsmönnum, ein- staklingum og fyrirtækjum. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Forkaupsréttarbáturinn á fsafírði Fundvís seldur á 108 milljónir Sandstorm- ur fylgdi góðviðrinu Vaðbrekku, Jökuldal- Góðviðrinu í upphafi þorra og vestanáttinni, sem varsamfara því, fylgdu ýmsir fylgi- kvillar svo sem hvassviðri og sand- fok. Eins og sést á þessari mynd, hama hestamir á Eiríksstöðum sig undir austurstafni hesthússins og bíða af sér veðrið. I baksýn sést inn Jökuldaiinn þar sem sést í kolsvar- tan sandbakkann sem er fylgifiskur þess þegar jörð auðnast. Efsta lag moldarflaganna þiðnar og vestan- garrinn sér um að feykja þeirri mold er losnar, yfir búandlið og bú- fénað sem langar að spóka sig í góðviðrinu. BÆJARÉÁÐ ísafjarðar samþykkti í vikunni að ganga að 108 milljóna kr. tilboði Pálma Stefánssonar skip- stjóra, Móholti 2 á ísafirði, í Fundvís ÍS 881 ásamt meðfylgjandi kvóta. Eins og greint var frá í blaðinu í gær neytti ísafjarðarbær forkaups- réttar að bátnum og gekk inn í kaup- samning upp á 99 milljónir króna. Tilgangurinn var að endurselja bát og kvóta innan bæjarfélagsins. Ákvörðun bæjarins um að neyta forkaupsréttar var kærð til sjávar- útvegsráðuneytis, en þeirri kæru var vísað frá, og til Héraðsdóms Vest- fjarða, þar sem úrskurður féll Isa- fjarðarbæ í vil. Þegar ísafjarðarbær auglýsti bátinn til sölu bárust fjögur tilboð. Útgerðarfélagið Mímir ehf. í Hnífsdal bauð kr. 99.300.000, Amar Kristinsson á ísafirði kr. 99.500.000 og Kristján Andri Guðjónsson á Isa- firði bauð kr. 103.000.000. Pálmi Ste- fánsson átti síhæsta tilboðið, kr. 108.000.000, níu milljónum hærra en kaupverð Isafjarðarbæjarvar. Veðurathugunar- maður í sextíu ár Golfhermir í Eyjum Vestmannaeyjum - Golfklúbbi Vest- mannaeyja var á þriðjudag afhentur golfhermir til afnota. Stuðningsaðilar klúbbsins keyptu herminn, sem kost- aði um 3,5 mifljónir upp kominn. Guð- jón Hjörleifsson bæjarstjóri, sem fór fyrir hópi bakhjarla klúbbsins við fjármögnun kaupanna, flutti ávarp og afhenti svo Gunnari Gunnarssyni, formanni Golfkiúbbsins, herminn. Guðjón sagðist vona að golfhermir- inn yrði til að auka breiddina í starfi klúbbsins og auka tekjur Golfklúbbs- ins því nú yrði sannarlega hægt að stunda golf alla daga ársins í Eyjum, hvemig sem viðraði. Að lokinni afhendingunni sló Jak- obína Guðlaugsdóttir, einn fremsti golfari Eyjanna í áratugi, fyrsta höggið í herminum og tók hann þann- ig formlega í notkun. Laxamýri - Sextíu ár eru liðin síð- an Friðjón Guðmundsson bóndi á Sandi í Aðaldal tók að sér veður- athuganir fyrir Veðurstofu ís- lands og hefur enginn annar núl- ifandi Islendingur stundað veðurathuganir svo lengi. Það var 1. janúar 1940 sem Friðjón tók alfarið við veður- athugunum á Sandi, en þær hóf- ust 1932 og hafði Friðjón þá oft gripið inn í fyrir bróður sinn Heiðrek Guðmundsson sem hafði annast þær frá byrjun. Friðjón hefur Iítið brugðið sér af bæ frá því að hann hóf störf, fyrir utan veturinn 1946-1947, er mágur hans Njáll Friðbjarnarson stundaði veðurathuganir á Sandi í fjarveru Friðjóns. Kaldasta árið á sextíu ára starfsferli Friðjóns var árið 1979, en þá var meðalhiti á Sandi 0,4 gráður. Þetta var kaldasta ár á landinu siðan 1892 og var meðal- hitinn í mai' -1,6 gráður. Fkki er vitað um svo kaldan maímánuð á íslandi allt frá árinu 1846. Frá því að mælingar hófust á Sandi var hlýjast 1933, en þá var meðalhiti ársins 4,7 gráður og besta vor, sumar og haust voru 1939. Þá fór að vora í Þingeyjar- sýslu f lok mars og fyrstu snjóar komu ekki fyrr en 9. nóvember. Allt það ár var samfelld blíða að Morgunblaðið/Atli Vigfússon Friðjón Guðmundsson, bóndi og veðurathugunarmaður á Sandi í Aðaldal, mati Friðjóns. Hlýjasti mánuður sem Friðjón man eftir var í júlí 1955, en þá var meðalhitinn 13,1 gráða og mesti hiti sem mælst hefur á Sandi er 27,2 gráður en það var 28. ágúst 1947. Kaldasti mánuður var í mars 1979 en þá var meðalhiti -8,2 gráður og minnsti hiti sem mælst hefur á Sandi var -27,3 gráður í mars 1969. Athugar veðrið þrisvar á dag Friðjón er hress í bragði og enn athugar hann veðrið þrisvar á dag og sendir skýrslu mánaðar- lega til Veðurstofu fslands. Hann segir breytingar í seinni tíð á Iestri veðurfregna ekki til bóta og framsetning þeirra sé óreglu- leg. Þá saknar hann þess að ekki sé lengur lesið veður frá veður- stöðvum á Grænlandi og Jan Mayen.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.