Morgunblaðið - 03.02.2000, Page 30

Morgunblaðið - 03.02.2000, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Lesið í málverk REYKJA- VÍKURHÖFN Gísli Jónsson MÁLARALISTIN er undarlegt fyr- irbæri, sem í þeim mæli vill gagii- taka iðkendur sína að sumir líta ekki glaðan dag hafi þeir ekki eitt- hvað sýslað við pentskúfinn, riss- blýið eða á annan hátt minnst við og komist i námunda við hin úvægu lifsmögn. Það er sköpunar- nautnin sem altekur þá á þann veg, að líkja má við örvunar og óminnisáhrif vímuefna, hafa þó einungis holl fráhvarfseinkenni. Ekki undarlegt að slikum skuli umhugað um næði og sé svo illa við ákík og áhorf hvers konar, að margar meinlega skondnar sögur fara af því, er þó ekki um sérvisku og einangrunaráráttu að ræða þar sem þeir geta verið allra mann- blendnastir, hrókar alls fagnaðar í fjölmenni. Helst eru þeir eins og fólk er flest, þótt til hins ýtrasta reyni á þol geðbrigða í ýmsum til- vikum, einkum fyrir framan mál- aratrönurnar sem marka vé þeirra lífhelgi alsýni og himnatjöld; rauð, blá, græn og gul. Sköpunarferlið krefst einfaldlega allrar einbeitni viðkomandi, hugnist honum að þrengja sér inn að innstu kviku og dýpstu lífæðum myndflatarins. Nú um stundir, í heimi tilbúinna gerviþarfa og áreiti á öllum svið- um eru slík álög fátíðari, sýndar- mennskan og markaðssetningin í algleymi. Vilja myndverkin gjarn- an grípa hinn opna skoðanda föst- um tökum, og birtast líkust sjálf- sprottnum hófsömum undrum á veggjum sýninga. Viðkomandi spyr þá síður um stílbrögð hug- myndafræði kunnáttu og færni, öllu fremur un'drast hann kraftbir- tinginn og blíðan tjákraftinn að baki. Einnig verður honum með forundran hugsað til þess hve vits- munarlegt mat á hlutina hefur reynst fallvalt alla liðna öld þegar málaralistin er annars vegar, gild- ismatið margþvælt og afstætt. Þó nálgast slíkir þesslags myndir frá allt annari hlið en sá er leitar ein- ungsis staðfestingu sjónreynslu sinnar/ og eða menntunar, - hins raunsæja og hlutvakta innihalds. Öllu frekar er það hin óskil- greinda tilfínning sem myndverkið framkallar, er kveikir á kertinu. Um miðbik siðustu aldar hefði þannig þótt með öllu óhugsandi að tannburstar og glimmerfígúrur í hundrað og þúsundfaldri stækkun teldust listaverk og enn fráleitara, að grafíkmyndir af Mikka mús í yfirstærð yrðu slegnar á metfé á uppboðum í lok hennar. Listamað- urinn er orðinn hluti afþreyingar- iðnaðarins, gegnir hlutverki hirð- Reykjavíkurhöfn, olía, 40x80 cm, ekkert ártal. fíflsins og er tilefni andlausra rökræðna, eins og Ernst Gombrich orðar það. Málverkið, Reykjavíkurhöfn, eft- ir Gísla Jónsson frá Búrfellskoti (1878-1944), er ein þeirra mynda er stöðugt sækir á við endurtekna skoðun sýningarinnar í Listasafni Kópavogs, sem lýkur 13. febrúar Gísli er frábært dæmi um mann sem lifði fyrir köllun sína við erfið kjör, en hann notaði ungur hveija hjástund til að draga til myndar eins og segir í listasögu Björns Th. Björnssonar. Þar stendur meðal annars einnig; að tvítugur hafi Gísli ráðist sem ráðsmaður að EIl- iðavatni en seinna flutti hann að Mosfelli á Gnmsnesi, þar sem hann bjó um skeið við gott atlæti og nokkurt ráðrúm til að sinna hugðarefnum sfnum. Eftir að hafa unnið ígripavinnu víða um landið samfara því að sinna hugðarefni sínu, fluttist hann til Reykjavíkur og tók þá ákvörðun að helga sig PÓST- OG FJARSKIFIASTOFNUN UMSÓKNIRUM REKSTRARLEYFI Póst og fjarskiptastofnun auglýsir eftir umsóknum um rleyfi til að starfrækja -1800 farsímanet og þjónustu samkvæmt GSM staðli. Tilboðsgögn verða afhent á skrifstofu stofnunarinnar, Smiðjuvegi 68-70 í Kópavogi, gegn skilatryggingu að upphæð 10.000 kr. Skrifstofan er opin daglega fVá kl. 8.30 til 16.30. Frestur til að leggja inn umsóknir er til 28. febrúar 2000 alfarið myndlist og bjó lengst að Bergi við Langholtsveg. Fórnaði öllu fyrir það sem hugur hans stóð til, að gerast málari, því engin fá- tækt gat orðið þessum manni verri en afneitun þess. Hann var að mestu sjálfmenntaður en naut þó veturlangt tilsagnar Einars Jóns- sonar málara frá Fossi í Mýrdal, bróður Eldeyjar-Hjalta, sá var menntaður í Kaupmannahöfn og var þar samtiða alnafna sínum myndhöggvaranum frá Galtafelli fyrir aldamótin 1900... Miðað við hina Iitlu skólun var hér á ferð mikili hæfileikamaður, og Kjarval, sem sá til hans þá ung- ur drengur, sagði hann hafa málað allt milli himins og jarðar í fritfma sfnum, „mun hafa verið fyrsti fút- úristum sem ég sá, - seinna kynnt- ist ég mörgum og öðruvísi í út- löndum. Málaði sumar myndir sfnar í skærum litum í annarlegum stíl, eitthvað svipað Sölva Helga- syni, en stórgerðari og einfaldari, stfllinn vafningar og sving og krúsidúllur, - þá vildi hann hafa miklu meira af landslagi í mynd- um sínum en aðrir málarar“ Var trúlega til að þóknast kaupendum, sem fengu þá meira af landinu fyr- ir peningana. Því fer íjarri, að myndin af Reykjarvíkurhöfn sé sé glæsilega máluð, sé hún borin saman við ým- is málverk Ásgríms, Jóns Stefáns- sonar og Kjarvals af lfkum við- fangsefnum, og þó eru í því ýmsir vænir taktar, þannig er mynd- byggingin í merkilega góðu jafn- vægi, næstum hárffnu, og undir- strikar stillur sumardagsins úti með sundum. Einnig er myndin mikið til iaus við þann sætlcika sem einkenndi margar myndir Gísla, en mun meira í henni af þeirri einlægu og nævu fegurðar- tilfinningu sem var kennimark listamannsins. Aðal myndarinnar er þó sannverðugleiki hennar og hvernig þessi löngu horfni dagur heiðblámans þrengir sér á vit skoðandans, og hvað hún segir honum mikið um tfðarandann. Ekki hefði ég með nokkru móti getað fallist á sumt af ofan- greindu, þá ég var ung Iistspfra og dagskipan framsækinna núlista var höfnun hins hlutlæga og niður- rif borgaralegra gilda. Myndefnið úr full nálægri og óeftirsóknar- verðri fortíð fátæktar og harðræð- is, ásamt því að umskipti til vel- megunar á nýliðnum árum voru yfirþyrmandi á alla vegu. Heimur- inn allt annars eðlis en nú gerist, Qarlægðirnar stórum meiri og gildin með þeim ólfkindum önnur, að ungir í dag geta báglega sett sig í spor okkar. En þótt hæga- gangurinn hafi verið stórum meiri, má er svo er komið lengi velta því fyrir sér, hvort lífið hafi ekki líka verið einhvers virði fyrir svo margt löngu, þá Gísla Jónssyni auðnaðist hávaðalaust að skjal- festa þessa sýn hvunndagsins, blátt áfram og tilgerðarlaust. Mik- ið væri heimurinn fátækari ef slík- ir hefðu ekki verið til, einstakling- ar er vildu hvað sem það kostaði, skila sjónlifunum sfnum til fram- tíðarinnar. Og fyrir þörf sína til að minnast við áskapaða sköpunar- gáfu, gáfu mest lítið fyrir efnalega hamingju fullnægðu þeir henni. Framlag þeirra - til hliðar við hina - skal ekki vanmetið, því þeir eru einn og alveg sérstakur hlekk- ur íslenzkrar þóðmenningar sem skilyrðislaust ber að halda fram. Bragi Ásgeirsson Vopn með nýtt hlutverk DRENGURINN á myndinni horfir áhugasamur á skúlptúra í sýningar- skápum Rauða krossins í Woluwe- verslunarmiðstöðinni í Brussell. Skúlptúrarnir eru verk mai-gra mósambískra listamanna, en verkin eiga það sameiginlegt að vera búin til úr byssuhlutum. „Byssur til góða“ eru verkefni mósambískra samtaka sem hafa það hlutverk að gefa íbúum Mósambíu verkfæri þegar þeir skila inn til þeirra vopn- um. Skúlptúrarnir voru keyptir í Mósambík og eru nú í láni hjá belg- íska Rauða krossinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.