Morgunblaðið - 03.02.2000, Page 68
/J68 FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Fimm ár frá hvarfi
gítarleikarans
NÁKVÆMLEGA fimm ár eru liðin
frá hvarfi Richey Edwards, sem var
gítarleikari hljómsveitarinnar
Manic Street Preachers, en málið er
enn opið að sögn lögreglu. Edwards
sást síðast á hóteli í London árið
1995 og enn er óvíst hvort hann er
lífs eða liðinn.
Eina v/sbendingin sem fengist
hefur í máli hans er yfirgefínn bíll
sem fannst áþekktum sjálfsmorðs-
stað á þjóðvegi einum og breskt
vegabréf sem fannst í íbúð hans.
Einnig er hvarf hans talið tengjast
því að hann vildi ekki fara til Banda-
ríkjanna í fyrirhugaða tónleikaferð,
aðþví er hann sagði móður sinni.
I tilefni af því að fimm ár eru liðin
frá hvarfi Edwards hvatti tónlistar-
blaðið Melody Makcr lesendur sína
til að senda inn myndir og minning-
ar um hann. „Edwards er mikil
stjarna í huga margra og hafði gríð-
arleg áhrif á aðdáendur sína á 10.
áratugnum," segir Ian Watson sem
starfar hjá blaðinu. „Hann höfðaði á
margan hátt. til fólks og var ófeim-
inn við að lýsa því hvernig væri að
glíma við sjálfseyðingarhvöt og
þjást af lystarstoli. Margir aðdáend-
Richey Edwards hvarf fyrir
fimm árum.
ur tóku eftir því og skildu hvað
hann var að fara.“
Hljómsveitin minnist hvarfs
Edwards einnig og talaði Nicky
Wire um Iíðan sína skömmu eftir
hvarfið í nýlegri heimildarmynd. „I
nokkra mánuði kipptist ég við í
hvert skipti sem síminn hringdi og í
hvert sinn sem bankað var á hurð-
ina. Allt lífið, hvert smáatriði, sner-
ist um hvarf hans.“
Nokkrum sinnum á undanförnum
árum hafa borist tilkynningar til
fjölmiðla frá fólki sem hélt sig sjá
Edwards og var meðal annars talið
að hann dveldi á Kanaríeyjum, en
svo reyndist ekki vera.
En fjölskylda hans telur að hann
hafi flúið land og freistað þess að
heíja nýtt líf. Nicky Wire segir:
„Hvað svo sem gerðist, vai’ það lík-
legast hans eigin ákvörðun. Ef ég
hefði vitað að hann var í slæmu jafn-
vægi andlega liði mér illa núna. En
ég reyni að hugsa á þann veg að
hann hafi ákveðið sín eigin örlög og
þá líður mér ögn betur.“
MYNDBOND
Dulin fortíð
GLEYM MÉR El
(A Memory In My Hcurt)
SÁLFRÆÐIDItAMA
k'h
Leikstjóri: Harry Winter. Handrit:
Lindsay Harrison og Renee Longst-
reet. Aðalhlutverk: Jane Seymour,
Bruce Davidson og David Keith. (92
mín) Bandaríkin. Skífan, janúar
2000. Bönnuð innan 12 ára.
BRESKA leikkonan Jane Sey-
mour á að baki langan feril í sjón-
varpsbransanum en þekktust er hún
fyrir hlutverk sitt sem Dr. Quinn í
samnefndum þáttum. Hér leikur
hún konu sem þjáist af minnisleysi
eftir dularfullt áfall. Hún giftist góð-
um manni en þegar þau reyna að
eignast barn, taka óljósar minning-
ar um fytra líf að
sækja á hana.
Þetta er dæmigerð
sjónvarpsmynd,
sem er hvorki góð
né slæm sem slík
en nýtur góðs af
því að hafa sóma-
samlega leikkonu í
aðalhlutverkinu.
Líkt og svo margar
sjónvarpsmyndir vekur hún forvitni
áhorfandans með dularfullri fléttu,
af sálfræðilegum toga, sem smám
saman leysist úr í atburðanna rás.
Myndin gerir því lítið annað en að
halda í athygli áhorfandans meðan
leyndardómurinn er leiddur til lykta
en lengra nær hún ekki.
Heiða Jóhannsdóttir
---------------
Slæm hug-
mynd
GLYSBORGIN
(Tinseltown)
GAMAIVM YIVD
★
Leikstjóri: Toni Spiridakis. Hand-
rit: Shem Bitterman. Aðalhlutverk:
Arye Gross, Joe Pantoliano og Ron
Perlman. (90 mín) Bandaríkin. Skíf-
an, janúar 2000. Bönnuð innan 16
ára.
í GLYSBORGINNI Hollywood
eru góðar hugmyndir gulls ígildi.
Ef allt um þrýtur má hins vegar
alltaf bregða á það ráð að gera
kvikmynd um kvikmyndagerðar-
fólk sem vinnur lélega kvikmynd
úr lélegri hugmynd. Það er sem
sagt efniviður Glysborgarinnar, en
hún fjallar um tvo félaga, þá Tiger
og Max, sem vilja
slá í gegn í Holly-
wood en hafa enga
hæfileika.
Þeir ákveða því
að gera kvikmynd
um líf og störf
fjöldamorðingja
sem þeir stóðu að
verki í nágrenninu
og blása með því
nýju lífi í hið ofnotaða fjöldamorð-
ingjaþema. Þótt þessi hugmynd
verði þeim Tiger og Max til fram-
dráttar, verður það sama ekki sagt
um leikstjóra Glysborgarinnar,
Toni Spiridakis. Hann er augljós-
lega að reyna að snúa útúr fjölda-
morðingjaþemanu sjálfur, með til-
burðum til sjálfsvísunar og
dágóðum skammti af svörtum
húmor. En handritið er bara alltof
lélegt, leikurinn leiðinlegur og
húmorinn misheppnaður. Þetta er
sem sagt ekkert góð hugmynd eft-
ir allt saman og er ekki mælt með
kvikmyndinni sem slíkri.
Útsala
Aukið úrval - Aukinn afsláttur
20%
Útivistarfatnaður
Barnafatnaður
Æfingafatnaður
Fleecefatnaður
til
Æfinga-og útivistarskór
Sundbolir
Bolir
85%
afsláttur
.k'
á h
Opið í dag
til kl.22
Bmmmmís convert
4^Columbia ™ ■ ■ ■
Sportswear Company*
fO
+->
>
‘P
<$■
RUSSELL
HREYSTI
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
— Skeiíúnni 19 - S. 568 1717-
Heiða Jóhannsdóttir