Morgunblaðið - 03.02.2000, Page 70

Morgunblaðið - 03.02.2000, Page 70
J70 FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FOLKI FRETTUM Agif ► á uppleið á niðurleið *► stendur í stað V nýttáiista Vikan 03.02. - 09.02. *► 1. Dolphins Cry Live 2. Other side Red Hot Chili Peppers ^ 3. Okkar nótt Sálin hans Jóns míns ▼ 4. Sex Bomb Tom Jones 5. Bad Touch Bloodhound Gang 6. Crushed Limp Bizkit «► 7. Hann Védís H. Árnad i 8. I Learned From the Best Whítney Houston i 9. Starálfur Sigur Rós i 10. The Great Beyond R.E.M. í| 11. Born to make you happy Brítney Spears i 12. Falling Away From Me Korn 13. Sexxlaws Beck i 14. What a girl wants Cristina Aguilera Í 15. Vínrauðvín Ensími i 16. Whatlam Tin Tin Out & Emma B. t|r 17. Breakout Foo Fighters 18. Dusted Leftfield i 15. Mixed Biznez Beck Í 20. Solong Everlast Listinn er óformleg vinsældakönnun og byggist á vali gesta mbl.is. TE3PP 20 0 mbl.is _ SKJÁR binn i Frumsýning Nemendafélags Verslunarskólans á Thriller í kvöld Morgunblaðið/Þorkell Það er mikið um dansa í sýningunni en danshöfundar eru Guðfínna Björnsdóttir og fris María Stefánsdóttir. Jackson kominn í Versló Það er söngur, dans og gleði 1 Loftkastalan- um enda hafa þeir félagar Gunnar Helgason og Michael Jackson loksins tekið saman höndum. Skarphéðinn Guðmundsson lædd- ist inn á fjöruga æfíngu. THRILLER er gamanleikur með söngvum og dönsum byggður á lögum Michaels Jacksons," segir höfundur sýningarinnar og leikstjóri, Gunnar Helgason, spurður um þessa nýju uppfærslu. „Þegar við krakkamir fórum að velta fyrir okkur hvað hægt yrði að setja upp varpaði ég þessari hug- mynd fram því ég hef verið dyggur unnandi goðsins allt síðan ég heyrði metsöluplötuna Thriller í fyrsta sinn og þau gripu hana á lofti,“ bætir hann við. Thriller er þannig í raun nýr frumsaminn íslenskur gamansöng- leikur. Ástfangin á Jackson-kvöldi Sögusviðið er skemmtistaðurinn „Ertu í ffling?" þar sem ungt fólk er saman komið til þess að skemmta sér á kvöldstund sem helguð er konungi poppsins Michael Jackson. í stuttu máli er kastljósinu beint að ungu ást- föngnu pari sem erfitt á með að ná saman því margar hindranir eru i veginum. „Þegar búið var að ákveða lagavalið reyndi ég hvað ég gat til þess að setja lögin í samhengi og skrifaði handritið út frá titlum þeirra og innihaldi. Þannig fléttast lög Jaeksons inn í íramvinduna og styðja hana,“ útskýr- ir Gunnar. „Boðskapur sýningarinn- ar, sem er mikill, er því t.a.m. að mestu frá mér kominn.“ ABéSé og Hryllir Lagavalið er þverskurður af ferli Jacksons, allt írá fyrstu skrefum hans með bræðrum sínum til nýjustu lag- anna. Hallgrímur Helgason, lista- maður og bróðir Gunnars, smíðaði þeim íslenska texta sem þjóna fyrst og fremst söguframvindunni. Eftir meðhöndlun hans hefur gamli Jack- son 5-slagarinn ,ABC“ því fengið ís- lenska titilinn „ABéSé“, hið ljúfsára „Ben“ heitir „Hann“ og sjálft titlillag- ið „Thriller" er „Hryllir“. Gunnar seg- ir að á endanum hafi hópurinn komist niður á gott jafnvægi milli gamalla og nýrri laga poppkonungsins, en vissu- lega hafi þeir Jón Ólafsson tónlistar- stjóri fremur haOast að eldri lögunum og krakkamir að þeim yngri. Jón tekur undir þetta og segist hrifnastur af Motown-tímabilinu; „þegar hann var undrabam og ennþá að fást við hreinræktaða sálartónlist". Gunnar segir það þó hafa komið sér á óvart hversu vel krakkamir þekkja og finna samsvörun með hinum gömlu góðu lögum kóngsins. Jón seg- ir þetta verkefni hafa verið æði marg- slungið, ekki hafi t.a.m. verið auðvelt að finna söngvara sem farið gætu í föt Jacksons sem syngi afar hátt uppi: „Gunnari tókst hins vegar svo ótrú- lega vel upp í að flétta saman sög- uþráðinn og lögin, sem þar að auki Védís Hervör Árnadóttir leikur hina saklausu Möggu. era öll á íslensku, að samanburðurinn við Jackson varð á endanum nánast að engu, sem gerði mér mun auðveld- ara um vik að útsetja sönginn." Óvenju heilsteypt sýning Jón hefur tekið þátt í æði mörgum uppfærslum nemenda Verzlunarskól- ans og hann telur þessa sýningu án efa með þeim allra bestu: „Það er mun meira kjöt á beinunum en oft áð- ur. Hugmyndin er snjöU og sýningin í heUd bæði fyndin og heUsteypt." Þrátt fyrir einvalaUð atvinnulista- manna sem taka þátt í sýningunni þá em það fyrst og síðast nemendur Verzlunarskólans sem em í aðalhlut- verkum, jafnt innan sviðs sem utan. Gunnar segir það ótrúlegt hversu hæfileikaríkir hinir imgu þátttakend- ur í sýningunni reyndust og er afar þakklátur fyrir að hafa fengið tæki- færi til þess að vinna með þeim. Að- standendur sýningarinnar úr nem- endamótsnefnd segjast afar ánægðir með útkomuna og vona að sýningin hljóti þá athygh sem hún eigi skUið. Mestu máli skipti þó að sjálfum nem- endum skólans sé skemmt á nem- endamótssýningunni, en tU þess sé leikurinn fyrst og fremst gerður. Kalk fyrir beinin! Apótaki* Smératcf fli • Apótckp Spönginní Apóteki. Kringlunni * ApótekL Srr'-i*iuvefií Apóteki* Su»ufslrbiuJ • Apótokú l>ufelíi Apóteki) Hagkeup Skeifunni Apótek-' Hftgkaup Akureyn Hafnarfjanar Apótc-k Apoteki) Ntkaupufn Mosfeilcó* ...það skiptir engu máli... hve oft þú skoðar málid. Pú kemst ekki framhjá stadreyndum... ua+ Ef þú ert a uinnumarkadinum ogertaðhugaað endurmenntun. Þá eru mikil afköst við lestur nauðsynleg undirstaða til að ná árangri á öllum öðrum námskeiðum. Ef þú ert i námi og vilt ná frábærum árangri, þá eru mikil afköst við lestur nauðsynleg undirstaða. Byrjadu á undirstöðunni! Margfaldaðu lestrarhraðann. Lestrarhraði þátttakenda fjórfaldast að jafnaði. Næsta námskeið hefst 10. febrúar. Við ábyrgjumst að þú nærð árangrí! Skráning er í síma 565 9500 I IRAÐLESTRARSKOLINN liup://l)raUlcMnirskolimi.i>mcnm.is/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.