Morgunblaðið - 03.02.2000, Blaðsíða 76
''wíM
Traustar
elgo; íslenska
|E3|
I K71
murvoru
Síðan 1J972 j*
j Leitið tilbaða! ■ I steinpi
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVÍK, SÍMl5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA S691122, NETFANG: RITSTJ(SMBL.IS, AKUREYRI: KA UPANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Guðrún Þorkelsdóttir SU fær loðnu úr trolli Beitis NK á loðnumiðunum fyrir skömmu.
Víkingalottó
Fyrsti vinn-
ingur stefn-
ir í um 400
milljónir
ÞREFALDUR fyrsti vinningur í
Víkingalottói gekk ekki út í gær-
kvöldi og verður vinningurinn því
fjórfaldur þegar dregið verður næst-
komandi miðvikudagskvöld.
Bergsveinn Sampsted, fram-
kvæmdastjóri íslenskrar getspár,
segir að þetta sé í annað sinn í sögu
Víkingalottós sem fyrsti vinningur
er fjórfaldur. Síðast gerðist það 20.
apríl 1994. Þá var fyrsti vinningur
395.458.040 krónur og skiptist milli
tíu vinningshafa. Þar í hópi var einn
Islendingur, sem fékk 39,5 milljónir
króna.
Bergsveinn segir að fyrsti vinn-
ingur stefni í að verða á bilinu 380-
410 milljónir króna. Þetta verður því
hæsti vinningur sem íslendingar
hafa haft tækifæri til að spila um.
Líkur til að hreppa fyrsta vinning í
Víkingalottói er um 1 á móti 12 millj-
ónum.
Einn bónusvinningur kom í hlut
Islendings í gærkvöldi og var vinn-
ingsmiðinn keyptur í söluturninum
London í Austurstræti. Vinningshaf-
inn fékk 1,1 milljón kr. í sinn hlut.
Beðið eftir loðnugöngu
FREMUR lítið var um að vera á
loðnumiðunum í gær en veður hefur
að mestu hamlað nótaveiðum und-
anfama daga. Loðnuskip sem veiða
í flottroll hafa hins vegar fengið
ágætan afla en þau geta athafnað
sig í mun verra veðri en nótaskipin.
Flest nótaskipin voru í gær á
Hvalbaksgrunni og að sögn Jóns
Axelssonar, skipstjóra á Júpiter ÞH,
að bíða göngu loðnunnar upp á
landgrunnið. „Loðnan hlýtur að
fara að sýna sig uppi á grunninu.
Hún hefur verið að færa sig ofar í
landgrunnskantinn undanfarna
daga og menn eru farnir að sjá ein-
staka smálóð uppi á grunninu. Við
höfum hins vegar ekkert getað kast-
að nótinni síðustu daga, enda verið
haugabræla og mikil kvika. En nú
er að lægja, flest skipin búin að taka
grunnu nætumar um borð og allir
tilbúnir í slaginn. Þetta hlýtur að
bresta á um helgina," sagði Jón.
Hættulegir staðir á Reykjanesbraut
Níu banaslys hafa
orðið á 33 árum
NÍU banaslys hafa orðið á Reykja-
nesbraut síðan árið 1967 við Kúa-
gerði og á Strandarheiði, skammt
sunnan Kúagerðis. Þar af urðu
fimm banaslys við Kúagerði og fjög-
ur á Strandarheiði samkvæmt upp-
lýsingum úr slysaskrá Umferðar-
ráðs.
► Nú síðast lést 41 árs gömul kona í
bílslysi við Kúagerði í fyrradag, en
þar áður lést 47 ára gömul kona,
sem var farþegi í bifreið sem lenti í
árekstri í janúarmánuði árið 1987.
Athygli vekur að öll banaslysin
frá 1967 við Kúagerði til þessa dags
urðu að vetrarlagi á tímabilinu 1.
nóvember til 18. mars og eru þá
ótalin fjöldamörg önnur slys.
Ekki áform um breytingar
á veginum
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerð ríkisins hafa ekki verið
uppi sérstök áform um breytingar á
Reykjanesbrautinni vegna slysa-
tíðninnar við Kúagerði eða Strand-
arheiði.
Hins vegar hefur verið rætt hvort
hættan á vegarkaflanum við Kúa-
gerði stafi af legu vegarins, þ.e. hæð
hans yfir sjávarmáli og nálægð hans
við sjó. Vegarkaflinn er aðeins í
nokkurra metra hæð yfir sjávarmáli
og í innan við 100 metra fjarlægð
frá sjávarsíðunni. Rakastigið er því
öðruvísi á kaflanum en annars stað-
ar og gæti það orsakað hálku á veg-
inum fyrr en annars staðar. Þá
eykst slysahættan vegna krappra
beygja og gatnamóta Vatnsleysust-
randarvegar, Reykjanesbrautar og
vegarins að Höskuldarvöllum.
Stækkun Leifsstöðvar hefst
um næstu mánaðamót
Ný störf fyrir
vel á annað
hundrað manns
STEFNT er að því að ganga frá
samningum varðandi framkvæmd-
ir við stækkun Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar við lægstbjóðendur,
danska fyrirtækið Hojgaard og
Schults og Miðvang ehf., í þessari
viku.
Framkvæmdir við verkið eiga að
hefjast 1. mars næstkomandi og
þeim á að verða lokið 15. desem-
ber.
Tilbúnir að flytja inn
danska iðnaðarmenn
Sveinn Jónsson, framkvæmda-
stjóri Miðvangs á Egilsstöðum,
segir að hátt á annað hundrað
manns muni vinna að framkvæmd-
um þegar mest verði, að stórum
hluta iðnaðarmenn.
Hann segir ennfremur að
danski verktakinn sé tilbúinn til
að koma með starfsmenn hingað
til lands til ýmissa verkþátta ef
á þurfi að halda. Óljóst sé á
þessari stundu hvort takist að
ráða nægilega marga iðnaðar-
menn til verksins hér á landi
vegna þenslunnar sem hafi verið
á byggingamarkaðnum.
Tilboð fyrirtækjanna hljóðaði
upp á tæpan milljarð króna og var
86% af kostnaðaráætlun við fyrsta
áfanga, en byggingin er á tveimur
hæðum, um 6.900 fermetrar að
stærð.
Sveinn segir að danska fyrir-
tækið hafi byggt nýju flughöfnina
á Kastrup og hafi því mikla
reynslu af flóknum viðfangsefnum
eins og þessu þar sem þörf sé á
hröðum vinnubrögðum.
ISLANDSBANKI
Gríptu til
aðgerð
íslandsbanki hefur
fleiri virkar aðgeröir
fyrir WAP-síma en
nokkur annar banki.
Pósturinn kom að bæn-
um í
ÍBÚÐARHÚSIÐ á Skálabrekku í
Þingvallasveit brann til kaldra kola í
fyrrinótt. Engan sakaði.
Lögreglan á Selfossi segir engin
vitni hafa verið að eldsvoðanum en
bóndinn á Skálabrekku hafi búið þar
einn og verið að heiman þessa nótt.
Lögreglan segir bæinn standa nokk-
uð afskekkt og að enginn sjái til hans
rjúkandi
nema íbúar á næsta bæ, en þeir hafi
einnig verið að heiman þessa nótt.
Þar sem kyrrt var í veðri varð eng-
inn eldsins var og ekki er vitað hve-
nær kviknaði í húsinu.
Lögreglan segir vegfarendur hafa
farið framhjá húsinu klukkan 20 á
þriðjudagskvöid án þess að sjá nokk-
uð athugavert. Póstberinn hafi hins
rúst
vegar komið að húsinu klukkan 14 í
gær, þá var það brunnið til ösku og
ekkert eftir af því nema steyptir út-
veggir.
Lögreglan segir eldsupptök með
öllu ókunn og að erfitt verði að
rannsaka málið sökum þess hve mik-
ið húsið brann og vísbendingar séu
þar með að mestu horfnar.