Morgunblaðið - 01.03.2000, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Vel fylgst með vexti í Ölfusá
VEL er fylgst með Ölfusá um þessar mundir
vegna mikils krapa í ánni sem myndast hefur
sökum mikils skafrennings að undanförnu.
Ekki er talið útilokað að áin geti af þessum
sökum flætt yfir bakka sína og þar með í kjall-
ara nærliggjandi húsa. Mikil krapastífla hefur
myndast í ánni um einum og hálfum kílómetra
neðan við Ölfusárbrú og er vatnsborðið þar um
tveimur metrum hærra en venjulega.
Kristján Einarsson, framkvæmdastjóri Al-
mannavarna í Árborg og nágrenni, segir að
eldri menn muni ekki eftir öðru eins fóðri í
ánni, sem hún hafi til að mynda krapa, svo ára-
tugum skipti, en bætir því við að þeir hinir
sömu telji ekki mikla hættu á því að hún flæði
yfír bakkana. „Samt er aldrei hægt að segja
aldrei og því þurfum við að fylgjast vel með
ánni ekki síst ef gerir hláku um helgina,“ segir
Kristján. Hann segir að við ána séu mælar sem
tengjast tölvum þannig að hægt sé að fylgjast
með vexti árinnar. „Ef okkur sýnist að vatns-
borðið stígi verður gengið í hús og fólk varað
við og aðstoðað við að koma dóti úr kjöllurum,"
segir Kristján ennfremur en meðal húsa sem
gætu orðið fyrir barðinu á flóði er til að mynda
félagsheimili Selfyssinga, Hótel Selfoss og
Kaupfélag Arnesinga.
Ríkislogreglustjóri átti fund með fulltrúa SÞ í Sarajevo í gær
14 lögreglumenn hafa verið
við störf á Balkanskaga
HARALDUR Johannessen ríkis-
lögreglustjóri og íslensku lög-
reglumennirnir, sem nú starfa í
Sarajevo, áttu í gær fund með Detl-
ef Buwitt, lögreglustjóra alþjóða
lögregluliðs Sameinuðu þjóðanna í
Bosníu/Herzegovinu (UN Inter-
national Police Task Force / IPTF).
Fundurinn er haldinn í tilefni af
hcimsókn ríkislögreglustjóra til
Bosníu/Herzegovinu til þess að
kynna sér þátttöku íslensku lög-
reglunnar í alþjóðastarfi Samein-
uðu þjóðanna á svæðinu.
Islcnska lögreglan hefur haft
samstarf við dönsku Iögregluna um
löggæsluverkefni á vegum SÞ í
Bosníu/Herzegovinu og í dag verð-
ur sérstök athöfn þar sem þremur
íslenskum lögreglumönnum verður
veitt sérstök viðurkenning SÞ fyrir
störf þeirra. Auk ríkislögreglust-
jóra verður danski ríkislögreglust-
jórinn viðstaddur en auk þess fá 19
danskir lögreglumenn viðurkenn-
ingu við sömu athöfn. Alls hafa 12
íslenskir lögreglumenn starfað í
Bosníu/Herzegovinu á vegum SÞ
frá 1997. Þess má geta til viðbótar
að í dag eru einnig starfandi tveir
íslenskir Iögreglumenn í Kosovo.
Þangað hafa einnig farið til
starfa á síðasta ári þrír fslendingar
frá kennslanefnd rikislögreglu-
stjórans. Því hafa allt í allt 17 ís-
lendingar verið sendir á vegum ís-
lensku lögreglunnar til þátttöku í
alþjóðlegu lögreglustarfi á Balk-
anskaga.
r~i fL >.'* /)
n t' { ítj (t fiy
r.* ■ Kjty
á
Á myndinni eru, talið frá vinstri: Jóhannes Sigfússon, varðstjóri í lögreglunni á Akureyri, Jón Bjartmarz, yfir-
lögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóranum, Iiaraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, Detlef Buwitt, lögreglu-
stjóri IPTF, Jón S. Ólason, aðalvarðstjóri í Iögreglunni í Reykjavík og Ölafur Egilsson, aðalvarðstjóri í
lögreglunni í Reykjavík.
Hyggjast
leggja mð-
ur nætur-
vakt tal-
sambands
við útlönd
RÁÐGERT er að leggja niður næt-
urvaktina hjá talsambandi Lands-
síma íslands frá og með 1. apríl og
sagði Ólafur Stephensen, forstöðu-
maður upplýsinga- og kynningar-
mála Landssímans, að lokað yrði
fyrir þessa þjónustu frá miðnætti
til klukkan átta á morgnana að
vetri til og til sjö á morgnana að
sumarlagi. Talsamband við útlönd
veitir bæði upplýsingar um erlend
símanúmmer og hringir handvirkt
til útlanda sé þess óskað.
„Þetta er spurning um framboð
og eftirspurn," sagði Ólafur. „Það
er mjög lítil eftirspurn eftir þessari
þjónustu á þessum tíma sólar-
hrings. Með batnandi gæðum milli-
landasímtala er orðið mjög sjald-
gæft að fólk þurfi að nota sér þessa
þjónustu. Ef ekki næst í gegn sjálf-
virkt er ekkert líklegra að náist í
gegn handvirkt."
Ölafur sagði að einnig væru
símaskrár víða um heim komnar á
Netið og ætti það við um þau lönd,
sem mest væri hringt til frá Islandi.
Að hans sögn er dýrt að reka
talsambandið og myndu nokkrar
milljónir króna sparast við það að
leggja niður kvöldvaktirnar, sem
ein til tvær manneskjur hafa sinnt:
Talsverður sparnaður
„Þetta er spurning um talsverðan
sparnað hjá okkur á móti mjög litl-
um óþægindum fyrir okkar við-
skiptavini og einfaldlega þáttur í að
fylgja tækniþróuninni."
Hann sagði að mörg fordæmi
væru fyrir því erlendis að þjónusta
af þessu tagi væri ekki veitt að
næturlagi og bætti við að nú væru
komin mörg fyrirtæki, sem byðu
símtöl til útlanda, en Landssíminn
væri það eina, sem byði handvirka
þjónustu annars vegar og upplýs-
ingaþjónustu hins vegar.
Að sögn Ólafs hafa starfsmenn
sýnt þessum fyrirhuguðu breyting-
um skilning, enda mætti ávallt gera
ráð fyrir breytingum í rekstri fyrir-
tækis á borð við Landssímann.
Hann sagði að sennilega hefði þurft
að hækka gjaldið fyrir þjónustu
talsambandsins um nokkra tugi
prósentna ætti það að standa undir
sér. Þegar hefðu verið gerðar
breytingar á verðskrá og gripið til
hagræðingaraðgerða og vonir
stæðu til að þessar breytingar
dygðu til að rekstur þess stæði
undir sér.
------*-^-4-----
Samningur
Eflingar og
Reykjavíkur-
borgar sam-
þykktur
FÉLAGSMENN Eílingar sam-
þykktu í gær kjarasamning félagsins
og Reykjavíkurborgar og mun hann
ganga í gildi um leið og borgarráð
hefur staðfest hann.
608 félagsmenn greiddu atkvæði
en það eru 26,7% af þeim sem eru á
kjörskrá. 438 greiddu atkvæði með
samningum, eða 72,2%, 141 greiddi
atkvæði gegn samningnum, eða
23,1%, og voru auðii- og ógildir seðlar
samtals 29.
Samningurinn gildir í eitt ár og í
honum felst 3% hækkun launa, auk
2.500 króna hækkunar. Þar að auki
greiðir borgin 0,22% í starfsmennta-
sjóð og einnig verður nýtt launakerfí
tekið upp á samningstímanum.