Morgunblaðið - 01.03.2000, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Stórt snjdflóð féll úr Bæjargili á Flateyri og á nýja snjdflóðavarnargarðinn
Garðurinn kom í veg-
fyrir stórtjón á húsum
Skilagjalda-
kerfi á
innkaupa-
körfurn
ÁFENGIS- og tóbaksverslun ríkis-
ins í Kringlunni hefur tekið upp á
þeirri nýbreytni að bjóða við-
skiptavinum sínum upp á svokaliað
skilagjaldakerfí á innkaupakörfum
á hjólum. Viðskiptavinurinn lætur
með öðrum orðum hundrað krónu
mynt í læsingar kerrunnar til þess
að geta notað hana en fær myntina
til baka þegar kerrunni er skilað.
Slíkt kerfi er alþekkt og notað víða
til dæmis í stórmörkuðum erlendis.
Þorgeir Baldursson, verslunar-
stjóri ÁTVR f Kringlunni, fullyrði
að þetta sé í fyrsta sinn sem slíkt
kerfi er tekið í notkun hér á landi.
Þorgeir segir að með skilagjalda-
kerfi sem þessu geti viðskiptavinur-
inn gengið að innkaupakerrunum
sem vísum í verslun ÁTVR en hing-
að til hafi kerrumar skilað sér illa
eftir notkun og gjarnan skildar eft-
ir víða um Kringluna. Þá minnkar
kerfi sem þetta hættuna á því að
kerrumar séu lausar á bílaplönum
og skemmi fyrir vikið bílana sem
þar eru fyrir,“ segir hann.
STÓRT snjóflóð féll úr Bæjargili
fyrir ofan Flateyri í fyrradag.
Flóðið rann meðfram vestari hlið
snjóflóðavamagarðanna og í sjó
fram. Talið er víst að snjóflóðið
hefði valdið miklu tjóni á efstu
húsunum ef garðanna hefði ekki
notið við.
„Eg varð var við þetta í morgun
þegar birti til. Trúlega hefur snjó-
flóðið fallið í gær en ekki sést
vegna þess hversu blint var, því ég
sá gömul snjósleðaför liggja yfir
það,“ sagði Matthías Matthíasson,
verkstjóri hjá ísafjarðarbæ á Flat-
eyri, í samtali við Morgunblaðið í
gær. Flóðið féll úr Bæjargili, svo
gilið tæmdist að mestu að sögn
Matthíasar, að vestari armi snjó-
flóðavarnagarðanna og meðfram
honum, yfir veginn vestur úr þorp-
inu á Flateyri og í sjó fram. Veg-
urinn liggur út á ruslahauga
þorpsins og er ekki fjölfarinn.
Tómas Jóhannesson, jarðeðlis-
fræðingur á snjóflóðadeild Veður-
stofu Islands, segir að snjóflóðið
sé eitt allra stærsta snjóflóð sem
fallið hafi úr Bæjargili, líklega
ámóta stórt og snjóflóð sem féll
1974 sem er það stærsta sem hing-
að til hefur verið vitað um á þess-
um stað. Snjóflóðið var mælt í gær
og reyndist það vera vel á annað
hundrað metra breitt við snjó-
flóðagarðinn en 65 metra breitt á
veginum. Tómas segir að það hafi
runnið upp á rúmlega miðjan
snjóflóðavarnagarðinn. Það er 90
cm djúpt á veginum og upp í tvo
metra næst garðinum. Reiknast
Veðurstofunni til að í því séu 100
til 150 þúsund rúmmetrar af snjó
eða svipað að stærð og snjóflóðið
sem féll úr Skollahvilft á síðasta
vetri og reyndi fyrst á nýju snjó-
flóðavarnagarðana. Tómas segir að
snjóeftirlitsmenn Veðurstofunnar
telja engan vafa leika á því að
þetta snjóflóð hefði farið á efstu
húsin í Ólafstúni allt niður að
gamla skólanum, ef snjóflóðagarð-
anna hefði ekki notið við. Telur
Tómas að tjón hefði því geta orðið
mikið.
Að sögn Matthíasar Matthías-
sonar féll einnig snjóflóð úr
Skollahvilft. Það hafi hins vegar
verið minna og stöðvast rétt fyrir
neðan miðja fjallshlíðina.
Fólkið komið heim
Veðurstofan hefur fengið upp-
lýsingar um snjóflóð á nokkrum
stöðum í óveðrinu í gær og fyrri-
nótt. Þannig féll stórt snjóflóð á
veginn í Breiðuvík á sunnanverðu
Snæfellsnesi aðfaranótt mánudags.
Annað flóð féll á sömu slóðum og
víðar á norðanverðu Snæfellsnesi.
Byggð stafaði ekki hætta af. Þá
féll snjóflóð í Seljalandshlíð á ísa-
firði í fyrradag, við hesthúsin í
Hnífsdal og víðar á Vestfjörðum.
Þá féll snjóflóð úr Bæjarfjalli,
norðan við Dalvík.
Þegar veðrinu slotaði var hættu-
ástandi aflétt þar sem fólk hafði
þurft að rýma hús vegna snjóflóða-
hættu, á Siglufirði í fyrrakvöld og
á ísafirði, í Bolungarvík og á Pat-
reksfirði í gærmorgun.
Því er spáð að fleiri lægðir gangi
yfir landið á næstunni. Tómas seg-
ir að enginn sérstakur viðbúnaður
sé á snjóflóðadeild vegna þeirra,
tekið yrði á málum þegar og ef
þau kæmu upp.
Aðeins tólf bflar eftir af 200 sem
festust í Þrengslunum
Gekk vel að koma
bflunum burt
MJÖG vel gekk að koma þeim bílum
burt sem festust í Þrengslunum um
helgina og samkvæmt upplýsingum
frá Vegagerðinni voru aðeins 12 bíl-
ar eftir þar um kvöldmatarleytið í
gær, af þeim 200 bílum sem voru
skildir eftir.
Á sunnudagskvöld bað Vegagerð-
in fólk um að fjarlægja bíla sína og
var almennt brugðist vel við þeirri
bón. I gærmorgun voru 45 bflar eftir
þar og í hádeginu hafði þeim fækkað
enn, en þá voru um 25 bflar eftir.
Vegagerðin var með tvo dráttarbíla
á staðnum sem aðstoðuðu fólk við að
koma bflum sínum úr sköflum og
þurftu flestallir nýta sér þá aðstoð.
Yfirleitt gekk fljótt og vel að losa bfl-
ana, enda veður prýðilegt.
Um kvöldmatarleytið í gær voru
tólf bflar eftir í Þrengslum, en sam-
kvæmt upplýsingum frá Vegagerð-
inni trufla þeir ekki umferð og er
búið að moka frá þeim þannig að
auðvelt ætti að vera að keyra þá
burt.
Borgarráð
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Fíngerð
aska inn
um glugga
á Hellu
Sjálfstæðisflokkurinn gagnrýnir útboðsfyrirkomulag í Grafarholtshverfí
Morgunblaðið/Kristinn
Starfsmenn ÁTVR voru í gær að koma nýju innkaupakerrunum fyrir í versluninni í Kringlunni.
Skemmtun
verði slitið
hálftíma
fyrir lokun
BORGARRÁÐ Reykjavíkurborgar
samþykkti á fundi sínum í gær til-
lögu þess efnis að skemmtun á veit-
ingastað, sem heimild hefur til
áfengisveitinga skuli slitið eigi síðar
en hálfri klukkustund eftir að heimil-
uðum veitingatíma áfengis lýkur.
Ráð er fyrir því gert að tillagan
verði sem fyrst kynnt á fundi sam-
starfsnefndar um lögreglumálefni.
Ekki er reiknað með öðru en að til-
lagan verði staðfest í nefndinni.
Gatnagerðargj öldin
705 millj. kr. hærri en
samkvæmt gjaldskrá
SAMKVÆMT útreikningum borg-
arverkfræðings stefnir í að gatna-
gerðargjöld í nýju hverfi í Grafar-
holti verði um 705 milljónum króna
hærri en þau hefðu orðið miðað við
almenna gjaldskrá gatnagerðar-
gjalda í desember 1999. Utreikn-
ingarnir miðast við útboð á bygg-
ingarrétti í 1. og 2. áfanga sem
þegar hafa farið fram og væntan-
leg gjöld vegna 3. áfanga.
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir
að minnihlutinn hafi gagnrýnt
harðlega að útboð vegna lóða í
Grafarholti yrði með þeim hætti að
sett var lágmarksgatnagerðargjald
á byggingarréttinn í hverfinu, sem
er 43-50% hærri en almenn gjald-
skrá gerir ráð fyrir. Júlíus Vífill
segir að í borgarráði hafi verið
leiddar líkur að því að hækkunin
myndi færa Reykjavíkurborg 790
milljónir kr. í gatnagerðargjöld, í
stað 485 milljóna kr. miðað við al-
menna gjaldskrá, en raunin sé sú
að útboðsfyrirkomulagið færi
borginni 1.189 milljónir kr. ef svo
fer sem horfir. „Þarna er Reykja-
víkurborg að afla sér tekna með af-
ar ógeðfelldum hætti því þessi að-
ferð kemur verst niður á þeim sem
eru að koma þaki yfir höfuðið.
Hækkun gatnagerðargjalda á
hverja íbúð mun væntanlega nema
að meðaltali 1,2 milljónum króna.
Þetta mun hafa í för með sér
hækkun á fasteignaverði sem leiðir
til hækkunar fasteignaskatta,"
segir Júlíus Vífill.
Hellu - Talsvert öskufall varð í
Rangárvallasýslu á þriðjudags-
morgun. Drifhvítur snjórinn er nú
orðinn öskugrár og nú skiija börnin
loks hvernig litur öskugrár er.
Þetta er í fyrsta skipti siðan 1947
sem aska fellur hér á svæðinu en í
öllum gosum síðan hefur askan að-
allega fallið fyrir norðan fjallið.
f rokinu á þriðjudagsmorgun
rauk fíngerð askan inn um harðlok-
aða glugga á híbýlum fólks og víst
er að rnargur mun þurfa að taka
upp afþurrkunarklútinn og stijúka
öskuna úr gluggakistunum.