Morgunblaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Yfírdýralæknir um innflutning nauta- kjöts og fósturvísa frá Danmörku Ekki ástæða til að óttast kúariðusmit Ferðamenn varaðir við að flytja með sér unnar kjötvörur frá Danmörku FERÐAMENN eru varaðir við að flytja með sér unnar kjötvörur frá Danmörku til Islands í kjölfar fregna um kúariðu sem komið hefur upp á kúabúi á Norður-Jótlandi. Að sögn Halldórs Runólfssonar yfirdýra- læknis er hins vegar engin ástæða til að óttast að smit berist með nauta- kjöti, sem heimilt er að flytja til landsins í takmörkuðum mæli. Hann sagði að eingöngu væri heimilt að flytja úrbeinað kjöt til landsins og ekki væri talið að smit gæti borist úr hreinum vöðvum í fólk. Halldór sagði að ekki stæði til að grípa til neinna aðgerða hér vegna kúariðumálsins í Danmörku en fylgst yrði grannt með hvað aðrar þjóðir gerðu og framvindu máia í Danmörku. Aðspurður segist Halldór ekki telja neina ástæðu til að ætla að Viðskipti með íbúðarhúsnæði 54% aukn- ing á þrem- ur árum VIÐSKIPTI með íbúðarhúsnæði hér á landi jukust um 54% á tímabilinu 1997 til 1999, úr tæpum 52,6 milljörð- um í rúmlega 81 milljarð króna. A sama tíma jukust viðskipti með at- vinnuhúsnæði um 83%, úr rúmum 7 milljörðum í tæpa 13 milljarða. Samkvæmt upplýsingum úr Hag- vísum Þjóðhagsstofnunar átti lang- stærstur hluti þessarar aukningar sér stað á höfuðborgarsvæðinu, bæði hvað varðar íbúðarhúsnæði og at- vinnuhúsnæði. Af viðskiptum með íbúðarhúsnæði voru um 80% á höfuð- borgarsvæðinu, 88% seldra eigna í fjölbýli voru á höfuðborgarsvæðinu sem og 60% seldra eigna í sérbýli. Af viðskiptum með atvinnuhúsnæði voru rúmlega 80% á höfuðborgarsvæðinu. kúariðusmit geti borist með fóstur- vísum sem fluttir eru milli landa en fyrir nokkrum árum voru fluttir hingað til lands fósturvísar úr holda- nautum frá Danmörku. „Það eru engar upplýsingar til um að kúarið- an geti borist með fósturvísaflutn- ingum og menn telja það mjög ólík- legt. Þetta hefur þurft að berast með lifandi dýrum eða afkvæmum þeirra, þannig að þessir holdastofnar, sem voru fluttir inn, eiga að vera alveg tryggir,“ segir Halldór. Hann sagðist heldur ekki telja að kúariðutilfellið í Danmörku hefði nein áhrif á áform um að flytja inn fósturvísa af norsku kúakyni til ís- lands í tilraunaskyni. Aðspurður hvort norskt kúakyn hefði blandast kúakyni af öðrum Norðurlöndum, og þ.á m. Danmörku, sagði Halldór að þar hefði fyrst og fremst verið um að ræða skipti á erfðaefni úr kúm í Sví- þjóð og Finnlandi en hið umrædda norska kúakyn tengdist ekkert dönskum kúm. Dýralæknir á Keldum varaði við innflutningi fósturvísa í grein sem Sigurður Sigurðarson, dýralæknir á Keldum, skrifaði í Morgunblaðið í janúar sl. gagnrýndi hann umræddan innflutning á fósturvísum af holdakyni nautgripa frá Danmörku til íslands, fyrir um hálfum áratug, en vitað var að nokkru áður var seld kýr með kúa- riðusmit frá Englandi til Danmerk- ur. Sigurður sagði í greininni að danskur dýralæknir, sem kom með fósturvísana til íslands, hefði undr- ast eftirlitsleysið með innflutning- num. „Við megum víst þakka fyrir að ekki fór verr. Er ráðlegt fyrir okkur, sem miðar vel við útrýmingu á riðu- veiki úr sauðfé með ærnum kostnaði, að fá fósturvísa úr nautgripum frá Noregi þar sem riðuveiki í sauðfé er mjög útbreidd og óvissa ríkjandi um það hvar hún er ekki? Þar eru ekki varnarhólf eins og á íslandi og mun síðar var gripið til aðgerða gegn rið- unni þar en hér. Ég mótmæli slíkri ógætni,“ sagði Sigurður í greininni. Morgunblaðið/Kristinn _ bruni Á skiðasvæðinu í Oddsskarði eru góðar brekkur sem henta jafnt vönum skíðamönnum og þeim sem styttra eru komnir í íþróttinni. Þessi ungi skíða- kappi renndi sér af einbeitni niður brekkuna og sýndi tilþrif sem ljósmyndara þótti ástæða til að festa á filmu. Bæjaryfírvöld á Egilsstöðum, Vestmannaeyjum og Akureyri Slæmt að missa samkeppni í flugi BÆJARSTJÓRAR Akureyrar, Eg- ilsstaðabæjar og Vestmannaeyja eru sammála um að slæmt sé að missa samkeppni í flugi þegar íslandsflug hættir að fljúga á þessa staði 1. apríl næstkomandi. Bjöm Hafþór Guð- mundsson, bæjarstjóri Egilsstaða- bæjar, segir þetta spor afturábak en vera megi að menn hafi ekki verið nægilega duglegir að nýta þennan valkost. Guðjón Hjörleifsson, bæjar- stjóri í Vestmannaeyjum, segir þessa ákvörðun koma á óvart miðað við þá sókn sem íslandsflug hafi verið í. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, segir það undarlegt að flug á þessa staði skuli ekki bera sig á meðan flugi á mun fámennari staði verði haldið áfram. Fargjöld gætu hækkað „Ég tel þetta vera spor afturábak en þetta segir líka að menn hafa ef til vill ekki verið nógu duglegir að nota þennan valkost," sagði Bjöm Hafþór. Hann sagðist ekki vilja gefa sér það fyrirfram að fargjöld hækki í kjölfarið en reynslan sýndi að sú hætta væri fyrir hendi. Benti hann á að færst hefði í aukana að þeir sem ættu erindi til Reykjavíkur færu að morgni og sneru til baka að kvöldi og að þá hent- aði áætlun Flugfélagsins betur en ís- landsflugs sem flýgur um miðjan dag. „Þetta kann að vera hluti af skýring- unni,“ sagði hann. „Ég veit um fjölda fólks sem talið hefur það betri valkost að fljúga með Islandsflugi, m.a. vegna þess að þeir hafa verið ódýrari og ekki síður þægilegt að fljúga með þeim. Þetta eru því ekki góðar fréttir fyrir okkur.“ Kemur á dvart „Ég er ekki ánægður með þessa niðurstöðu og hún kemur mér á óvart að menn séu að tapa á þessari flugleið miðað við þá sókn sem þeir hafa verið í og þá tíðni ferða sem þeir hafa verið að skila hingað,“ sagði Guðjón Hjör- leifsson bæjarstjóri í Vestmannaeyj- um. „Það verður að segjast eins og er, að þeir hjá Islandsflugi hafa staðið sig mjög vel í að þjónusta Vestmannaeyj- ar. Ég þekki það sjálfur því ég hef yf- irleitt farið með þeim því ef eitthvað bætir í vind þá eru hinir yfirleitt mjög fljótir að hætta við flug. íslandsflug hefúr verið mun harðari á að vakta Vestmannaeyjar." Guðjón sagði að auk þess væri engum hollt að vera án samkeppni sem yfirleitt væri til góðs og vitanlega óttuðust menn nú fargjaldahækkun. Benti hann á að þrátt fyrir samkeppni ættu báðir aðil- ar að geta hagrætt í rekstri fyrirtækj- anna. Nefndi hann sem dæmi að tvær vélar hefðu flogið á hádegi til Vest- mannaeyja. „Ef menn hefðu haft rænu á að samnýta þær ferðir hefði það eitt verið mikill spamaður," sagði hann. „Það var þannig á tímabili að sami farseðill gilti að báðum félögun- um þegar flogið var á milli en það er staðreynd að erfitt er að fá sam- keppnisaðila til að vinna saman. Það er oft það mikill slagur að báðir eru að borga með sér til að fá niðurstöðu í hvor verður ofaná." Hefði viljað samkeppni „Við hefðum gjamarn viljað hafa samkeppni á þessari leið en við ráðum því ekki,“ sagði Kristján Þór Júlíus- son bæjarstjóri Akureyrar. „Þama em einhveijar aðstæður sem valda þessu sem við höfum ekki tök á að meta. Ég er ekki á neinn hátt að kasta rýrð á ágæta þjónustu Flugfélags Is- lands en ég held að það sé ekki hollt fyrir þá að vera eina á þessum mark- aði.“ Kristján sagði það undarlegt að þessar flugleiðir bæra sig ekki hjá Islandsflugi á sama tíma og ætlunin væri að halda úti flugi á fámennari leiðum. Hann sagðist ekki óttast verð- hækkun á flugleiðunum en það yrði þó að hafa sinn gang. „Ég hef fullan skilning á að fyrirtæki þurfi hagnað af sinni starfsemi en þetta virðist hafa gengið hingað til á þessu verði og ég sé enga ástæðu til að ætla annað en að svo geti verið áfram,“ sagði Kristján. Efling þarf ekki framkvæmdaleyfí til borunar eftir vatni í landi félagsins í Hvammi í Skorradal Kröfum sveitar- stjórnar Skorra- dalshrepps hafnað ÚRSKURÐARNEFND skipulags- og bygg- ingarmála hefur hafnað kröfu sveitarstjórnar Skorradalshrepps um að úrskurðað verði að framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar þurfi til bor- unar eftir heitu vatni, sem hafin er á vegum Eflingar - stéttarfélags í landi félagsins í Hvammi í Skorradal. Hafnaði nefndin einnig kröfu kærenda um að framkvæmdir við boran- ina verði stöðvaðar en kröíúm málsaðila um kærumálskostnað var vísað frá. Frávísunarkröfu Eflingar í málinu var hafn- að enda telur úrskurðamefndin að hrepps- nefnd Skorradalshrepps hafi verið í fullum rétti að leita úrlausnar nefndarinnar um ágreining málsaðila með þeim hætti sem gert var. Jafnframt þótti málsástæða Eflingar, er varðaði vanhæfi og hagsmunatengsl sveitar- stjórnarinnar og einstakra sveitarstjórnar- manna, ekki koma til álita við úrlausn málsins enda væri ekki til umfjöllunar formleg stjórn- valdsákvörðun, sem ógildanleg kynni að vera á grundvelli vanhæfissjónarmiða. Hins vegar er niðurstaða nefndarinnar að Eflingu hafi ekki verið skylt að afla framkvæmdaleyfis sveitar- stjórnar áður en ráðist var í gerð umræddrar borholu og að stéttarfélaginu sé heimilt að ljúka framkvæmdum við boran og frágang borholu og boranarsvæðis án slíks leyfis. Kröf- um kæranda í málinu var því hafnað. Framkvæmdir leyfisskyldar komi til virkjunar holunnar Málsatvik era þau að Efling hefur haft uppi áform um að bora eftir heitu vatni á 17,5 ha landspildu sinni í Hvammi í Skorradal og hófst undirbúningur að framkvæmd boranar í byrj- un febrúar. Sveitarstjórn Skorradalshrepps var hins vegar þeirrar skoðunar að áður en framkvæmdir gætu hafist þyrfti að liggja fyrir framkvæmdaleyfi frá sveitarstjórninni. Fram kemur í niðurstöðum úrskurðarnefnd- ar skipulags- og byggingarmála það álit, að þegar Alþingi samþykkti breytingar á lögum um skipulags- og byggingarlög 1997 hafi fyrst og fremst vakað fyrir löggjafanum að fram- kvæmdaleyfi þyrfti til framkvæmda sem hefðu í för með sér varanlegar og sýnilegar breyting- ar á umhverfinu. Framkvæmda við borun eftir vatni sé ekki heldur getið sérstaklega í skipu- lagsreglugerð frá 1998 um framkvæmdaleyfi og verði ekki leitt af ákvæði reglugerðarinnar að slíkar framkvæmdir séu fortakslaust háðar framkvæmdaleyfi. Því verði að meta í hverju tilviki hvort borun eftir vatni hafi þau áhrif á umhverfið að framkvæmdaleyfis sé þörf. Við mat á því, hvort umrædd borhola væri háð framkvæmdaleyfi, taldi nefndin ekki að líta ætti til þess að gerð hennar kynni að hafa áhrif á það jarðhitakerfi sem borað væri í, en sveitarstjórn Skorradalshrepps hafði talið þetta til í málsrökum sínum. Onnur réttarúr- ræði séu enda tiltæk ef boranin leiddi til skerð- ingar á lögvörðum hagsmunum kæranda. Nefndin komst jafnframt að þeirri niðui-- stöðu að ekki skyldi litið til þess hvort borhola Eflingar teldist rannsóknarhola eða vinnslu- hola enda breytti það engu um áhrif hennar á umhverfið. „Komi til virkjunar holunnar," segir síðan í niðurstöðum nefndarinnar, „mun það hins veg- ar hafa í för með sér leyfisskyldar fram- kvæmdir, en kærða verður ekki nú gert að sækja um leyfi til þeirra framkvæmda, enda enn óséð hver árangur verður af boruninni, og þá hvort, hvenær eða með hvaða hætti komið gæti til nýtingar á holunni." Segir nefndin að eins og aðstæðum sé háttað á boranarstað í landi Eflingar verði ekki séð að borholan hafi í för með sér þær varanlegu breytingar á ásýnd lands að framkvæmdaleyf- is hafi verið þörf til að ráðast mætti í gerð hennar. Hins vegar sé áskilið að rask vegna framkvæmda við borholuna verði afmáð að framkvæmdum loknum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.