Morgunblaðið - 01.03.2000, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
4
Fimm
hlaup-
ársbörn á
FSA
FIMM hlaupársbörn fæddust á fæð-
ingardeild Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri í gær og voru þau öll
komin í heiminn fyrir hádegi, þrjár
stúlkur og tveir drengir.
Svana Zóphaníasdóttir, ljósmóðir
á fæðingardeild FSA, sagði þetta
óvenju margar fæðingar á einum
degi en ekki einsdæmi og hún átti
ekki von á fleiri fæðingum þann dag-
inn er Morgunblaðið hafði samband
við hana seinni partinn í gær. Svana
sagði að ekki hafi fæðst hlaupárs-
böm á FSA síðustu tvö hlaupár eða
frá árinu 1988.
---------------
Þrotabú Akur-
sljörnunnar
Nánast ekkert
upp í kröfur
SKIPTUM er lokið í þrotabúi Ak-
urstjörnunnar á Akureyri, en fyrir-
tækið var úrskurðað gjaldþrota í
október árið 1997.
Skiptum lauk með úthlutunargerð
en með henni greiddust um 165 þús-
und krónur upp í búskröfu. Ekkert
greiddist upp í aðrar kröfur en sam-
þykktar forgangskröfur námu um
tveimur milljónum króna og almenn-
ar kröfur voru að upphæð um 36
milljónir króna. Þá greiddist heldur
ekkert upp í eftirstæðar kröfur eða
vexti.
---------------
Dillidagar í
Framhalds-
skólanum á
Húsavík
DILLIDAGAR Framhaldsskólans á
Húsavík hefjast í dag, miðvikudag-
inn 1. mars, og standa þeir yfir fram
á föstudag, 3. mars. Engin kennsla
verður þá daga en nemendur starfa
að ýmsum áhugamálum fyrir hádegi
í samvinnu við kennara en eftir há-
degi verður dagskrá sem er að öllu
leyti skipulögð af nemendum.
Sem dæmi um starfið fyrir hádegi
má nefna útvarpshóp, vefsíðuhóp,
snjóbrettahóp og stuttmyndahóp.
Meðal þess sem verður á dagskrá
eftir hádegi er óvissuferð sem Steinn
Armann stjómar, söngvarakeppni
og ræðukeppni.
Dillidögum lýkur síðan með árshá-
tíð föstudagskvöldið 3. mars.
Tuttugu vélar við snjómokstur og kostnaður um 1,5 milljónir á sólarhring
Bæjarverkstjórinn stóð 1
ströngu á 16. afmælisdaginn
í MÖRG horn var að líta hjá
Hilmari Gislasyni, bæjar-
verkstjóra á Akureyri, sem átti
64 ára afmæli í gær, 29. febrúar,
hlaupársdag, og er þetta í 16.
sinn sem Hilmar á afmæli. „Ég
ætlaði að halda upp á daginn
með því að renna mér á skíðum í
Hlíðarijalli, en svo er vitlaust að
gera í vinnunni enda bærinn all-
ur á kafí í snjó,“ sagði Hilmar,
eða Marri eins og hann er ævin-
lega nefndur meðal bæjarbúa.
Hann sagði það ekki hafa komið
að sök þó skíðaferðin hafi brugð-
ist, hann hafi nýlega haft tæki-
færi til að renna sér á skíðum á
Ítalíu og væri því fyllilega sáttur
við að eyða 16. amælisdeginum í
vinnunni. „Það er alltaf gaman
að þjóna bæjarbúum og vonandi
verða þeir ánægðir þegar við
höfum lokið við að hreinsa snjó-
inn burt,“ sagði hann.
Snjó kyngdi niður á Akureyri
eins og víðar á Norðurlandi um
helgina og fram á mánudag og
voru um 20 vélar notaðar við
hreinsun gatna á Akureyri á
mánudag og í gær og voru sum-
ar að allan sólarhringinn. Gerði
bæjarverkstjóri ráð fyrir að bæj-
arbúar þyrftu að sjá eftir 1,5
milljónum úr bæjarsjóði á sólar-
hring þegar svo margar vélar
væru við mokstur. „Þetta er mik-
il törn núna, en ef við fáum frið
fyrir veðrinu ætti bærinn að vera
Hilmar Gíslason bæjarverkstjóri átti afmæli í 16. sinn í gær en var
önnum kafinn við að stjórna snjómokstri. Eins og sjá má skortir ekki
snjóinn á Akureyri. Hilmar ætlaði að bjóða systkinum sínum í kaffi
eftir vinnu í tilefni afmælisins, en vegna anna þar komst hann ekki á
skíði.
kominn í þokkalegt horf um
helgina,“ sagði Hilmar.
Um 40 kvartanir á dag
Hann var á ferð og flugi að
fylgjast með sínum mönnum og
sat svo á skrifstofu sinni og tók
við kvörtunum og ábendingum
varðandi snjómoksturinn. „Það
hafa verið að berast svona 40
kvartanir til okkar daglega, fólk
er að benda okkur á að á þessum
stað og hinum sé afskaplega mik-
ill snjór og við skráum þetta nið-
ur og reynum að verða við öllum
þeim beiðnum sem til okkar ber-
ast,“ sagði Hilmar sem f vetur
tók tölvutæknina í þjónustu sína
og segir heldur betur auðveldara
að fylgjast með kvörtunum nú
þegar þær séu settar upp í röð á
skjal. „Áður var þetta hist og her
á blöðum og mest í hausnum á
mér. Núna er þetta miklu létt-
ara, ég forðaðist tölvur áður en
hef verið að þjálfa mig í að nota
þær og finnst bara gott að vinna
við þær.“
Hlákan verst
Hilmar hefur verið bæjar-
verkstjóri frá árinu 1967 og
marga hildina háð við fannfergið
í bænum. „Þetta var alveg djöful-
legt fyrsta árið mitt hér, 1967,
þá moksnjóaði í hálfan mánuð og
við urðum að senda jarðýtur á
undan heflunum þegar við vor-
um að hreinsa. Svo voru veturnir
erfiðir hér fyrir um áratug og
svo aftur 1994-5, þá var endalaus
snjór og veturnir langir," sagði
Hilmar, en martröð bæjar-
verkstjórans er þegar fer að
hlána eftir slíka snjóavetur. Þá
þurfa bæjarstarfsmenn heldur
betur að bretta upp ermar til að
búa kerfið sem best undir að
taka við vatninu, en víða getur
við slíkar aðstæður skapast
hættuástand. Hlákan er sem sagl:
það versta sem Hilmar veit, en
hvað er best? „Golfvöllurinn,"
sagði hann.
Samhljóða samþykkt stjórnar veitustofnana Akureyrarbæjar
Orkufyrirtækin sameinist
STJÓRN veitustofnana Akureyrar-
bæjar hefur samþykkt samhljóða að
leggja til við bæjarstjóm að orku-
fyrirtæki bæjarins, Hita- og vatns-
veita Akureyrar og Rafveita Akur-
eyrar verði sameinuð. Málið var til
umræðu á síðasta fundi bæjarráðs
og sagði Valgerður Hrólfsdóttir,
formaður stjórnar veitustofnana,
allar líkur á að sameiningin yrði
samþykkt í bæjarstjórn.
Valgerður sagði að hugmyndir
um sameiningu orkufyrirtækjanna
hafi verið talsvert í umræðunni og
ekki síst vegna þess að starfsemi
þeirra er að færast undir sama þak
á Rangárvöllum. „Við leggjum til að
sameingin verði miðuð við næstu
áramót en það mætti vel hugsa sér
að einhver hluti fyrirtækjanna sam-
einist fyrr. Þetta mál fer fyrir bæj-
arstjórn næsta þriðjudag og ef hlut-
irnir ganga eftir eins og við leggjum
til verður hægt að fara að vinna
frekar að málinu. í allri samkeppni
um orkuveitur þurfum við að vera
tilbúin í þann slag og teljum okkur
sterkari í þeirri umræðu með því að
sameina orkufyrirtækin.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að
láta gera athugun á hagkvæmni
þess að flytja höfuðstöðvar Raf-
magnsveitna ríkisins, RARIK, frá
Reykjavík til Akureyrar. Jafnframt
eru uppi hugmyndir um að RARIK
sameinist orkufyrirtækjum Akur-
eyrarbæjar. í tengslum við það mál
hefur bæjarráð lagt til að Ásgeir
Magnússon, Kristján Þór Júlíusson
og Jakob Bjömsson skipi viðræðu-
nefnd sem leiði viðræður við ríkis-
valdið um RARIK af hálfu Akureyr-
arbæjar.
Skrifstofuhús byggt fyrir
báðar veiturnar
AKO/Plastos keypti húsnæði Raf-
veitu Akureyrar við Þórsstíg á síð-
asta ári og hefur hluti starfseminnar
verið fluttur að Rangárvöllum. Þar
er búið að reisa 925 fermetra við-
byggingu norðan við núverandi hús-
næði HVA, sem hýsir lager og verk-
stæði HVA og Rafveitu Akureyrar.
Jafnframt er verið að byggja um 620
fermetra skrifstofuhús á Rangár-
völlum fyrir báðar veiturnar og
munu skrifstofur rafveitunnar verða
fluttar frá Þórsstíg í nýja húsið í
ágúst í sumar.
Þá var eignarhaldsfélagið Rang-
árvellir stofnað í lok síðasta árs en
félagið er í eigu bæjarsjóðs, Hita- og
vatnsveitu Akureyrar og Rafveitu
Akureyrar. Félagið mun taka við
fasteignum HVA á Rangái-völlum
og standa að frekari uppbyggingu
þar, sjá um viðhald og rekstur fast-
eigna og leigja út húsnæði til þeirra
stofnana bæjarins sem þangað
kunna að verða fluttar.
GÓUGLEÐI
17. mars um land allt