Morgunblaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Samruni Landsteina og QP Utveckiing
Möguleikar á
frekari utrás
Samruni Landsteina og QD Utveckling
opnar nýjar víddir fyrir Landsteina í
frekari útrás þeirra, en vekur einnig
athygli á gerjuninni í íslenskum hugbúnað-
arfyrirtækjum, segir Sigrtín Davíðsdóttir,
sem sat blaðamannafund um samrunann
í Stokkhólmi í gær.
Ljósmynd/Matz Cribáck
Aðalsteinn Valdimarsson, framkvæmdastjóri Landsteina International, og
Pár Söderman, framkvæmdastjóri QD Utveckling.
LANDSTEINAR Intemational og
sænska hugbúnaðarfyrirtækið QD
Utveckling tilkynntu í gær að fyrir-
tækin tvö sameinuðust. Fyrirtækin,
sem áður hafa starfað saman um þró-
un og sölu danska viðskiptakerfísins
Navision, mynda þar með stærsta
fyrirtækið í Evi-ópu á þessu sviði. Til-
kynnt var um samrunann í Stokk-
hólmi á skrifstofu fjárfestingar- og
þróunarfyrirtækisins Ledstjárnan,
sem áður átti 45 prósent í QD Ut-
veckling, en á nú fímmtán prósent í
Landsteinum Intemational, til jafns
við Islenska hugbúnaðarsjóðinn. Að
öðm leyti eru Landsteinar Inter-
national í eigu stofnenda og starfs-
fólks.
Landsteinar er við sammnann
metið tvöfalt að verðmæti á við QD
Utveckling. QD Utveckling verður
dótturfélag Landsteina International
og heitir nú Landsteinar Swenska
AB.
Bæði fyrirtækin starfa að þróun og
sölu stjórnunarkerfa, byggðum á
hugbúnaði frá hinu danska Navision.
Pó það íyrirtæki eigi aðeins að baki
tæpt ár á hlutabréfamárkaði á það
þegar að baki eina helstu velgengnis-
sögu í dönsku viðskiptalífi síðari árin.
Markaðsverðmæti Navision er metið
á um tuttugu milljarða danskra
króna, um 220 milljarða íslenskra
króna.
Bæði Johan Wachtmeister fram-
kvæmdastjóri Ledstjáman og Aðal-
steinn Valdimarsson framkvæmda-
stjóri Landsteina Intemational lögðu
áherslu á að þetta væri aðeins fyrsta
skrefíð. Ætlunin væri að Landsteinar
Intemational gætu nú vaxið frekar
með sammna og kaupum í nálægri
framtíð. Stefnt er að því að Land-
steinar International fari á markað
og í kringum það ferli mun það ráðast
hvar höfuðstöðvar fyrirtæksins
verða.
I samtali við Gunnar Engilbertsson
framkvæmdastjóra íslenska hugbún-
aðarsjóðsins sagði hann að þróun
Landsteina væri mjög ánægjuleg.
Hlutverk sjóðsins væri almennt að
efla þau íyrirtæki, sem þeir tækju
þátt í að fjárfesta í og taka þátt í útrás
þeirra. „Landsteinum hefur gengið
afar vel. Öll fyrirtæki, sem við fjár-
festum í em með útflutningsvömr,
eða möguleika á því sviði. Við munum
í framtíðinni markvisst nota sam-
vinnu við erlenda fjárfesta og eigum
ömgglega eftir að sjá þá koma til Is-
lands í auknum mæli.
Ledstjárnan: Virkur eignaraðili
„Þetta hér er byijunin á frekari
viðleitni að byggja upp alþjóðlega
starfsemi, þar sem takmarkið er að
vera stærsti þróunaraðili Navision-
kerfa í hveiju landi fyrir sig og þróa
þar að auki alþjóðlegt samstarf á því
sviði,“ sagði Wachtmeister á blaða-
mannafundinum í gær. Ledstjáman
er fjárfestingar- og þróunarfyrii'tæki
í eigu nokkurra þekktra sænskra við-
skiptajöfra, þar á meðal Jan Carlzon
fyrrum framkvæmdastjóra SAS.
Aðeins era nokkrar vikur síðan
Ledstjáman keypti 45 prósenta hluta
í QD Utveckling, sænsku hugbúnað-
arfyrirtæki, sem stofnað var í Upp-
sölum 1996 og sem hefur enn höftið-
stöðvar þar. Wachtmeister lagði
áherslu á að Ledstjáman hefði keypt
þennan hlut, þegar séð var fram á að
um sammna yrði að ræða milli Land-
steina og sænska fyrirtækisins, þar
sem samruninn fæli í sér mjög spenn-
andi viðskipta- og þróunarmöguleika.
Þó stefnt sé að því að Landsteinar
Intemational fari á markað í fyrirsjá-
anlegri framtíð hefði Ledstjáman
ekki í hyggju að draga sig út úr þvi
þá. Ledstjáman er að sögn Wacht-
meister ekki venjulegt fjárfestingar-
fyrirtæki, sem aðeins lætur sér nægja
að fjárfesta í fyrirtæki, heldur hefur
áhuga á að starfa með þeim og veita
þeim þá þekkingu, sem það hefði upp
á að bjóða. Meðan Ledstjáman hefði
einhveiju að miðla héldu þeir eignar-
hlut sínum í fyrirtækinu. Ledstjáman
hefði áhuga á virkri eignaraðild, en
ekki eingöngu á fjárfestingum.
Ledstjáman leggur 35 milljónir
sænskra króna í Landsteina Intema-
tional. Það er að sögn Wachtmeister
drjúg fjárfesting á mælikvarða Led-
stjáman, sem venjulega fjárfestir 10-
50 milljónii- sænskra króna í þeim íyr-
irtækjum, sem þeir leggja í.
Tilgangurinn með samrananum er
að fyrirtækið geti nú vaxið hratt og
stefnt er að því að starfsmenn þess
verði orðnir um 500 í lok ái'sins, en
þeir era nú um 230. Líkt og samrun-
inn hefur nú orðið milli tveggja fyrir-
tækja, sem áður störfuðu saman er
sennilegt að Landsteinar Inter-
national muni í náinni framtíð vaxa
með samrana.
Samruninn eðlilegt
f ramhald fyrra samstarfs
Aðalsteinn Valdimarsson sagði að
Landsteinar álitu mikinn styrk að
eignaraðild Ledstjáman, því fyrir-
tækið hefði mikilli reynslu að miðla.
Samstarfíð við QD Utveckling hefði
staðið í þrjú ár og samraninn nú væri
bæði eðlilegt og rökrétt framhald á
samstarfi fyrirtækjanna.
Með vaxandi vægi netverslunar
hafa Landsteinar einbeitt sér að því
sviði og munu gera það enn frekar.
Ætlunin er að bjóða fyrirtækjum
kerfislausnfr, sem fullnægja öllum
þörfum á þessu ört vaxandi sviði. „Við
stefnum að því að verða leiðandi fyrir-
tæki á sviði viðskiptalausna á alþjóð-
legum vettvangi, um leið og við stefn-
um að því að veita þjónustu sem
víðast, sniðna að aðstæðum á hveiju
stað,“ sagði Aðalsteinn. „Samraninn
nú er mikilvægt skref í þá átt að verða
enn öflugri."
Landsteinar Intemational er
stærst á sínu sviði, sem er stjómunar-
kerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
Stærsta evrópska fyrirtækið á sviði
stjómunarkerfa er hið þýska SAP.
Aðalsteinn sagði að eftir því sem
Landsteinar fengju stærri viðskipta-
vini yrðu þeir meira varir við SAP, en
hins vegar ætti SAP í ei-fiðleikum
með að sníða sín kerfi að öðram en
þeim stórfyrirtækjum, sem þau era
miðað við. Styrkur Landsteina er því
meðal annars að geta teygt sig upp í
stóra viðskiptavinina meðan að SAP á
erfitt með að ná til minni fyrirtækja.
Leiðin út í heim liggur um ísland
„Fyrir QD Utveckling er samran-
inn skref út í heim,“ sagði Pár
Söderman framkvæmdastjóri QD Ut-
veckling. Það fyrirtæki er þegar með
stóra viðskiptavini í Sviþjóð eins og
Hennes & Maurits og nú síðast
sænska þingið, en starfar einnig á
Alandseyjum og er að byggja upp
starfsemi í Finnlandi.
Þó bæði QD Utveckling og Land-
steinar byggi afurðir sínar á hugbún-
aði frá Navision liggur styrkur
beggja fyrirtækja í að þau hafa beint
samband við viðskiptavinina. Aðal-
steinn benti á að um helmingur af
vöram, sem Landsteinar seldu væra
eigin þróun, en helmingur væri staðl-
aðar Navision-lausnir.
Fyrir Ledstjárnan hefur að sögn
Wachtmeister skipt máli að vöxtur,
arðsemi og stjórnun Landsteina lítur
MIKIL viðskipti vpra með hlutabréf
á Verðbréfaþingi íslands í gær eða
fyrir 545 milljónir króna. Miklar
verðsveiflur einkenndu markaðinn og
lækkaði Úrvalsvísitala aðallista um
1,5% og er nú 1.750 stig en hún hefur
hæst farið í 1.888,71 stig það sem af er
ári.
Mest viðskipti voru með hlutabréf
Opinna kerfa eða fyrir 92 milljónir
króna og hækkaði gengi þeirra um
12,8%, úr 195 í 220, en fyrirtækið
kynnti afkomutölur sínar eftir lokun
markaða á mánudag.
Mesti hástökkvari dagsins var Is-
lenski hugbúnaðarsjóðurinn en bréf
hans hækkuðu um 35,3%, úr 8,50 í
að hans mati mjög vel út. „Við álítum
okkur öragga með fagmennsku
þeirra, fyrirtækið hefrn- alþjóðlega af-
stöðu og hugmyndir þeirra era góðar.
Allt er hreint og beint og ekkert fal-
ið,“ sagði Wachtmeister, sem sagðist
einnig hafa orðið mjög hrifinn af því
viðskiptaumhverfi, sem hann hefði
kynnst á íslandi.
„Kynnin af íslandi hafa verið mjög
ánægjuleg," sagði hann. „Umhverfið
þar er stórkostlega skapandi, netöld-
in gengin í garð og mjög margt
áhugavert á seyði. Það var engin til-
viljun að við höfðum áhuga á sam-
starfi við Landsteina og við höfum
sannarlega áhuga á að kynnast frekar
öðram íslenskum hugbúnaðarfyrir-
tækjum.“
11,50 en alls vora 21 milljóna króna
viðskipti með bréf félagsins í gær.
Frá því í lok ágúst á síðasta ári er bréf
sjóðsins vora skráð á vaxtarlista
Verðbréfaþings hafa þau hækkað úr
3,25 í 11,50 eðaum 254%.
Viðskipti með Flugleiðir námu 62
milljónum króna í gær og lækkuðu
bréf félagsins um 15,2%, úr 5,01 í
4,25. Bréf Pharmaco hækkuðu um
11,2%, úr 27 í 30 en 40 milljóna króna
viðskipti vora með bréf félagsins á
VÞÍ í gær.
Bréf Hans Petersens hækkuðu um
6,78% í rúmlega 7 milljóna króna við-
skiptum og Hampiðjan hækkaði um
5,19% í 3,5 milljóna króna viðskiptum.
U rvalsvísitalan
lækkar um 1,5%
S
ÁÐUR EN LANGT UM LÍÐUR GETUR ÞÚ SÉRSNIÐIÐ MM
F L U