Morgunblaðið - 01.03.2000, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Indverjar
stórauka
herútgjöld
YASHWANT Sinha, fjármála-
ráðherra Indlands, tilkynnti í
gær, að á fjárlagaárinu, sem
hefst 1. apríl nk., væri gert ráð
fyrh- rnikilli útgjaldaaukningu,
28%, til hermála. Yrðu þau tæp-
lega 1.000 milljarðar ísl. kr.
Hafa þau aldrei aukist jafnmikið
á einu ári. Indverski herinn hef-
ur lagt hart að stjóminni að
hækka framlögin og er því hald-
ið fram, að átökin í Kasmír hafi
sýnt hve mjög hann skorti nýj-
ustu tækni og vopn.
Aftaka í
Texas í dag
RÚMLEGA, þrítugur blökku-
maður og dæmdur morðingi,
Odell Bames, verður tekinn af
lífi í Texas í dag. í gær hafnaði
sérstök náðunamefnd að þyrma
lífi hans og því er það aðeins
George W. Bush rOdsstjóri, sem
getur komið í veg fyrir aiftökuna.
Það hefui’ hann þó aldrei gert í
þau fimm ár, sem hann hefur
verið í embættinu.
Hafa þeir Jóhannes Páll páfi og
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, árangurslaust beðið
Barnes griða. Hann var dæmd-
ur fyrir að myrða vinkonu sína
1989 en 1997 komst hópur lög-
fræðinga að þeirri niðurstöðu,
að lögreglumennimir, sem unnu
að rannsókninni, hefðu komið
sökinni á hann. Yfirvöld í Texas
neita samt að kanna málið á ný.
615 manns hafa verið teknir af
lífi í Bandaríkjunum frá því
dauðarefsing var aftur tekin upp
1976 og þar af 207 í Texas.
Dropinn holar
steininn
BEVERLEY Redman lét loks
undan og sagði já þegar hann
Keith bað hana að giftast sér. Þá
var hann búinn að biðja hennar
8.500 sinnum og ganga á eftir
henni með gi-asið í skónum í 24
ár. Hafa þau raunar búið saman
í allan þennan tíma og eiga íjög-
urra ára gamlan strák. „Ég hef
alltaf fundið upp á einhverju til
að segja nei en ástæðan var bara
ein: Otti,“ segir Beverley. „Ég
var svo hrædd við að binda mig.“
Keith segist hafa gert allt, sem
hugsast getur, til að fá Beverley
upp að altarinu. Hann hefur
sídlið eftir rómantískar orðsend-
ingar til hennar hér og þar, boð-
ið henni út að borða í tíma og
ótíma, farið með henni í sumar-
leyfi til útlanda og stundum
stunið upp bónorðinu þótt þau
væra að horfa á spennandi
mynd í sjónvarpinu. Brúðkaups-
ferðin þeirra verður til Hawaii-
eyja.
Dregur „Rauði
Ken“ sig í hlé?
NOKKRAR líkur eru á, að Ken
Livingstone, sem varð undir í
kosningum um frambjóðanda
breska Verkamannaflokksins í
væntanlegum borgarstjóra-
kosningum í London, hætti við
að bjóða sig fram sem óháðan.
Kannanir sýna þó, að „Rauði
Ken“, eins og hann er kallaður,
muni sigra láti hann verða af
framboði. í íyrrakvöld ræddust
þeir við í tvo tíma, hann og John
Prescott aðstoðarforsætisráð-
herra, og í sameiginlegri yfiriýs-
ingu að fundinum loknum köll-
uðu þeir hvor annan „félaga" að
gömlum sósíalistasið. Er búist
við frekari viðræðum.
Friedrich Merz kjörinn nýr þingflokksformaður CDU
Vonir um betri
tíð bundnar
við ný andlit
AP
Friedrich Merz, t.h., nýkjörinn þingflokksformaður Kristilegra demó-
krata í Þýzkalandi, á blaðamannafundi í Berlín í gær. Næst honum situr
fyrirrennarinn Wolfgang Schauble, þá Edmund Stoiber, leiðtogi CSU
og forsætisráðherra Bæjaralands, og loks Michael Glos, talsmaður þing-
manna CSU á þinginu í Berlín og varaformaður hins sameiginlega þing-
flokks systurflokkanna CDU og CSU.
Berlín. Reuters, AFP.
KRISTILEGIR demókratar í
Þýzkalandi (CDU) kusu sér í gær
nýjan þingflokksformann, sem er
alveg laus við að hafa verið bendlað-
ur við fjármálahneyksli flokksins
sem Helmut Kohl, fyi-rverandi
kanzlari, hefur verið aðalpersónan í.
Friedrich Merz, sem er 44 ára og
er einn helzti efnahags- og fjár-
málasérfræðingur þingflokks CDU
og bæverska systurflokksins CSU,
var mótframboðslaust kjörinn til að
taka við þingflokksformennskunni
af Wolfgang Schauble, sem sá sig
fyrir skemmstu knúinn til að láta af
formennsku bæði fyrir þingflokkn-
um og flokknum sjálfum. Ófáir
flokksmenn höfðu fyllzt óánægju
með Schauble vegna þess hvernig
hann hélt á málum flokksins í
kringum fjármálahneykslið.
Hverjir tilnefndir verða sem
mögulegir arftakar Schaubles í
flokksleiðtogasætinu verður hins
vegar ekki ákveðið fyrr en á flokks-
stjórnarfundi hinn 20. marz, fyrir
flokksþing sem fram fer í byrjun
apríl.
Með því að skipa „ný og fersk“
andlit í ábyrgðarstöður - á borð við
Merz - vonast flokkurinn til að
hrista af sér þá neikvæðu ímynd
sem fjármálahneykslið hefur orsak-
að og kostað hefur flokkinn mikið
fylgistap.
„Hlutverk stjórnarandstöðunnar
er að veita ríkisstjórninni virkt eft-
irlit en ekki að týna sjálfri sér í eig-
in vandamálum," sagði Merz eftir
kjörið í gær.
Riihe og Merkel líklegust til
að bítast um leiðtogasætið
Hinir 240 þingmenn CDU og
CSU munu ennfremur kjósa 6 vara-
þingflokksformenn. Volker Rúhe,
sem fór fyrir CDU í kosningum til
þings Slésvíkur-Holtsetalands um
helgina sem flokkurinn tapaði, en
þó ekki eins stórt og margir höfðu
óttazt, gerir sér vonir um að verða
einn þessara staðgengla Merz. En
Rúhe er jafnframt - ásamt Angelu
Merkel, framkvæmdastjóra flokks-
ins - annar tveggja líklegustu arf-
taka Scháubles sem flokksleiðtogi.
í Berlínarblaðinu Berliner Morg-
enpost var fullyi't í gær, að óopin-
bert samkomulag væri í burðarliðn-
um hjá forystuliði CDU um að
Rúhe yrði flokksformaður en Merk-
el yrði áfram „númer tvö“ sem
varaformaður og framkvæmda-
stjóri. Talsmenn CDU vísuðu frétt-
inni á bug, en að sögn heimildar-
manna í flokknum munu margir
flokksmenn vera nokkuð hallir und-
ir þessa lausn.
AP
Banvænt grjótkast
SAKSÓKNARI í Darmstadt í
Þýskalandi hyggst leggja fram
morðákæru á hendur fjórum
bandarískum ungmennum sem
búa í svonefndu Lincoln-hverfí
liðsmanna herstöðvar Banda-
ríkjamanna skammt frá borginni.
Unglingarnir eru 14, 15, 17 og 18
ára gamlir og fleygðu þeir nokk-
urra kílógramnia steinhnullung-
um af göngubrú á aðvífandi bíla
á hraðbrautinni B3 fyrir neðan
brúna, einnig á kyrrstæða bfla í
stæðum. Tvítug kona í einum
bflnum lést á sunnudag þegar
steinn Ienti á framrúðunni, einnig
lét 41 árs gömul kona lífið um
kvöldið og nokkrir hafa auk þess
slasast.
Unglingarnir köstuðu grjóti í
alls sex bfla á sunnudeginum en
að sögn lögreglunnar hafa þeir
hist nokkrum sinnum síðustu vik-
urnar til að stunda grjótkastið.
Þeir hafa játað á sig sök en tals-
maður lögreglunnar sagði enn
óljóst hvers vegna unglingarnir
hefðu byrjað á athæfínu. Herlögr-
eglumenn óku um íbúðarhverfi
Darmstadt á mánudag og notuðu
gjallarhorn til að biðja alla sem
gefíð gætu upplýsingar um málið
að gefa sig fram, auk þess var
heitið nær 400 þúsund króna
verðlaunum fyrir upplýsingar.
Dugði þetta til að upp komst um
sakborningana.
Á myndinni sést bfll tvítugu
konunnar sem lést, 75 ára gömul
amma hennar slasaðist alvarlega.
Grunur á að sænskir
þingmenn kaupi þjón-
ustu vændiskvenna
Slík viðskipti eru saknæm
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
RÚMU ári eftir að sænska þingið
samþykkti lög, sem gera það sak-
næmt að kaupa þjónustu vændis-
kvenna, leiðir rannsókn í ljós að aðil-
ar í þinghúsinu og sænska
stjórnarráðinu hafa keypt kynlífs-
þjónustu af vændiskonum í gegnum
tölvur hins opinbera. I viðtali við Af-
tonbladet segir Birgitta Dahl þing-
forseti að málið sé skelfilegt og með
öllu óviðunandi að slík viðskipti fari
fram, en ekki sé hægt að útiloka að
tölvurnar hafi verið misnotaðar af
utanaðkomandi aðilum.
Viðskiptin frá þinginu og stjórnar-
ráðinu komu í ljós er sænska lög-
reglan lét athuga netviðskipti
sænskra vændiskvenna. I ljós kom
að viðskipti við þær höfðu átt sér
stað frá um 130 fyrirtækjum og
stofnunum.
Af stórfyrirtækjum má nefna
Volvo, Saab-Scania og Skandia, en á
listanum era einnig opinberar stofn-
anir eins og Pósturinn, ríkisskatt-
stjóri, Telia og Vegagerðin, auk
þingsins og stjórnarráðsins.
A listanum era aðeins skráð raun-
veraleg viðskipti, en ekki rakin spor
þeirra, sem aðeins fóra inn á netsíð-
ur til að skoða þær eða inn á kynlífs-
spjallrásir. Að sögn Erik Korsás
glæpafræðings, sem sá um rann-
sóknina virtist sem tveir eða þríi’ að-
ilar í þinghúsinu annars vegar og
stjórnarráðinu hins vegar hefðu átt
viðskipti við vændiskonur.
Rannsóknin náði aðeins að móður-
tölvum stofnana og fyrirtækja, en
sambandið við vændiskonur var ekki
rakið áfram inn í stofnanirnar að ein-
stökum tölvum. Nú er hins vegar
rætt um hvort reyna eiga að finna
hvaða menn vora hér á ferðinni og
jafnframt er rætt hvort birta eigi
nöfn þehra.
Netviðskiptin sögð
hafa aukist til muna
Málið hefur vakið mikla athygli í
Svíþjóð og víðar. Aftonbladet birti
sýnishorn úr netbréfum frá körlum
víðs vegar í þjóðfélaginu, þar sem
þeir voru að falast eftir kynlífsþjón-
ustu og sænska sjónvarpið sagði frá
rannsókn Korsás í kvöldfréttum. I
Aftonbladet var rætt við vændis-
konu, sem auglýsir á Netinu og hún
sagði að eftir að þingið gerði það sak-
næmt að kaupa þjónustu vændis-
kvenna hefðu netviðskiptin aukist til
muna. Þannig losnuðu menn við að
leita eftir vændiskonum á götum úti,
þar sem hætta væri á að sæist til
þeirra. Fyrir vændiskonurnar væra
netviðskiptin áhættusamari, því þær
hittu þá menn án þess að sjá þá, en á
götunni gætu þær sneitt hjá við-
skiptum við menn, sem þeim sýndust
viðsjárverðir.
„10 ára“ og
skálar í víni
Ósló. Reuters.
HEIDI Henriksen fagnaði í
gær, hlaupársdag, tíunda af-
mælisdeginum sínum og ekki
aðeins hún, heldur líka bræður
hennar tveir. Er ekki vitað um
aðra fjölskyldu, sem slær það
út.
„Ég sé ekkert athugavert við
að fá mér vínglas með matn-
um,“ sagði Heidi, sem er fædd
29. febrúar 1960 og var því í
raun fertug í gær. Er hún
hjúkrunarkona og býr í Anden-
es í Norður-Noregi.
Tveir yngri bræður Heidi,
Olav, fæddur 1964, og Leif-
Martin, fæddur 1968, eiga af-
mæli þennan sama dag og eru
þau systkinin vön að koma sam-
an í janúar til að fagna honum.
Á afmælisdeginum sjálfum eru
þau hins vegar með fjölskyld-
um sínum.
Þau systkinin eiga sinn sess í
Guinness-metabókinni og raun-
ar er afmælisdagurinn þeirra
nú mjög merkilegur því að
hlaupár er ekki nema á 400 ára
fresti ef ártalið endar á 00.