Morgunblaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 58
58 MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
íslandsmeistari í einstaklingskeppni í frjálsum dönsum varð Helga
Jónína Markúsdóttir úr Reykjavík.
Islenskur eldmóður
PAÐ VAR glatt á hjalla í félags-
miðstöðinni Tónabæ um helgina
er fjöldi unglinga á aldrinum 10-
12 ára keppti um íslandsmeist-
aratitil í frjálsum dönsum. Keppn-
in hefur verið haldin í fjölda ára en
í ár var metþáttaka, 42 hópar og
20 einstaklingar af öllu landinu
kepptu.
Islandsmeistari í einstakling-
skeppni varð Helga Jónína Mar-
kúsdóttir, í öðru sæti hafnaði
Nancy Pantazis og í því þriðja
Ásta Hrund Guðmundsdóttir en
þær eru allar frá Reykjavík.
Hópur er kallaði sig Eldmóður
sigraði í hópakeppni en það eru
þær Hildur J. Tryggvadóttir,
Hugrún Árnadóttir, Ólöf H.
Gunnarsdóttir, Thelma Jónsdóttir
og Emilía Ottesen sem skipa
hann.
Morgunblaðið/Kristinn
Kolbrún Guðmundsdóttir heilsar afmælisbarninu. Kolla í faðmi fjölskyldunnar: Linda Ingvarsdóttir,
Dótturdóttirin Kolbrún fylgist með. Siljandi eru dóttir hennar, og þijú börn Lindu, Kolbrún, Hrafn-
Sæunn Þorleifsdóttir og Páll Guðbergsson. kell og Védís Gissurarbörn.
Kolla á Hressó sextug
HVER man ekki eftir Kollu á Hressó? Það var sama
hvað Kolla tók sér fyrir hendur, eftir að hún hætti
störfum á Hressó, alltaf fylgdi henni nafngiftin Kolla
á Hressó. Hún tók virkan þátt í uppbyggingu Bern-
höftstorfunnar og stofnaði fyrsta veitingastaðinn í
húsaröðinni: Torfuna. Síðar flutti hún sig um set, út
á horn og stofnaði þann mæta veitingastað Lækjar-
brekku.
Kolla (Kolbrún Jóhannesdóttir) varð sextug í
fyrradag, þann 28. febrúar og hélt hún daginn hátíð-
Iegan á heimili sínu, að Hátúni 12, og komu
fjölmargir gestir að heiðra hana á afmælisdaginn.
Raunar þurfti að tvískipta afmælisveislunni og hófst
hún með móttöku á sunnudag. Á mánudag, afmælis-
daginn, streymdu svo gestirnir að í tugatali til þess
að samgleðjast Kollu á þessum tímamótum.
*
Veislukostur
JSjúffengar Ipeislusamlojur á böffum fyrir stóra eöalitla bópa.
'Tifoalið fyrir fundi, afmæli og aÓm mannfagnaöi.
Zfpplýsingar í
Samlokur
ffh ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
í tilefni af frumsýningu leikritsins Komdu nær
standa mbl.is og Þjóðleikhúsið fyrir léttum netleik.
Svaraðu spurningum á mbl.is og nældu þér í:
• Miða fyrir tvo á leikritið Komdu nær
• Miða fyrir tvo á leikrit hjá
Leikfélagi Akureyrar
• Kvöldverð fyrir tvo á
veitingastaðnum Caruso
• Ferð fyrir tvo til/frá Akureyri frá
Flugfélagi íslands.
Leikritið Komdu nær er margverðlaunað, nýtt breskt leikrit og fjallar um flókinn
ástarferhyrning í nútímanum. Leikstjóri er Guðjón Pedersen.
Leikendur eru Baltasar Kormákur, Brynhildur Guöjónsdóttir,
Elva Ósk Ölafsdóttir og Ingvar E, Sigurðsson.
Þýðing: Hávar Sigurjónsson
Lýsing: Páll Ragnarsson.
Leikmynd og húningar: Helga I. Stefánsdóttir.
Sýningin er ekki við hæfi barna.
H mbl.is