Morgunblaðið - 17.03.2000, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
SELTJABNARNES
■'r\
BESSASTAÐA-
HREPPUR>
v\ rpjíj
4 , - !
BREIÐBAND LANDSÍMANS
HAFNARFJORÐUR
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Svæði tengd Breiðbandinu í árs|ók1999
:>*"wafrjadjpiðör
Njárðvík
Rángárvalla
_ sýslg <4
lyojsvöllur
Uppsetning svifbrautar
upp á Hlíðarfjall
Akureyrar-
bær leggur
fram 10
milljónir
krdna
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum í gær að
framkvæmdasjóður bæjarins legði
fram 10 milijónir króna í hlutafé til
verkefnisins um svifbraut í Hlíðar-
fjalli. Frekari aðkoma bæjarins að
málinu mun svo ráðast að við-
brögðum annarra fjárfesta.
Sveinn Jónsson athafnamaður í
Kálfsskinni í Dalvíkurbyggð, sem
farið hefur fremstur í flokki þeirra
manna sem unnið hafa að undir-
búningi verkefnisins, sagðist mjög
ánægður með afgreiðslu bæjar-
ráðs, enda væri þarna um að ræða
fyrsta stóra framlagið til hlutafé-
lagsins. Hann sagði að þessu til
viðbótar hafl einstaklingar skrifað
sig fyrir svipaðri upphæð. „Petta
er góð byrjun en það vantar mikið
fjármagn enn og það hafa margir
lýst yfir áhuga á að leggja verk-
efninu lið.“
Sveinn sagði að unnið væri að
því að endurgera viðskiptaáætlun
verkefnisins, sem hægt verður að
leggja fyrir þá aðila sem að því
vilja koma. Heildarkostnaður við
verkefnið er áætlaður 420-440
milljónir króna og sagði Sveinn að
á næstu vikum og mánuðum þyrfti
að safna 200-300 milljónum króna í
hlutafé. Hlutafélagið Hlíðarfjall
ehf. var stofnað á síðasta ári vegna
verkefnisins og þar geta áhuga-
samir nálgast áskriftarblöð.
Sveinn sagði að framundan væri
að ganga frá samningum við aust-
urríska fyrirtækið Doppelmaier
um kaup á öllum búnaði, auk þess
sem fyrirtækið leggur fram teikn-
ingar og mun að auki aðstoða
heimamenn við allan undirbúning.
„Til viðbótar við endastöðvar verð-
um við með millistöð þar sem við
getum hleypt fólki af fyrir neðan
bröttu brekkuna uppi við brún,
þannig að skíðafólk fær allt fjallið
undir án þess að fara alla leið upp.
Þessi breyting hleypir kostnaðin-
um upp um 50 milljónir króna.“
Stefnt er að því að taka svif-
brautina í notkun sumarið 2001 og
að í kjölfarið verði hægt að halda
áfram framkvæmdum uppi á fjalls-
brún varðandi móttöku ferða-
manna og aðstöðu skíðamanna upp
á jökli. Til að byrja með verða
keyptir 20 klefar í svifbrautina,
sem flytja um 500 manns á klst. en
með því að fjölga klefunum um 10
verður hægt að flytja 800 manns á
klst. upp á fjallið.
SS tekur þátt
í kostnaði
við sýnatöku
STEINÞÓR Skúlason, forstjóri
Sláturfélags Suðurlands, segir að
fyrirtækið grípi til þess að taka sýni
úr sláturgripum í öllum sveitum
Rangárvallasýslu neðan þjóðvegar
af öryggisástæðum. Þama er um að
ræða svæði sem afmarkast af Mark-
arfljóti í austri og Þjórsá í vestri. Tvö
tilfelli salmonellusýkingar hafa
greinst í nautgripum og hrossum á
Suðurlandiívetur.
„Það komu fyrir stuttu nýjar
reglur frá yfirdýralækni um sýna-
töku sem verður að viðhafa áður en
má slátra hrossum á þessu tiltekna
svæði. Þetta er varúðarráðstöfun
sem sett er í gang meðan unnið er að
því að hreinsa þetta svæði af grun
þannig að ekki þurfi að hafa aðrar
reglur þar en almennt gilda. Þegar
reglur yfirdýralæknis komu fram
þurftum við að meta hvemig það
snerti okkur og okkar starfsemi. Það
er okkar ákvörðun að láta reglumar
ekki eingöngu ná yfir hross heldur
alla gripi sem koma af þessu svæði.
Þetta er viðbótar öryggisráðstöfun
af okkar hálfu. Það er okkar mat að
þótt mjög ólíklegt sé að smit geti
borist í aðra gripi sé ástæða til að
viðhafa þessa reglu til að verja okkar
framleiðslu," segir Steinþór.
Sýnatökur framkvæmdar
á næstu vikum
Það liggur fyrir að yfirdýralækn-
isembættið hefur skipulagðar sýna-
tökur í næstu viku og sagði Steinþór
að innan skamms lægju fyrir heild-
arniðurstöður fyrir svæðið. Vonandi
yrði þá hægt að fella niður þessar
sérstöku ráðstafanir Sláturfélagsins.
Sláturfélagið býðst til að greiða
helming kostnaðar við sýnatöku á
móti bónda af þeim sláturgripum
sem fara til Sláturfélagsins og jafn-
framt hluta af átaki yfirdýralæknis.
Hvert sýni kostar 5-6 þúsund kr. og
nægir safnsýni úr öllum hópnum
sem á að koma til slátrunar.
Um 30 þúsund
heimili geta tengst
breiðbandinu
UM helmingur hcimila á höfuð-
borgarsvæðinu á nú kost á að
tengjast breiðbandi Landssímans
en um þriðjungur þegar litið er
til landsins alls. Samanlagt er um
að ræða rétt um 30 þúsund heim-
ili, að sögn Ólafs Stephensen, for-
stöðumanns upplýsinga- og kynn-
ingarmála hjá Landssímanum.
í Morgunblaðinu í gær er sagt
frá tilraunaverkefni á vegum
Landssímans. Fjörutíu heimili
tengjast Netinu í gegnum breið-
bandið sem gerir það að verkum
að gagnaflutningsgetan marg-
faldast í samanburði við hefð-
bundnar ISDN-tengingar. Það
sem hefur hins vegar takmarkað
nýtingu breiðbandsins í þessu
skyni er að endabúnaður hefur
verið dýr en nú hafa litið dagsins
Ijós ódýrari Iausnir í þeim efnum.
Ólafur sagði að uppbygging
breiðbandskerfisins hefði verið
mest á höfuðborgarsvæðinu en
kerfið hefði einnig verið byggt
upp jafnt og þétt úti um landið.
Lagðir hefðu verið Ijósleiðara-
strengir í öll ný hverfí síðustu ár-
in og þær götur f eldri hverfum
þar sem lagnir hefðu verið end-
umýjaðar. Þá yrðu tæplega eitt
þúsund heimili á Akureyri tengd
breiðbandinu, rúmlega 600 í
Reykjanesbæ, tæplega 600 á ísa-
firði og 500 heimili á Egilsstöð-
um. Öll hcimili á Húsavík væru
tengd breiðbandinu og sama
myndi gilda um Stykkishólm, þar
sem 400 heimili tengdust breið-
bandinu innan tíðar en Iagður
hefði verið ljósleiðarastrengur til
heimila þar um leið og hitaveita
hefði verið lögð í bænum.
Ólafur sagði að að óbreyttu
væri ætlunin að hafa áfram upp-
byggingu breiðbandsins í þessum
farvegi. Hins vegar færi það auð-
vitað dálftið eftir þróun þjónust-
unnar hvert framhaldið yrði.
Þannig mætti gera ráð fyrir því
að ef það yrðu mikil viðbrögð
vegna nettengingar um breið-
bandið að settur yrði meiri kraft-
ur í uppbyggingu kerfisins.
Fólk getur nálgast upplýsingar
um hvort heimili þeirra eigi kost
á breiðbandstengingu á Netinu
með því að slá inn slóðina breid-
varp.is, en þar er að finna leitar-
vél sem gefur upplýsingar um
tengingu við breiðbandið sé götu-
heiti gefið upp.
Akranes
REYKJAVÍK
Seltjarnarnes t»osfell
Gnndavtk
Mýrdals
Sláturfélag Suðurlands hefur ákveðið
að taka ekki við gripum til slátrunar frá
þessu svæði nema að undangenginni
rannsókn sem útiloki salmonella smit.
vestmannaeyjar
50 km
i
i