Morgunblaðið - 17.03.2000, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
.Búsmalinn hundsaður
íslendingar eru jafnaðarmenn þegar
dýraríkið er annars vegar. . ,1 ’
EIR hafa ákveðið að
mismuna dýnmum líka.
Ráðamenn þjóðarinn-
ar hafa nú látið þau boð
út ganga að dýrunum skuli raðað
eftii* mikilyægi alveg 11 ' | I 11 | \
Af hverju var ég ekki valin sem tákn þjóðarinnar við móttöku erlendra höfðíngja? Aldrei
hef ég verið með sumarexem eða verið í tollsvindli.
Byggðin þenst út
Morgunblaðið/Golli
BYGGÐ í Borgarholtshverfí í Grafarvogi og Bakkahverfí neðan við Korpiílfsstaði nálgast syðstu hverfín í Mos-
fellsbæ. Á miðri mynd má sjá Blikastaði en á því landi er fyrirhugað að reisa iT)úðabyggð í áföngum á næstu árum.
Afmælistónleikar Drengjakórsins
Syngja eins
og englar...
Drengjakor
Laugarneskirkju
heldur tónleika á
laugardag klukkan 15 í
Langholtskirkju. Flutt
verða kirkjuleg og verald-
leg verk og er stjórnandi
Friðrik S. Kristinsson.
Ingólfur Sigurðsson er
formaður foreldrafélags
drengjakórsins, en hve
lengi skyldi þessi kór hafa
starfað?
„Kórinn var stofnaður
6. október 1990 svo hann
verður tíu ára í haust -
þetta eru því afmælistón-
leikar kórsins þótt þeir
séu haldnir svona snemma
ársins. Einkunnarorð
kórsins eru: Að syngja
eins og englar, hegða sér
eins og herrar og leika sér
eins og strákar."
- Hvað er helst á efnis-
skrá afmælistónleikanna?
,Á tónleikunum verður m.a. á
dagskrá talsvert af verkum eftir
Mozart, t.d. mun Þóra Einar-
sdóttir flytja verk úr Töfraflaut-
unni, hún syngur líka Panis Ang-
eligus eftir C. Frank. Einnig
verður flutt tónlist úr Söngvaseið
enda er kórinn að fara í söng-
ferðalag til Austurríkis hinn 6. jú-
lí nk. Einnig eru íslensk verk á
efnisskránni, svo sem Maístjar-
nan eftir Jón Ásgeirsson og Ave
María eftir Kaldalóns. Af kirkju-
legum verkum má nefna Ave Ver-
um Corpus eftir Mozart og Pia
Jesu eftir Furé. Einnig syngja
einsöng tveir af stofnfélögum
kórsins, Jónas Guðmundsson ten-
ór og Jóhann Ari Lárusson."
-Hvað eru margir drengir í
kórnum?
„í dag eru þrjátíu og tveir
drengir í Drengjakór Laugar-
neskirkju á aldrinum 8 til 15 ára.
En svo er kórinn með deild eldri
félaga og í henni eru níu ungir
menn á aldrinum 17 til 20 ára. Á
þessum tíu árum sem kórinn hef-
ur starfað hafa sungið í honum
hundrað og fimmtíu drengir á
aldrinum 6 til 20 ára.“
- Er þetta eini drengjakórinn á
íslandi?
„Já, þetta er eini starfandi
drengjakórinn á íslandi núna og
jafnframt sá sem lengst hefur
starfað. Frumkvöðull að stofnun
kórsins var Bandaríkjamaðurinn
Ronald Vilhjálmur Turner, en
hann var organisti og söngstjóri
hjá Laugarneskirkju um 1990.“
- Tekur foreldrafélagið sem þú
veitir forstöðu mikinn þáttístarf-
semi varðandi kórinn?
„Já, það er óhætt að segja það.
Við, sem eigum stráka í kórnum,
lítum á það sem forréttindi að fá
að taka þátt í þessu starfi vegna
þess að við finnum að veganestið
sem þeir fá er ómetanlegt. Þeir fá
mikla og vandaða söngþjálfun,
þeir læra nótnalestm- og tón-
fræði, þeir venjast jákvæðum aga
og að bera virðingu fyrir öðrum í
leik og starfi og síðast en ekki síst
læra þeir að meta ____________
margs konar tónlist í
kirkjulegu umhverfi."
- Hafíð þið áhrif á
va1 á efnisskrá tón- _____
leika?
„Nei, kórstjórinn, Friðrik S.
Kristinsson, hefur óskorað vald í
þeim efnum. Þetta er auðvitað
fyrst og fremst kirkjukór en hann
flytur einnig veraldlega tónlist.
Friðrik tók við stjórn kórsins
1994 og stjórnar þar að auki
Karlakór Reykjavíkur og Snæf-
ellingakórnum í Reykjavík. Við
erum með fleira fagfólk sem sér
um tónlistaruppeldi kórfélaga,
Ingólfur Sigurðsson
► Ingólfur Sigurðsson fæddist í
Reykjavík 18. desember 1960.
Hann var við nám við Mennta-
skólanum við Sund en hóf síðan
nám í bakaraiðn og lauk sveins-
prófí 1983. Meistararéttindi fékk
hann í bakaraiðn 1986. Nú er
hann að ljúka kennsluréttinda-
námi við Kennaraháskóla Is-
lands. Hann hefur starfað í ýms-
um bakaríum í 13 ár, þar af var
hann með eiginn rekstur í 8 ár.
Árið 1996 sameinuðust allar mat-
vælagreinar í Hótel- og matvæla-
skólanum við MK þar er Ingólfur
deildarstjóri við bakaradeild nú.
Hann er kvæntur Birnu Bjama-
dóttur viðskiptafræðingi og eiga
þau tvö börn.
það er Björk Jónsdóttir söngkona
sem sér um raddþjálfun og Peter
Máté er undirleikari kórsins,
hann leikur á tónleikunum ásamt
Lenku Mátéovu.“
-Þú sagðir að kórinn væri á
leið til Vínarborgar í sumar - hef-
ur hann áður farið til útlanda?
„Já, það hefur verið hefð frá
upphafi að annað hvert ár hefur
Drengjakór Laugarneskirkju far-
ið í tónleikaferðir út á lands-
byggðina, hann hefur sungið m.a.
á Snæfellsnesi, í Vestmannaeyj-
um, á Egilsstöðum, í Borgarfirði
og Skagafirði. Hitt árið hefur kór-
inn svo farið í ferðalög til útlanda,
þetta er því fimmta ferð kórsins
til útlanda sem farin verður í
sumar. Farið hefur verið tvisvar
til Flórída í Bandaríkjunum á
drengjakóramót, í seinna skiptið
vann kórinn til þrennra gullverð-
launa. Árið 1996 fór kórinn til Sví-
þjóðar og Danmerkur og vorið
1998 fór kórinn til Englands í boði
tveggja þarlendra drengjakóra."
-Syngur Drengjakór Laugar-
neskirkju í annan tíma en á sér-
stökum tónleikum sínum?
„Já hann er talsvert eftirsóttur,
nefna má að kórinn hefur sungið í
jólamessu biskups íslands í Sjón-
varpinu og hjá forseta
Islands, þá söng kórinn
á jólatónleikum hjá
Karlakór Reykjavíkur
_______ í Hallgrímskirkju og
svo mætti lengi telja.“
- Stendur foreldrafélag
Drengjakórs Laugarneskirkju í
Kórfélagar fá
ómetanlegt
veganesti
fjáröílunars tar/I ?
„Já, það er mjög öflugt fjáröfl-
unarstarf í gángi til þess að
standa undir tónlistarstarfmu og
ferðalögum kórsins. M.a. má geta
þess að á aðventunni selja kórfé-
lagar aðventukerti frá Heimaey,
en drengjakórinn er stærsti ein-
staki söluaðili kertanna.