Morgunblaðið - 17.03.2000, Page 10

Morgunblaðið - 17.03.2000, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Utanríkisráðherra mælir fyrir frumvarpi um ákveðna þætti varnarsamstarfsins Sakaður um að ganga er- inda Eimskipafélagsins Morgunblaðið/Ásdís Halldór Ásgrímsson neitaði ásökunum Össurar Skarphéðinssonar um að hann gengi erinda Eimskipafélagsins með frumvarpi um fram- kvæmd tiltekinna þátta í varnarsamstarfí íslands og Bandaríkjanna. UTANRÍKISRÁÐHERRA var sakaður um það á AJþingi í gær að ganga erinda Eimskipafélagsins með frumvarpi sem fjallar um framkvæmd tiltekinna þátta í varnarsamstarfi íslands og Banda- ríkjanna. Taldi Össur Skarphéð- insson, þingmaður Samfylkingar, að frumvarpinu væri beint sér- staklega gegn Atlantsskipum sem að undanförnu hefur séð um ís- lenskan hluta flutninga varn- arliðsins milli Islands og Bandaríkjanna en því neitaði Halldór Ás- grímsson utan- ríkisráðherra hins vegar og sagði að með frumvarpinu væri einungis skilgreint hvað teld- ist íslenskt fyrirtæki. Það þýddi ekki að verið væri að hygla Eim- skipafélaginu, uppfylltu fyrirtæki skilyrðin væri þeim vitaskuld frjálst að bjóða í flutningana. Halldór sagði í framsöguræðu sinni að í frumvarpinu væri tekið með heildstæðum hætti á ýmsum málum sem tengdust varnarsam- starfi Islands og Bandaríkjanna, einkum viðskiptum íslenskra aðila við varnarliðið. Fest væri í sessi sú frjálsræðisþróun sem orðið hefði á síðustu árum I verktöku fyrir varnarliðið og tryggður fullnægj- andi lagarammi í því efni. Enn- fremur væri treystur lagagrunnur fyrir stjórnsýslu á varnarsvæðun- um, í samræmi við þær kröfur sem gerðar væru til nútímalegra stjórnsýsluhátta. Halldór sagði m.a. að í samræmi við ákvæði varnarsamningsins og afleiddra samninga gerði frum- varpið ráð fyrir því að tilnefning af hálfu íslenskra stjórnvalda væri forsenda þess að samningar ís- lenskra aðila við varnarmálið væru gildir. Gert væri ráð fyrir að samn- ingar við varn- arliðið færu al- mennt um hendur ís- lenskra stjórn- valda og að fram færi forval hæfra viðskiptaaðila eftir íslensk- um reglum. Að því er verksamn- inga við varnarliðið varðaði væri þó gert ráð fyrir aðlögunarferli í samræmi við samninga milli Is- lands og Bandaríkjanna. „Forvalsnefnd ber að leggja mat á efnisleg skilyrði sem fyrirtæki þurfa að uppfylla, auk þess að taka mið af öryggissjónarmiðum," sagði Halldór. „Meðal skilyrða sem kveðið er á um í frumvarpinu er að um „íslensk fyrirtæki" sé að ræða. Er það hugtak skilgreint til að tryggja efnahagsleg tengsl fyrir- tækis við Island. Ef samið er án undanfarandi tilnefningar eru samningar ógildir, sem og ef for- sendur tilnefningar bresta á samn- ingstíma. Samningar íslenskra og erlendra aðila við varnarliðið sem stríða gegn ákvæðum varnarsamn- ingsins eða afleiddra samninga eru enn fremur ógildir. Lagt er bann við framkvæmd ógildra samninga,“ sagði utanríkisráðherra m.a. Skylda íslenskra stjórnvalda að tryggja íslenska hagsmuni Össur Skarphéðinsson, þingmað- ur Samfylkingar, sagði utanríkis- ráðherra hafa talað um frjálsræð- isþróun en frumvarp hans virtist hins vegar ganga í þveröfuga átt. Eimskipafélagið hefði fengið sam- keppni um flutninga fyrir varnar- liðið með tilkomu Átlantsskipa 1997 en svo virtist sem nú ætti að knésetja Atlantsskip með þessu frumvarpi, jafnvel þótt fyrirtækið hefði skammlaust sinnt flutningum fyrir varnarliðið til skamms tíma. Rakti Össur þá deilur sem um þessa flutninga hefur staðið sem m.a. hafa verið í formi málarekst- urs fyrir bandarískum dómstólum og að í fyrrahaust hefði það gerst að Atlantsskip hefðu verið útilokuð í forvali utanríkisráðuneytisins, jafnvel þó að það hlyti að teljast jákvætt fyrir íslendinga að virk samkeppni ríkti á þessum mark- aði. „Fyrir mér er þetta alveg aug- ljóst en ég kann auðvitað að hafa rangt fyrir mér, hér er einfaldlega verið að ganga erinda Eimskipafé- lagsins til þess að viðhalda þeirri einokun sem fyrirtækið hefur,“ sagði Össur Skarphéðinsson. Tók Þórunn Sveinbjarnardóttir, flokk- systir hans, mjög í sama streng við umræðuna en Steingrímur J. Sig- fússon, formaður Vinstrihreyfing- arinnar - græns framboðs, taldi að nær væri að ræða um brottför varnarliðsins en hvernig tryggja mætti rétt einstakra fyrirtækja til að liggja á spenanum hjá varnar- liðinu. Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra minnti á það við umræð- una í gær að varnarsamningurinn frá 1986 kvæði á um að íslensk fyrirtæki skyldu sjá um 65% flutn- inga fyrir varnarliðið en bandarísk 35%. Það væri vitaskuld skylda ís- lenskra stjórnvalda að tryggja að íslenskir aðilar færu í raun og veru með íslenska hluta flutning- anna og nú væri svo komið að menn teldu nauðsynlegt að skil- greina hvað teldust íslensk fyrir- tæki. Sagði Halldór það reyndar liggja alveg ljóst fyrir að utanrík- isráðuneytið teldi umrætt fyrir- tæki, Atlantsskip, ekki uppfylla skilyrði varnarsamningsins að þessu leyti en benti jafnframt á að sem betur fer uppfylltu fleiri fyrir- tæki en Eimskipafélagið það skil- yrði að teljast íslensk. „Við erum ekki að gæta hagsmuna tiltekinna fyrirtækja," sagði Halldór Ás- grímsson. „Við erum að gæta ís- lenskra hagsmuna í samræmi við þennan samning og okkur ber að gera það og ef við gerðum það ekki þá værum við að bregðast skyldum okkar.“ ALÞINGI Formannsslagur í Samfylkingunni Tryggvi Harð- arson fer fram TRYGGVI Harðar- son, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, greindi frá því í gær að hann hygðist gefa kost á sér í embætti for- manns Samfylkingar- innar og skilaði hann inn tilkynningu um framboðið, ásamt meðmælendalista, í AJþýðuhúsið í Reykjavík laust fyrir kl. 19 í gærkvöldi en þá rann framboðs- frestur út. Tveir koma því til með að keppa um formanns- embættið en auk Tryggva hefur Össur Skarphéð- insson alþingismaður tilkynnt um framboð sitt. Eins og kunn- ugt er verður um póstkosningu að ræða og er gert ráð fyrir því að kjörgögn verði send til félaga Samfylkingarinnar 10. apríl nk. en kosningu lýkur hinn 30. apríl. Að sögn Margrétar Frímanns- dóttur, talsmanns Samfylking- arinnar, verða úrslit kunngjörð á stofnfundi Samfylkingarinnar, fyrstu helgina í maí nk. Margrét Frímannsdóttir enn ein um hituna Enn sem komið er hefur Mar- grét Frímannsdóttir ein gefið kost á sér í embætti varafor- manns flokksins en talið er víst að fleiri munu vera að íhuga framboð á þeim vettvangi. Bryndís Hlöðversdóttir alþingis- maður hefur m.a. verið nefnd í því sambandi sem og Ásta R. Jóhannesdóttir al- þingismaður. Inntur eftir ástæðu framboðsins kveðst Tryggvi hafa talið heppilegt fyrir Samfylking- una að ákveðin mál- efnaleg umræða yrði fyrir stofn- fundinn en slík um- ræða ætti sér óhjá- kvæmilega stað þegar kosið væri um formann. „Sjálf- ur hef ég áhuga á að koma ýmsum stefnumálum mín- um og áherslum á framfæri og síðan verður það fé- laga Samfylkingarinnar að dæma um það hvorn þeim líst betur á og hvaða málefnalega stöðu þeir vilja,“ sagði hann í samtali 'við Morgunblaðið í gær. Aðspurður kveðst hann hafa ákveðið að bjóða sig fram í fyrrinótt og ennfremur að hann hafi íhugað framboð í nokkurn tíma. En varð hann fyrir ein- hverjum þrýstingi um framboð eins og aðrir þeir sem íhuguðu framboð töluðu uní! „Ég varð fyrir engum þrýst- ingi öðrum en þeim að ég fann • að það voru óbreyttir liðsmenn í Samfylkingunni sem vildu gjarnan fá að sjá einhver ný andlit í forystusveit Samfylking- arinnar." Og þegar Tryggvi er inntur eftir því hvort hann eigi von á harðri kosningabaráttu segir hann: „Ég á von á má- lefnalegri baráttu." Tryggvi Harðarson Pólfararnir símasambandslausir frá miðnætti? Vilja ekki fá talstöð til sín út á ísinn NORÐURPÓLSFARARNIR hafa tekið þá ákvörðun að þiggja ekki tal- stöð vegna yfirvofandi lokun Iridium- gervihnattasímkerfisins. Þeir eiga þess kost að fá senda talstöð með flugvél sem flýgur yfir svæðið síðar í mánuðinum en afþökkuðu þá aðstoð í samtali við leiðangursstjóm sína í gær. Komi til lokunar Iridium-kerfis- ins verða pólfararnir símasambands- lausir við umheiminn, en þeir hafa að öðrum fjarskiptamöguleikum að hverfa svo sem Árgos-senditæki sem þeir geta notað til að koma frá sér upplýsingum um líðan sína, dagskip- un, þarfir, árangur og ýmislegt ann- að. Að auki hafa þeir sinn neyðar- sendinn hvor. Gangi yfirlýsing bandaríska fjarskiptafyrirtækisins Motorola eft- ir um lokun Iridium-kerfisins, verður því lokað á miðnætti í kvöld, 17. mars. Ástæðan er eins og kunnugt er miklir fj árhagserfiðleikar Iridium-fyrirtæk- isins, sem Motorola á stóran hlut í. Norðmennirnir Gjeldnes og Lar- sen, sem hafa verið 30 daga á ísnum hafa reitt sig á Iridium-síma, sem og Svíarnir Kropp og Skinnarmo. Skandinavarnir standa ver að vígi en íslendinganir að því leyti að þeir voru löngu komnir út á ísinn þegar til- kynningin barst frá Motorola. Þeir hafa þó fjarskiptatæki sem nota má í neyð. Islendingarnir voru með Arg- os-tæki og tókst að fjölga kóðum í því rétt áður en þeir lögðu af stað Bera sig vel á ísnum Þeir Haraldur Örn Ólafsson og Ingþór Bjarnason báru sig vel er þeir höfðu samband heim í gær og sögðust hafa gengið 4,8 km á miðvikudag, Ljósmynd/Ólafur Öm Haraldsson Pólfararnir Haraldur Örn Ólafsson og Ingþór Bjarnason hefja för sína til norðurpólsins frá Ward Hunt-eyju í dag. sem er mun betri árangur en degin- um áður. Gott hljóð var í Haraldi, sem sagði að aðstæður væru famar að skána lítið eitt og kuldinn að minnka. „I gær [miðvikudag] byijuðum við í frekar erf- iðu færi. Við þurftum að hjálpast að við sleðadrátt- inn og draga hvorn sleða saman, þannig að við urð- um að ganga fram og til baka, sem þýddi að við gengum sömu vegalengdina þrisvar sinnum. Síðan skánaði færið aðeins og þá fór að ganga betur. Færið versnaði síðan aftur á nýjan leik og varð mjög slæmt. Við urðum að taka af okkur skíðin tilað komast yfir erfið og brotin svæði. í lok dagsins virtist síðan draga úr erfiðleikunum. Ástæð- an fyrir slæmu færi er sú að ísinn hrannast upp nálægt landi og verður því ógreiðfær, en við bíðum þess nú að komast út úr þessu svæði og von- um að eitthvað betra taki við. Það ætti að muna gríðarlega miklu fyrir ferðahraðann hjá okkur. Það var nokkuð kalt í gær [miðvikudag] eða um 40 stiga frost en aftur á móti var logn svo það var þægilegt að eiga við að- stæður. Það heíúr hlýnað lítillega í nótt [aðfaranótt fimmtudags] og okkur sýndist ekki vera nema 31 stigs frost. Því er minna hrím í tjaldinu og ekki eins óþægilegt að fara upp úr svefnpokanum." Pólfararnir hafa nú gengið alls 26,2 km á sex dögum, sem jafngildir 4,3 km að meðaltali á dag. Þeir töldu fyr- irfram að viðunandi árangur á meðan þeir mjökuðu sér út úr ísruðningun- um væri 5 til 7 km á dag fyrstu 10 til 14 dagana. Færið allra fyrstu dagana var veiTa en þeir gerðu ráð fyrir þar sem djúpur nýfallinn snjór tafði för- ina sérstaklega. Þeir Haraldur og Ingþór eru við góða heilsu og allur búnaður er í lagi. Ingþór fékk smákal á fingur en er þó aðjafnasig. I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.