Morgunblaðið - 17.03.2000, Síða 18

Morgunblaðið - 17.03.2000, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Einþáttungasamkeppni Menor og Leikfélags Akureyrar Píanótími Yalgeirs varð í fyrsta sæti VALGEIR Skagfjörð hlaut fyrstu verðlaun í einþáttungasamkeppni sem Menningarsamtök Norðlend- inga, Menor, efndi til í samvinnu við Leikfélag Akureyar. Þáttur Valgeirs heiti Píanótíminn. í öðru sæti varð einþáttungur Hallveigar Thorlacius, Kóngsbarnið og eiginmaður hennar, Ragnar Arn- alds varð í þriðja sæti með einþátt- ung sinn, Vábrestur í Vesturheimi. Veitt voru peningaverðlaun fyrir þrjá bestu einþáttungana að mati dómnefndar, 150 þúsund fyrir fyrstu verðlaun og 75 þúsund fyrir þá sem lentu í öðru og þriðja sæti. Utibú Landsbanka Islands og Búnaðar- banka Islands á Norðurlandi auk Sparisjóðs Norðlendinga gáfu verð- launafé. Þá voru höfundum tveggja ein- þáttunga veittar sérstakar viður- kenningar, Kristján Hreinsson hlaut viðurkenningur fyrir þátt sem ber heitið Virkur dagur hjá vændiskonu og systurnar Iðunn og Kristín Steinsdætur hlutu viðurkenningu fyrir þátt sem þær nefna Brostu vina. Alls bárust 18 handrit í samkeppn- ina. Ætlunin er að sýna verðlauna- þættina og hugsanlega fleiri hjá Leikfélagi Akureyrar á næsta leikári og ef til vill verða fleiri leikfélög á Norðurlandi til að nýta sér handritin og taka til sýninga. Dómnefnd í samkeppninni skipuðu þeir Sigurður Hróarsson, frá Leikfé- lagi Akureyrar, Sigurður Hallmars- son, frá Menningarsamtökum Norð- lendinga, og Hannes Öm Blandon, frá Bandalagi íslenskra leikfélaga. Morgunblaðið/Garðar P. Vignisson Verðlaunahafarnir í ár. Frá vinstri: Erla Rut Jónsdóttir, John Friðrik Grétarsson sem varð annar og loks sigurvegarinn Jón Júlíus Karlsson. Stóra upplestrarkeppnin Mállausir fá mál Grindavík - Stóra upplestrarkeppnin fer nú fram í fjórða sinn. Keppnin hófst fyrir fjórum árum í Hafnarfirði og nær núna frá Kirkjubæjarklaustri suður og vestur á Vestfirði og alla leið á Blönduós. Ingibjörg Einarsdóttir er ein af þeim sem hafa verið viðloðandi keppnina frá byrjun og að hennar sögn voru keppendur fyrst rúmlega 200 talsins en nú eru þeir 3.200 í 7. bekkjum viðkomandi staða. „Vonandi tekst okkur fljótlega að loka hringn- um í kringum landið en keppnin er hálfgerð kraftaverkakeppni. Ástæð- an fyrir því að ég kalla þetta krafta- verkakeppni er sú að oft fá „mállaus- ir“ mál, þ.e. einstaklingar sigrast á feimni sinni, koma fram og lesa. Þá koma „ólæsir“ og lesa, þ.e. nemendur sem eiga í lestrarörðugleikum eru hér oft í úrslitum,“ sagði Ingibjörg. í Grindavík veitti Ingibjörg verð- laun þeim þremur sem þóttu standa sig best og segja má að orð hennar um nemendur sem sigrast á lestrar- örðugleikum hafi hitt vel í mark, því af átta krökkum í úrslitum hafa þrír átt í lestrarörðugleikum. Sigurvegari varð Jón Júlíus Karlsson og hlaut hann 15.000 kr. í verðlaun sem Spari- sjóðurinn í Grindavík gaf. Auk þess gaf Sparisjóðurinn 10.000 kr. fyrir annað sætið og 5.000 kr. fyrir það þriðja. Morgunblaðið/fgigja Kór eldri borgara söng undir stjórn séra Magnúsar Gunnarssonar sóknarprests. Félag eldri borgara á Dalvík fagnar tíu ára afmæli Vígðu nýtt félagsheimili Dalvík - Á Dalvík sem og á mörg- um öðrum stöðum er starfrækt fé- lag eldri borgara. Hinn 11. mars sl. voru liðin tíu ár frá stofnun félags- ins og við það tækifæri vígði sr. Magnús G. Gunnarsson, sóknar- prestur á Dalvík, félagsheimili þeirra eldri borgara, Mimisbrunn. Mímisbrunnur er við Mímisveg á Dalvík og fengu eldri borgarar hús- ið afhent fyrir um átta mánuðum. Síðan þá hafa þeir unnið sleitulaust og í sjálfboðavinnu við að laga hús- ið að sínum þörfum og stækka. Ný viðbygging, samtals um 50 fm, reis á mettíma og í dag er húsnæðið alls um 180 fm. Að sögn Friðrikku Óskarsdóttur, formanns félags eldri borgara, eru þau afskaplega lukkuleg með nýja húsið og lögðu margir Ieið sína í Mímisbrunn sl. laugardag til að samfagna þeim. Þar voru á boðstól- um dýrindis kræsingar, kór eldri borgara söng undir stjórri sr. Magnúsar, fluttar voru ræður og afhentar gjafir. Fréttaritari leit inn í Mímisbrunn til að samfagna félagi eldri borgara, ogtók meðfylgjandi myndir. Til hamingju! Glæsilegt veisluborð. L 1— J -J Friðrikka Óskarsdóttir formaður félagsins ávarpar gesti í veislunni. U j |£ J Mímisbrunnur, hús félags eldri borgara á Dalvík. Morgunblaðið/Silli Svanhvít Jóhannesdóttir félagsforingi talar um starfsemi félagsins í 60 ár. Nýliðar í skátafélaginu eru í baksýn. Húsavík - Skátafélagið Víkingur á Húsavík minntist um síðustu helgi 60 ára starfsafmælis síns en það stofnaði Gertrud Friðriksson, prófastsfrú, á Húsavik hinn 12. mars 1940. En Gertrud gekkst fyrir stofnun fyrsta kvenskátafé- lagsins á íslandi í Reykjavík árið 1922. Svanhvít Jóhannesdóttir, fé- lagsforingi, minntist starfsemi fé- Skátafélagið Víkingur 60 ára lagsins siðastliðin 60 ár, en það hafa orðið áraskipti í starfinu og sfðustu 5 árin hefur félagið starf- að af miklum krafti og hefur nú fengið hjá Húsavíkurbæ húsnæði fyrir starfsemi sína. Mest er ungliðastarfið hjá fé- laginu, þvi' þá unglingarnir eldast koma fleiri félagsstörf til og hóp- urinn dreifist. En það má fullyrða að skátastarfið er góð undirstaða. Á hátíðinni fór fram vígsla ný- liða og skátarnir skemmtu með leikjum og söng og buðu siðan viðstöddum til kaffidrykkju. Félaginu bárust kveðjur og gjafir frá öðrum skátafélögum. Nýr skemmtistaður í Hveragerði Eigendur Pizza 67 í Hveragerði. Frá vinstri: Kristinn Grímsson, Erla Gísladóttir, Anna Hlíf Gísladóttir og Arngrímur Baldursson. Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdðttir Hveragerði - Miklar breytingar hafa ver- ið gerðar á innviðum veitingastaðarins Pizza 67 í Hvera- gerði en þar hefur nú verið opnaður nýr salur. Með tilkomu þessara nýju húsa- kynna verður hægt að taka á móti mun stærri hópum en áð- ur var mögulegt en eftir breytinguna geta rúmlega 100 manns setið til borðs á Pizza 67. Amgrím- ur Baldursson, einn eigenda staðarins, sagði við opnunina að nú gæti veitinga- staðurinn boðið uppá mun fjölbreyttari þjónustu en áður var. Hinn nýi salur væri tilvalinn fyr- ir hvers kyns veislur og mannfagn- aði. Réttum á matseðli hefur verið fjölgað og um helgar er ætlunin að hafa opið fram eftir kvöldi en gott dansgólf er á staðnum og ýmsar upp- ákomur væntanlegar í framtíðinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.