Morgunblaðið - 17.03.2000, Page 24

Morgunblaðið - 17.03.2000, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Verkefnið Auður í krafti kvenna Fjölsetið á FjármálaAuði Morgunblaöiö/Ámi Sæberg Birgir Finnbogason endurskoðandi leiðbeindi á fyrsta kvöldi námskeiðsins FjármálaAuður. FYRSTA námskeiðið í námskeiðsröðinni Fjár- málaAuður, sem tilheyrir verkefninu „Auður í krafti kvenna“, var haldið síðastliðinn þriðju- dag. Námskeiðið stendur í 16 klukkustundir á sex kvöldum, og er tilgangur þess að konur geti aukið við sína almennu fjármálaþekkingu. Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Sí- menntar VHR, sem hafði umsjón með nám- skeiðinu, segir í samtali við Morgunblaðið að hátt í fimmtíu konur hafi tekið þátt í námskeið- inu. „Það komust mun færri að en vildu, því að á fyrsta degi fylltust tvö námskeið sem haldin eru nú í vor, ásamt tveimur námskeiðum fyrir starfsfólk hjá Islandsbanka. Það eru alls um 200 konur sem sitja þetta námskeið nú í vor, og við erum nú þegar byrjuð að skrá á námskeið sem verða í haust þó listinn þar sé ekki orðinn fullur enn,“ segir Halla. Hún segir að námskeiðið Fjármálaauður hafi verið hugsað sérstaklega fyrir konur sem hafi áhuga á að auka við sína hagnýtu fjármála- þekkingu. „Það er skoðun þeirra sem standa að Auðar-verkefninu að ef við fjölgum þeim kon- um sem hafa fjármálalegt sjálfstraust muni það vonandi leiða til þess að fleiri konur leggi í sjálfstæða atvinnustarfsemi ef þær hafa hug- myndir í þá veru. Þetta var því ekki hugsað sérstaklega fyrir konur sem eru í atvinnu- rekstri, heldur fyrir allar konur. Markmiðið er að kenna öllum þátttakendum að taka fjármál sín í eigin hendur, og það fyrsta sem gert er á námskeiðinu er að fara í heimilisbókhaldið," segir Halla og bætir við að svo sé farið í aðra þætti sem snúa að fjármálum, t.d. verðbréfa- markaðinn, skattamál, lánamarkaðinn, lífeyr- issparnað og réttindi og skyldur hjóna og ein- staklinga. Halla segir það vera skemmtilegt að aldurs- dreifing sé mjög breið, en elsta konan er fædd árið 1927 og sú yngsta árið 1979. „Þetta segir að konur á öllum aldri vilja auka þessa þekk- ingu sína. Einnig var áhugavert að það er þó nokkur breidd í því hvaðan þær koma og hver þeirra bakgrunnur er,“ segir Halla að lokum. Nánari upplýsingar um verkefnið Auður í ki-afti kvenna er m.a. að finna á Netinu á slóð- inni www.ru.is/audur. Stjórnarformaður Olis gagnrýnir málflutning Verkamannasambandsins Olíufélögin skot- spónn í kjarabaráttu „ÞAÐ skýtur skökku við þegar verkamenn taka olíufélögin út úr ís- lenskri fyrirtækjaflóru og gera þau að skotspæni í kjarabaráttu sinni,“ sagði Gísli Baldur Garðarsson, stjórnarformaður Olíuverzlunar Is- lands hf., á aðalfundi félagsins í gær. Hann sagði að mjög undarleg um- ræða hefði skotið upp kollinum eftir að olíufélögin birtu tölur um afkomu sína. Nú væru það aðilar innan Verkamannasambandsins sem sæju sig knúna til þess að koma höggi á olíufélögin og tala um ofurgróða. „Engum athugasemdum er hins vegar hreyft við arðsemi banka og fjármálafyrirtækja, sem er allt að tvisvar til þrisvar sinnum hærri. Eða við arðsemi fyrirtækja í flutn- ingastarfsemi eða fiskvinnslu, sem eru með talsvert hærri arðsemi, tvöfalt eða þrefalt hærri. En það er ekki gagnrýnt.“ Að sögn Gísla Baldurs er arðsemi eigin fjár í olíufélögunum að nást upp í 12-15%, sem er lágmarks ávöxtunarkrafa fjár, sem lagt er í áhættufjárfestingu. Þessari aðsemi yrðu félögin að ná til þess að geta talist vænlegur kostur á markaði. En undanfarin ár hefði þessi arð- semi verið á bilinu 5-7%, sem hefur verið með öllu óviðunandi fyrir hlut- hafa. Félagið hefur risið úr öskustónni „Ef til vill gætir misskilnings í málflutningi þeirra. Álagningin á eldsneyti hefur ekki hækkað. Stað- reyndin er sú, að eldsneytisverð ræðst af innkaupsverði og sköttum fyrst og fremst. Álagningin er ein- ungis lítill áhrifavaldur, enda krónutöluálagning, en ekki prós- entuálagning. Álagningin tekur því ekki mið af sveiflum á heimsmar- kaðsverði. Fjölmargir verkamenn eiga beinna hagsmuna að gæta að félög- in eflist og þeim vegni vel. Margir þeirra eru hluthafar í félögunum og enn fleiri eru óbeint hluthafar þar sem lífeyrissjóðir þeirra eru hlut- hafar. Forsvarsmenn lífeyrissjóð- anna vita mætavel að nauðsyn er á að fyrirtækin skili arði til að tryggja í senn atvinnu og arðsemi fjárfest- ingar þeirra. Vel færi á að fulltrúar verkalýðsfélaganna hjá líf- eyrissjóðunum upplýstu fulltrúa verkalýðsfélaganna, sem nú eru í framvarðasveitinni í kjarabaráttu, um nokkur grundvallaratriði er að reikniskilum og hagstjóm lúta.“ Gísli Baldur rakti helstu fjárfest- ingar félagsins og endumýjun á þjónustustöðvum félagsins. Talaði hann um að félagið hefði risið úr öskustónni og allur ytri umbúnaður þess tekið á sig nýja og glæsilega mynd. „Þetta félag, sem fyrir aðeins fáum árum var vandræðabarn í við- skiptaheiminum hefur nú tekið á sig svanslíki. Þá á ég ekki einungis við um hinn ytri umbúnað félagsins heldur ekki síður glæsilegan rekst- ur,“ sagði Gísli Baldur. Hagur útgerðarinnar hagur Olís I máli hans kom fram að talsverð ábyrgð hvíldi á stjórnendum þjóðfé- lagsins samfara auknu frelsi. Hlúa yrði að framkvæmd reglna, sem gilda um samkeppni, en því miður virtust yfirvöld samkeppnismála ekki að öllu leyti hafa verið í stakk búin til þess að takast á við breyttar aðstæður. Sífellt vaxandi fákeppni væri ákveðin vísbending um það. Á undanförnum mánuðum hefur verið unnið að gerð nýrrar stefnu- mótunar fyrir félagið og hefur hún nú verið samþykkt af stjórn, að sögn Gísla Baldurs. Lögð er áhersla á i henni að Olís verði í hópi best reknu og arðsömustu félaga á Is- landi. Þá vék Gísli Baldur í ræðu sinni að Vatneyrarmálinu svonefnda. „í gær var flutt í Hæstarétti mál, sem sumir halda fram að geti raskað þeim stöðugleika, sem nú er í rekstri þjóðarbúsins, með því að kippa stoðunum undan kvótakerf- inu. Næsta ólíklegt verður að telja, að sú lögskýring á jafnræðisgrein stjómarskrárinnar verði ofan á, að hún verði til að ógilda kerfi, sem hefur verið við lýði í nærri tvo ára- tugi.“ Hann sagði að það yrði dómstól- unum til lítils sóma ef ekki yrði litið til þeirrar staðreyndar, að sá raun- veruleiki í þessum málum sem við nú byggjum við, hefði verið í 17 ár og mótað allt þjóðlífið. „Þeir sem fengu úthlutað kvóta, eru flestir löngu búnir að ráðstafa eignarrétti að honum til annarra aðila, aðallega stórra útgerðarfyrirtækja, sem eru mörg í eigu almennings að stórum hluta til. Það er mikið hagsmunamál fyrir þjóðarbúið að ekki verði skertir möguleikar útgerðarfélaganna til þess að viðhalda því hagræði, sem tekist hefur að skapa á undanförn- um árum, svo útgerðin megi enn dafna og eflast til sóknar á fjarlæg mið jafnt sem heimamið," sagði Gísli Baldur og bætti því við að vax- andi hagur útgerðarinnar væri að sjálfsögðu hagur Olís. Félagið veitir stjórnmála- flokkum fjárstuðning Umræðan um flutningsjöfnunar- sjóð varð honum að umtalsefni í ræðunni. Hann sagði að Olís hefði greitt mest í sjóðinn á síðasta ári, umfram það sem félagið hefði feng- ið greitt úr honum. Oft gleymdist í þessari umræðu, að hér væri ein- ungis um að ræða aðferð stjórn- valda til þess að jafna eldsneytis- verð á landinu. Ef jöfnunin kæmi ekki til, þýddi það einungis að verð á landsbyggðinni yrði hærra en á Reykjavíkursvæðinu, en hefði væntanlega lítið með afkomu félag- anna að gera. Félögin gætu tæpast vænst þess að skattar sem þessir, sem farið hefðu út í verðlagið, breyttust í hagnað yrðu þeir felldir niður. Gísli Baldur sagði í lok ræðu sinn- ar, að hann teldi rétt að geta þess af gefnu tilefni, að Olís hefði veitt stjórnmálaflokkum fjárstuðning. „Stefna félagsins hefur verið og er enn, að styðja við framkvæmd lýð- ræðis í landinu með þessu hætti. Stjórnmálaflokkarnir, sem eru hornsteinar lýðræðisins, hafa tak- markaða tekjuöflunarmöguleika þótt hlutverk þeirra í þjóðfélaginu sé stórt. Atvinnulífið í landinu verð- ur að leggja sitt af mörkum til þess að tryggja, að fjárskortur verði ekki eðlilegu stjórnmálalífi að fótakefli." Aðalfundur Olís samþykkti að greiða hluthöfum 15% arð. Engar breytingar urðu á stjórn félagsins. ÁÐUR EN LANGT UM LÍÐUR GETUR ÞÚ NÝTT ÞÉR T E T R

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.