Morgunblaðið - 17.03.2000, Síða 32

Morgunblaðið - 17.03.2000, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR17. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Heimsborgari Danska skáldið Henrik Nordbrandt er þekktur fyrir að vilja dvelja sem minnst á heimaslóðum. Hann kann betur við sig á ferðinni eins og Sigrún Davíðsdóttir heyrði er hún ræddi við hann nýlega og arabíska er honum ótæmandi viðfangsefni. Morgunblaðið/Sigrún Davíðs. Henrik Nordbrandt ANDLIT hans er ekki markað miðsvetrargrámanum, sem situr á andliti okkar hinna hér í norðrinu, heldur er hann sólbrenndur og úti- tekinn, enda aðeins í stuttri ferð á heimaslóðum. Þær megna aðeins að draga hann heim á stundum. Kuld- inn á ekki við hann og hefur aldrei átt frá því hann var strákur. Obban- um af árinu ver hann í suðlægri hlýju en þó ekki svo langt að það kosti hann langa flugferð því tíma- munur langferða fer ekki vel í hann, segir hann. Danska skáldið Henrik Nord- brandt hefur verið hálfgerð flökku- kind allt sitt líf en kannski er heims- borgaraímyndin nær lagi. Hann er einstaklega vel klæddur án þess að berast á og tekur sig vel út á barn- um á D’Angleterre, þótt það sé ann- ars ekki þar sem hann heldur til í stopulum Hafnarheimsóknum. Henrik Nordbrandt var síðast fréttaefni fyrir skömmu er hann tók á móti bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs. Heima fyrir er hann vel þekktur eftir að hafa gefið út fjöldann allan af ljóðabókum, ferðalýsingar, barnabækur og mat- reiðslubók. Hann er sögumaður af guðs náð en þegar talinu víkur að eigin verkum verður hann jafn- orðknappur og ljóðin hans eru. „Þetta er svo einfalt, það er ekkert meira um þau að segja,“ segir hann. Gat ekki gerst bankaræningi „Ekki gat ég farið að gerast bank- aræningi,“ segir Henrik Nord- brandt með brosglampa í augunum eins og svo oft þegar hann talar. Svarið fellur þegar talinu víkur að því af hverju hann hafí farið að skrifa ljóð. „Hvað í ósköpunum ætti ég að gera ef ekki að skrifa? Eg hafði ekki áhuga á fastri vinnu, þar sem ég þyrfti að fara á fætur á ákveðnum tíma og mæta í vinnuna á ákveðnum tíma, þótt það væri samt ekki ástæðan fyrir því að ég fór að skrifa. Ég byrjaði að skrifa þegar ég var um sautján ára og þegar ég var nít- ján eða tuttugu hafði ég náð ein- hverjum tökum á skriftunum, en hafði reyndar engar áætlanir um hvað ég ætlaði að gera. Ég teiknaði þegar ég var krakki, svo einhverja þörf hef ég haft til að tjá mig, mót- aði í leir og hafði áhuga á skúlptúr, en skriftirnar urðu ofan á. Fornleifafræði var annað áhuga- mál. Frá því ég var krakki hef ég grafið eftir fornminjum og fundið þær í tonnatali. Eitthvað af því sem ég hef fundið hefur lent á Nat- ionalmuseet. Það er enn þá þannig að ef ég er á ferð, sérstaklega á haustin, get ég fundið hluti úti á ökrunum.“ En það voru samt ljóðin, sem urðu ofan á? „Já, það æxlaðist þannig, kom hálfvegis af sjálfu sér og fyrir tilvilj- un. Ég var svo heppinn að ég hafði sent inn ljóð til Gyldendals þegar ég var tvítugur og fékk þau gefin út. Þegar ég svo fékk þriggja ára lista- mannastyrk, sem á þeim tíma var hægt að lifa á, ákvað ég að fara í burtu og setjast að þar sem væri ódýrara að lifa, svo ég þyrfti ekki að stunda alls konar vinnu með skrift- unum. Ég hafði reyndar fengið ýmiss konar tilboð um vinnu, en hafði ekki áhuga á því, heldur hélt til Grikk- lands. Síðan hef ég haldið áfram að ferðast. Ég hef ekki alveg áhuga á hefðbundinni tilveru með fastri vinnu. Ekki svo að skilja að ég vilji ekki hafa það fjárhagslega gott, en ég met bara frelsið mest. Ég fékk á sínum tíma tilboð um að vinna við blaðamennsku, en hafði þá ekki áhuga. Áhugann hef ég fengið síðar og þá fengist við slík skrif. Það sem ég hef mestan áhuga á að skrifa um er stjórnmálaástand- ið í löndum, þar sem ég þekki til og tala málið. Skrifum um bókmenntir kem ég ekki nálægt." Og svo hefurðu skrifað mat- reiðslubók? „Já, það kom til af því að ég hef áhuga á mat og hef lagt mig eftir matargerð þar sem ég hef verið, til dæmis á Italíu og í Tyrklandi. Það var handhægt að skrifa matreiðslu- bók frá Tyrklandi, því þar hafði ég góða konu sem eldaði handa mér og af henni lærði ég mikið.“ Ferðalög, komur og brottfarir, er áberandi efni í ljóðum þínum, rétt eins og þú hefur lifað. Af hverju skiptir þetta þigsvona miklu máli? „Það skiptir mig máli af því það er þetta, sem ég hef gert. Ég hef lengst búið sex ár á sama stað og það var þegar ég var barn. En þetta er annars tilviljunum háð.“ En þetta eru líka tilviljanir, sem þú leitar uppi? „Já, að sjálfsögðu. Ég kann vel við mig í Tyrklandi, því þar eymir enn eftir af hirðingjamenningu. Fólk flytur mikið og þar finnst mér ég heima. Það er ekki eins og hér í Danmörku, þar sem fólk er fastgró- ið. En af hverju það skiptir mig svo miklu máli að vera á ferðinni veit ég ekki. Það hefur kannski eitthvað að gera með að ég þarf á tilbreytingu að halda, er hræddur við að verða samgróinn og samdauna, nánast sjúkur af tilhugsuninni um að breyt- ast ekki. Það liggur reyndar ekki fyrir mér að vera mjög fágaður, en með fáguðum hætti mætti hugsa sér að breytingar eru lífið, en allt annað er dauði.“ Og þér hefur þá tekist að halda þér gangandi? „Eg get alla vega ekki ímyndað mér neitt annað líf en það sem ég hef. Ekki svo að skilja að ég sjái ekki eftir neinu. Auðvitað hef ég gert alls konar axarsköft eins og aðrir, en almennt er ég ánægður með hvernig ég hef hagað lífi mínu. Það væri þá ekki nema rétt í dag Ég vaknaði í morgun, fannst ég vera búinn að fá alveg nóg af verunni hér í Kaupmannahöfn og vildi helst pakka og fara, en ég veit bara ekki hvert ég ætti að fara einmitt núna. Ég hef aðeins hugleitt að fá mér sumarhús í Danmörku, en get samt ekki alveg hugsað mér að bindast einhverjum stað hér. Það er líka alls staðar þessi flatneskja hér.“ Pað er einkum í Evrópu og við Miðjarðarhafið, sem þú hefur dval- ið. Toga fjarlægari lönd ekki íþig? „Marokkó er einasta landið utan Evrópu, sem ég hef dvalið í um hríð. Mig langar til Mexíkó, en vandinn er að ég er í mánuð að ná mér þegar ég flýg langt og yfir mörg tímabelti, svo það dregur úr mér löngunina. Ég hef velt fyrir mér að koma við á Islandi til að draga úr tímamunin- um, en ég er ekki hrifinn af norð- lægum slóðum. Hef Danmörku ef ég þarf á þeim að halda. Undanfarin ár hef ég siglt mikið og hef jafnvel hugleitt að sigla yfir Atlantshafið. Það yrði ég þó að gera sjálfur, því ég er ekki beint sú manngerð sem nenni að sigla á skipi og borða með skipstjóranum á hverju kvöldi...“ I ljóðunum gætir á stundum léttis þegar farið er frá Danmörku og út. Er það tilfínningin, sem þú hefur þegar þú yfírgefur heimalandið? „Já, en þessi tilfinning er ekki að- eins tengd því að yfirgefa heima- landið, heldur almennt þegar ég hef verið lengi á einhverjum stað. Það að halda áfram, fara, er í mínum huga kjarninn í því að eiga gott líf.“ Hvað felst fieira í því að eiga gott líf? „Tja, því hef ég eiginlega aldrei velt fyrir mér. Ætli það sé ekki að hafa næg efni, eins og það er fyrir flestum öðrum, geta borðað góðan mat, hafa það almennilegt. Það er ekki gott líf að búa í fátækt í fátæku landi. Hvað síðan kemur þar á eftir má svo velta fyrir sér. í viðbót við þetta er ástin, að læra eitthvað nýtt, öðlast skilning á samhengi hlut- anna. Slæmt líf í mínum huga væri að búa í einbýlishúsi í fínu hverfi og vinna fyrir húsinu og bílnum, gera það sama á hverjum degi. Það væri slæmt líf í mínum huga, alveg án til- lits til hversu gott það væri annars. Svo finnst mér ekki gott að vera í kulda.“ Annað efni, sem oft kemur upp í ljóðunum er ástin og þar er enginn fagnaðarsöngur á ferðinni. „Ég skrifa um efni, sem fanga huga minn. Og ef maður bara höndl- ar ástina þá er heldur ekkert að skrifa um, ekki satt Þannig er það víst oftast. Það er venjan að skrifa um það slæma.“ Viðleitnin til að breyta Hefurðu eitthvert sérstakt vinnu- lag? „Nei, það á ég ekki til. Ég bíð bara eftir að mér detti eitthvað í hug, en það þýðir ekki að ég sitji og bíði eftir því. Orðin koma þegar þau koma. Það koma einhver orð á einn eða annan hátt. Ég reyni að skrifa sem minnst niður fyrr en ég hef þetta nokkurn veginn í huga. Það er misjafnt hvað vekur orðin upp í huga mér. Stundum eru það einhver önnur orð, stundum eitt- hvað sem ég sé.“ Formið á ljóðum þínum er mjög misjafnt. Er það liður í viðleitni til að breyta stöðugt til? „Já, ég þreifa fyrir mér, prófa mig áfram. Það er það sem er spennandi fyrir mig og svo helst að læra eitthvað nýtt. Ég hef lært allt mögulegt og hef áhuga á næstum öllu, þótt ég hafi ekki lagt stund á neitt skipulagt nám, nema mála- nám. Kinversku lærði ég á sínum tíma, en hef nú hamingjusamlega gleymt því mesta, nema að táknin á mat- seðlum kínverskra veitingahúsa eni mér enn kunnugleg. Svo hef ég lært tyrknesku, arabísku, ítölsku og spænsku. Persnesku lærði ég í snar- hasti á 1 1/2 mánuði, en var líka fljótur að gleyma henni.“ Þú hefur skrifað um kynni þín af arabísku. Hvað er svona heillandi við það mál? „Arabískan er endalaust við- fangsefni. Það eru 3000 orð bara fyrir kameldýr. Það er viðtekinn brandari meðal arabískufræðinga að það sé ekki hægt að skilja arab- ískan texta nema að vita fyrirfram hvað hann sé um og það er nokkuð til í því. Þeir skipta sjálfir sögnun- um í heilbrigðar og sjúkar sagnir, þar sem þær sjúku eru óendanlega flóknar. Það er ekki hægt að slá orðum upp nema að kunna málfræðina og það tekui1 svona tvö ár að læra hana. Arabíska er bæði heillandi og óskaplega erfitt mál.“ Henrik Nordbrandt er fæddur 1945. Fyrsta bókin hans, Digte, kom út 1966 og síðan hefur hver bókin rekið aðra. Ein þekktasta ljóðabók hans er „Opbrud og ankomster", sem kom út 1974. Bókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs hlaut Nord- brandt í ár, í fjórða skiptið sem hann var tilnefndur, fyrir ljóðabók- ina „Drommebroer". Alls hefur hann gefið út um tuttugu ljóðabæk- ur, auk tveggja ritgerðasafna, tveggja barnabóka og dagbókar frá Tyrklandi, auk matreiðslubókar. Nordbrandt hefur hlotið flestar þær viðurkenningar og verðlaun sem dönskum skáldum getur hlotnast. Sýningum lýkur Hafnarborg Tveimur sýningum lýkur í Hafnarborg á sunnudag. Horn- in íþyngja ekki kúnni er sýning mannfræðingsins Kristínar Loftsdóttur á ljósmyndum og hlutum frá WoDaaBee-hirð- ingjum í Niger. Kristín bjó meðal þeirra í tvö ár meðan hún vann að vettvangsrannsókn sinni. Pétur Gautur Svavarsson sýnir málverk og er þetta hans sjötta einkasýning. Sýningarnar eru opnar dag- lega frá kl. 12-18, nema þriðju- daga. Gleraugnaverslunin Sjónarhóll wwiv.sjonarholl. is Afmælistónleikar Drengjakórs Laugarneskirkju AFMÆLISTÓNLEIKAR Drengja- kórs Laugarneskirkju verða í Langholtskirkju á morgun, laug- ardag, kl. 15, en í ár eru 10 ár frá stofnun kórsins. Með kórnum, og Deild eldri félaga, koma fram einsöngvarar úr röðutn kórins svo og Jónas Guðmundsson tenór og Þóra Einarsdóttir sópran- söngkona, sem kemur sérstaklega frá Englandi til að leggja kórnum lið, auk hljóðfæraleikara. Fyrst og fremst kirkjukór Drengjakórinn er fyrst og fremst kirkjukór, en flytur þó bæði trúarlega og veraldlega tónlist. Drengirnir syngja flest lög í þriggja radda útsetningum, þ.e. raddskipunina 1. sópran, 2. sópran og altrödd. En þegar Deild eldri félaga syngur með kórnum, syngur hann í fjórum röddum og verður til blandaður kór. Drengjakór Laugameskirkju og deild eldri félaga ásamt stjórnanda sínum, Friðriki S. Kristinssyni. Miðasala er við innganginn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.