Morgunblaðið - 17.03.2000, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000 37
LISTIR
Burtfararpróf
í Salnum
Á VEGUM Tónlistarskólans í
Reykjavík verða tvennir burt-
fararprófstónleikar. Hinir fyrri
eru tónleikar Silju Bjarkar
Baldursdóttur píanóleikara, sem
haldnir verða á morgun, laugar-
dag, kl. 17.
Hún flytur Partítu nr. 2 í c-
moll, BWV 826 eftir J. S. Bach,
Sónötu í E-dúr op. 109 eftir L.
v. Beethoven, Söng gamallar
ömmu op. 31 eftir Sergei Prok-
ofieff, Ballöðu í g-moll op. 23
eftir Fryderyk Chopin. Ennig
leikur hún Kvöld í Transylvaníu
og Undir berum himni, 1. þátt,
eftir Béla Bartók.
Á sunnudag kl. 17 verða tón-
leikar Sveinhildar Torfadóttur
klarínettuleikara. Anna Guðný
Guðmundsdóttur leikur með á
píanó. Auk þeirra koma fram
Annetta Arvidsson fagottleikari
og Jón Bjarnason píanóleikari.
Á efnisskrá eru Sónata op.
167, fyrir klarínettu og píanó
(1921) eftir C. Saint-Saéns,
Si(ja Björk Sveinhildur
Baldursdóttir Torfadóttir
Clair, tvö stykki fyrir einleiks-
klarinettu (1989) eftir Franco
Donatoni, Trio Pathétique í d-
moll fyrir klarínettu, fagott og
píanó eftir Michael Glinka, Seið-
ur (2000) frumflutt verk eftir
Tryggva M. Baldvinsson, samið
og tileinkað Sveinhildi Torfa-
dóttur og Sónata op. 167 fyrir
klarínettu og píanó (1883) eftir
Carl Reinecke.
Aðgöngumiðar seldir við inn-
ganginn.
i Vor - sumar 2000
Bjartir dagar með vor- og sumarlitunum fró LANCOME
LANCOM
Komdu og láttu farða þig með nýju litunum.
Ráðgjafi á staðnum
í dag og á morgun, laugardag.
Aldrei glæsilegri kaupaukar:
Stórglæsileg taska fyrir förðunarvörur H Y
og snyrtibudda fylgja kaupunum
G E A
jnyrtivoruverjlun
Laugavegi, simi 511 4533
Það er eitthvað meira við Mégane Break
Verð 1.588.000 kr.
Gijótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
Mégane Break Grand Comfort
Break hefur nú aukið forskotið. Hann státar ekki aðeins af
meiri öryggis- og þægindabúnaði og stærra farangursrými
en aðrir skutbílar í sama flokki heldur fæst nú í sérstakri
Grand Comfort útgáfu; enn betur búinn.
Komdu og prófaðu stærri og betur búinn bíl.
RENAULT