Morgunblaðið - 17.03.2000, Side 38
38 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Landkrabbinn Pétur (Kjartan Guðjónsson) á erfitt með að festa svefn fyrir hrotunum í klefafélaga sínum (Ólafi Darra Ólafssyni),
Þórunn Lárusdóttir í hlutverki söngkonunnar.
Landkrabbi
sigrast á sjálf-
um sér og um-
hverfí sínu
Ragnar Arnalds hlaut fyrstu verðlaun fyrir
leikritið Landkrabbann í leikritasamkeppni
sem haldin var í tilefni af hálfrar aldar af-
mæli Þjóðleikhússins á liðnu sumri og í
tengslum við Reykjavík menningarborg
Evrópu árið 2000. Margrét Sveinbjöms-
dóttir ræddi við höfundinn, leikstjórann,
tónskáldið og tvo úr hópi leikara en verkið
verður frumsýnt á Stóra sviðinu í kvöld.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Barði skipsljóri (Jóhann Sigurðarson) býr sig undir að munstra mannskapinn um borð.Pétur (Kjartan Guðjóns-
son) heilsar upp á verðandi skipsfélaga sína (Stefán Jónsson, Sigurð Skúlason og Ólaf Darra Ólafsson).
Brynja Atli Heimir Ragnar
Benediktsdóttir Sveinsson Amalds
LANDKRABBINN mun vera
fyrsta íslenska leikritið sem gerist
um borð í togara og er sett á svið í
atvinnuleikhúsi, að sögn leikstjór-
ans, Brynju Benediktsdóttur. Mál-
fræðingurinn Pétur er munstraður
í þriggja vikna túr með togaranum
Guðfmnu og þarf heldur betur að
taka á honum stóra sínum til að áv-
inna sér virðingu harðjaxlanna um
borð.
„Hann er svolítill mömmu-
strákur í byrjun, þessi
mjúki maður, en síðan
kynnist hann þessu harða
samfélagi og harðnar
náttúrulega sjálfur með
hverjum deginum. Hann er
niðurlægður hvað eftir
annað en við hverja
niðurlægingu styrkist
hann. Kannski eignast
hann sína fyrstu vini
þarna,“ segir Kjartan Guðjóns-
son, þegar hann er beðinn um
að lýsa því hvernig Pétur
sjóast. Kjartan leikur málfræð-
inginn en það er hans stærsta
hlutverk í Þjóðleikhúsinu til þessa.
Nýliðinn er ekki mikils virtur
Höfundur leikritsins, Ragnar
Arnalds, fór sjálfur nokkra túra á
sjó þegar hann var unglingur og
þekkir því af eigin raun stöðu ný-
liðans um borð, sem eðli málsins
samkvæmt er alltaf neðstur í virð-
ingarstiganum. Hann þekkir það
líka að þurfa að standa uppi og
vinna bullandi sjóveikur dag eftir
dag.
„Skipið er alveg sérstakur heim-
ur sem erfitt er að lýsa fyrir þeim
sem ekki þekkja hann. Togaralíf er
mjög sérstakt vegna þess að þar
eru menn langvistum við þröngar
aðstæður, á reglubundnum vökt-
um. Sex tíma hvíld og sex tíma
vinna, þannig gengur
þetta stundum
tvær og þrjár vikur
í senn. Menn eru í
miklu návígi hver við
annan, hvort heldur er
í vinnu
eða frí-
tíma og
þeir geta
ekki flúið burtu - þeir verða
bara að standa sig. Og það
þekkja allir sem hafa verið á sjó,
að nýliðinn er ekki mikils virtur
- sá sem ekkert kann og ekkert
veit í sinn haus. Það er alveg sama
hversu vel virtur hann hefur verið í
landi, þegar hann lendir í þessum
sérkennilegu aðstæðum verður
hann að byrja alveg upp á nýtt að
afla sér virðingar. Annað sem er
mjög sérstakt á sjó er agavald
skipstjórans, sem var löngum hálf-
gerður einræðisherra, og er enn
miklu valdameiri en nokkur for-
stjóri í fyrirtæki á landi,“ segir
Ragnar. Sjálfur segist hann aldrei
hafa komist til mannvirðinga á sjó,
hann hafi verið yngstur um borð á
sínum tíma og ekki farið nema fá-
eina túra. „En ég sjóaðist,“ segir
hann.
Útgerðin ekki til fyrirmyndar
Pétur sjóast líka og smátt og
smátt finnur hann sér hlutverk
þegar hann lendir í því að kokka of-
an í áhöfnina. „Þar er hann á
heimavelli og þar með byrjar hann
líka aðeins að færa sig upp á skaft-
ið og svara fyrir sig,“ segir Kjart-
an. „Það er nú bara vegna þess að
hann fær hjálp frá Lóu,“ segir Erla
Ruth Harðardóttir, sem fer með
hlutverk hásetans Lóu, sem er eina
konan í áhöfninni og sambýliskona
skipstjórans, Barða. Hann er harð-
ur nagli sem stendur í stappi við
sýslumann og lánardrottna en
saumar út í frístundum. „Þessi út-
gerð myndi nú frekar teljast drasl-
araútgerð - en þær hafa margar
verið til,“ segir Ragnar, „það er
augljóst að þetta er ekki eitt af
Leikarar og
listrænir
stjórnendur
LANDKRABBINN eftir
Ragnar Arnalds.
Leikarar: Kjartan Guðjóns-
son, Erla Ruth Harðardóttir,
Jóhann Sigurðarson, Pálmi
Gestsson, Þórunn Lárusdóttir,
Sigurður Skúlason, Stefán
Jónsson, Gunnar Hansson, Ól-
afur Darri Ólafsson, Randver
Þorláksson og Guðrún Þ.
Stephenssen.
Leikstjóri: Brynja Bene-
diktsdóttir.
Leikmynd og búningar: Sig-
urjón Jóhannsson.
Tónlist: Atli Heimir Sveins-
son.
Lýsing: Bjöm Bergsteinn
Guðmundsson.
þessum fyrirmyndarútgerðarfyrir-
tækjum landsins sem græða nokk-
ur hundruð milljónir á ári og eiga
stóran hlut í kvótaeign þjóðarinn-
ar.“