Morgunblaðið - 17.03.2000, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
Vælið fer í taugarnar á Lóu
Lóa er hörkutól og fyrst í stað er
hún eini vinur Péturs um borð.
Hún telur í hann kjark og kennir
honum að hann verði harka af sér
og svara í sömu mynt ef hann ætli
að lifa af. „Hún hefur möðurlegar
tilfinningar gagnvart honum vegna
þess að hann er veikastur. Hún
kann vel við hann en vælið í honum
fer svolítið í taugarnar á henni,“
segir Erla.
I þessum túr er Lóa raunar ekki
eini kvenmaðurinn um borð, því
fyrir slysni slæddist með ung söng-
kona að nafni Viktoría sem var
gestur í káetu skipstjórans nóttina
áður en lagt var úr höfn. Hana leik-
ur Þórunn Lárusdóttir sem leikur
nú í fyrsta sinn í Þjóðleikhúsinu
eftir að hún kom heim frá námi.
Á frívaktinni
Anno Domini 2000
Tónlistin í verkinu er eftir Atla
Heimi Sveinsson. „Þetta er ekki
mikil músík en þarna eru nokkur
atriði sem vonandi lífga upp á sýn-
inguna," segir Atli Heimir hógvær.
„Þetta er eins og ég myndi kalla
það Óskalagaþáttur sjómanna eða
Á frívaktinni Anno Domini 2000,
einhvers konar sjómannavalsar og
slík músík.“
„Það hefur verið ákaflega gaman
að vinna með Brynju og ég er mjög
ánægður með að hún skuli vera
komin aftur upp í Þjóðleikhús. Svo
er líka alltaf gaman að taka þátt í
nýju íslensku verki úr íslenskum
veruleika. Af einhverjum ástæðum
hefur ekki verið fjallað mikið um
sjómannalíf í íslensku leikhúsi
hingað til - það sem stendur okkur
þó næst,“ segir tónskáldið.
Þórunn Lárusdóttir syngur bæði
og leikur á trompet í sýningunni.
„Þórunn er af leikhús- og tónlistar-
mannaættum, óvanalega flink og
öguð ung leikkona og fyrir utan að
geta bæði dansað og sungið þá spil-
ar hún prýðilega á trompet, enda
var faðir hennar heitinn, Lárus
Sveinsson, sem lést um aldur fram
núna í vetur, mikill trompetsnill-
ingur. Þórunn syngur líka prýði-
lega, alveg eins og móðir hennar,
Sigríður Þorvaldsdóttir leikkona,"
segir Atli Heimir.
Á vissan hátt er landkrabb-
inn sigurvegari í lokin
Þegar Brynja Benediktsdóttir
leikstjóri er spurð hvort Land-
krabbinn sé gamanleikrit segir hún
að sér sé illa við að flokka leikrit í
bása. „Við skulum bara kalla það
því góða og gegna nafni „alþýðu-
leik“ - síðan dæmir hver fyrir sig.
Undir yfirborði léttleika og kæru-
leysis býr raunverulegur lífsháski
og vinnuharka," segir hún.
„Leikritið undirstrikar einangr-
un og innilokun og það hvernig
samskipti fólks breytast við þessar
aðstæður. Það segir frá árekstri
landkrabbans við áhöfnina og
hvernig hann lifir af þessa sjóferð.
Á vissan hátt er landkrabbinn sig-
urvegari í lokin - hann hefur sigr-
ast á sjálfum sér og umhverfi sínu.“
Brynja segir að hún og Sigurjón
Jóhannsson leikmyndateiknari,
sem alinn er upp á bryggjunni á
Siglufirði, hafi verið eins og gráir
kettir í kringum togarasjómenn og
í togurum, reyndar við bryggju,
meðan á undirbúningi uppsetning-
arinnar stóð.
FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000 39
LISTIR
„Þegar æfingar hófust fengum
við alla „áhöfnina“ til að hitta hina
sönnu áhöfn á Ottó N. Þorlákssyni.
Sýningin er þó alls ekki heimilda-
sýning um skuttogara, heldur um
árekstur, sættir, einelti, hremm-
ingar og lífsháska, sem er kannski
ekkert ósvipaður um borð í togara
og í leikhúsinu, þótt annars eðlis
sé.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Brynja kemur nálægt leikriti eftir
Ragnar Arnalds, því hún leikstýrði
fyrsta verki hans sem sett var upp í
Þjóðleikhúsinu, Uppreisninni á Isa-
firði, árið 1986. Seinna vann hún
sjónvarpskvikmynd úr upptökum
sem gerðar voru á verkinu 1987 og
var myndin sýnd á Stöð 2 um síð-
ustu jól. Brynja hefur ekki unnið í
Þjóðleikhúsinu í tíu ár en hún segir
þau tíu ár hafa liðið hratt, enda hef-
ur hún haft mörg járn í eldinum.
Þegar hún er spurð hvernig það sé
að leikstýra í Þjóðleikhúsinu eftir
svo langt hlé kvartar hún ekki:
„Leikararnir og allir aðstandendur
eru mér ákaflega ljúfir,“ segir hún.
Brynja mun þó ekki staldra lengi
við á þeim bænum því um leið og
frumsýningin er að baki heldur hún
í vesturvíking með leiksýningu sína
um ferðir Guðríðar Þorbjarnar-
dóttur í farteskinu. Þetta árið verð-
ur leikritið sýnt á ensku víða um
Bandaríkin og Kanada, m.a. að
tilstuðlan Landafundanefndar.
% BRÚÐÁRGJAFIR
2k*S Ö FN U N ARSTE LL
*GJAFAKORT
SKEMMTILEG UPPÁKOMA
FR0MSW0M1 OAG
NYJASTU tAYNb SPIKF LFF
ffa DAI.J-j'SNEVMS, m
The .44-Ca iner Cese
KEW HÍTE SlfT
neivs m TT”
DAILYe f<m
BHir, jC0PS:.44KILUER
nSMltiSlK^ *. ÍlDfe. MAISftfWllVA
r að ífoMar
ér .sjaétí or<3 ð g
rjpi Ai i;¥ ■ Ni fe.
MUBht
fmttWm
í»Sftém
Adj Sfeð íót Smj'
fs>f ’Úté
...... ..... .... ...
m
i$Mí
v
f ókus
A4AÆII
ÁLFABAKKA