Morgunblaðið - 17.03.2000, Page 54
MORGUNBLAÐIÐ
'54 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000
Nýjasta plata Aqua er komin út og af því tilefni býöur
mbl.is þér aö skoða heimasíðu Aqua og hlusta á tóndæmi
af nýjustu lögunum.
Hiustaðu á Aqua og taktu þátt í spennandi netleik á mbl.is
með því að svara léttum spurningum og hægt er að vinna:
Q Margmiðlunar- og tónlistardiskinn
Aquarius
Q Aqua-boli
Q Aqua-plaköt
Q íþróttadrykkinn £SS!fá'(3M
frá Vífilfelli
Aquarius er önnur plata dönsku hljómsveitarinnar Aqua með lögunum Cartoon Heroes,
Around The World og We Belong To The Sea. Fyrsta plata hljómsveitarinnar, Aquarium
sem kom út fyrir fjórum árum, naut mikilla vinsælda og voru lögín Turn Back Time,
Barbie Girl og My Oh My hvað vinsælust.
UMRÆÐAN
Nú er það
svart, Davíð!
NÚ undanfarið hef-
ur verið stríð umræða í
fjölmiðlum í kjölfar
umræðu á Alþingi um
fjármál stjórnmála-
flokka. Sá þáttur, sem
mest hefur verið fjallað
um og spannst af þess-
ari umræðu er þáttur
eða þátttökuleysi Ör-
yrkjabandalagsins og
málefni öryrkja. Hlut-
ur fjölmiðla er stór í
þessu máli. Má í raun
segja, að framsetning
til að mynda RÚV, sé á
margan hátt sérkenni-
leg. Þar hefur verið
reynt að troða skóna af
forsætisráðherra okkar Davíð
Oddssyni með ósönnum tilvitnun-
um í orð hans. Og má hann í þessu
máli reyna það, að ekki vilja menn
alltaf hafa það, sem sannara reyn-
ist, ef tilgangurinn er að klekkja á
þeim sterka með því að láta skína í
það að hann sé að níðast á lítil-
magnanum. Aldrej hefi ég hitt
stjórnmálamann á Islandi, sem hef-
ur viljað ganga á hlut öryrkja eða
þeirra, sem minna mega sín. Stefna
allra stjórnmálaflokka hér á Islandi
er svipuð hvað þessi málefni varða,
enda er Sjálfstæðisflokkurinn einn
af sterkustu félagsmálaflokkum
Evrópu. Fyrir síðustu kosningar
bauð Samfylkingin fram í fyrsta
sinn til Alþingis. I því sambandi
hefur Davíð Oddsson bent réttilega
á, að Öryrkjabandalagið hafi stutt
það framboð með ráðum og dáð. í
kosningabaráttunni bar svo til að
dóttur vinar míns barst bréf frá
Samfylkingunni, sérstaklega stílað
á hana. Þetta væri ekki frásögur
færandi, nema af því að hún var
ekki fullra sextán ára og algjörlega
hlutlaus í stjórnmálum. Hafði
aldrei stigið fæti innan dyra hjá
neinum stjórnmálaflokki. Af þessu
tilefni hringdi faðir hennar til skrif-
stofu Samfylkingarinnar og spurði
hvernig á þessu bréfi stæði. Jú, var
svarið, þetta var samkvæmt lista,
sem Öryrkjabandalagið hafði látið
Samfylkingunni í té. Stúlkan var
nefnilega áskrifandi
að blaði öryrkja, þar
sem hún hafði áhuga
á þessum málaflokki.
Þarf fleiri vitna við,
Davíð? Þetta styður
mál forsætisráðherra
og sýnir að hann hef-
ur rétt fyrir sér, því
miður. Þetta vekur og
spurningar um sið-
ræn viðhorf forystu-
manna öryrkja og
Samfylkingarinnar,
sem skirrast ekki við
að nota nafnaskrár
Öryrkjabandalagsins
til atkvæðaveiða fyrir
Samfylkinguna. Þarf
þá ekki að fara í grafgötur með
aðra þætti málsins, auglýsingaher-
ferðinni var ætlað að fá fólk til að
Oryrkjadeilan
Má í raun segja,
að framsetning til að
--------------7-----------
mynda RUV sé á
margan hátt sérkenni-
leg, segir Hreggviður
Jónsson. Þar hefur
verið reynt að troða
skóna af forsætis-
ráðherra okkar Davíð
Oddssyni með ósönnum
tilvitnunum í orð hans.
kjósa Samfylkinguna. Hag öryrkja
er ekki betur borgið við að kjósa
Samfylkinguna. Kjörum allra
landsmanna er best borgið undir
stjórn, sem stýrir blómlegu efna-
hagskerfí, þar sem saman fer opið
markaðskerfi, mannúð og mildi.
Höfundur er fyrrverandi
þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Hreggviður
Jónsson
ÞÞ
&co
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 S: 553 8640 & 568 6100
Rutland þáttir,
bætir og kætir
þegar þakið
fer að leka
Rutland er einn
helsti framleiðandi
þakviðgerðarefna í
Bandaríkjunum
Veldu rétta efnið - veldu Rutland!
Á -ÞÖK - VEGGI - GÓLF
Breytum og gerum við fatnað.
Leðurviðgerðir.
Gardínu- og rúmteppasaumur.
Saumsprettan s/f
Veltusund 3 við Ingólfstorg
Sími 552 0855