Morgunblaðið - 17.03.2000, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
FOSTUDAGUR 17. MARS 2000
55
UMRÆÐAN
Hagsmunapot? -Nokkr-
ar spurningar til Þrastar
Aðalfundur
íslandsbanka hf.
í Morgunblaðinu 14.
mars sl. gerir Þröstur
Helgason að umtalsefni
fyrirlestur sem Magnús
Diðrik Baldurson flutti í
Norræna húsinu á dög-
unum og nefndi „And-
úðina á hinu almenna".
í fyrirlestrinum viðraði
Magnús Diðrik þá skoð-
un sína að heimspeki sé
hvergi betur borgið en
hjá sjálfri sér, og átti
augljóslega við með
þessu að heimspeki ætti
að vera sjálfstæð grein
eða iðja sem fengist við Eyjólfur Kjalar
viðfangsefni sín með Emilsson
eigin aðferðum og á eig-
in forsendum (sem auðvitað er vel
samrýmanlegt því að hún sæki
mörg viðfangsefna sinna til mann-
lífsins, vísinda eða lista). En að
dómi Magnúsar skyldi heimspekin
leitast við að vera „óháð öllum ytri
markmiðum og hagsmunum".
Þessu undi Þröstur bersýnilega illa
og lýsti skoðun Magnúsar sem ein-
berri hagsmunavörslu fyrir hönd
heimspekinnar, enda, segir Þröst-
ur, „er ekkert til sem heitir hags-
munalaus fræðimennska".
Það vafðist satt að segja dálítið
fyrir mér að skilja þanka Þrastar
um þessi efni. Ekki bætti úr skák
að hann vildi setja allt mál Magn-
úsar í samband við „samsemdar-
kreppu heimspekinnar" og annarra
fræða. Eftir 25 ára nám og starf á
sviði húmanískra fræða og heim-
speki sérstaklega, verð ég segja
Þresti að ég kannast ekki við neina
sérstaka samsemdarkreppu á þess-
um sviðum. Vissulega gengur á
ýmsu, en tilvistarkrepputal virðist
mér öðru fremur vera eitt af eink-
ennum vissrar ímyndunarveiki sem
að vísu verður að kannast við að er
smitandi. Sé um einhverja kreppu
að ræða felst hún helst í þessari
veiki, sem sumir vilja gefa fræði-
heitið „póstmódernismi". Hún
gengur ábyggilega yfir eins og
hver önnur kvefpest. í grein sinni
tæpir Þröstur hins vegar á hlutum
sem heimspekingum hafa löngum
verið hugstæðir, og því var áhugi
minn vakinn. Ég vildi leyfa mér að
fá að beina fáeinum spurningum til
Þrastar, sem ég trúi ékki öðru en
hann fái rúm til að svara á síðum
Morgunblaðsins, þótt ekki sé um
venjulegt dagblaðsefni að ræða.
Þegar Þröstur fullyrðir að ekk-
ert sé til sem heitir hagsmunalaus
fræðimennska, hvað
á hann þá eiginlega
við? Að menn hafi
alltaf annarlegar
hvatir, meðvitaðar
eða ómeðvitaðar,
þegar þeir segja eitt-
hvað í nafni ein-
hverra fræða? Og þó
svo væri, myndi það
breyta einhverju um
hvort þeir segja satt
eða ekki? Ennfrem-
ur, þegar Þröstur
fullyrðir að hags-
munalaus fræði-
mennska sé ekki til,
þá hlýtur hann að
gera ráð fyrir að ein-
hveijir miklir hagsmunir séu í húfi
þegar hann fullyrðir einmitt þetta.
Því þótt vera megi að hann líti ekki
á þessa fullyrðingu sína sem fræði-
mennsku strangt tekið, hlýtur
maður að ætla að ef fræðimennska
stýrist einatt af hagsmunum, eigi
það líka og ekki síður við um dag-
blaðaskrif um fræðileg efni. Hvaða
hagsmunir skyldu búa að baki
þeirri staðhæfingu hans að hags-
munalaus fræðimennska sé ekki
til? Gera þessir hagsmunir stað-
hæfinguna tortryggilega (eins og
Þröstur telur bersýnilega skoðun
Magnúsar Diðriks tortryggilega
vegna þess að hagsmunir búi að
baki)? Eða er staðhæfingin jafn
sönn og trúverðug, þó svo að Þresti
gangi hagsmunapot eitt til með
henni? Eða vill kannski svo
skemmtilega til að þessi staðhæf-
ing ein, að hagsmunalaus fræði-
mennska sé ekki til, sé sú eina
HVAÐ ERT
ÞU AÐ GERA
^ÁSUNNUDAGINN?
SKEMMTILEG UPPAK0MA
Ertu búin að sjá nýju vor- og sumarlitina frá
HELENA Rubinstein? Ef ekki, þá er tækifæri núna.
Kynning í dag og á morgun.
- Glœsilegir kaupaukar -
Nýtt kortatímabil. Sendum í póstkröfú.
Bankastræti 8, slmi 551 3140
Heimspeki
Tilvistarkrepputal virð-
ist mér öðru fremur,
segir Eyjólfur Kjalar
Emilsson, vera eitt af
einkennum vissrar
ímyndunarveiki,
fræðimennska sem hafin er yfir
alla hagsmuni? Köld og hlutíæg
lýsing á veruleikanum eins og hann
er í sínu innsta eðli?
Að endingu vildi ég biðja Þröst,
ef hann skyldi telja þessar bams-
legu spurningar mínar á annað
borð svara verðar, að svara þeim
þá nokkurn veginn undanbragða-
Íaust. Auðvitað veit ég að það væri
til of mikils mælst að ætlast til að
svörin verði ekki lituð af ýmsum
hagsmunum Þrastar. En ég myndi
kalla það undanbrögð, ef hann
brygðist líkt við spurningum mín-
um og hann brást við máli Magnús-
ar Diðriks og segði til dæmis eitt-
hvað á þá leið að spumingarnar
séu einmitt skólabókardæmi um
neyð heimspekinnar eða að þær
beri vott um hversu hræddur og
ráðvilltur ég sé, því fremur þar
sem ég geri mér enga grein fýrir
því sjáifur.
Höfundur er prófessor í heimspeki
við Oslóarháskóla og er sem stendur
gistifræðimaður við Hugvísinda-
stofnun Háskóla Islands.
Aðalfundur íslandsbanka hf. árið 2000 verður
haldinn í Súlnasal Radisson SAS Saga Hótel
mánudaginn 20. mars 2000 og hefst kl. 14:00.
Dagskrá
1. Aðalfundarstörf í samræmi við 10. grein
samþykkta bankans.
2. Tillaga um heimild til bankaráðs til kaupa
á hlutabréfum í íslandsbanka hf.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða
afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra (
(slandsbanka hf. á Kirkjusandi í Reykjavík, 16. og 17.
mars nk. frá kl. 9:00 til 16:00 og á fundardegi frá
kl. 9:00 til 13:00. Einnig verða atkvæðaseðlar og
aðgöngumiðar afhentir á fundarstað frá kl. 13:00 til
14:00 á fundardegi.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja
aðgöngumiða og atkvæóaseðla sinna á Kirkjusandi
fyrir ki. 13:00 á fundardegi eða í síðasta lagi milli
kl. 13:00 og 14:00 á fundarstað.
7. mars 2000
Bankaráð fslandsbanka hf.
ISLAN DSBAN Kl
www.isbank.is
1 6.-1 9. MARS
Taktu forskot á vorsæluna!
Fáðu fallegar vorvörur á frábæru verði,
njóttu Ijúfra veitinga og þiggðu góða
þjónustu á Kringlukasti.
Fylgstu vel með sérkjörunum!
Nokkrar verslanir og þjónustuaðilar
veita dag hvern 15% viðbótarafslátt
af sérvaldri vöru eða þjónustu
ofan á Kringlukastsafsláttinn.
í dag koma þessar verslanir þér á óvart:
SKÍFAN
BYGGT OG BÚIÐ
TEKK VÖRUHÚS
föstudagur
lcawgtardagiir
suatnudlagur NÝJAR VÖRUR
meí sérslekum ufslæHi : 20%-50%
lr
Upplýsingor i sima 588 7788