Morgunblaðið - 17.03.2000, Side 66

Morgunblaðið - 17.03.2000, Side 66
66 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Ferdinand Magga, þú átt að Mér líður betur vera úti á hægri hérna hjá þér, i kanti. Kalli. En hvað cf einhver lemur bolta út á htegri kant? Hveiju skiptir það? Mér líður best héma hjá þér, Kalli. WE PONT \U\H ANV 6AME5, BUT I MAVE HAPPT PLAVER5,. Við vinnum ekki einn einasta leik, en leikmennimir eru ánægðir. ItotgittiMaftift BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Góð grein um mismun- un skv. jarðalögum Frá Guðjóni Jenssyni: feli í sér gagnvart þegnunum. Hann PEKKT er í réttarsögu landsins að lög lifl lengur en þeim er ætlað. Stundum hefur lagasetningarvaldið samþykkt lög, gefið þau út öllum landsmönnum til eftirbreytni af margvíslegu tilefni. Oft breytast að- stæður með breyttum tímum og sum þessara lagafyrirmæla eiga ekki lengur við. Þannig hefur orðið til urmull af lög- um og lagafyrirmælum, sum aftan úr grárri fomeskju. Elstu lagafyrirmæli í landslögum í dag eru úr Jónsbók en svo nefnist lögbók sú sem íslendingar samþykktu á ofanverðri 13. öld eftir að hafa játast valdi Noregskonungs. Eru ákvæði hennar sem enn gilda sum hver nær óbreytt úr Grágás, lagasafni þjóðveldisaldar, og teljast til klassíkur í íslenskri lagasetningu. Fyrir nokkrum áratugum hófst umræða meðal lögfræðinga um nauð- syn þess að efna til átaks við að hreinsa út úr löggjöf landsins ýmiss konar lagafyrirmæli sem dagað hefðu uppi. I framhaldi af þessum umræð- um í ræðu og riti var hafist handa af framkvæmdavaldinu, lagasafnið allt meira og minna hreinsað af gömlum og úreltum lögum og þau síðan af- numin með sérstökum lögum. Var þetta þarft verk og nauðsynlegt. Lagasafnið skrapp eðlilega mikið saman og er nú ekki nema svipur hjá sjón. Þessi gömlu lög voru leifar horf- inna tíma og höfðu enga þýðingu lengur fyrir nokkum einasta mann, skiptu litlu eða alls engu máli fyrir nútíma Islendinga. Þau voru til traf- ala í stjómsýslu og áttu jafnvel til að leiða til misskilnings og afvega með því að beina fólki inn í blindgötur. Ekki fer mikið fyrir því að íslenskir lögfræðingar kveðji sér hljóðs á opin- bemm vettvangi um nauðsyn þess að ganga enn lengra. Sum gömul laga- fyrirmæli em í lagabálkum, hafa sjálfsagt verið þar mjög lengi. í Morgunblaðinu sunnudaginn 5. mars (bls. 34) ritar Magnús Bjöm Bryn- jólfsson héraðsdómslögmaður af- burðagrein: „.Jarðalögin em brot á stjómarskrá lýðveldisins". Höfundur vekur athygli á því hrópandi misrétti sem nokkur ákvæði í jarðalögunum ,rekur ákvæði í 13. og 14. grein jarða- laganna sem byggja á fomum stofni og kveða á um rétt eiganda og ábúanda að jörð til að innleysa til sín aðra hluta jarðar ásamt sumarhúsi/ um á úrskiptum jarðarparti. Rök- styður Magnús nauðsyn þess að ákvæði þessi verði felld niður. Bendir hann á, að þessi ákvæði mismuni freklega þegnunum, enda gangi lagaákvæði þvert á eignarréttargrein stjómarskrárinnar. Beiting þessara ólaga sundrar fjölskyldum á altari ágimdar og misréttis. Mörg dæmi em um að bændur hafi í krafti laga- greinanna í jarðalögunum hrakið í burtu ættingja með því að innleysa til sín, oft fyrir smánarverð, jarðar- parta, sumarbústaðalóðir og nú síðast sumarbústaði. Sérstök ástæða er að mati Magn- úsar fyrir sumarbústaðaeigendur að vera á varðbergi nú, þegar ferðaþjón- usta hefur verið samþykkt sem hver annar búskapur. Meðan þessi ákvæði em í landslögum má eiga von á heift- arlegum illdeilum vegna þeirra. Eina leiðin er að afnema ólög þessi, enda em þau í hreinni mótsögn við ákvæði stjómarskrár um friðhelgi eignar- réttarins og jafnræði þegnanna. Þessi hugleiðing lögmannsins er orð í tíma töluð. Benda má á mörg slæm ákvæði sem ratað hafa inn í lög- gjöf landsins sem mismunar þegnun- um á vægast sagt grófan hátt. Vísa má t.d. á girðingarþátt laga um skóg- rækt en þar er lögð sú kvöð á þann sem vill rækta landið að girða það. Bændum og þeim sem halda sauðfé og annað búfé er hins vegar gert hærra undir höfði. Rétturinn er þeirra megin! Ef skepna sleppur inn í gegnum girðingu ætlast þessi ólög til að skógræktandinn beri sitt tjón sjálfur. Fróðlegt verður að fylgjast með væntanlegum skrifum um þessi mál. Grein Magnúsar Brynjólfssonar er mjög gott innlegg í þessa umræðu. Hafi hann þökk fyrir fyrirhöfn sína. GUÐJÓN JENSSON, bókasafnsfræðingur og leiðsögumaður, Amartanga 43, Mosfellsbæ. Formúla 1 er ekki íþrótt frekar en nautaat Frá Leó M. Jónssyni: ÓTRÚLEGT er hve kaupahéðnar eru lúmskir að læða áróðri sínum að almenningi. Dæmi er Formula 1 kappaksturinn, sem er greinilegur farvegur til að smygla ólöglegum tóbaksauglýsingum inn í sjónvarp með tilheyrandi fjölmiðlaglamri vel kynntrar áróðursmaskínu. Formula 1 er ekki íþrótt frekar en nautaat. Enginn venjulegur maður, hvað fær akstursíþróttamaður sem hann kann að vera, á nokkra möguleika á þátttöku í þessari keppni nema hann sé áður orðinn hluti af vel smurðri peninga- og auglýsingamaskínu, sem stýrt er af tóbaksframleiðend- um. Og þeir sem nú borga sífellt stærri hluta brúsans er ungt fólk í Afríku - helstu fómarlömb tóbaks- iðnaðarins um þessar mundir. Og í hverju er „íþróttin" fólgin? Nokkrum færum kappaksturs- mönnum (en auðvitað ekki konum) er lofað gulli og grænum skógum ef þeir eru tilbúnir að hætta lífinu fyrir blóðþyrstan skara sjónvarpsplápara sem fá kikk út úr því að sjá einhvern deyja eða stórslasast í beinni út- sendingu. Mín vegna mega menn láta hafa sig til þess en þeir hafa það framyfir nautin á Spáni að vita hvað bíður þeirra. Mín vegna má fólk horfa upp á þetta endalausa og asnalega hringsól með tilheyrandi glamri, skrumi og (ólöglegum) tób- aksauglýsingum en ég mótmæli því að fíflagangurinn sé flokkaður með íþróttum. LEÓ M. JÓNSSON tæknifræðingur, Nesvegi 13, Reykjanesbæ. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.