Morgunblaðið - 30.03.2000, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
MORGUNB LAÐIÐ
FRÉTTIR
Samningaviðræður
SAogVMSÍ
Launa-
liðurenn
óræddur
Krummi kemur svífandi og leggur til atlögu við minkinn.
Leikurinn berst út á ísilagðan lækinn og krummi hvessir klærnar.
Morgunblaðið/Porsteinn Ólafsson
Minkurinn hefur afráðið að flýja af hólmi og stefnir á að stinga sér í vatnið, en krummi stendur hróðugur eftir.
Krummi
hrekur
mink á
brott
KRUMMI og minkur einn áttust við
um siðustu helgi nálægt Þingvalla-
vatni, en krumma líkaði greinilega
illa við nærveru minksins og linnti
ekki látum fyrr en minkurinn sá
þann kost vænstan að stinga sér í
lækinn og hverfa á braut.
Þorsteinn Ólafsson á sumarbú-
stað á Þingvöllum í landi Kárastaða
og veitti minknum athygli á sunnu-
dagsmorgun. Þegar betur var að
gáð kom í ljós að krummi var einnig
mættur á svæðið og sló í brýnu
þeirra í milli. Ýmist lagði minkur-
inn í krumma eða krummi veittist
að minknum. Leikurinn barst yfir á
ísilagðan lækinn og lauk þannig að
minkurinn lagði á flótta ofan í vatn-
ið og hvarf. Þá flaug krummi á
brott, ánægður með sigurinn.
Að sögn Þorsteins hefur mink
fjölgað þarna á síðustu misserum
og telur hann ekki nóg að gert til að
halda honum í skefjum, og það sé
áhyggjuefni fyrir fuglalífið. Þor-
steinn segir að jafnan séu krumma-
hreiður í gjánum þama fyrir ofan,
en hrafninn byrjar að verpa í lok
mars eða byrjun apríl. Hugsanlega
hefur þessi harðskeytti kmmmi
verið farinn að undirbúa varp og
ekki líkað við þennan gest í nám-
unda við hreiðurstæðið.
„Krían er ekki komin, en annars
fer hún alltaf í minkinn og hamast í
honum, en það var kostulegt að sjá
hrafninn leggja svona í hann,“ seg-
ir Þorsteinn.
ÞOKKALEGUR gangur var í við-
ræðum Samtaka atvinnulífsins,
Verkamannasambands íslands og
Landssambands iðnverkafólks í
húsakynnum sáttasemjara í gær.
Fundur hefur aftur verið boðaður í
dag.
Hervar Gunnarsson, talsmaður
samninganefndar VMSÍ, sagði í
gær að þokkalegur gangur væri í
viðræðunum, gengið hefði verið frá
nokkrum málum um síðustu helgi
og unnið væri að því að þoka öðr-
um í höfn. Hann staðfesti þó að
launaliðurinn væri enn óræddur.
Þar hefur sem kunnugt er borið
mikið á milli.
Hervar sagðist aðspurður eiga
von á því að launaliðurinn kæmi til
umræðu um eða eftir næstu helgi.
Verkfall 26 landsbyggðarfélaga
innan VMSÍ hefst 14. apríl nk. hafi
ekki samist fyrir þann tíma og und-
ir lok mánaðarins hjá félögum inn-
an Alþýðusambands Vestfjarða,
verði verkfallsboðun samþykkt þar
í atkvæðagreiðslu.
Hervar segir að erfitt sé að spá
um það hvort takist að ná samning-
um áður en átök verði á vinnu-
markaði.
„Annaðhvort dugir okkur þessi
tími eða við blasa löng og erfið
átök,“ sagði Hervar.
Tveir öldungadeildarþingmenn skrifa utanríkisráðherra Bandaríkjanna vegna sjóflutninganna
Skora á Albright að
hafna óskum um að
breyta samningnum
BANDARÍSKU öldungadeildarþing-
mennirnir Robert G. Torricelli og
Emest F. Hollings hafa skrifað Mad-
eleine Albright, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, bréf þar sem lýst er
yfir „sterkri andstöðu" við að utanrík-
isráðuneytið eða nokkur embættis-
maður framkvæmdavaldsins grípi til
aðgerða í því skyni að breyta á nokk-
um hátt samkomulagi Bandaríkj-
anna og íslands um sjóflutninga íyrir
vamarliðið.
Segja fslendinga reyna að
knýja fram frekari eftirgjöf
Segir í bréfinu að það sé skilningur
þingmannanna að þrátt fyrir „tals-
verða eftirgjöf' bandarískra stjóm-
valda við gerð „samningsins milli lýð-
veldisins íslands og Bandaríkjanna
til að auðvelda framkvæmd varnar-
samstarfs ríkjanna" og samkomu-
lagsins, sem honum tengist, reyni ís-
lensk stjómvöld nú að knýja fram
frekari eftirgjöf.
í bréfinu, sem er dagsett 6. mars,
er rakið að árin 1985 og 1986 hafi nán-
ast allir flutningar íyrir vamarliðið
verið í höndum skipafélagsins Rain-
bow Navigation.
„íslensk stjómvöld kröfðust þá
fyrir hvatningu íslenskra skipafélaga
að Bandaríkjamenn í raun ýttu Rain-
bow Navigation út úr faginu," segir í
bréfinu og síðan er fullyrt: „Núver-
andi samingur og samkomulagið hon-
um tengt var gerður sem „málamiðl-
un“.“
Þingmennimir kveðast hafa orðið
þess áskynja að íslensk stjómvöld
vilji breyta því hvemig vamarmála-
ráðuneytið semji nú við verktaka.
Gagnrýna áform íslendinga
„Þær breytingar, sem íslendingar
leggja til, myndu koma á fyrirkomu-
lagi, sem er í grundvallaratriðum
ósanngjamt gagnvart litlum fyrir-
tækjum og yrði kostnaðarsamt
Bandaríkjimum, allt í því skyni að
koma á einokun íyrir það fyrirtæki,
sem íslensk stjómvöld taka fram yf-
ir.“
Þingmennimir vísa til þess að
áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum
hafi í janúar staðfest núverandi túlk-
un Bandaríkjastjómar á sjóflutninga-
samningnum og þá aðferð, sem notuð
sé þegar samið er við bandarísk og ís-
lensk félög um flutninga á hergögn-
um milli Bandaríkjanna og íslands og
bæta við: „Við skomm af áherslu á
þig að hafna öllum beiðnum um að
túlka samninginn á hvem þann hátt,
sem myndi grafa undan þeim skiln-
ingi, sem öldungadeildin lagði í hann
þegar hún staðfesti hann, hvort sem
það er með breytingu, samkomulagi
þar að lútandi eða með öðmm hætti.“
Fara þingmennirnir síðan fram á það
að þeir verði látnir vita íhugi utanrík-
isráðherrar einhverjar aðgerðir varð-
andi núverandi fyrirkpmulag flutn-
inga fyrir vamarliðið á Islandi.
Torricelli, sem er öldungadeildar-
þingmaður repúblikana frá New
Jersey, hefur áður látið sig þetta mál
varða, nú síðast í nóvember þegar
hann lagði ályktun um vamarliðs-
flutningana fyrir þingið. I þessari
ályktun er mælst til þess að hvorki ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna né
nokkur annar embættismaður reyni
að breyta eða endurtúlka sjóflutn-
ingasamninginn án þess að ráðfæra
sig við öldungadeildina eða fá sam-
þykki hennar. Segir að þar sé átt við
breytingar sem komi í veg fyrir að
fyrirtæki, sem hafi starfsleyfi sam-
kvæmt bandarískum eða íslenskum
lögum, leggi fram tilboð, sé veittur
samningur eða uppfylli samning um
flutninga á hemaðargögnum fyrir
Bandaríkin í samræmi við sjóflutn-
ingasamninginn. Einnig varði þetta
breytingar, sem að öðm leyti muni
grafa undan þeim tilgangi sjóflutn-
ingasamningsins að efla samkeppni
meðal skipa, sem sigla undir banda-
rísku flaggi, eða íslenskra skipafé-
laga.
Ályktun þessari var vísað til við-
skipta-, vísinda- og samgöngunefndar
öldungadeildarinnar.
Torricelh lét fyrst til sín taka í
þessu máli eftir að dómur félf Eim-
skipafélaginu og Van Ommeren í vil í
undirrétti þegar hann skrifaði Janet
Reno dómsmálaráðherra bréf þar
sem segir að forseti og utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna geti ekki mótað
og framfylgt utanríkisstefnu landsins
hafi alríídsdómarar rétt til að úr-
skurða um réttmæti hennar.
Torricelli skoraði á ráðuneytið
í bréfinu kvaðst hann telja að dóm-
urinn gæti haft mikil áhrif á steftiu
landsins í utanríkis- og hemaðarmál-
um standi hann. Skoraði öldunga-
deildarþingmaðurinn því á dóms-
málaráðuneytið að áfrýja málinu.
Torricelli hefur verið öldungadeild-
arþingmaður frá 1995 og sat áður 14
ár í fulltrúadeildinni. Hann situr í
fjórum nefndum á Bandaríkjaþingi,
þar á meðal dómsmálanefnd og utan-
ríkismálanefnd. Hann gegnir einnig
forustu hjá Demókrataflokknum í
kosningasjóðanefnd öldungadeildar-
innar.
Hollings er einnig demókrati og
situr f fjárveitinganefnd, fjárlaga-
nefnd og viðskipta-, vísinda- og sam-
göngunefnd öldungadeildarinnar.
Hollings var fyrst kjörinn til setu í
öldungadeildinni 1966 fyrir Suður-
Karolínu og hefur verið endurkjörinn
fimm sinnum. Aðeins fjórir öldunga-
deildarþingmenn hafa setið lengur á
þingi en hann.
Morgunbladinu
ídagfylgir
tímaritið 24-7.
Útgefandi:
Alltaf ehf.
Ábyrgðarmaður:
Snorri Jónsson.
Sérblað um viðskipti/atvhnmlíf
Eyjakonur komnar ■ úrslitin í
fyrsta skipti/C4
Afturelding og Haukar í undan-
úrslitin í karlaflokki /C2
LA
Si
4 UJUUJi
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.ls