Morgunblaðið - 30.03.2000, Side 8

Morgunblaðið - 30.03.2000, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Baugur hjólar í %stsmua/d Láttu mig um kauða, Davíð minn. eldavélar ofnar helluborð HEITIRDAGAR Glóandi tilboð á heitum vörum Heitustu vörurnar í heimilistækjadeild okkar þessa dagana eru nú heitu vörurnar; ofnar, eldavélar, helluborð og viftur. Það var vegfarandi sem fyrstur varð var við hitamolluna sem liggur yfir Lágmúlanum og krækti sér í bakarofn hið snarasta. Þótt upptök þessara tilboða séu sérfræðingum á markaðnum nokkuð Ijós, er enginn sem þorir að spá fyrir um það hve lengi þau geta staðið. Eða eins og einn þeirra sagði; tilboð eru tilboð og ég ætla ekki að brenna mig á því að missa af þeim. Þess má geta að allir vegir eru færir í Lágmúlann og spáin er góð eftir atvikum. B R Æ Ð U R N I R Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is RðDIOIMyST Matur Fimmta mat- vælasýningin í Kópavogi Sigurður Björnsson Sýningin Matur 2000 hefst í dag í Tennis- höllinni í Kópavogi og stendur í fjóra daga. Þetta er flmmta sýningin sem ber yfirskriftina Mat- ur að sögn Sigurðar Bjömssonar, markaðsfull- trúa Kópavogsbæjar, en sýningin hefur verið hald- in annað hvert ár í Kópa- vogi. Hvað skyldi vera á dagskrá á sýningunni í ár? „Sýningin verður opnuð klukkan 16 [í dag] af land- búnaðarráðheiTa Guðna Ágústssyni. Forseti Is- lands, Ólafur Ragnar Grímsson, verður heiðurs- gestur sýningarinnar en auk þess verður þama Qöldi annarra gesta, m.a. ýmsir forystumenn úr at- vinnulífinu. Þessar sýningar hafa alla tíð verið samstarfssýningar fagfélaga í matvælaiðnaðinum, Hótel- og matvælaskólans, ferða- málasamtaka höfuðborgarsvæð- isins og atvinnumálanefndar Kópavogs. Sýningarnar em í fyrsta lagi vömsýningar þar sem fjallað er um mat og matvæla- gerð í víðum skilningi. Þær em og kaupstefna þar sem fyrirtæk- in stefna til sín á þessa sýningu viðskiptavinum sínum og síðast en ekki síst em þær vettvangur fyrir fagfélögin sem keppa í öll- um greinum matvælaiðnaðar.“ - Um hvað er keppt? „Það er t.d. keppt um titilinn; Matreiðslumaður ársins, einnig um titihnn: Framreiðslumaður ársins. Þá er keppt í kökuskreyt- ingum og það em nemakeppnir. Einnig má geta þess að kjötiðn- aðarmenn keppa í tengslum við sýninguna. Þá er það nýjung að kaffibarþjónar halda sitt fyrsta íslandsmeistaramót á sýningunni og ein nýjungin enn á þessari sýningu er sú að sérstakt svæði er helgað brúðkaupum, þar koma nýgift brúðhjón og verða á sýn- ingarsvæðinu." -Er þetta íslensk eða alþjóð- leg sýning? „Sýningin getur varla íslensk- ari verið en þrátt fyrir það emm við æ meira að færa okkur í þá átt að gera svona sýningar al- þjóðlegri og fyrst og fremst í því skyni að kynna íslensku afurð- irnar, kjötið og fiskinn, fyrir er- lendu matargerðarfólki. í tengsl- um við þessa sýningu núna koma á annað hundrað manns til lands- ins. Norðurlandamót vínþjóna verður á sýningunni og sjávar- réttakeppni menningarborga Evrópu. Það em listakokkar frá menningarborgunum sem koma og spreyta sig á elda úr íslensku sjávarfangi. Dómarar em blaða- menn erlendra og innlendra fag- tímarita.“ -Hvert var upphaf þessara sýning? „Sýningin var frá upphafi byggð upp í kringum íslandsmeistaramótin í matargerð og sam- starfi við fagfélögin og þannig hefur þetta verið allar götur síðan. íslandsmeistaramótin hafa alltaf verið kjarninn í sýn- ingunni. Islandsmeistaramótin hafa verið afskaplega mikilvægur þáttur í þeirri viðleitni að mark- aðssetja erlendis íslensk matvæli og fagþekkingu við að vinna úr þeim. Þess má geta að íslending- ar sem hafa farið á erlend stór- mót í matargerð hafa beinlínis ► Sigurður Björnsson fæddist í Ólafsfirði 1950. Hann lauk prófi í húsasmíði frá Iðnskólan- um á Akureyri og starfaði við iðn sína í nokkur ár. Var síðan tvö ár í Tækniskóla Islands en hóf skömmu síðar störf hjá lög- reglunni í Ólafsfirði. Hann út- skrifaðist nokkru síðar úr Lög- regluskóla ríkisins. Eftir það lærði Sigurður rekstrarfræði og útfiutningsmarkaðsfræði og fór þá að starfa við sölu og markaðsmál. Hann hóf störf hjá Kópavogsbæ árið 1996 sem for- stöðumaður markaðsskrifstofu bæjarins. Sigurður er kvæntur Margréti Sigurgeirsdóttur, rit- ara á fasteignasöiunni Valhöll, og eiga þau þrjú uppkomin börn. sópað að sér verðlaunum, þannig að matargerðarlist hefur háan „standard" á íslandi. Þetta er hluti af menningu okkar.“ -Er gamla íslenska matar- gerðin með íþessu? „Raunar er gamla íslenska matargerðin ekki tekin sérstak- lega fyrir núna, hún var þema á síðustu sýningu og þá var haldið málþing um hana. En auðvitað eru henni gerð skil hjá ýmsum matvælaframleiðendum." - Er þetta stór sýning? „Upphaflega vorum við í íþróttahúsinum Smáranum sem hefur 2.000 fermetra sýningarsal en við neyddumst til að flytja sýninguna núna yfir í Tennishöll- ina sem hefur 4.000 fermetra sal, það sprakk allt utan af okkur. Sýningin er þrisvar sinnum stærri en sú síðasta og sýningar- svæðið með þvi allra glæsilegasta sem við höfum sett upp.“ - Eru verðlaunin mikil? „Verðlaun í þessum matvæla- greinum eru afar glæsileg. Sigur- vegari í hverri grein fær í verð- laun ferð á erlenda keppni og svo er fjöldi aðila sem veitir vegleg verðlaun þar að auki - sérstak- lega íslenskur land- búnaður sem veitir lambaorðuna mat- reiðslumanni ársins, einnig eru farandgripir og fjöldi annarra verð- launa. Uppskeruhátið sýningarinnar verður haldin í Broadway í lok sýningarinnar á sunnudagskvöldið, þá verða öll verðlaunin veitt og þama verða landsþekktir listamenn með skemmtiatriði, m.a. tónlistar- mennirnir Sigrún Hjálmtýsdótt- ir, Bergþór Pálsson og Jónas Ingimundarson. Sýningin er þrisvar sinn- um stærri en sú síðasta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.