Morgunblaðið - 30.03.2000, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 30.03.2000, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 1 3 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Galli í járnalögn og steypu í fiölbýlishúsi við Lyngmóa 1 Garðabæ Oljóst hvar bóta- skylda liggur LANGSÓTT verður fyrir húseigendur í fjölbýlishúsun- um við Lyngmóa í Garðabæ að leita eftir bótaskyldu sveitarfélagsins vegna hugs- anlegs byggingargalla. Þetta kom fram í samtali Morgun- blaðsins við Guðjón Friðriks- son, bæjarritara Garðabæjar, en á mánudaginn hrandi um tveggja tonna svalahandrið af þriðju hæð og niður á svalir annarrar hæðar. Agnar Ástráðsson, bygg- ingarfulltrúi bæjarins, sagði að bæjaryfirvöld hefðu fengið Línuhönnun hf. til að gera út- tekt á svölum í Lyngmóum 2, 4, 6, 8, 10 og 12 í kjölfar at- burðarins. „Bærinn kemur annars mjög takmarkað að þessu, en okkur þótti þetta atvik ógn- vænlegt og ákváðum því að láta rannsaka hvað hefði valdið þessu,“ sagði Agnar. „Það er ljóst að þarna hefur einhver galli verið í járnalögn og í steypunni. Þetta hefur hjálpast að við að gera það snið sem heldur handriðinu saman veikt fyrir og því hef- ur það gefið sig og fallið nið- ur.“ Guðjón sagði erfitt að segja til um það hvar bótaskyldan lægi. „En ég lít nú samt svo á að það sé byggingameista- rinn eða verktakinn sem beri meginbótaskylduna," sagði Guðjón. „En ef þessir aðilar hafa orðið gjaldþrota þá er það bara húseigandinn sem ber tjón sitt og þá verður ef- laust meira freistandi fyrir hann að leita eftir bótaskyldu sveitarfélagsins, en það þyrftu að hafa verið einhverj- ir veralegir annmarkar á starfsemi Byggingareftirlits- ins til þess að hægt sé að gera sveitarfélagið bótaskylt. Úttekt Byggingareftirlits- ins er ekki framkvæmd af þeirri nákvæmni að það sé hægt að ætlast til þess að það sé verið að taka ábyrgð á mannvirkinu, það er alveg Ijóst - byggingareftirlit fer ekki þannig fram.“ Guðjón sagði að þetta yrði allt skoðað gaumgæfilega eft- ir að niðurstöður Línuhönn- unar og Rannsóknarstofnun- ar byggingariðnaðarins lægju fyrir. Byrjað að fjarlægja skemmd handrið Agnar sagði að Línuhönn- un hefði byrjað að taka húsin út í fyrradag og þegar væri byrjað að fjarlægja þau hand- Morgunblaðið/Jim Smart Bæjaryfirvöld í Garðabæ hafa fengið Linuhönnun hf. til að meta skemmdir á svölum í fjöl- býlishúsunum við Lyngmúa. rið sem skemmd væra. „Það er ekki alveg komið í Ijós hversu mörg handrið era skemmd, en við höfum talið ástæðu til þess að láta skoða svalimar sem era í húsunum með sléttu tölunum, en það era neðstu húsin Lyngmóun- um. Sú húsaröð er byggð á undan þeirri sem er með oddatölunum og er ofar í Lyngmóunum. Það var annar byggingaraðili sem kom að framkvæmdum við húsin með oddatölunum og þau vora byggð um 5 áram seinna og því ekkert sem bendir til þess að svalir þar séu skemmdar. Húsin með sléttu tölunum vora byggð á áranum 1974 til 1977.“ Garðabær Morgunblaðið/Jón Svavarsson Aðgengi að heitu pottunum í Sundhöll Hafnarfjarðar er gott núna, en í vetur þurftu gestir að brölta yfir snjó og klaka þar sem engin hitalögn er í planinu við pottana. Erindi sundgesta vís- að til íþróttafulltrúa Hafnarfjörður BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar vísaði erindi fastagesta Sund- hallar Hafnarfjarðar, þar sem kvartað var yfir slæmu aðgengi að heitu pottunum, til íþróttafulltrúa bæjarins. í samtali Morgunblaðsins við Guðbjart V. Þormóðsson kom fram að í vetur hefðu gestir þurft að ganga ber- fættir yfir snjó og klaka til að komast í pottana. Hann sagði að nauðsynlegt væri að leggja hitalögn undir planið í kringum þá til þess að bæta úr ástandinu, ekki síst vegna þeirrar miklu slysahættu sem skapaðist þegar gengið væri á hálum klakanum. Halldór Ámason, fram- kvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Hafnarfjarðar, sagði að íþróttafulltrúinn myndi skoða hvernig hægt væri að leysa málið á sem ódýrastan og hagkvæmastan hátt og skila tillögum þar að lútandi til bæjarráðs. Til umræðu að byggja við Bústaðakirkju Morgunblaðið/Amaldur Formaður sóknarnefndar Bústaðakirkju hefur viðrað þá hugmynd að byggja við kirkjuna. Bústaöahverfi KOMIÐ hefur til tals að stækka Bústaðakirkju vegna þess hversu þröngt er orðið um starfsemina, að sögn Ög- munds Kristinssonar, for- manns sóknarnefndar. „Menn hafa rætt þetta í þröngum hópum, en þetta hefur ekki verið tekið fyrir á fundum sóknarnefndar,“ sagði Ögmundur. „Við stöndum frammi fyrir því að Borgarbókasafnið flytur þann 1. júní á næsta ári. Við erum því að athuga hvort það henti okkur að nota hús- næði þess ellegar að byggja við kirkjuna." Ögmundur sagðist ekki vita í hvora áttina yrði stækkað né hvort arkitekt- inn tæki það yfirleitt í mál. „Mínar hugmyndir era að stækka annaðhvort í austur í átt að Bústöðum, eða í vestur út að Tunguveginum. Spennandi dæmi Mér finnst þetta spenn- andi dæmi, en þetta er ekk- ert sem hægt er að festa neitt, enda hefur þetta ekki einu sinni komið til umræðu í sóknarnefnd. Þá þyrftum við að sjálfsögðu að ráðfæra okkur við arkitektinn og at- huga hvort hann telji þetta vera möguleika. Það gæti líka verið að Fé- lagsmiðstöðin Bústaðir flytji í núverandi húsnæði bóka- safnsins og við þá í þeirra pláss, en við ráðum því al- veg sjálfir hvað við gerum og hvort við nýtum húsnæði bókasafnsins, en það er gluggalaust." Stórt olíuskip að viðlegukanti STÆRSTA olíuskip sem lagst hefur að hafnarbakka í Reykjavík lá við viðlegukant Eyjagarðs í Örfirisey í gær og var verið að dæla úr skip- inu. Undanfarin misseri hef- ur verið unnið að því að lengja kantinn til að hægt sé að losa þar olíu úr stórum flutningaskipum í stað þess að láta þau liggja við legu- færi og taka farminn í land um neðansjávarleiðslur. Þannig hefur verið staðið að losun olíu úr flutninga- skipum í Reykjavík í nær hálfa öld en í gærmorgun urðu tímamót þegar hingað kom flutningaskipið Lista frá Mongstad í Noregi og lagðist að Eyjagarði. Skipið er nær 28 þúsund tonn, 170 metra langt og 24 metra breitt. Um borð voru 24 þús- und tonn af flotaolíu og dísil- olíu fyrir Olíufélagið hf. og Olíuverslun íslands hf. Þetta er eitt stærsta skip sem lagst hefur að hafnarbakka í Reykjavík og stærsta olíu- skipið sem það hefur gert, segir í frétt frá Esso. Dæling úr skipinu gekk vel og var stefnt að því að ljúka verkinu seint í gærk- veldi. Olíuskip hafa hingað til þurft tvo hafnsögubáta og einn aðstoðarbát þegar lagst er við legufæri á meðan farmurinn er losaður úr þeim. Lista lagðist að Eyja- garði í gærmorgun án að- stoðar hafnsögu- eða aðstoð- arbáta. Morgunblaðið/Sverrir Stærsta skip sem lagst hefur við hafnarbakka í Reykjavfk er olíuskipið Lista frá Noregi. Boðið í hönnun mis- lægra gatnamóta Reykjanesbraut OPNUÐ hafa verið tilboð í hönnun nýrra mislægra gatnamóta við Breiðholts- braut, Reykjanesbraut og Nýbýlaveg, en kostnaðar- áætlun verkkaupa, sem í þessu tilfelli er Vegagerð rík- isins hljóðar upp á 48 milljón- ir. Lægsta tilboðið kom fi'á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, um 37 milljónir, Línuhönnun bauð 39, 5 mil- ljónir í verkið, Hnit hf. og Fjölhönnun ehf. buðu 42,5 milljónir og VSÓ-ráðgjöf bauð 58 milljónir króna. Jónas Snæbjörnsson, um- dæmisstjóri Reykjanessum- dæmis Vegagerðarinnar, sagði að ekki væri búið að ákveða hvaða tilboði yrði tek- ið en að það yrði gert á næstu dögum. Hann sagði að þegar um útboð vegna hönnunar væri að ræða væri ekki sjálf- gefið að lægsta tilboðinu yrði tekið, því mat á tilboðsgjöfum vægi mjög þungt eða um 70%. Áætlað er að framkvæmdir við sjálf gatnamótin hefjist í haust og að þeim ljúki á næsta ári. Kostnaður vegna fram- kvæmdanna er áætlaður um 800 milljónir króna. Nýju gatnamótin verði svipuð að stærð og þau við Höfðabakka og er gert ráð fyrir því að um 60 til 70.000 bílar muni fara um þau á degi hverjum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.