Morgunblaðið - 30.03.2000, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 2 7
ERLENT
Bashar A1 Assad, sonur Sýrlandsforseta
Augljós erfingi
„krúnunnar“
UM svipað leyti og mikil og leyndar-
dómsfull gerjun hefur verið í stjórn-
málalífinu í Sýrlandi verður æ
gi-einilegra að næsti forseti landsins
eða, eins og menn kalla hann gjarn-
an, erfingi krúnunnar, er næstelsti
sonur forsetans, augnlæknirinn
Bashar A1 Assad. Hann hefur að
vísu enga formlega opinbera stöðu
og félli forsetinn frá áður en kjör-
tímabili hans lýkur eftir fimm ár,
eru fyi'ir tveir varaforsetar og ætti
með réttu annar að taka við.
Það blandast hins vegar engum
hugur um að annaðhvort þá eða að
líkindum fyrr verður stjórnar-
skránni snarlega breytt til að Bas-
har taki við af föður sínum, Hafez A1
Assad. Hann hefur verið sendur
sem fulltrúi föður síns til viðræðna
við nýja kónga í Jórdaníu og Marok-
ko og sl. sumar fór hann í heimsókn
til þriggja Flóaríkja og fékk þar
móttökur sem sæma erfðaprinsi.
Segist vera baráttumaður
gegn spillingu
A þessum sex árum, sem eru liðin
frá því Bashar skaut upp kollinum,
en hann hafði starfað í Bretlandi eft-
ir að hann lauk námi, hefur hann
ekki farið dult með hann telji sig nú-
tímamann sem vilji berjast gegn
spillingu, efla veg Sýrlands og álit á
alþjóðavettvangi. Hann er mjög
tregur til að veita viðtöl en hefur lát-
ið hafa eftir sér að hann muni ekki
skorast undan því að axla ábyrgð
verði eftir því óskað.
Bashar A1 Assad er mikið í mun
að leiða landið fram á við í tæknilegu
tilliti og er ekki vanþörf á því. Hon-
um virðist ekki standa jafnmikill
stuggur af því og föður hans að um-
heimurinn viti meira um Sýrland
nútímans, því hann vill breyta kerf-
inu: þar með er ekkert að fela. Rit-
skoðun ku vera eitur í hans beinum
en hún er nú nánast alger í landinu.
Aftur á móti er hann klókur og vill
beita lagni fremur en fara of geyst
enda óvíst að hann nyti nauðsynlegs
stuðnings Baathflokksins og viða-
mikils embættismannakerfis ef
hann ætlaði sér um of.
Hefur tryggt sér
stuðning hersins
Það sýnir ef til vill klókindi Bas-
hars A1 Assad að um það leyti sem
hann kom heim - eftir að bróðir
hans Basil A1 Assad lést sem allir
vissu að var þá sá sem faðir hans
ætlaði forsetaembættið - og eftir að
það var Ijóst að nú var röðin komin
að honum, valdi hann að starfa inn-
an hersins og gat sér þar hið besta
orð og er ekki vafi á því að þótt ýms-
ir innan stjórnarkerfisins séu hon-
um andsnúnir stendur herinn að
baki honum og það munar um
minna.
Ekki virðist í sjónmáli valdabar-
átta innan fjölskyldunnar nema þá
helst frá bróður forsetans, Rifaat,
sem oft hefur komið við sögu og
hann virðist telja sig réttborinn til
embættis án þess að njóta nokkuð
verulegs stuðnings meðal þorra
manna.
ir búið lengi utan Sýrlands. Hann
talar ensku og frönsku reiprennandi
og virðist opinn fyrir því að hlýða á
ráðgjafa og hlusta eftir rödd fólks-
ins og er það nokkur nýlunda. Á
hinn bóginn segja menn að hann hafi
ekki þá útgeislun til að bera sem
fleytti bróður hans langt og varla
vafi á því að sýrlenska þjóðin syrgði
hann mjög innilega.
Erlendir sendiráðsmenn í Sýr-
landi svo og ráðamenn í flestum
arabaríkjum virðast á einu máli um
að augnlæknirinn hógværi sé sá sem
koma skal. Og spá breytingum í
kjölfarið. Breytingum sem væntan-
lega verða til góðs fyrir þetta land.
Þar sem svo er kveðið á í stjórnar-
skrá að forseti landsins verði að hafa
náð fertugu er jafngott að núverandi
forseti lifi þau fáu ár sem þarf til að
sonurinn nái réttum aldri því þá er
ekki spurning: hann býður sig einn
fram og nær kjöri með glæsibrag.
Sex ár liðin frá dularfullu
andláti Basils
í síðasta mánuði var þess minnst,
en ekki á jafn mikilúðlegan hátt og í
fyrra, að sex ár eru liðin frá því eldri
bróðirinn og þáverandi óumdeilan-
legur erfingi að forsetaembættinu
lést í dularfullu bílslysi á leið til flug-
vallarins í Damaskus. Þar hefur ver-
ið komið upp minnisvarða um hann
og vitjuðu forsetinn, forsetafrúin,
ættingjar og helstu embættismenn
hans og vottuðu minningu hans virð-
ingu.
Það hefur aldrei verið upplýst ná-
kvæmlega hvernig þetta slys vildi til
en á hinn bóginn er þarna beinn og
breiður vegur og getgátur um
hermdarverk komust að sjálfsögðu
á kreik.
Basil A1 Assad var umdeildur og
einnig vinsælli en bróðir hans þó
mörgum sýnist að bróðir hans hafi
raunsærri og nútímalegri skoðanir
og virðist reiðubúinn að framfylgja
þeim þegar þar að kemur.
AP
Bashar A1 Assad, sonur Hafez A1 Assads Sýrlandsforseta, heilsar
Jacques Chirac Frakklandsforseta á fundi þeirra í fyrra.
Bashar ákvað líka að snúa sér að
fjarskipta- og upplýsingamálum og
er formaður sýrlenska upplýsinga-
félagsins sem hefur sl. ár beitt sér
mjög fyrir að koma Sýrlandi í sam-
band við umheiminn á nútímalegri
máta en menn hefðu getað ímyndað
sér fyrir ári eða svo.
Myndir um alla borg
í arabaríkjum þykir leiðtogum yf-
irleitt afar nauðsynlegt að hafa
myndir af sér út um allt. Myndir af
forsetanum eru í búðum, á bflrúðum,
eiginlega hvert sem litið er. Einnig
voru afar áberandi fyrir ári myndir
af Basil, bróðurnum sem dó, en
færri af augnlækninum. Nú er ann-
að uppá. Myndir af Bashar eru við
hvert fótmál og svo virðist sem sýr-
lenska þjóðin hafi lagt til hliðar
myndirnar af Basil A1 Assad. Allt
segir þetta sína sögu þegar menn
átta sig á hvernig þetta þjóðfélag
starfar.
Þeir sem til hans þekkja segja
hann hlédrægan en einarðan, eftir-
mynd föður síns í útliti - nema hann
hefur fagurblá augu. Hann virðist
alvörugefinn en sagður manna
skemmtilegastur í góðra manna
hópi.
Fáir vissu á honum deili fyrir sex
árum, enda hafði hann sem fyrr seg-