Morgunblaðið - 30.03.2000, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 33
Farandleshringur á leið til landsins
Morgunblaðið/Sverrir
^Bóklestur er lífsstíll,“ segja þær Mollie Hoben og Denise Scheibe frá The Minnesota Women’s Press.
Islenskar skáldkonur
á óskalista
Dansað um
loftin blá
ÞESSI risavaxni blöðrumaður sem
sést hér dansa um loftin blá er hluti
af innsetningu sem komið var fyrir
í viðskiptahverfi borgarinnar
Singapore.
Innsetningin er hluti af því átaki
Singapore að reyna að hrista af sér
þá ímynd að þótt borgin standi
traustum fótum þá sé hún frekar
andlaus og er þetta gert með því að
auka það fjármagn sem veitt er til
lista.
í MINNESOTA starfar allsérstakur
áhugahópur um bókmenntir eftir
konur, Book Group on the Road. Um
er að ræða farandleshring sem
stundar heimsóknir til ólíkra land-
svæða í því skyni að kynna sér menn-
ingu kvenna. Hópurinn hefur þegar
farið í vettvangsferðir til Nýju-
Mexíkó, Klettafjalla í Colorado,
Skosku hálandanna og Jórvíkm-skír-
is á Englandi og nú hefur stefnan
verið tekin á Island. Fyrirhugað er
að áhugakonur um íslenskar kvenna-
bókmenntir stígi á land strax á
næsta ári, ef vel gengur, en til þess
að undirbúa heimsóknina voru hér
nýlega staddar tvær konur úr for-
ystu klúbbsins.
„Oft er langur aðdragandi að
hverri ferð því við reynum að komast
yfir og lesa bækur eftir konur frá
viðkomandi svæðum áður en farið er
á staðinn. Þar er svo jafnvel fundað
með viðkomandi skáldkonum ef tök
eru á, auk þess sem farið er í al-
mennar skoðunarferðir til þess að
kynnast landslagi og lífinu á staðn-
um. I ferðunum hafa hingað til verið
á annan tug kvenna, en öllum er
frjálst að koma með og sjaldnast er
hópurinn eins samsettur," segir
Mollie Hoben, útgefandi og fyrrum
ritstjóri The Minnesota Women’s
Press, fréttarits um líf og störf
kvenna. Ritið er gefið út í dagblaðs-
broti tvisvar í mánuði í 40 þúsund
eintökum en finnst jafnframt á Net-
inu á slóðinni www.womens-
press.com.
Leitað að enskum þýðingum
„Við gefum einnig út bókmennta-
tímaritið Book Women sem hefur að
markmiði að kynna skrif kvenhöf-
unda og efla hlutverk bóka í lífi
kvenna," segir Mollie og bætir við að
útgáfan reki líka litla bókaverslun í
St. Paul sem sérhæfi sig í kvenna-
bókmenntum.
„Það er einmitt í gegnum bóka-
búðina sem við hyggjumst nú panta
nokkrar íslenskar bækur svo að
ferðalangarnir geti farið að undirbúa
sig,“ útskýrir Denise Scheibe, ein af
stofnendum útgáfunnar. „En vanda-
málið er að komast yfir bækur eftir
íslenskar konur sem þýddar hafa
verið á ensku. í fyrstu yfirreið okkar
Sýningu
lýkur
Gallerí Áhaldahúsinu,
Vestmannaeyjum
Sýningu Tolla á Myndlistar-
vori Islandsbanka í Vest-
mannaeyjum lýkur á sunnudag.
Sýningin er opin frá kl. 14-
18. Aðgangur er ókeypis og all-
ir velkomnir.
Rithöfundar vaxa á
trjánum hér á landi og
hringvegurinn er góður
staður til þess að njóta
bókmennta. Svo mælist
tveimur bandarískum
konum í spjalli við
______Sigurbjörgu________
Þrastardóttur en þær
undirbúa Islandsheim-
sókn áhugahóps um
kvennabókmenntir.
um bókabúðir hér fundum við Meðan
nóttin líður eftir Fríðu Á. Sigurðar-
dóttur og Z-Ástarsaga eftir Vigdísi
Grímsdóttur, en vonandi munu fleiri
titlar bætast á listann áður en við
höldum heim. í Minnesota var hins
vegar ekkert að hafa og fátt um svör
þangað sem við leituðum. Meira að
segja fullyrti ein vinkona mín, sem er
skosk skáldkona, að á Islandi væru
engir rithöfundar yfir höfuð!“ segir
Denise og skellir upp úr. „Svona get-
ur fólk komið af fjöllum. En ég er nú
búin að skrifa þessari vinkonu minni
póstkort héðan þar sem ég upplýsi
óðamála að íslenskir rithöfundar séu
svo sannarlega til - þeir vaxi bók-
staflega á trjánum.“
Kvöldvaka með
íslenskum konum
Mollie og Denise hafa neytt ým-
issa leiða til þess að safna sem best-
um upplýsingum um íslenska kven-
rithöfunda og eru hæstánægðar með
hjálpsemina sem hvarvetna hefur
mætt þeim. „Með hjálp Ástu Kr.
Ragnarsdóttur hjá Hollráðum höf-
um við komist í tæri við útgefendur,
bókmenntafræðinga og leikskáld,
svo dæmi séu nefnd. Svo höfum við
meira að segja komist í samband við
nokkrar skáldkonur í eigin persónu,"
segir Denise og nefnir meðal annars
Steinunni Sigurðardóttur og Elísa-
betu Jökulsdóttur. „Elísabet mætti
til fundar við okkur og las örsögur í
enskri þýðingu, dásamlega skemmti-
legar og sérstæðar sögur. Og fleiri
góðar konur höfum við hitt, en það er
einmitt draumur okkar að skipu-
leggja litla kvöldvöku með íslenskum
skáldkonum þegar leshringurinn
kemur til íslands."
Hugmyndin að Islandsheimsókn-
inni er komin frá núverandi ritstjóra
The Minnesota Women’s Press,
Cynthiu Scott, en hún tók þátt í ráð-
stefnunni Konrn' og lýðræði við ár-
þúsundamót í Reykjavík á liðnu
hausti. „Heimkomin hætti Cynthia
ekki að tala um Island og kveikti
með því áhuga okkar,“ segir Mollie
og bætir við: „Jafnframt því að
kynna okkur kvennamenningu á ís-
landi höfum við hug á því að ferðast
um ykkar fallega land, jafnvel að
fara hringveginn.
Það er gaman að leiða saman
sögusvið bóka og fyrirmyndirnar og
við gerum því skóna að sögusvið ein-
hverra þein-a bóka sem við komum
til með að lesa séu hér og hvar í
kringum hringveginn. Eða, er það
ekki annars? Varla gerast þær allar í
Reykjavík?"
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
GÆÐI OG ÁRANGUR
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU
Ráðstefna í Salnum, Tónlistarhúsinu í Kópavogi, 30. mars 2000.
Fundarstjórar: Helgi Már Arthúrsson, upplýsingafulltrúi, og
Ragnheiður Haraldsdóttir, skrifitofústjóri.
I
13.00-13.10
13.10-13.40
II
13.40-14.00
14.00-14.05
14.05-14.20
14.20-14.35
14.35-14.50
14.50-15.05
15.05-15.45
IH
15.45-16.00
16.00-16.15
16.15-16.30
IV
16.30-17.00
17.00-17.05
17.05-18.00
INNGANGUR
Setning ráðstefnunnar.
Ingibjörg Pdlmadóttir, heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra.
Heilbrigðisþjónustan fram til 2010 — Hvernig
munu kröfúrnar breytast?
Sigurður Guðmundsson, landlaknir.
ÁHERSLUR í GÆÐAMÁLUM___________________________
Gæðaáætlun heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytis.
Ingimar Einarsson, skrifitofustjóri,
Margrét Björnsdóttir, deildarstjóri.
Hlé.
Gæðastarf á heilbrigðisstofnunum.
Leifur Bárðarson, laknir og gœðastjóri,
Sigrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfirœðingur.
Gæði frá sjónarhóli sjúklinga.
Laura Scheving Thorsteinsson, hjúkrunar-
framkvœmdastjóri.
Klínískar leiðbeiningar (Clinical Guidelines).
Sigurður Helgason, laknir,
Samanburðargreining (Benchmarking).
Sigríður Haraldsdóttir, ritstjóri heilbrigðisskýrslna.
Kaffihlé - Veggspjaldasýning.
Ráðgjafafyrirtœki kynna starfiemi sína.
MAT Á ÁRANGRl__________________________________
Árangursstjórnun í opinberum rekstri.
Leifúr Eysteinsson, viðskiptafrœðingur.
Sjálfsmat heilbrigðisstofnana.
Jón Freyr Jóhannsson, forstóðumaður.
Samhæft mælingakerfi (Balanced Scorecard)
fyrir heilbrigðisstofnanir.
Magna Fríður Birnir, gœða- og starfipróunarstjóri.
RÁÐSTEFNULOK
Umræður.
Samantekt.
Móttaka heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
Umsjón ráðstefnunnar: Daði Einarsson, stjórnsýslufimðingur, og
Inga Margrét Haraldsdóttir, stjórnarráðsfúlltrúi.
Athugið að vegna mikillar þátttöku er aðgangur að ráðstefnunni
takmarkaður við fulltrúa sem þegar hafa skráð sig.