Morgunblaðið - 30.03.2000, Síða 38
38 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ftölsk grein um íslenska ljóðlist á 20. öld
Ort við glugga
sem snýr út í heim
YFIRLITSGREIN um ís-
lenska ljóðagerð á 20. öld er
meðal burðargreina í febr-
úarhefti ítalska ljóðatíma-
ritsins Poesia, útgefnu í Míl-
anó. I greininni, sem rituð er
af Silviu Cosimini, er fjallað
um átta íslensk skáld frá
ólíkum skeiðum aldarinnar
og í kjölfarið birtar ítalskar
þýðingar greinarhöfundar á
fimm tugum ljóða og brota
úr ljóðabálkum eftir höfund-
ana.
Arfur og örvun
að utan
í upphafi greinarinnar
segir að augljóslega sé
óvinnandi vegur að rekja
þróun íslenskrar Ijóðlistar
frá upphafi á fáeinum blað-
síðum, enda spanni hún ell-
efu aldir og teygi rætur sín-
ar aftur í móðu munnlegrar
hefðar. „Orðið hefur þannig
að ráði að velja aðeins 20.
öldina til umfjöllunar, öldina
sem sætir þeirri þversögn að
vera hvað vanræktust og
minnst rannsökuð af saman-
burðarfræðingum og öðrum.
Verða hér leidd saman átta
af helstu skáldum aldarinnar
sem saman endurspegla
hversu tryggir íslendingar
hafa verið arfi sínum, en um
leið móttækilegir fyrir sífelldri
örvun frá umheiminum þrátt fyrir
meinta einangrun." Skáldin sem
um ræðir eru Jóhann Sigurjóns-
son, Hulda, Steinn Steinarr, Hann-
es Pétursson, Sigfús Daðason,
Steinunn Sigurðardóttir, Gyrðir
Elíasson og Sjón. Ferill hvers og
eins er stuttlega rakinn og gerð
grein fyrir hlutverki skáldanna í
umbrotum, nýjungum eða ákveðn-
um stefnum í íslenskri Ijóðagerð.
Litið er á höfundarverkin í víðu
samhengi, en einnig rýnt í valdar
bækur og ljóð.
Fyrst er fjallað um Jóhann Sig-
urjónsson, einn af „ungum skáld-
um sem fram komu í upphafi ald-
arinnar, héldu á loft gildum
fagurfræði og frelsis og voru opnir
fyrir evrópskum menningar-
hans Sorg, að margra mati
fyrsta íslenska nútímaljóð-
ið. „Rímleysið og hinar
nýju, laustengdu og lítt ís-
lensku myndir ásamt hreyf-
ingunni í sterkum ramman-
um, gera Ijóðið að forspá
eða fyrirsögn; eins konar
nútíma-Völuspá," segir
Cosimini og telur Ijóðið til
vitnis um snilligáfu Jó-
hanns.
Togstreita leyst
milli forms og efnis
Þá er bent á að Hulda
hafi verið fyrsta konan sem
skapaði sér nafn í karlmið-
uðum, íslenskum bók-
menntaheimi. Hún hafi í
uppvexti sínum haft góðan
aðgang að erlendum bók-
menntum og notið betri
leiðsagnar um bókmennta-
heiminn en almennt gerðist
á þeim tíma, þar eð faðir
hennar var bókavörður.
„Hulda var sér mjög
meðvitandi um ójafna stöðu
sína í samanburði við karl-
höfunda en náði samt að
láta rödd sína heyrast.
Ljóð hennar fjalla um
frelsisþrá, flótta og betra
hlutskipti en konum bauðst
á þeirri tíð. I mörgum ljóða
hennar birtist eins konar
samviskubit, sambland feimni,
ótta, óöryggis og tilrauna til þess
að samþætta hefðbundið hlutverk
konunnar og metnað skáldsins,"
segir m.a. í greininni og bent á tví-
hyggjuna sem einkenni ljóð Huldu;
karlmennska/kvenleiki, stór/lítill,
sterkur/veikur, ráðandi/undirgef-
inn. Ávallt sé gert ráð fyrir þvi að
annar hinna tveggja sé hinum æðri
og baráttan við að öðlast merkingu
sé sífelld. „En um leið og öðrum
liðnum er ljáð merking leiðir af
sjálfu að hinn þurrkast út, gerand-
inn er sigurvegari en þolandinn er
nátengdur tapinu. í aldarbyrjun á
Islandi var kona annað hvort pass-
íf eða ekki til.“
Steini Steinarr er lýst sem eins
konar eylandi í menningar- og fé-
lagslegu tilliti á þeim umbrotatím-
Jóhann Sigurjónsson, Steinn Steinarr, Steinunn
Sigurðardóttir og Sjón eru meðal þeirra höf-
unda sem fjallað er um í ítalska tímaritinu.
straumum". Sagt er um skálda-
kynslóð Jóhanns að hún hafi orðið
afhuga epískum skáldskap forvera
sinna og snúið sér að styttri og
þéttari ljóðum sem einkenndust af
frelsisþrá, nýrri öryggistilfínningu
og andstöðu við þrældóm hvers-
dagsins. „Glugginn sem þannig var
opnaður út í heiminn hafði tvenns
konar áhrif; hann gaf þjóðinni nýja
vitund og sjálfsvirðingu en gerði
um leið óbærilega dvölina í þröng-
um stakki eylandsins þar sem
tækifæri skorti," segir í greininni
og bent á að mörg skáldanna hafi
haldið utan, þar á meðal einn
helsti fulltrúi þeirra, Jóhann Sig-
urjónsson. Honum er lýst sem
skáldinu sem „þjófstartaði mód-
ernismanum og exístensíalisman-
um“ og til skýringar er vísað í ljóð
um sem ríktu á 4. áratugnum í ís-
lenskum ljóðaheimi. Fyrsta bókin
hans „rauf ríkjandi hefð og stað-
setti Stein í fylkingarbrjósti hinn-
ar nýju kynslóðar módernískra
skálda sem síðar skilgreindu sig
„atómskáldin“. Þau voru málpípur
nýrrar þéttbýliskynslóðar, borgar-
innar, nýrra gilda - þau vildu
byrja upp á nýtt og slíta tengsl við
hefðina, formið og rímið.“
Rakið er stuttlega upphaf ís-
lenska módernismans „sem virtist
leysa upp spennuna milli forms og
efnis“, í það minnsta tímabundið.
„í samfélagi eftirstríðsáranna
finnur skáldið ekki lengur hjá sér
þörf til samskipta. Þessi firring
snýr athyglinni að samskiptum
skáldsins við sjálft sig. Ljóðið
verður svo yfirmáta persónulegt
að það verður illskiljanlegt.“
Greint er frá neikvæðum við-
brögðum almennings sem í fyrstu
áleit atómskáldin „ófélagslynd,
ónáttúruleg og ófær um að fjalla
um annað en eigin hugaróra“, en
bent á að Steinn hafi eignast
frægðarsól til framtíðar með Tím-
anum og vatninu; „dularfullum
ljóðabálki sem næstum því lítur út
fyrir að hafa skrifað sig sjálfur"
þar sem á togist hefðin og hið
frjálsa form.
Eftirstríðsárin;
pólitík og náttúra
Áhrif erlendra höfunda á Sigfús
Daðason eru gerð að umtalsefni,
en auk þess að vera beintengdur
íslenskum atómskáldskap „sótti
hann aðra arfleifð, enn meira
abstrakt, til súrrealismans í
Frakklandi, E’luard og Breton, og
til annarra evrópskra skálda á
borð við Rilke og T.S. Eliot“.
Fjallað er um sköpunargleði Sig-
fúsar, pólitík, heimspeki og stöð-
uga leit að nýjum leiðum til þess
að túlka lífið í skáldskap, um „illan
bifur“ hans á orðum en um leið
nauðsyn þess að velja þau vand-
lega og þekkja margræða merk-
ingu þeirra. „Heimspekileg ljóða-
gerð hans, hrynjandi, mælskulist
og frumspekileg sýn á heiminn,
gera hann að einum áhrifamesta
íslenska módernistanum," segir
Cosimini.
Þótt róttækni módernistanna
hafi að mörgu leyti verið ofmetin
af gagnrýnendum, að sögn Cosim-
ini, festust margar neikvæðar ein-
kunnir við skáldin. „Sum þeirra
leituðu hófstilltari leiða með mála-
miðlun milli íslenskrar menningar-
hefðar og áhrifa frá erlendri sam-
tímaljóðlist. Þeirra á meðal var
Hannes Pétursson."
Ljóðum Hannesar er lýst sem í
deiglu hefðar og byltingar, enda
hafi skáldið lagt sig fram um að
smíða margslungna heild úr þráð-
um frá ólíkum straumum og stefn-
um. „Náttúran er grundvallar-
atriði í höfundarverki Hannesar,
sér í lagi fyrstu árin þar sem hann
virðist gæla við hlutverk þjóð-
skálds."
Fjallað er um samruna manns
og náttúru í ljóðum Hannesar og
bent á að fyrstu heimsátökin sem
snertu íslendinga beinlínis - síðari
heimsstyrjöldin - og seintekin iðn-
væðing í landinu hafi sært fram
nýja tegund náttúruljóða, mun
rómantískari á evrópska vísu en
lengi hafði þekkst.
Tilraunir með form
„Steinunn Sigurðardóttir vakti
athygli með fyrstu bók sinni, inn-
blásinni af módernismanum, en
hún innihélt erfið ljóð, þung og
táknþrungin," segir Cosimini um
Sífellur, en bætir við að Steinunn
hafi tekið sér stöðu á mörkum
módernisma og nýraunsæis. Enn-
fremur segir að „fyndna kynslóð-
in“ hafi blásið kímnivindum yfir
sviðið og hafi jafnframt verið
fyrsta kynslóð íslenskra skálda
sem nýtti fjölmiðla og gjörninga
markvisst í þágu bókmenntanna.
Bent er á að Steinunn hafi aflað
hylli með því að nýta sér, hljóðlega
og ljúflega, þau bókmenntaform
sem standa hjarta íslendingum
hvað næst, til að mynda minning-
argreinar (Síðasta orðið). Hún sé
einnig sú skáldkona íslensk sem
einna mestri útbreiðslu hafi náð á
erlendum markaði.
Höfundarverk Gyrðis Elíassonar
er heilsteypt og enn í mótun, en
ekki er auðvelt að fella verk hans í
flokk ákveðinna bókmenntagreina,
segir í greininni, þar sem lesa má
sum smásagnasöfnin sem skáld-
sögur og ljóðasöfnin jafnvel sem
eitt ljóð. „Gyrðir hefur sterk
tengsl við íslenskt dreifbýli og
sker sig úr fyrir afar persónulegan
stíl,“ segir m.a. og athygli er vakin
á ljóðrænu og auðugu málsniði í
textum hans. „Frásagnirnar eiga
augljóslega rætur í munnlegri hefð
og alþýðumenningu til sveita."
Síðasta skáldið sem fjallað er
um er Sjón sem „frá upphafi af-
neitar hefðbundnum listformum og
steypir saman ólíkum formum.
Orðin virðast lifa sjálfstæðu lífi og
byggja veruleika handan veruleik-
ans. Hann nýtir sér popp, rokk,
auglýsingar, erótík, teiknimyndir,
menningu snoðhausa og súrreal-
íska hefð, í stuttu máli allt sem
hefur vægi í lífi ungs fólks, og til-
reiðir úr því kraftmikil og
skemmtileg ljóð,“ segir um Sjón
og bent á að Medúsuhópurinn hafi
speglað sig í súrrealisma, pönki og
jafnvel stefnum frá fjórða áratugn-
um, svo sem fútúrisma og dada-
isma.
A kili á
Akranesi
SKAGAFLEIKFLOKKURINN
frumsýnir leikritið Lifðu (yfir
dauðans haf) eftir Kristján Krist-
jánsson í Bjarnarlaug á Akranesi
á morgun, laugardag, kl. 20.
Leikritið fjallar um þrjá menn
sem komast á kjöl þegar báti
þeirra hvolfir í blíðskaparveðri
einn þokudag um haust í byrjun
20. aldar. Hér eru feðgar á ferð á
leið til læknis í höfuðstaðnum en
faðirinn hefur áhyggjur af and-
legri heilsu sonarins. Þeir taka
sér far með manni, sem þeir
halda ferjumann, yfir fjörð á litl-
um árabáti. Bátnum hvolfir á
miðjum firði og lýsir verkið bar-
áttu mannanna fyrir lífi sínu og
viðbrögðum þeirra við þessum
ógnvænlegu kringumstæðum.
Mennirnir þrír gera upp líf sitt
þarna á kilinum, hver með sínum
hætti og kemur ýmislegt óvænt
upp úr kafinu.
Hlutverkin eru sérstaklega
skrifuð með leikarana þrjá í
huga. Kristján leikstýrir verkinu
sjálfur. Hann hefur áður gefið út
nokkrar ljóðabækur og skáldsög-
ur og árið 1992 setti Skagaleik-
flokkurinn upp leikritið Alltaf má
fá annað skip eftir Kristján, og
var það sýnt víða um land og
einnig var ferðast með verkið til
Danmerkur og Svíþjóðar.
Kristján hefur leitað til aðila
sem hafa reynslu að baki svipaða
og er fjallað um í verkinu Lifðu.
Höfundur tónlistar er Orri
Harðarson .
Onnur sýning verður sunnu-
daginn 2. apríl kl. 20.
Vortónleikar
Ljósbrár
á Hvoli
KVENNAKÓRINN Ljósbrá í
Rangárþingi heldur árlega vortón-
leika sína í Félagsheimilinu Hvoli,
Hvolsvelli, föstudagskvöldið 31.
mars kl. 21.00.
Söngstjóri er Nína María
Moravek. Undirleikari er Kári
Þormar og einsöngvarar með kórn-
um eru Sigurlaug J. Hannesdóttir
söngnemandi í Söngskólanum í
Reykjavík og Einar Guðmundsson
söngnemandi í Tónlistaskóla Rang-
æinga. Á efnisskrá kórsins, sem í
eru 25 félagar, verða m.a. bítlalög.
Framundan er æfingardagur og
tónleikar í Skálholti og heimsókn
t.il K’vpnnalcnrs Hnfnnfiarrinr
Sýningu lýkur
Gallerí i8, Ingólfsstræti 8
SÝNINGU Ólafar Björnsdóttur
lýkur nú á sunnudag.
Sýningin í i8 er fyrsta einkasýning
Ólafar en hún hefur tekið þátt í fjöl-
mörgum samsýningum hér heima og
erlendis.
i8 er opið fimmtudaga til sunnu-
daga frá kl. 14-18.
Didda les í
Gerðarsafni
SKÁLDKONAN Didda les úr verk-
um sínum í kaffistofu Gerðarsafns í
dag, fimmtudag, kl. 17.
Upplesturinn er á vegum Ritlist-
arhóps Kópavogs og er aðgangur
ókeypis.
M-2000
Fimmtudagur 30. mars.
Vesturbæjarskóli, kl. 15.
Sjálfbært skipulag -
Skipulags- «V ^
fræðingafélag fslands
Sýning Skipulags-
fræðingafélags íslands
tekur á möguleikum Is- ^ lend-
inga á að búa til sjálfbært manngert
umhverfi á íslandi. Hvaða áhrif hef-
ur skipulag á umhverfi okkar, þróun
og núverandi stöðu í umhverfismál-
um? er meðal þeirra spurninga sem
leitað er svara við. Svo verður ferðast
með sýninguna um grunnskóla
landsins.
si@vortex.is
Ráðhús Reykjavíkur kl. 16.
Setning Skiðalandsmóts 2000.
Klukkan kl. 12 hefst ganga í karla-,
kvenna- og piltaflokki á skíðasvæð-
inu í Skálafelli. Skíðalandsmót 2000
er liður í Vetraríþróttahátíð IBR.
http:Avww.tota.is/skildi2000/
Lifðu, Leikrit Skagaleikflokksins verður sýnt í Bjarnarlaug á Akranesi.
Hér eru leikarar og aðstoðarfólk á æfingu.