Morgunblaðið - 30.03.2000, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 39
LISTIR
Skin og skúrir
BÆKUR
Náttúrufræðirit
SAGA VEÐURSTOFU
ÍSLANDS
eftir Hilmar Garðarsson.
417 bls. Útgefandi er bókaforlagið
Mál og mynd.
HIN síðari ár hefur færzt mjög í
vöxt, að stofnanir og félög láti skrá
sögu sína af sérstöku tilefni. Oft er
þetta gert meira til gamans en gagns
og jafnan fyrir þá, sem staðið hafa í
eldlínunni. Pá er ekki ýkja hátt risið á
mörgum stofnunum, en hinu má
heldur ekki gleyma, að saga margra
stofnana hins opinbera er hin merki-
legasta og fylklega þess virði, að
henni séu gerð viðhlítandi skil.
í nýútkominni bók um Veðurstofu
Islands er greint frá helztu viðburð-
um í áttatíu ára sögu stofnunarinnar,
en hefð er fyrir því að telja hana
stofnaða 1. janúar 1920, þó að lög um
starfsemina hafi ekki verið sett fyrr
en sex árum síðar. Hins vegar var
fyrsta veðurmækng hér á landi, sem
sögur fara af, gerð í Selárdal 1664, en
fyrstu reglubundnu veðurathuganir
hófust í Stykkishólmi 1845, og hafa
staðið ósktið síðan.
Skin og skúrir hafa skipzt á í sögu
Veðurstofu. Eðli máls samkvæmt er
sagan rakin í tímaröð í skýru sögu-
legu ljósi, en verður þó eiktið ágrips-
kenndari eftir því sem líður á bókina
og endar í nokkurs konar skýrslu-
formi, enda hefur það að lfldndum
verið höfundi svoktil þraut að skrifa
um núverandi starfsmenn og erfitt að
gera öllum jafnhátt undir höfði. Ekki
er augljóst eftir hverju var farið þeg-
ar æviágrip og afrek sumra manna
eru tíunduð í sérstökum ramma-
greinum en annarra ekki. Sjálfsagt
hefur verið vandi nokkur að velja
réttu orðin þar sem greint er írá hve
menn hafa verið afkastamiklir;
nokkrir hafa skrifað fjölda margar
greinir, aðrir allmargar, þá margar
en sumir bara nokkrar. Einnig má
nefna sem dæmi, að skflmerkilega er
rakið, þegar Teresía Guðmundsson
var ráðin veðurstofustjóri og sagt frá
óvild á milk Jóns Eyþórssonar og
Þorkels Þorkelssonar, sem ef til vill
átti sinn þátt í því, að Jóni var hafnað.
Hins vegar er þess engu að getið, að
Eiður Guðnason réð flokksbróður
sinn í þá stöðu tæpum 50 árum síðar.
Því skal heldur eldri neitað, að óvar-
legt getur verið að fara út í þá sálma
heldur farsæHa að það bíði betri tíma.
Ekki er víst, að allir geri sér grein
fyrir því, að viðfangsefni þar á bæ eru
af ýmsum toga. Hafís, jarðskjálftar,
eldgos, snjóflóð og loftmengun eru
allt verkefni, sem heyra til starfsem-
inni auk veðurlagsins og skipta ekki
litlu máU í búskap okkar hér. Saga
Veðurstofunnar er því að stórum
hluta saga um líf í landi þessu. Við
lestur bókarinnar verður Ijóst, að
lengi framan af bjuggu starfsmenn
Veðurstofu við mjög lélegar aðstæð-
ur og oft og tíðum lítinn skilning
stjómmálamanna. Veðurstofan er
tæplega eina stofnunin, sem naut lít-
ils skflnings í fyrstu en vegur hennar
hefur vaxið með árunum.
Ungir veðurfræðingar hafa ávallt
átt greiðan aðgang að störfum, óUkt
því sem menn hafa fengið að reyna á
sumum öðmm sviðum náttúmfræða.
Þar átti einstök framsýni Teresíu
ekki Htinn hlut að máli, þegar hún
hvatti menntaskólanema til þess að
leggja stund á fræðigreinina. Nokk-
uð kemur á óvart, að lítið er fjallað
um hvort veðurfræðingar hafi sinnt
fræðilegum viðfangsefnum og lagt
eitthvað þar af mörkum. En það em
ekki aðeins veðurfræðingar, sem
starfa á Veðurstofu, heldur ýmsir
aðrir við margvísleg störf, bæði stór
og smá, og virðist hlut þeirra gerð
þokkaleg skil.
Saga Veðurstofu Islands er að
mörgu leyti sérstök, meðal annars
vegna þess, að stofnunin er í nánum
tengslum við fólkið í landinu, jafnt til
sjávar og sveita. Hér mun vart vera
nokkur maður, sem hugar ekki að
veðri nær hvem dag, ólíkt því sem er
með öðmm þjóðum. Víða er vfldð að
samskiptum þessum enda fengu
starfsmenn stofnunarinnar oft óverð-
skuldaðar skammir fyrir störf sín, en
þau hafa líka án efa oft veitt þeim
ánægju. Sagt er frá nokkmm
skondnum sögum og vísum til stað-
festingar, og vissulega hefði mátt
gera þessu atriði hærra undir höfði í
sérstökum kafla. í þessu sambandi
má benda á, að Sigurður sá, sem er
höfundur vísunnar »Nú er illra veðra
von«, var Jónasson en ekki Jónsson.
Margar ágætar myndir em í bók-
inni, nema í síðasta kaflanum er
myndavalið ekki nógu gott. Þar er
áherzla lögð á að birta myndir af sem
flestu fólki en þær em ekki að sama
skapi vandaðar. Pennaglöp era fáséð
og málfar yfirleitt Hpurt; helzt er að
benda á, að »gera veðurathuganir«
kemur óþægilega oft fyrir, og allt að
tíu sinnum á aðeins tveimur síðum
(bls. 243 og 4).
Það er sjaldnast áhlaupaverk að
taka að sér að skrifa sögu rótgróinna
stofnana, jafnvel þótt menn hafi ein-
vala ritnefnd sér við hlið. Höfundur
bókarinnar hefur því þurft að viða að
sér miklum fróðleik, sem hann hefur
unnið vel úr og komið skilmerkilega
til skila. Sérlega eftirtekt vekur, að
öll heimildavinna er einkar vel af
hendi leyst og allur frágangur til fyr-
irmyndar. Höfundur kann greinilega
til verka í sagnfræði.
Agúst H. Bjarnason
9 milljónir úr Þýðingasjóði
ÚTHLUTAÐ hefur verið
úr Þýðingasjóði. Alls sóttu
28 aðflar um styrki til 76
þýðingarverkefna. Sam-
þykkt var að veita styrki að
fjárhæð 9 millj. kr. tfl eftir-
talinna 35 verkefna:
Amargrip: „Die Leg-
ende vom hefligen Trinker"
eftir Joseph Roth 150 þús.
kr.
Bjartur: „The Restraint
of Beast“ eftir Magnus
Mflls 250 þús. kr.
„Disgrace" eftir J.M.
Coetzee 300 þús. kr.
Safn smásagna eftir
Danfll Kharms, 200 þús. kr.
„Sommerhaus, spáter“
eftir Judith Hermann 250
þús. kr.
„Das Blutenstaubzim-
mer“ eftir Jenny Zoe 250
þús. kr.
Bókaútgáfan Öm og Ör-
lygur ehf.: Saga Islan-
dsferðanna í Gaimard-
leiðöngranum 1835 og 1836
eftir Eugéne Robert 200
þús. kr.
Dimma ehf.: „Mother
Said“ eftir Hal Sirowits 150
þús. kr.
Fjölvaútgáfan: „Doktor
Faustus" eftir Thomas
Mann 450 þús. kr.
„The Hours“ eftir Mich-
ael Cunningham 250 þús.
kr.
Haraldur Jóhannsson:
„New Atlantis" eftir
Francis Bacon 100 þús. kr.
Háskólaútgáfan: „Mode“
eftir Gertrad Lehnert 200
þús. kr.
Háskóli íslands/
Heimspekidefld: Hvað er
heimspeki? eftir ýmsa höf-
unda 200 þús. kr.
Háskóli Islands/
Siðfræðistofnun: „Teolog-
isk Etik. En Introduktion"
eftir Göran BexeU og Carl-
Henric Grenholm 200 þús.
kr.
Hið íslenska bók-
menntafélag: Um holdgun
orðsins eftir Aþanasíus 250
þús. kr.
„Ques dices salvetur“
Hjálpræði efnamanns eftir
Klemens í Alexandríu 200
þús. kr.
Safn lykflkafla og greina
eftir Max Weber 300 þús.
kr.
Hjörtur Pálsson: Vitfir-
ringur keisarans eftir Jaan
Kross 300 þús. kr.
íslendingasagnaútgáfan
ehf.: ,Angela and Diabola"
eftir Lynne Reid Banks 150
þús. kr.
Jón Viðar Jónsson,
Hvunndagsleikhúsið:
Dauðadansinn eftir August
Strindberg 100 þús. kr.
Mál og menning: „Les
particules élémentaires"
(Öreindimar) eftir Michel
Houllebcq 300 þús. kr.
, Angela’s Ashes“ eftir
Frank McCourt 300 þús.
kr.
„The Beach“ eftir Alex
Garland 300 þús. kr.
„The Hiding Place“ eftir
Trezza Azzopardi 2 00 þús.
kr.
„Simple Stories“ eftir
Ingo Schulze 250 þús. kr.
„Portrait of the Artist as
a Young Man“ eftir James
Joyce 200 þús. kr.
Nýja Bókafélagið ehf.:
.Aussichten eines Clowns“
eftir Heinrich Böll 300 þús.
kr.
„PoUtics“ eftir Kenneth
Minogue 200 þús. kr.
PP Forlag ehf.: „Kun en
Pige eftir Lise Nprgaard
300 þús. kr.
Smekkleysa S.M. hf:
„Popol Vuh“, samfélagsbók
Quiché-Maya 150 þús. kr.
Skjaldborg: „The Farm-
ing of Bones“ eftir Ed-
widge Danticat 250 þús. kr.
Morgunverður á Tiff-
an/s eftir Truman Capote
300 þús. kr.
Vaka-HelgafeU hf.: „Die
Blechtrommel" (3. bók) eft-
ir Gunter Grass 300 þús. kr.
„Naiv. Super“ eftir Erl-
and Loe 250 þús. kr.
Þjóðsaga: „Economics in
One Lesson" eftir Henry
HazUtt 250 þús. kr.
„Atlas Shmgged“ eftir
Ayn Rand 250 þús. kr.
Æskan ehf.: „Great
Expectations" 350 þús. kr.
C----------------------------------------N
.flfmœlisþakkir
Ég vil þakka œttingjum og vinum innilega fyrir þá
vinsemd og hlýju er mér var sýnd á 90 ára afmæli
mínu, sem haldið var í Kirkjulundi í Garðabœ.
Guð blessi ykkur öll.
Hulda Þorbjörnsdóttir,
DAS, Hafnarfirði.
Bílgreinasambandið
Aðalfundur BGS verður haldinn á Hótel Sögu
Reykjavík laugardaginn 1. apríl nk.
Kl. 09:00
Kl. 09:10
Kl. 09:30
Kl. 09:45
Kl. 10:15
KI. 10:30
Kl. 12:30
Fundarsetning - Bogi Pálsson, formaður BGS.
Erindi. -Þórður Friðjónsson,forstj. Þjóðhagsst.
Fyrirspumir - Umræður.
Aðalfundur.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffihlé.
Sérgreinafundir:
Almenn verkstæði
FMB - námskeið - meistaranám.
Kostnaðarlíkan BGS.
Niðurstaða verkstæðisfundar.
Bflamálarar og bifreiðasmiðir.
Cabas tjónamatskerfi.
Fulltrúar SÍT/biifeiðatryggingafélaganna mæta.
FMB - námskeið - meistaranám.
Niðurstaða verkstæðisfundar - Kostnaðarlíkan.
Gæðaátak á réttingarverkstæðum.
Bifreiðainnflytjendur.
Rekstrarleiga bfla í skattalegu tilliti -
Hlunnindamat bfla.
Fmmmælandi: Gunnlaugur Kristinsson frá
PriceWaterhouseCoopers ehf.
Gagnagmnnur um verðskrá notaðra bfla.
Breytingar á skráningarferli nýrra bfla.
Vömgjöld - þungaskattur.
Saga bflsins á íslandi í 100
Smurstöðvar
Gasðaátak á smurstöðvum - kröíur - staðlar.
Kostnaðarlíkan BGS og notkun þess.
Upplýsingar fyrir smurstöðvar.
Varahlutasalar
Námskeið - námsskrá - meistaranám.
Upplýsingar úr gagnagrunni.
Frankfurt ferð
Hádegisverður
Bogi Þórður
Pálsson Friðjónsson
Föstudaginn 31. mars kl. 18.00 verður haldinn
sérstakur verkstæðisfundur á Hótel Sögu A-sal.
Dagskrá:
1. Staða mála í FMB.
2. Gmnnnám - eftirmenntun - meistaranám.
Bogi Pálsson, formaður BGS.
3. Meistaranám í bflgreinum.
Rammi - þróun - námskeið,
Snorri Konráðsson, FMB.
Hagnýting kostnaðarlíkans BGS.
Fjárfestingar og rekstrarkostnaður
á verkstæðum.
Ásbjöm Ólafsson, Ráðgarði.
Hagræðing í rekstri verkstæða
Ásgeir Þorsteinsson FMB.
4. Reynsla af námskeiðum og hagræðingu
á verkstæðum.
5. Umræður
Stjórn BGS.
IVECO Daily
Sendibíll ársins 2000 í Evrópu
Vann þennan eftirsótta titil með yfirburðum.
Iveco Daily, sendibíll órsins 2000 er sterkur sigurvegari á góðu verði.
Við bjóðum 3000 gerðir af Daily, einnig ótrúlegt verð á kössum og vörulyftum.
: •
Istraktor ?»
BlLAR FYRIR ALLA
SMIÐSBÚÐ 2 - GARÐABÆ - S I MI 5 400 600