Morgunblaðið - 30.03.2000, Síða 45

Morgunblaðið - 30.03.2000, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 45 ------------------------ GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON + Guðmundur Halldórsson fæddist á Akureyri 20. júní 1941. Hann lézt á líknardeild Landspítalans 24. marz síðastliðinn. Foreldrar hans eru Halldór Halldórs- son, prófessor, f. 13.7. 1911, og Sig- ríður Guðmunds- dóttir, húsmóðir, f. 16.9. 1917, d. 6.12. 1997. Systkini Guð- mundar eru Hildi- gunnur Halldórs- dóttir, tölvunarfræðingur á Námsgagnastofnun, f. 9.5. 1943, maki Gylfi ísaksson, verkfræð- ingur, f. 7.7. 1938, Elísabet Hall- dórsdóttir, bókasafnsfræðingur, f. 1.8. 1947, og Halldór Halldórs- son, blaðamaður, f. 1.7. 1949, sambýliskona Ingi- björg G. Tómas- dóttir, deildarstjóri, f. 3.1. 1954. Guðmundur var í Menntaskólanum í Reykjavík 1957- 1960. Þá hvarf hann til blaðamennsku- starfa á Alþýðu- blaðinu og starfaði þar frá 1960-1967. Hann hóf störf við erlend frétta- og greinaskrif á Morg- unblaðinu árið 1967 og vann þar allt til dauðadags. Blaðamennskuferill Guðmundar stóð í rösk 40 ár, þar af var hann á Morgunblað- inu í 33 ár. Útför Guðmundar Halldórs- sonar verður frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Það var fyrir röskum 29 árum að ég hitti fyrst mág minn, Guðmund Halldórsson, á gamlárskvöldshátíð- arverði 1970 hjá fjölskyldunni sem ég var þá á leið inn í. Nokkrum vik- um síðar hitti ég Guðmund og syst- kinin aftur í nýrri íbúð hans í Ár- bæjarhverfinu, sem þau hjálpuðust að við að setja í stand. Guðmundur var í raun mikill fjölskyldumaður, þótt hann stofnaði ekki sína eigin fjölskyldu. Seinna flutti Guðmundur á Oldu- götuna og þar undi hann vel við sitt heima hjá bókunum sínum og leið sennilega best þar. Bókasafnið hans Guðmundar var mikið að vöxtum og ríkt af engilsaxneskum bókum um stjórnmál, sagnfræði, styrjaldir, Vesturheim og svo voru þar auðvitað enskar skáldsögur. T.d. átti hann yf- ir 30 skáldsögur eftir P.G. Wode- house, sem var einn þeirra höfunda sem hann hafði dálæti á. Guðmundur var frábærlega fróður um evrópska og engilsaxneska sögu og stjómmál, þótt hann flíkaði því ekki né tranaði sér fram. En vissulega naut hann þess í starfi sínu sem blaðamaður. Guðmundur átti einnig mikið plötu- safn og hafði gaman af því að hlusta á sígilda tónlist. Það var gaman að spjalla við Guð- mund um þessi áhugamál hans og gott að fá lánaðar bækur hjá honum. Einn eftirminnilegur titill er „Eric the Red and Leif the Lucky“. Eigin- lega var GH á sumum sviðum al- fræðingur, hann vissi t.d. nánast allt um heimspólitík og veraldarsögu. Hann var líka almennt mjög fróður. Maður gat spurt hann um allan and- skotann, t.d. um kvikmyndir, jafnvel þótt hann hefði ekki séð þær, en þá hafði hann lesið um þær. Hann var vel að sér í almennri sögu heimsins, sérstaklega Evrópu og Bandaríkj- anna. Guðmundur var íhaldssamur í eðli sínu og fastheldinn á gömul gildi og hér er ekki verið að ræða um stjóm- mál. Hann vildi ekki breyta mikið til. Guðmundur var maður hefða sem sumar em á undanhaldi nú á dögum. Guðmundur var fremur dulur að eðl- isfari og hafði svona hæfilegan fyrir- vara á heiminn sem hann lifði í, en það var líka allt í lagi. Hann lumaði á ágætu skopskyni, sem kannski hefur hjálpað honum að takast á við tilver- una. Síðustu blaðamannsverk Guð- mundar vom tvær ágætar greinar í sérstöku aldamótablaði Morgun- blaðsins um heimsstyrjaldimar tvær á fyrri hluta liðinnar aldar. Þá var hann ekki lengur heill heilsu og við tók hans eigin veraldarstríð við ill- vígan sjúkdóm. Að baki em 29 ára góð kynni og samfylgd. Komið er alltof snemma að kveðjustund. Gylfi ísaksson. Mér er enn í fersku minni, þegar lágvaxinn menntaskólapiltur kom inn á ritstjórnarskrifstofu Alþýðu- blaðsins í Alþýðuhúsinu við Hverfis- götu og lýsti áhuga sínum á að ger- ast blaðamaður - en fyrst og fremst til að skrifa um erlend málefni. Það var árið 1960 og svo brennandi var áhugi þessa unga manns á erlendum fréttum, að hann var reiðubúinn að hætta menntskólanámi til að full- nægja honum. Svo fór. Alla tíð síðan hrærðist Guðmundur í erlendum fréttum og fréttaskýringum og fáir, ef nokkrir, öðluðust jafn yfirgrips- mikla þekkingu á erlendum málefn- um og nútímasögu sem hann. Þegar Guðmundur hóf störf voru önnur skilyrði til öflunar fréttaefnis erlend- is frá en síðar varð. Fréttaskeytin bárust inn á mjóum, illlesanlegum strimlum frá NTB-fréttastofunni norsku, á svonefndum Hell-skrifur- um. Erlenda nafn tækisins þótti við hæfi, því blaðamaðurinn var umvafin mörgum metrum af strimlum og oft þurfti að lesa í norskuna til að fá rétta mynd af atburðum. Miklar loft- truflanir gerðu mönnum lífið leitt, því tímunum saman bárust engar eða þá ólæsilegar fréttir á Hell- strimlunum. Þá var hlustað á frétta- útsendingar BBC eða aðrar útvarps- stöðvar. Greinaefni fékkst helzt úr erlendum blöðum og tímaritum og að nokkru leyti frá erlendum greina- fyrirtækjum. Þetta varvinnuaðstaða erlends fréttamanns, þegar Guð- mundur hóf störf á Alþýðublaðinu, en ekki dró það úr áhuganum. Miklu fremur var það áskorun og henni tók Guðmundur. Eg gerði mér fljótlega grein fyrir dugnaði og ósérhlífni Guðmundar og áhuga hans á erlendum málefnum. Því fagnaði ég því, þegar hann hóf störf við ritstjórn Morgunblaðsins árið 1967. Á þeim tíma féllu bæði innlendar og erlendar fréttir undir verkstjórn fréttastjórans og þess vegna höfðum við Guðmundur mikið saman að sælda í erlendu fréttunum og reyndar síðar við ritstjórn Sunnu- dagsblaðsins. Þar einbeitti hann sér áfram að skrifum um erlend málefni. Þegar Guðmundur hóf störf við erlendar fréttir á Morgunblaðinu voru aðstæðm- orðnar betri, því nú voru komnir fréttaprentarar með efni frá AP-fréttastofunni, svo og gerði telex tæki það kleift, að hafa beint samband við útlönd og taka á móti efni. Ennþá komu fréttinar á prentar- anum þó í gegnum loftið og þvi oft truflanir. Þá var brugðið á það gamla ráð að hlusta á erlendar útvarps- stöðvar. Reynsla Guðmundar kom sér því vel, að ekki sé talað um áhug- ann, því hann hlustaði oft á erlendar stöðvar á nóttunni að lokinni langri vakt. Miklar tæknilegar framfarir voru framundan í erlendri fréttaöflun, fyrst komu ótruflaðar fréttasending- ar um kapal og myndsendingar og loks þær tæknibyltingar, sem fylgdu tölvuvæðingunni. Nú berst allt efni á örskotsstundu inn á ritstjómina eða er sótt í upplýsingabanka hvert á land sem er. Þessa miklu breytingar- tíma í blaðaútgáfu spannar starfsævi Guðmundar Halldórssonar. Hann var einstaklega þægilegur samstarfs- maður. Oft var leitað í smiðju til hans enda var þekkingu hans á erlendum málefnum og sögu við brugðið. Við, sem störfuðum mest með honum í áranna rás, þökkum sam- starfið og vináttuna. Ritstjórn Morg- unblaðsins stendur og í þakkarskuld við Guðmund fyrir hans mikla fram- lag og sendir ástvinum hans innileg- ar samúðarkveður við andlát hans. Björn Júhannsson. Guðmundur Halldórsson er horf- inn á braut og kvaddi á sinn hátt - hljóðlega og án alls fyrirgangs. Guðmundur var einhvem veginn þannig maður. Dulur og hlédrægur, dálítill einfari. Samt maður sem verður samferðamönnum sínum minnisstæður af ýmsum ástæðum, já, varð jafnvel einhverskonar goð- sögn hér á ritstjórn Morgunblaðsins í lifanda lífi. Kyrrláti íslendingurinn sem á dögum þorskastríðanna hrelldi skiptiborð Hvíta hússins í Washington með beinskeyttum spurningum, þegar sumir vinnufé- lagarnir héldu jafnvel að hann kynni ekki einu sinni á síma. Hversu oft höfum við hinir eldri á ritstjóminni ekki sagt nýliðunum þessa sögu um þrákelkni blaðamanns smáblaðs á hjara veraldar sem gaf sig ekki fyrr en hann hafði fengið umsögn forseta stórveldisins um málefni sem hvergi þótti skipta máli nema hér, þótt ann- að kæmi seinna á daginn. Guðmundur var þannig aldrei al- veg þar sem hann var séður. Hann hóf störf á Alþýðublaðinu um 1960 sem blaðamaður í erlendum fréttum, og réðst síðan til Morgun- blaðsins upp úr miðjum sjöunda ára- tugnum. Ætíð síðan fékkst hann við erlendar fréttir með einum eða öðr- um hætti. Ástríða hans var sagn- fræði, einkanlega heimsstyrjaldir 20. aldar, og þar var aldrei komið að tómum kofanum. Kannski má segja um Guðmund að í hlédrægni sinni hafi hann leitað útrásar í víðtækri þekkingu á er- lendum málefnum. Á góðri stund átti hann það til að rjúfa virkisveggi einkalífs síns og hleypa nánum sam- verkamönnum sínum inn í sitt helg- asta vé, heimili sitt. Um það geta til dæmis borið þeir sem fengu að hlýða á hjá honum alla upptöku BBC á út- för Winstons Churchill, alls fjórar og hálfa klukkustund, af segulbandi hans sem var fullkomnara en gerðist oggekkíþádaga. Onnur ástríða hans voru bresk blöð og blaðamennska. Hann hafði öllum íslenskum blaðamönnum bet- ur tileinkað sér þann ritstíl frétta að hætti þarlendra, að uppbygging hverrar fréttar var með þeim hætti að málsgreinar voru stuttar, aðalat- riðin fremst, síðan ítarefnið í máls- grein eftir málsgrein og fréttirnar því auðstyttar til að máta inn á blað- síðumar án þess að inntak fréttar- innar ætti á hættu að glatast. Þegar Guðmundur Halldórsson hafði staðið vaktina í erlendum frétt- um í áratugi, var hann hann fenginn til að leggja sunnudagsblaðinu lið með greinum um erlend málefni og sagnfræðileg efni. Síðar þegar við- skiptablaðamennsku Morgunblaðs- ins óx fiskur um hrygg, var hann fenginn til að annast erlend frétta- skrif fyrir viðskiptadeild ritstjórnar Morgunblaðsins. Sjálfur hafði ég í þá tíð sem yfirmaður deildarinnar nokkrar efasemdir um að Guðmund- ur myndi ná tökum á þeirri „nýju fögru veröld“ með öllum sínum sér- tæku hugtökum og hugsunarhætti. Að sjálfsögðu gekk einatt á ýmsu til að byrja með, en fyrr en varði voru afleiður, vilnanir og framvirkir samningar orðin hluti af daglegu lífi Guðmundar og Rommel og Monty löngu grafnir í söndum N-Afríku. Guðmundur Halldórsson sóttist ekld eftir vegtyllum, abbaðist ekki upp á nokkum mann, gerði ekki kröfúr til annarra, og einhverjir kunna að hafa skilið hlédrægni hans á þann hátt að hann vildi vera látinn í friði. Því fór fjarri, hann hafnaði ekki félagsskap þegar því var að skipta, og kunni að vera glaður á góðri stund. Sjálfur þekkti ég að eiga Guð- mund að félaga. Saman deildum við fyrir margt löngu áhuga á þeirri teg- und kvikmynda sem kallast „film noir“ og ósjaldan stálumst við saman af Mogganum í fimmbíó í Hafnarbíói í slíkum erindagjörðum eða til að horfa á Frakkann Eddie „Lemmy“ Constantine sem við höfðum sér- stakt dálæti á. Nú er Hafnarbíó horfið, Lemmy gleymdur og Guðmundur farinn. En sýningin heldur áfram. Björn Vignir Sigurpálsson. Það var fyrir tæpum fjórum árum að ég kom til starfa á viðskiptarit- stjóm Morgunblaðsins. Á fyrsta degi var ég kynnt fyrir starfsmönn- um deildarinnar og meðal þeirra var Guðmundur Halldórsson. Óhætt er að segja að ekki fór mik- ið fyrir honum á deildinni en afköstin voru þeim mun meiri og kom það mér oft á óvart hvemig honum tókst að finna góðar fréttir þegar allir aðr- ir kvörtuðu undan „gúrkutíð". Þrátt fyrir að hann blandaði ekki mikið geði við samstarfsmenn sína var ég fljót að átta mig á því að ég átti hauk í homi í Guðmundi. Til að mynda þegar ég var að berjast við þýðingar á fréttum af erlendum verðbréfamörkuðum þá var afskap- lega gott að leita til Guðmundar eftir aðstoð. Var beiðnum mínum alltaf vel tekið og átti hann oft stóran þátt í því að mér tókst að klóra mig fram úr fréttunum án þess að þurfa að játa mig sigraða. Þegar ég færði mig yfir á netdeild Morgunblaðsins um eins árs skeið færðist ég til í húsinu og minnkaði samgangur minn við viðskiptarit- stjóm til muna það árið. En samt sem áður leitaði ég oft til Guðmund- ar eftir aðstoð þegar ég var í vand- ræðum við erlend fréttaskrif fyrir fréttavefinn. Enda ekki komið að tómum kofunum þar. Haustið 1998 kom ég aftur til starfa á viðskiptum og þá sem um- sjónarmaður deildarinnar. Kveið ég afskaplega fyrir því hvernig fyrrver- andi samstarfsmenn tækju þess*irt breytingu og fékk því Bjöm Vigni tfí þess að segja Guðmundi frá þessum breytingum. En eins og alltaf áður var mér ljúflega tekið og óskaði hann mér innilega til hamingju með starf- ið og sagðist vita að okkar samstarf yrði áfram gott. Þótti mér afskap- lega vænt um þetta traust sem hann sýndi mér og fór eins og hann sagði, okkar samstarf var áfram gott. Á síðasta ári átti Guðmundur þriggja mánaða frí og þegar leið á árið var hann meira frá vegna veik- inda. Urðum við samstarfsmenn hans áþreifanlega vör við hvað v^go söknuðum hans og áttum við í mikl- um erfiðleikum með að fylgjast með því sem var að gerast í erlendu við- skiptalífi þar sem allir voru vanir því að fréttimar birtust fullskapaðar af Guðmundi á fréttalista í lok dagsins. Komu þá berlega í Ijós yfirburðir Guðmundar á þessu sviði. Aldrei þurfti að benda honum á fréttir eða biðja hann um að skrifa einhverja ákveðna frétt þar sem hann var allt- af búinn að koma auga á fréttina löngu á undan okkur hinum. Það verður erfitt að fylla skarð Guðmundar á viðskiptaritstjóm Morgunblaðsins. Sjálf verð ég er- lendis þegar Guðmundur verður borinn til grafar og hef því ekki tök að fylgja honum en vil fyrir hönd bæði fyrrverandi og núverandi sam- starfsmanna viðskiptaritstjórnar senda ættingjum hans okkar innileg- ustu samúðaróskir. Guðrún Hálfdánardóttir. + Systir mín, GUÐBJÖRG ÓSK ÓLAFSDÓTTIR (VINCENT), lést [ Mansfield, Ohio, föstudaginn 10. mars. Jarðarför hefur farið fram. Baldvin Ólafsson og aðrir aðstandendur. + Systir okkar, GUÐBJÖRG (Lilla) SVEINSDÓTTIR MERCEDE, lést á sjúkrahúsinu Holy Spirit, Mekkancburg, Bandaríkjunum, mánu- daginn 27. mars. Jarðsett verður frá Mekkancburg í dag, fimmtudaginn 30. mars. Systkini hinnar látnu. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HELGI BJARNASON prentari, Glæsibæ 5, Reykjavík, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 29. mars. Sigrún Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Helgason, Helga María Arnarsdóttir, Bjarni Helgason, Sigríður Helga Jónsdóttir, Berglind Helgadóttir, Halla Helgadóttir, Styrmir Bragason og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför JÓNS ÚR VÖR. Bryndís Kristjánsdóttir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.