Morgunblaðið - 30.03.2000, Síða 56

Morgunblaðið - 30.03.2000, Síða 56
56 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ * Vinsældalisti þar sem þú hefur áhrif! 4 -í ' ^ á tippleið ^ á niðurieið ■jÞ-stendur í stað •$. nýtt á lista Vikan 30.03. - 06.04. I. Hann Védfs H. Árnad. 't 2. Hryllir Védís H. Árnad. 3. Maria Maria Santana t 4. Other side Red Hot Chili Peppers 'fr 5. Dolphins Cry Live T 6. Okkar nótt Sálin hans Jóns míns T 7. Run to the Water Live V 8. SayMyName Destiny’s Child ^ 9. Starálfur Sigur Rós '||r 10. Falling Away From Me Korn II. Don’t Wanna Let You Go Five ’fr 12, SexBomb Tom Jones ^ 13. Show me the meaning Backstreet Boys ^ 14. Born to make you happy Britney Spears | 15. Crushed Limp Bizkit T 16. Caught Out There Kelis V 17. Never Be The Same Again Mel C. og Lisa “Left eye” Lopez 18. Feel So Good Jennifer Lopez V 19. The Ground Beneath Her Feet U2 V 20. Guerilla Radio Rage Against The Machine Listinn er óformleg vinsældakönnun og byggist á vali gesta mbl.is. mbl.is TtbfH^SD skjAreinn UMRÆÐAN Alþjóðasamþykkt um mennt- un og þjálfun, skírteini og vaktstöður sjómanna ÍSLAND hefur staðfest aðild sína að alþj óðasamþykkt IMO, um menntun og þjálfun, skírteini og vaktstöður sjómanna frá 1978, með breyt- ingum frá 1995. Er samþykktin mjög mikllvæg fyrir ís- lenska skipstjórnar- menn á flutninga- og farþegaskipum. Einn- ig er nú brýnt hags- munamál félaga í Skipstjóra- og stýri- mannafélagi fslands, íslenskrar kaupskipa- útgerðar og Stýrimannaskólans í Reykjavík að vandað verði til þess frumvarps til laga sem nú liggur fyrir Alþingi um áhafnir flutninga- skipa, farþegaskipa, farþegabáta og skemmtibáta. Er frumvarpinu ætlað að breyta núgildandi lögum til að þau uppfylli ákvæði alþjóða- samþykktarinnar. Hefur Skip- stjóra- og stýrimannafélag íslands því tekið virkan þátt í að fylgjast með og koma með ábendingar varðandi frumvarpið. Hefur flest- um athugasemdum og tillögum til breytinga verið vel tekið og laga- frumvarpið lagað að þeim, en aðr- ar hafa ekki náð fram að ganga. Með STCW-samþykktinni eru aðildarþjóðir IMO að setja fram samræmdar kröfur um menntun, þjálfun, hæfni, vaktstöðu og fram- kvæmd siglingar á þeim skipum sem sigla á alþjóðlegum hafsvæð- um og með ströndum fram. Miðar samþykktin m.a. að því að réttindi skipstjórnarmanna, og skírteini sem þau eiga að staðfesta, séu samkvæmt alþjóðlegum staðli og að sú menntun sem veitt er, bæði bókleg og verkleg sé gæðavottuð af óvilhöllum aðilum. Er það skil- yrði til að skip þeirra þjóða sem standa að samþykktinni komist á sk. „hvítlista" en í hann verða þau lönd skráð sem uppfylla alþjóða- samþykktina. Hefur komið fram, að menntun íslenskra skip- og vél- stjórnarmanna uppfyllir skilyrði fyrir aðild að hvítlistanum, en því miður einnig að innri gæðastjórn- un í Sjómannaskólanum og gæða- vottun er ekki ásættanleg. Auk þess er íslensk sjó- mannamenntun tak- markaðri en annarra þjóða hvað varðar þá menn sem eru til að- stoðar við siglingu og vélgæslu á skipum þar sem ekki fer fram starfsmenntun fyrir þá hér á landi eins og krafist er í alþjóða- samþykktinni. Því er það brýnt að þessi skilyrði verði uppfyllt eins fljótt og auðið er til að íslenskir skip- og vélstjórnarmenn verði viðurkenndir á skip sem sigla innan hvítlista- skráningarinnar og er fresturinn til þess til ársins 2002. Það er ánægjulegt til að vita að STCW-95 Áhætta í farþegaflutn- ingum, segir Guðjón Petersen, eykst í réttu hlutfalli við fjölda farþega. nýr samgönguráðherra hefur stuðlað að því að íslendingar upp- fylli ofangreind skilyrði með því að leggja fram á Alþingi framan- greint frumvarp. Að auki hefur menntamálaráðherra skipað starfshóp til að gera tillögur að stafsþjálfun skip- og vélstjórnar- nema. Er stefnt að því að starfs- hópurinn verði tilbúinn með tillög- ur að fyrirkomulagi og fram- kvæmd hennar með vorinu þannig að unnt verði að hrinda henni í famkvæmd fyrir árið 2002. En þótt hér sé um ánægjuleg viðbrögð að ræða er það verulegt áhyggjuefni að með frumvarpinu er gengið eins skammt og hægt er til að uppfylla ákvæði alþjóðasamþykktarinnar og því miður á kostnað öryggis og gæða ef fram fer sem horfir. A það sérstaklega við um þau ákvæði frumvarpsins sem fjalla um far- þegaflutninga en þau bera vott um hættulegt metnaðarleysi þar sem ætla má að staðbundnir skamm- tímahagsmunir séu teknir fram fyrir öryggi mannslífa. Samkvæmt frumvarpinu þarf minni réttindi til að stjórna far- þegabáti allt að 500 brt. stærð í strandsiglingum en flutningaskipi af sömu stærð á sömu leiðum. Með öðrum orðum gerir frumvarpið ráð fyrir því að skipstjóri sem siglir með 100 farþega á slíku skipi milli Ólafvíkur og Patreksfjarðar, svo dæmi sé tekið, þurfi ekki að hafa nema 1. stigs réttindi, en að skip- stjóri sem siglir sömu leið á sam- svarandi skipi með fiskúrgang í bræðslu þurfi 2. stigs réttindi. Hér eru mannslífm lítils metin. Hvergi í samgöngugeiranum er að finna hliðstæðu en í öðrum greinum hans er ávallt miðað við að þeir sem taki að sér að flytja fólk í at- vinnuskyni þurfi að hafa sem besta menntun og þjálfun tU starfans. Því hefur Skipstjóra- og stýri- mannafélag íslands og Farmanna- og fiskimannasamband Islands mótmælt þessu ítrekað og lagt áherslu á að hvert það skip eða bátur sem annist flutninga á 12 farþegum eða fleiri verði undir skipstjórn manns með 3. stigs rétt- indi. Hefur í því sambandi verið bent á að áhætta í farþegaflutning- um eykst í réttu hlutfalli við fjölda farþega miðað við lengd farsviðs og í öfugu hlutfalli við stærð skips. Rökin fyrir þessari kröfu eru virð- ing fyrir mannslífum og þau að við ísland er eitt erfiðasta siglinga- svæði heims hvað varðar veður og ölduhæð. Farþegaflutningar til útsýnis- og skoðunarferða á sjó eru ört vaxandi atvinnugrein sem ber að fagna og hlúa að en ekki með því að kasta til höndunum. Því tekur greinarhöfundur undir þau orð samgönguráðherra, sem hann lét falla á fundi um ferðamál á Vest- urlandi sl. haust, að gæta þurfi að því, að ferðaþjónustan uppfylli ýtr- ustu gæði (tilv. ekki orðrétt). Þetta frumvarp ber því miður ekki merki þess. Höfundur er framkvæmdastjóri Skipstjóra- og stýrimannafélags Is- lands. Guðjón Petersen Nýtt og glæsilegt verslunar- og skrifstofuhúsnæði, alls 2.100 fm. Afhending í september nk., fullbúið að utan með frágenginni lóð. BYGGINGARAÐILI: BYGG. Allar nánari upplýsingar veitir:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.