Morgunblaðið - 30.03.2000, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 59
Undankeppni MasterCard-mótsins í brids að hefjast
Spennandi keppni fyrir-
sjáanleg í mörgum riðlum
Brids
M a s t e r C a r d - m ó t i ð
Undankeppni íslandsmótsins í
sveitakeppni verður í Þönglabakka
1, dagana 31. mars til 2. apríl.
UNDANKEPPNI íslandsmóts-
ins { sveitakeppni, MasterCard-
mótsins, hefst í húsakynnum Brids-
sambands íslands í Þönglabakka 1 í
Reykjavík klukkan 15 á föstudag.
Þar keppa 40 sveitir af öllu landinu
um 10 sæti í úrslitum mótsins sem
fara að venju fram um bænadagana.
Undankeppnin í sveitakeppni er
jafnan mjög skemmtilegt mót því
hvort tveggja er að þar hittist breið-
ur hópur fólks við spilaborðið og
einnig verða þar gjarnan óvænt úr-
slit; stórmeistarar geta ekki gengið
að úrslitasætunum sem gefnum.
Dregið er í riðla með hliðsjón af
fjölda meistarastiga sem spilarar
hafa áunnið sér. Það hefur viijað
brenna við að riðlarnir virðast mjög
misþungir. Að þessu sinni virðist
riðlaskipunun vera þokkalegu jafn-
vægi þótt ljóst sé að margar sveitir
verði um hituna í nokkrum þeirra.
Stórfyrirtæki berjast
í A-riðli er sveit Skeljungs úr
Reykjavík sigurstranglegust en á
bak við það nafn leynast Guðlaugur
R. Jóhannsson, Örn Arnþórsson,
Anton Haraldsson og Sigurbjöm
Haraldsson, sem allir eru núverandi
eða fyrrverandi landsliðsmenn. Lík-
legast er að sveit Flugleiða-fraktar
komist einnig í úrslitin en i þeirri
sveit eru Símon Símonarson, Sverrir
Kristinsson, Einar Jónsson, Eiríkur
Hjaltason, Björn Theódórsson og
Páll Bergsson. Sveit Gunnars Þórð-
arsonar á Selfossi gæti einnig bank-
að á dyrnar og jafnvel sveit Vírnets
frá Borgarfirði.
Hörð barátta
fyrirsjáanleg í B-riðli
í B-riðli ætti Subaru-sveitin að
vera örugg áfram en í henni spjla
Aðalsteinn Jörgensen, Sverrir Ár-
mannsson, Jón Baldursson, Sigurð-
ur Sverrisson og Matthías Þorvalds-
son. Þessi sveit er stigahæsta sveitin
í mótinu.
Mikil barátta gæti orðið um hitt
sætið. Sveit íslenskra verðbréfa frá
Akureyri er skipuð sterkum spilur-
um, Pétri Guðjónssyni, Stefáni
Ragnarssyni, Stefáni G. Stefáns-
syni, Skúla Skúlasyni, Jónasi Ró-
bertssyni og Sveini Pálssyni.
Sveit Þróunar er einnig sterk,
skipuð Þórði Björnssyni, Georg
Sverrissyni, Ragnari Jónssyni,
Hróðmari Sigurbjömssyni, Bern-
ódus Kristinssyni og Gunnlaugi
Kristinssyni. Þá má hvorki gleyma
sveit Málningar né sveit Olís en báð-
ar þessar sveitir era skipaðar reynd-
um spiiuram.
í C-riðli ættu íslandsmeistaramir
undanfarin tvö ár, sveit Samvinnu-
ferða-Landsýnar, að eiga úrslitasæt-
ið víst, en sveitin er skipuð Helga Jó-
hannssyni, Birni Eysteinssyni,
Guðmundi. Sv. Hermannssyni, Guð-
mundi P. Arnarsyni og Þorláki Jóns-
syni. ,
Sveit ísaks Arnar Sigurðssonar er
einnig til alls líkleg, en hana skipa
auk Isaks, Rúnar Einarsson, Kri-
stján M. Gunnarsson, Helgi G.
Helgason, Ragnar Hermannsson og
Svavar Björnsson. Sveitir Neta- og
veiðarfæragerðarinnar á Siglufirði,
Fasteignasölunnar Bakka á Selfossi
og Herðis í Fellabæ gætu þó veitt
þessum sveitum keppni.
Átök í D-riðli
í D-riðli er sigurstranglegust
sveit Ferðaskrifstofu Vesturlands,
Draumavél
heimilanna!
Vegleg brúðargjöf!
Isaumuð svunta
með nöfnum og
brúðkaupsdegi fylgir!
5 gerðir - margir litir
60 árá l'rábær revnsla.
1:1'
Einar
_______Farestveit&Cohf
Borgartúni 20 - slmi 562 2901 og 562 2900
Gleraugnaverslunin Sjónarhóll
www.sjonarholl. is 6,,ílnV„iibtí
Frá undankeppni íslandsmótsins í brids í fyrra.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
en hún er skipuð Karli Sigurhjartar-
syni, Sævari Þorbjömssyni, Þresti
Ingimarssyni, Aroni Þorfinnssyni og
Snorra Karlssyni. Um hitt sætið
gæti orðið barátta milli fjögurra
sveita. Sveitar Roche, sem skipuð er
Gylfa Baldurssyni, Sigurði B. Þor-
steinssyni, Esther Jakobsdóttur,
Ljósbrá Baldursdóttur, Steinberg
Ríkharðssyni og Hauki Ingasyni,
sveitar Birkis Jónssonar frá Siglu-
firði, en með honum spila foreldrar
hans, Jón Sigurbjömsson og Björk
Jónsdóttir, bróðirinn Ólafur Jónsson
og föðurbróðirinn Bogi Sigurbjöms-
son, sveitar Gísla Þórarinssonar en
með honum spila Sigurður Vil-
hjálmsson, Guðmundur Gunnarsson
og Þórður Sigurðsson og sveitar
Iceclean, sem skipuð er Helga Boga-
syni, Hlyni Garðarssyni, Kjartani
Asmundssyni, Kjartani Ingvarssyni
og Vigni Haukssyni.
í E-riðli ættu sveitir Þriggja
Frakka og Ragnars Magnússonar að
vera öraggar áfram enda stigahæstu
sveitirnar. í fyrrnefndu sveitinni
spila Kristján Blöndal, Jón Þorvarð-
arson, Hrólfur Hjaltason, Oddur
Hjaltason, Jónas P. Erlingsson og
Steinar Jónsson, og þeirri síðar-
nefndu Guðmundur Sveinsson, Jú-
líus Sigurjónsson, Tryggvi Ingason
og Valur Sigurðsson auk Ragnars.
Líklega munu þó bæði ÍR-sveitin
og sveit Sparisjóðsins í Keflavík
ætla sér að taka þátt í baráttunni um
úrslitasætin.
Hjördís Ameríkumeistari
Hjördís Eyþórsdóttir varð nýlega
Ameríkumeistari í kvennaflokki í
þriðja skipti, en sveit hennar vann
sveitakeppni á vorþingi Bridssam-
bands Norður-Ameríku i Cincinati í
Ohio sem haldið var fyrr í þessum
mánuði. Sveitarfélagar Hjördísar
era ekki sérlega þekktir, en þær
heita Valerie Westheimer, Judy Wa-
das, Linda Lewis og Karen Barrett.
Sveitin náði í síðustu umferð mótsins
að skjótast upp fyrir sveit sem sú
fræga spilakona Kathie Wei-Sender
stjómaði en allir þekktustu kven-
spilarar Bandaríkjanna tóku þátt í
mótinu.
Danir Evrópumeistarar
Dönsku hjónin Zabine og Jens
Auken og Dorhte og Peter Schaltz
urðu í síðustu viku Evrópumeistarar
í keppni blandaðra sveita, þar sem
karl og kona era spilafélagar.
Danska sveitin vann þýska sveit í úr-
slitaleik mótsins, sem fram fór á
Rimini á Ítalíu.
Fjórar íslenskar sveitir kepptu í
mótinu og varð sveit Kristjáns Blön-
dals í 29. sæti af 101 sveit en í þeirri
sveit spiluðu, auk Krisyáns, Hjördís
Sigurjónsdóttir, Anna Ivarsdóttir og
Gylfi Baldursson. Hinar íslensku
sveitirnar urðu númer 88,93 og 97.
Fyrr í vikunni var keppt í blönd-
uðum tvímenningsflokki. Þar urðu
Evrópumeistarar ítalimir Carlo
Manara og Monica Buratti. Tvö ís-
lensk pör komust í úrslit þess móts
og urðu Hjördís og Kristján i 19.
sæti af 156 pöram í úrslitum og
Bjöm Theódórsson og Valgerður
Kristjónsdóttir í 107. sæti. í uppbót-
armóti fyrir þá sem ekki komust í
úrslit urðu Þröstur Ingimarsson og
Bryndís Þorsteinsdóttir í 26. sæti af
270 pörum og Guðný Guðjónsdóttir
og Jón Hjaltason í 27. sæti.
Guðm. Sv. Hermannsson
*BRÚÐARGJAFIR
*SÖFMUNARSTELL
* GJAFAKORT 4
vlni
Bæjarlind 1-3, Kóp„ sími 544 40 44
Ármúla 1. sími 588 2030 - fax 588 2033
ÁSBRAUT - KÓPAVOGUR
Vorum að fá í sölu mjög góða 3ja herbergja 81,7
fm íbúð á 4. hæð. Sérinngangur af svölum.
Verð 9,0 m.
Gefðu
/V/
///
tækifæri
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur