Morgunblaðið - 30.03.2000, Síða 60
60 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Á SJÚKRAHÚS - Feðgarnir Claes og Rasmus einu sinni sem oftar á leið á sjúkrahús þar sem
drengsins bíður blóðgjöf og leikmeðferð.
BÓKASAFNHD - Iíasmus líður ákaflega vel á bókasafninu. Á stundum erþað nánast ómögulegt að
fá hann til að koma heim aftur.
Ljósmyndir: Dagens Nyheter/Fredrik Funck
NEGLURNAR KLIPPTAR - Oft og tíðum erþað mikil barátta að fá að klippa neglur drengsins - foreldrarnir líkja þvíjafnvel við að
standa í stríði við ungabarn - en íþetta skipti gengur það eins og í sögu.
VILL EKKIHEIM - Þrátt fyrir aðhalda mætti að Rasmus hafi
fengið nógaftíðum heimsóknum á sjúkrahúsið kemur stundum
fyrir að hann vill ekki fara heim aftur. Til dæmis þennan dag,
þegar dvölin var löng og hann hafði fengið blóðgjöf, sem erhon-
um nauðsynlegá þriggja vikna fresti.
STUNGA - Tvö kvöld vikunnargeta foreldrarnir leyft sér að
lesa fyrir Rasmus um leið oghann hefurlagst til hvílu en hin
fímm kvöldin verður ekki hjá því komist að þau stingi hann með
nál íkviðinn áður en lesturinn hefst. Sakir þess hve mikið um-
frammagn afjárni safnst saman ílíkama Iíasmus, vegna allra
blóðgjafanna, er lyfjagjöf nauðsynleg til að draga úr áhrifum
járnsins og til þess er nálinni beitt. Lyfínu er dælt í drenginn
meðan hann sefur.
RASMUS
.snds.org
DAGENS NYHETER
Svíþjóð
íf fólks
breytist
ijafnan þeg-
ar því fæöist
barn. í þessari
myndafrásögn frá
Dagens Nyheter, stærsta morgunblaði Svíþjóðar,
erfjallað um Rasmus, 12 ára dreng, ogforeldra
hans, Claes og Lena-Maria Gestrin, en í þeirra til-
felli breyttist rneira en gengur og gerist þegar son-
urinn fæddist. Fljótlega kom í Ijós að Rasmus er
haldinn mjög sjaldgæfum sjúkdómi, sem lýsir sér í
því að rauðu blóðkornin flytja ekki súrefni um lík-
amann eins og eðlilegt er. Að auki er hann þroska-
heftur og til að bæta gráu ofan á svart kom nýverið
í Ijós að Rasmus er einnig flogaveikur.