Morgunblaðið - 30.03.2000, Page 66

Morgunblaðið - 30.03.2000, Page 66
66 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk I5THATTHE Y 5HE5CUTE, “PRAYIN6 POLL"/ HUH? HER YOUIOOK / PRAVIH6 HAHP5 TO 5CH00L? [ARE HELP T06ETHER J lUlTH VELCRO IN THE FIFTH CHAPTER 0F THE55AL0NIAN5, IT 5AYS llPRAY WITHOUT CEA5IN6' Er þetta biðjandi Er hún ekki sæt. dúkkan sem þú Höndunum er först með haldið saman í skólann? með lími. í fímmta kafia Þessalónikubréfsins segir „Biðjið án afláts". Ti WONPERIF V 1 NEVER YOU CAN PRAY/ KNOW WHAT UUITHOUT JyOU’RETALKINÓ VELCRO.. ABOUT.. Ætli það só hægt Ég skil ekki að biðja bænir hvað þú ert án lx'ms. að tala um. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Mengun og sóun er okkur í hag Frá Ragnari Jónssyni: MENGUN, bæði loft- og hávaða- mengun, hefur mikið verið til um- ræðu þar sem ég bý, við Miklubraut, en hugsa verður hlutina í víðara sam- hengi en gert hefur verið til þessa. Þessi gata, aðrar þungar umferðar- götur í Reykjavík, borgin öll eða allt Island skiptir alls engu máli á heims- vísu. Við þurfum því að tileinka okk- ur skynsamlegt hugarfar. Við ættum að fagna því að bílaum- ferð eykst frá ári til árs. Það sýnir góðæri og velmegun sem er okkur í hag. Margir hafa atvinnu tengda þessu og ríkið fær skattatekjur. Við ættum ekki heldur að líta á sorp sem vandamál heldur tákn um efnahags- lega farsæld. Sóun náttúruauðlinda er líka okkur í hag. Bandarísk áróðursmynd sem gerð var upp úr 1950 og sýnd í sjónvar- psþætti er mér ofarlega í huga. Til- efni þessarar myndar var það að eitruðum úrgangi hafði árum saman verið dælt í stöðuvatn þar í landi. Lífríki vatnsins hafði verið lagt í rúst og margir sem bjuggu í nágrenninu veiktust lífshættulega. Farið var að beita iðnrekendur og stjónvöld þrýstingi. Tónninn í þessari mynd var nákvæmlega sá sami og notaður var í áróðursmyndum nasista fáum árum áður nema hér var töluð enska. í mjmdinni var sýnt samhengi at- vinnu og öruggrar lífsafkomu annars vegar og iðnar hins vegar. Þar sagði m.a.: „Ekki viljið þið vera atvinnu- laus, að bömin ykkar gangi í drusl- um svöng og skítug, þið hafið ekki efni á að senda þau í skóla en þannig verður það ef verksmiðjunni verður lokað. Ef keyptur er dýr hreinsibún- aður fer verksmiðjan á hausinn og þið missið vinnuna. Einhverju verð- ur að fóma fyrir velmegunina og framfarimar sem em gmndvallaðar á iðnaði." Bandarísk olíufélög, t.d. Exxon em sögð hafa margoft keypt góðar hugmyndir um sparneytin far- artæki til að taka þær úr umferð fyr- ir fullt og allt. Ekki er öll hagkvæmni hagkvæm eða þannig. Ekki fyrir gráðugan markaðinn. Tileinkum okkur hugarfar rosk- innar konu sem kenndi mér í bama- skóla. Þegar fnykinn frá loðnu- bræðslunni lagði yfir bæinn opnaði hxín gluggana upp á gátt, dró andann djúpt með nautnasvip og sagði: ,Ahhh... finnið þið peningalyktina, þetta er það sem gefur þjóðinni sjálf- stæði. Þetta er sko alls ekki mengun heldur ilmurinn af gjaldeyrinum." Við sem búum við stóm umferðar- göturnar, opnum gluggana upp á gátt og njótum góðærisilmsins og fá- um hávaðann í kaupbæti. Hugsum með öfund til íbúa stórborga erlendis sem njóta þess alls í miklu ríkari mæli. Mæli ekki með að þiggja styrkinn sem Reykjavíkurborg býður til að koma upp hljóðeinangranargleri. Slíkt skemmir nautnina af því að vakna með höfuðverk jafnþreyttur og þegar maður sofnaði. Hættum allri mótmælabaráttu og spilum með kerfinu. Fömm í sunnudagsgöngu- txíra á sorp og brotajárns haugana. Munum að allir græða að lokum. En hvað um afkomendur okkar? Æ, nei, nei, ekki hugsa þannig, þetta reddast allt. Njótum bara góðæris- ins í botn meðan það varir. Að lokum. Við eigum ekki bara fal- legustu konurnar og sterkustu mennina heldur að líkindum heims- met í neyslu miðað við mannfjölda. Skömm væri að því að tapa því. ís- lendingar em nú 560 þúsundir miðað við neysluna. Næstum stórþjóð. RAGNAR JÓNSSON, Miklubraut 70, Reykjavík. Hroki hjá borginni Frá Kristni Snæland: í SÍÐUSTU viku varð það óhapp í Engjaseli að sorpflutningabíll lenti í erfiðleikum vegna færðar og lenti í því að aka yfir tré og runna sem komið var fyrir sl. haust. íbúar þama hafa lagt sig fram um að fegra umhverfi sitt og hafa vegna þess Happdraetti Slysavarnafélagsins Landsbiargar Dregið hefur verið í fjórða útdrætti happdrættisins. Aðeins dregið úr greiddum miðum. Eftirtaldir aðilar hlutu vinning: 1. IBM PC heimilistölva fró Nýherja að verðmæti 160.000 kr. Nafn: Björk Siguróladóttir, Stórhóli 17,640 Húsavík Miði nr. 61027 2. Ferð til Dublinar fyrir tvo að verðmæti 75.000 kr. Nofn: Gunnar Þór Sæþórsson, Birkiteig 9,230 Keflavík Miðinr. 61641 3. Ferð til Dublinar fyrir tvo að verðmæti 75.000 kr. Nafn: Bryndís Jónosdóttir, Asparfelli 6,111 Reykjovík Miðinr. 54824 _____ fengið sérstaka viðurkenningu frá borginni. Síðastliðið haust vora bíla- stæði endurbætt og gerðar nokkrar gróðureyjar. Yfir eina þessara ók bíllinn. Þegar hringt var í talsmann borg- arinnar, þann sem hefur umsjón með þessum bflum, brást hann illur við. Hafði hann samband við bílstjórann sem viðurkenndi að hafa lent í erfið- leikum, en ekki kannaðist hann við að hafa skemmt neitt. Þegar orð hans vora dregin í efa brást talsmað- urinn enn verr við. Spurði hann m.a. með þjósti hvort bíllinn hefði ekki verið að þjóna íbúunum þarna sem ekki hirtu um að láta moka snjó af bflastæðinu. Ekki hefði verið borinn sandur á svæðið. Með öðrum orðum þá mátti skilja á þessum hrokagikk að sá sem væri að þjóna okkur mætti aka niður tré og gróður ef þurfa þætti. Vegna þessara viðbragða mannsins þá reyndist nauðsynlegt að kalla til lögreglu sem mun þá af- greiða málið að sínum hætti. Borgar- starfsmenn, ekki síst hrokagikkur- inn, mættu hafa í huga að laun sín, fyrir að svara í símann og við að aka niður gróður borgaranna, fá þeir frá hinum sömu. KRISTINN SNÆLAND, Engjaseli 65, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.