Morgunblaðið - 30.03.2000, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000 67
FRÉTTIR
Fyrirlestur um drómasýki
BERGLIND Rán Ólafsdóttir, líf-
fræðingur hjá íslenskri erfðagrein-
ingu, flytur fyrirlestur á vegum
Líffræðistofnunar Háskólans
föstudaginn 31. mars. Fyrirlestur-
inn: Rannsóknir á erfðafræði dró-
masýki, hefst kl. 12:20 í stofu G6 að
Grensásvegi 12.
í fréttatilkynningu segir:
„Drómasýki er svefnsjúkdómur
sem einkennist af mikilli dagsyfju
og öðrum einkennum sem endur-
speglast í trufluðum REM-svefni.
Tíðni sjúkdómsins er 0.02-0.06 % í
V-Evrópu og Bandaríkjunum. Tal-
ið er að sjúkdómurinn stafi af af-
brigðilegri stjórnun svefns frekar
en staðbundnum skemmdum í mið-
taugakerfinu eð_a afbrigðilegri
þroskun þess. í drómasjúkum
hundum hafa nýlega fundist stökk-
breytingar í geninu hcrtr-2
(hypocretin receptor 2), sem er
sértækt tjáð í ákveðnum hlutum
miðtaugakerfisins sem m.a. gegna
hlutverki í stjórnun svefns. Til
þess að kanna hugsanlegan þátt
breytinga í genum þessarar boð-
leiðar í drómasýki hjá mönnum
voru genin sem skrá fyrir
HCRTR-1 og HCRTR-2 í mönnum
voru einangruð og raðgreind.
Táknraðir þeirra, sem og táknraðir
gensins sem skráir fyrir bindli við-
takanna, voru raðgreind í sjúkling-
um og viðmiðunarhópi."
Málþing
um hjarta- og
æðasjúkdóma
MÁLÞING fyrir almenning um
hjarta- og æðasjúkdóma verður
haldið í Norræna húsinu laugar-
daginn 1. apríl kl. 13.30-16 á veg-
um Landlæknisembættisins,
Hjartaverndar, Hollvinasamtaka
Háskóla íslands, Hollvinafélaga
læknadeildar, námsbrauta í hjúkr-
unarfræði og sjúkraþjálfun.
Sveinn Magnússon, læknir og
skrifstofustjóri, setur málþingið ög
að því loknu flytja framsögu þau:
Guðmundur Þorgeirsson, yfirlækn-
ir og prófessor, Bjarni Torfason
yfirlæknir og dósent, Inga Þórs-
dóttir prófessor, Auður Ólafsdóttir
sjúkraþjálfari, Gunnar Sigurðsson,
yfirlæknir og prófessor, formaður
Hjartaverndar, Helgi Már Arth-
ursson upplýsingafulltrúi, Bogi
Ágústsson fréttastjóri stjórnar
umræðum. Málþinginu lýkur um
kl. 16 og því slítur Sigurður Guð-
mundsson landlæknir.
Allir velkomnir, aðgangur
ókeypis. Málþingið nýtur styrks
frá Toyota - P. Samúelssyni ehf.
Áskorun til
spítalanna
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi áskorun:
,Aðalfundur Félags eldri borgara
í Garðabæ haldinn í Kirkjuhvoli 18.
mars 2000, varar við þeirri þróun í
heilbrigðismálum sem óhjákvæmi-
lega verður með fækkun skurðað-
gerða í stórum hópi þeirra sem eru
hreyfihamlaðir í mjöðmum og hnjám
vegna slitgigtar eða annarra sjúk-
legra liðbreytinga.
Með hliðsjón af framangreindu
skorar fundurinn á yfirstjórn stóru
spítalanna í Reyjavík að sinna þess-
um sjúklingum, ekki síður en hingað
til, og láta sparnaðarráðstafanir,
sem kunna að vera nauðsynlegar í
rekstri spítalanna, ekki verða til þess
að fækka aðgerðum hjá þessum fjöl-
menna hópi fólks, eins og nú sýnist
stefnt að.“
Kynning á full-
orðinsfræðslu
fatlaðra
KYNNING á starfi Fullorðins-
fræðslu fatlaðra verður dagana 2., 3.
og 4. apríl nk. Kynningin verður
formlega opnuð sunnudaginn 2. apríl
kl. 14.
Sýndar verða Ijósmyndir frá starf-
inu. Ennfremur verða sýnishorn af
myndverkum og annarri vinnu nem-
enda. Nemendur flytja tónlist og
ýmis hljóðfæri og hljómsveitin Plútó
spilar. Þá mun leikhópurinn Perlan
sýna leikverk.
Endurvinnsla
og úrgangur
AÐALFUNDUR FENÚR, Fagráðs
um endurvinnslu og úrgang, verður
haldinn í Rúgbrauðsgerðinni, Borg-
artúni 6, Reykjavík, föstudaginn 31.
mars nk.
I framhaldi af aðalfundinum hefst
ráðstefna kl. 13.30 á vegum FENÚR
undir yfirskriftinni „íslenska leiðin,
þar sem fjallað verður um það sem
er að gerast í úrgangs- og endur-
nýtingarmálum og hvert stefnir á
komandi öld“ Umhverfisráðherra
Siv Friðleifsdóttir flytur ávarp við
upphaf ráðstefnunnar.
A ráðstefnunni munu eftirtaldir
aðilar flytja erindi: Björn Halldórs-
son, verkfræðingur, flytur fyrirlest-
urinn: „Forsendur fyrir vinnslu líf-
ræns úrgangs? - Orkuhleifur við
íslenskar aðstæður." Hann mun
fjalla um lífrænan úrgang, notkun og
kröfur til afurðar.
Helgi Már Pálsson, bæjartækni-
fræðingur hjá Hornafjarðarbæ, sem
segir frá sorpmálum í A-Skaftafells-
sýslu. Gunnar Larsen, framleiðslu-
stjóri hjá ÚA, sem fjalla mun um
úrgangs- og endurnýtingarmál í
fiskiðnaði. Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri ísafjarðarbæjar, fjallar
um sorpeyðingu á Norður-Vestfjörð-
um. Ráðstefnan er öllum opin.
Skemmti-
kvöld slysa-
varnakvenna
SLYSAVARNAKONUR í Reykja-
vík verða með spila- og skemmti-
kvöld föstudaginn 31. mars í Sóltúni
20 og hefst kl. 20.30 með félagsvist
kaffi og léttar veitingar á staðnum.
Laugardaginn 1. apríl verður svo
bingó á sama stað og hefst kl. 14.
Margir góðir vinningar. Allir vel-
komnir.
Ný námsgagna-
stjórn skipuð
MENNTAMÁLARÁÐHERRA hef-
ur skipað nýja námsgagnastjórn til
þriggja ára.
I stjórninni eiga sæti: Jón Árni
Rúnarsson, skólastjóri Rafiðnaðar-
skólans, formaður Guðmundur B.
Kristmundsson, dósentvið Kennara-
háskóla íslands, varaformaður, Þor-
steinn G. Hjartarson, aðstoðarskól-
astjóri við Grunnskólann í
Hveragerði, Kristín Jónsdóttir,
grunnskólakennari í Breiðholts-
skóla, Örn Alexandersson, grunn-
skólakennari í Smáraskóla, Bragi
Halldórsson, framhaldsskólakennari
við Menntaskólann í Reykjavík og
Sigurrós Þorgrímsdóttir, bæjarfull-
trúi í Kópavogi.
Samkvæmt lögum nr 23/1990 um
Námsgagnastofnun er hlutverk
námsgagnastjórnar að staðfesta
áætlanir stofnunarinnar og fylgjast
NV SKÓUERSLUN
í GLÆSIBÆ
Opið frá kl. 10—18 virka daga
laugardaga frá kl. 11—16
SkóbCðin Glæsibæ • Si'mi 568 4452
með framkvæmd þeirra. Náms-
gagnastjórn ber ábyrgð á starfsemi
og fjárreiðum Námsgagnastofnunar
og ræður starfslið hennar að fengn-
um tillögum forstjóra.
Landssamtök foreldra í grunn-
skólum eiga áheyrnarfulltrúa í
námsgagnastjóm með málfrelsi og
tillögurétt.
Norræn sam-
tök um óhefð-
bundna meðferð
Á FUNDI sem haldinn var í Börsen í
Kaupmannahöfn dagana 14.-24.
mars voru stofnuð norræn samtök
fólks sem vinnur við óhefðbundin
meðferðarform. Fundinn sátu full-
trúar norrænna fagfélaga á þessum
sviðum. Heiti hinna nýstofnuðu sam-
taka er Nordisk Samarbejds Komite
for Ikke-konventionell medisin/ter-
apy(NSK).
I fréttatilkynningu segir m.a.:
„íbúar Norðui’landa leita í æ ríkari
mæli í óhefðbundin meðferðarform
til lausnar á heilsuvandamálum sín-
um. Þessi þróun hefur fylgt aukinni
menntun og bættri þjónustu á þessu
sviði. Því er það krafa meðhöndlara,
jafnt sem neytenda, að hið opinbera
láti meira til sín taka varðandi viður-
kenningu á menntun og störfum
þessa fólks.
Þrátt fyrir að nokkuð hafi áunnist
telja norræn fagfélög þeirra, er
vinna með óhefðbundin meðferðar-
form, þörf á aukinni samstöðu og
samvinnu um fagmenntun. Með
auknum kröfum og samræmingu á
menntun fagfólks verður námsmat á
hliðstæðu námi markvissara á Norð-
urlöndum. Þannig verða gæði þjón-
ustunnar einnig betur tijggð."
Af íslands hálfu á FÍN, Félag ís-
lenskra nuddara, aðild að samtökun-
Komdu
Isoldehf.
Umboðs- og heildverslun
Nethyi3-3a -110 Reykjavík
Simi5353600- Fax 5673609
isold@isold.is - www.isold.is
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar
Ritari á
fasteignasölu
Kraftmikil fasteignasala í hjarta Reykjavíkur óskar eftir að
róða ritara í móttöku viðskiptamanna, skjala- og símvörslu.
Leitað er að heiðarlegri, snyrtilegri og duglegri manneskju,
sem hefur óhuga ó að vinna í lifandi umhverfi með
skemmtilegu fólki.
Laun skv. samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 3. apríl nk. og umsóknir óskast send-
ar til auglýsingadeildar Mbl., merktar: „F — 2222".
Hættu að reykja
í síðasta skipti!
Vegna mikillar eftirspurnar
30 tíma afeitrun á
Sólheimum helgina
8. og 9. aprfl
Náóu árangri í fallegu og friðsælu umhverfi.
Allt innifalið: Matur, gisting (1 nótt) og ferðir frá Reykjavfk.
Verð aðeins 17.500 kr.
Árskostnaður við reykingar kr. 131.400 (miðað við einn pakka á dag).
Guðjón Bergmann,
tóbaksvarnaráðgjafi.
Nánari upplýsingar í símum
561 8586 og 694 5310 og
e-mail: gbergmann@simnet.is
JOTUN
Málningar
dasar
15-40%
afsláttur af allri Jotun malningu
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is