Morgunblaðið - 30.03.2000, Page 68
88 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍDAG
Skari Skrípó í einu af sínum óborganlegu atriðum. ,
3*
40 ára afmæli Fé-
lags heyrnarlausra
FYRIR nokkru fagnaði Félag
heymarlausra 40 ára afmæli sínu
með hátíðardagskrá í Miðbergi og
opnun sögusýningar í Gerðubergi.
Meðal gesta voru forseti íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, Valgerður
Sverrisdóttir, iðnðar- og viðskipta-
ráðherra, Helgi Hjörvar, forseti
borgarstjómar, alþingismenn o.fl.
A hátíðardagskránni í Miðbergi
Ulutti formaður Félags heyrnar-
lausra, Berglind Stefánsdóttir, ávarp
og einnig Knud Söndergaard, for-
maður Evrópusambands heyrna-
rlausra og Landssamtaka heyma-
rlausra í Danmörku. Steinunn
Þorvaldsdóttir flutti ávarp um undir-
búning sögusýningarinnar og Már og
Sólrún fluttu frumsamin Ijóð.
Að hátíðardagskránni lokinni var
gengið yfir í Gerðuberg þar sem full-
trúi Landssíma íslands afhenti Fé-
lagi heymarlausra tvo myndsíma að
jzjöf. Kolbrún Völkudóttir tók símann
' fórmlega í notkun er hún hringdi í
Áma Jóhannesson sem staddur var í
húsnæði Landssímans við Ingólfs-
torg.
Því næst flutti forseti Islands
ávarp þar sem hann þakkaði m.a.
heyrnarlausum fyrir hversu vel þeim
hafi tekist að kynna menningu sína
fyrir heyrandi samfélagi og vonaðist
til að svo mætti verða áiram í fram-
tíðinni. Heymarlausir hafi opnað
nýjan heim fyrir þá sem heyra með
því að vekja athygli á sérstöðu sinni,
móðurmáli og menningu. Að loknu
ávarpi opnaði forseti Islands form-
lega sögusýningu heymarlausra
ásamt þeim Steinunni Þorvaldsdótt-
ur og Önnu Valdimarsdóttur sem
höfðu umsjón með sýningunni.
Um kvöldið var síðan haldin árshá-
tíð félagsins í Kiwanishúsinu við
Engjateig. Mjög mikil aðsókn var að
árshátíðinni og komust færri að en
vildu. Vora Félagi heyrnarlausra
færðar gjafir frá vinum og samstarfs-
fólki, fluttar ræður og skemmtiatriði.
Við komu Ólafs Ragnars Grúnssonar, forseta íslands, í Miðberg tóku á
móti honum Berglind Stefánsdóttir, formaður Félags heyrnarlausra, og
Halldór Ólafsson, 6 ára, sem afhenti honum blómvönd.
Sala á víni og öli
verði ekki leyfð í
matvöruverslunum
EFTIRFARANDI samþykkt var
gerð á aðalfundi Þingstúkunnar inn-
an vébanda IOGT:
.Aðalfundur Þingstúku Reykja-
víkur, haldinn 25. mars 2000, hefur
fjallað um tillögu til þingsályktunar
um endurskoðun reglna um sölu
áfengis.
Fundurinn telur að í þessari til-
lögu og greinargerð, sem henni fylg-
ir, felist vilji flutningsmanna til að
opna greiðari leið til kaupa á vini og
áfengu öli. Með slíkri framkvæmd
yrði gengið, að dómi bindindissam-
Jíaka IOGT, gegn þeim markmiðum
að hindra eins og kostur er að börn
og ungmenni fái keypt áfengi og
neyti þess.
Reynslan hefur t.d. sýnt að bann
við sölu tóbaks til bama og ung-
menna hefur verið brotið mjög víða
og víst að hið sama myndi ekki síður
gilda um vínsölu við slíkar aðstæður.
Fundurinn mótmælir því þessum
ábyrðgarlausu fyrirætlunum í áfeng-
ismálum og varar alvarlega við þeirri
hættu sem leiða mun af því að sala á
víni og áfengu öli verði leyfð í mat-
vöraverslunum.
Aðalfundurinn minnir jafnframt á
að heildameysla áfengis er vaxandi
hér á landi og böl henni samfara
eykst stöðugt. Því vill fundurinn
beina því til alþingis að ráðstafanir
verði gerðar til þess að stöðva þessa
óheillaþróun. Fyrsta skref í þá vera
telur ftmdur vera að vísa frá fyrr-
greindri tillögu. Síðar væri rétt að
hefjast handa um róttækar aðgerðir
til að ná tökum á því verkefni að
draga úr neyslu áfengis og minnka
þar með það tjón sem mannlíf hér á
landi verður fyrir og þeim gífurlega
kostnaði sem samfélagið greiðir ár-
lega vegna afleiðinga áfengisneysl-
unnar.“
VELVAKANDI
Svarað í súna 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Minnisvísur
ÞJÓÐHÁTTADEILD
Þjóðminjasafns íslands er
að safna minnisvísum. Sum-
ar minnisvísur notar fólk
enn í dag, svo sem Ap., jún.,
sept., nóv. þrjátíu hver og
A b, c, d, e, f, g, eftir kemur
h, i, k. Aðrar alkunnar
minnisvísur eru t.d.
visan um hliðarár Dónár:
I Dóná falla Isar, Inn og
visubrotið: Settu það á þitt
sálarprik/ að nefnarinn er
fyrir neðan strik, sem að
vísu er til í
nokkrum afbrigðum. Til
eru útgefin minnisvísna-
kver eftir Einar Bogason
frá Hringsdal, Landfræði-
legar minnisvísur, Stærð-
fræðileg formúluljóð og
Stafsetningarljóð, svo og
bókin Islandssöguvísur eft-
ir Öm Snorrason.
Minnisvísur em af marg-
víslegu tagi, t.d. hafa þjóð-
háttadeild borist vísur um
röð bæja í sveitum, ömefni,
fiskimið, götur í bæjum,
hvað menn eiga að taka með
sér í ferðalag, orðabeyging-
ar og framburð í ýmsum
tungumálum, postulana,
amínósýrur, hluta í vélum
og matamppskriftir svo að
eitthvað sé nefnt. Þeir sem
kunna að luma á vísum eða
minnismnum af þessu tagi,
gömlum
eða nýjum, rímuðum eða
órímuðum em beðnir um að
hafa samband í netfanginu
halla@natmus.is, eða senda
bréf til þjóðháttadeildar
Lyngási 7,210 Garðabæ.
Nafngiftir
LÁRA hafði samband við
Velvakanda og vildi koma á
framfæri þakklætis til Auð-
ólfs Gunnarssonar vegna
greinar sem hann skrifaði í
Morgunblaðið 24. mars sl.
og heitir Nafngiftir. Lára
segir þetta alveg frábæra
grein og hún skilur ekki af
hverju verið sé að breyta
öllum þessum nöfnum. Þeg-
ar beðið er um leigubíl á
Borgarspítala skilja það all-
ir. „Vantaði vitringa vinnu?
Af hveiju var þetta unnið og
hvers vegna vilja þeir koma
þessu í gegn?“ Mjög skýr
grein og vel gerð. Það vita
allir hvar þessir staðir em.
Blettur á menningar-
kjól Reykjavíkur
ÉG sá í fréttum á Stöð 2 að
verið var að tala um af-
greiðslutíma veitingastaða í
miðbænum og var þar með-
al annars viðtal við stúlku í
bókabúð. Það sem varð til
þess að ég læt í mér heyra
vom þau orð hennar, þar
sem hún sagði að fólk með
geðræn vandamál væri
svartur blettur á menning-
arborginni. Ég hef nú oft
verslað í þessari búð, en
aldrei orðið vör við neitt
óvenjulegt, frekar en í Kola-
portinu og viðar í miðbæn-
um. Finnst mér yfirleitt
fremur rólegt þar, þótt
maður sjái þar stöku sinn-
um fólk sem greinilega á
erfitt. Núverandi rílds-
stjóm hefur skorið mikið
niður í sambandi við geð-
fatlaða og lokað deildum.
Margt af þessu fólki hefur
ekki fengið þá umönnun
sem það hefur þurft og
aðstandendur hafa oft átt
erfitt með að hafa það
heima. Þetta fárveika fólk
ráfar um og mælir götumar
og það er vitað mál að
ástand þess getur versnað
við slíkt. Og hvað er menn-
ing? Er það ekki að hugsa
vel um sjúka og þá sem erf-
itt eiga, á meðan það er látið
sitja á hakanum, er það
blettur á menningarkjól
fröken Reykjavikur.
Sigrún.
Fordómar
ÉG get ekld orða bundist
lengur vegna greinar í Vel-
vakanda 28. mars sl. Ég vil
benda konunni á það að það
er alls konar annað drasl en
það sem fylgir Morgunblað-
inu, sem kemur inn um
bréfalúgurnar hjá manni.
Síðan þessar eilífu árásir á
samkynhneigða. Veit þetta
fólk nokkuð nema einhver
náinn sé samkynhneigður?
Hefur þetta fólk ekki um
annað að hugsa en kynlíf
annars fólks? Fordóma
gagnvart samkynhneigðum
set ég undir sama hatt og
fordóma gagnvart brún-
eygðum, bláeygðum, grá-
eygðum eða skáeygðum.
Fordómar eru hroki og bak
við hrokann húkir heimskan
allsber. Ég er sjálf gagn-
kynhneigð en á fullt af sam-
kynhneigðum vinum, og
það er enginn munur á
þessu fólki og öðru.
Guðrún.
Barnagallar frá Rúm-
fatalagernum
ÞESSA dagana er verið að
innkalla bamagalla frá
Rúmfatalagemum. Ég vil
meina það að foreldrar séu
nógu skynsamir til þess að
taka þetta af. Ég er sjálf
fimm barna móðir og hef oft
þurft að fjarlægja óæski-
lega hluti frá mínum börn-
um. Finnst mér þetta algjör
óþarfi að innkalla alla þessa
bamagalla.
Sigríður.
Tapað/fundið
Stiissy-jakki týndist
SÍÐASTLIÐIÐ laugar-
dagskvöld 23. mars sl. týnd-
ist ljósbrúnn stiissy-jakki á
Kaffi Tomsen. Jakldnn er
með hettu og fóðraður með
flísefni. Fundarlaun. Upp-
lýsingar í síma 867-9822 eða
864-7806.
Dýrahald
Páfagaukur í óskilum
PÁFAGAUKUR er í óskil-
um í Smárahverfi í Kópa-
vogi. Hann er búinn að vera
þar síðan fimmtudaginn 23.
mars sl. Upplýsingar gefur
Eyrún í síma 554-4422.
Fress týndist
SVARTUR og hvítur 4ra
mánaða fress týndist frá
Nökkvavogi sl. laugardag.
Hann er með ljóslillabláa
hálsól með dökkblárri
merldplötu. Þeir sem hafa
orðið hans varir hafi sam-
band í síma 568-1407.
Víkverji skrifar...
VI hefur oft verið haldið fram að
sú fegurðarímynd sem haldið er
að fólki ýti undir það að ungar stúlk-
ur fari í megrun sem stundum leiði til
sjúklegrar átröskunar. Um er að
ræða sjúkdóm sem getur haft alvar-
legar afleiðingar, jafnvel dauða. Ný-
lega birtist í Morgunblaðinu frétt þar
sem sagt er frá skýrslu um fegurðar-
samkeppnina Ungfrú Ameríka. Nið-
urstaða skýrsluhöfunda er að kepp-
endur séu sífellt að verða mjórri og
margir keppendur þjáist af næring-
arskorti. Forsvarsmenn keppninnar
hafa brugðist við gagnrýni á holdafar
keppenda með því að hætta að birta
upplýsingar um þyngd og hæð kepp-
enda. Niðurstaða skýrslunnar er
engu að síður sú að á síðustu ára-
tugum hafi meðalhæð stúlknanna í
keppninni aukist um 2% en meðal;
þyngd þeirra lækkað um 12%. í
fréttinni er haft eftir Robert M.
Renneisen Jr., fulltrúa fegurðarsam-
keppninnar, „að keppendur undan-
farin ár hafi verið í þyngri kantinum
vegna þess að keppnin vilji að greind
og fegurð séu metin að jöfnu“.
Víkverji átti dálítið erfitt með að
átta sig á þessu svari. Ljóst er af
svarinu að ef gerðar era meiri kröfur
um greind leiðir það til þess að lík-
amsþyngd stúlknanna eykst. Svo
virðist sem það sé álit þeirra sem
standa að keppninni að beint sam-
band sé á milli greindar og lík-
amsþyngdar. Kona sem sé greind sé
líklegri til að vera þung en kona sem
ekki stigi í vitið. Samkvæmt þessu
ætti að vera auðveldara að mæla
greind en blóðfitu svo dæmi sé tekið.
Nægilegt er að stíga á baðvigtina
heima hjá sér. Þetta era góð tíðindi
fyrir allar þéttvaxnar konur.
Hér á landi hefur aðeins borið á
áhuga á að breyta um áherslur í feg-
urðarsamkeppnum. Þannig hefur
verið stofnað til nýrrar fegurðarsam-
keppni þar sem sagt er að lögð sé
meiri áhersla á greind og persónu-
leika konunnar. Úrslit í þessari
keppni vora tilkynnt um síðustu
helgi. Eftir sem áður virðist þó sem
greindar konur, sem ekki era gríðar-
lega fallegar, eigi sér engan vettvang
til að keppa innbyrðis því þær eru
áfram útilokaðar frá keppninni. Við
karlmennirnir brosum að þessu öllu
saman því að sjálfsögðu horfum við
fyrst og fremst á stúlkurnar og dæm-
um þær út frá ytri fegurð líkt og við
höfum alltaf gert þegar um fegurðar-
samkeppnir er að ræða.
xxx
YÍKVERJI hefur átt í talsverðri
sálarkreppu að undanförnu.
Þannig er að eiginkona hans hefur
tekið upp á því að borða spænskt jóg-
úrt sem farið er að selja í verslunum
hér á landi. Hún heldur því ákveðið
fram að þetta sé bragðbetri vara en
íslenskt jógúrt. Víkverji hefur alla tíð
verið ákafur stuðningsmaður ís-
lenskra landbúnaðarvara. Hann veit
sem er að íslenskir kúabændur, sem
margir hverjir búa við bágan efna-
hag, verða að selja sem allra mest af
mjólkurvöram ef þeir eiga að geta
haldið áfram búskap. Eiginkona
Víkverja hefur hins vegar aldrei haft
neinar grundarvallarskoðanir varð-
andi mataræði og borðar bara það
sem henni finnst gott. Víkverji hefur
ekki treyst sér til að gera úr þessu
máli alvarlegan ágreining af ótta við
að þetta ágreiningsmál leiði til
árekstra um önnur og alvarlegri
mál.
Víkverji vill hins vegar minna alla
stuðningsmenn íslensku kýrinnar á
að þeir verða að standa saman og
borða íslenskar mjólkurafurðir. Ef
þeir gera það ekki hlýtur sú spurn-
ing að vakna hvort ekki sé ástæða til
að almenningur láti af andstöðu við
tillögu um að norskar kýr verði flutt-
ar til landsins. Varla getur verið að
þeir sem era þessa dagana að háma í
sig spænskt jógúrt séu jafnframt á
móti innflutningi á norskum kúm.
XXX
LÝÐRÆÐIÐ og jafnréttisum-
ræðan getur stundum tekið á
sig undarlegustu myndir. Þannig
hefur flokkur Græningja í Þýska-
landi sett þá reglu að annar hver
ræðumaður á flokksþingi þeirra
verði að vera kona. Þetta er til þess
að stuðla að jafnrétti í flokknum!