Morgunblaðið - 12.07.2000, Side 1
STOFNAÐ 1913
157. TBL. 88. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR12. JÚLÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Samningaviðræður Israela og Palestínumanna hafnar í Camp David
Báðir aðilar hvattir til að
sættast á málamiðlanir
Washington, Thurmont. Reuters, AP, AFP.
Reuters
Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels, og Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, ásamt Bill Clinton Banda-
ríkjaforseta við upphaf friðarviðræðnanna í Camp David.
EHUD Barak, forsætisráðherra
ísraels, og Yasser Arafat, leiðtogi
Palestínumanna, hófu í gær friðar-
viðræður sínar undir forystu Bills
Clintons Bandaríkjaforseta í Camp
David og hvatti Chnton báða aðila í
gær til að sættast á málamiðlanir í
viðræðunum sem skera munu úr um
hvort hægt verði að knýja fram var-
anlegan frið fyrir botni Miðjarðar-
hafs. Miklar vonir eru bundnar við
niðurstöður viðræðnanna þar sem
tekið verður á erfíðustu deilumálum
Israela og Palestínumanna og sagði
Clinton við fréttamenn áður en hann
hélt til Camp David að leiðtogamir
yrðu að horfast í augu við erfiðar
spumingar og að enginn árangur
myndi nást án þess að fallist yrði á
„grundvallarmálamiðlanir“. „Leiðin
til friðar liggur nú, sem fyrr, í báðar
áttir.“
BandaiTkjaforseti mun stýra við-
ræðum Baraks og Arafats, sem talið
er að standa muni í um viku, og mun
hann leggja ofuráherslu á að áþreif-
anlegur árangur náist nú, sjö mánuð-
um áður en kjörtímabili hans lýkur.
En Barak og Arafat leggja líka mikið
undir því ef samkomulag næst ekki
er allt eins líklegt að ófriðvænlegt
verði fyrir botni Miðjarðarhafs, ekki
síst í Ijósi yfirlýsingar Palestínu-
manna um að af stofnun sjálfstæðs
ríkis Palestínu verði hinn 13. septem-
ber nk., jafnvel þótt enginn árangm-
náist í Camp David. Auk þess máls
munu viðræðurnar snúast að mestu
leyti um framtíðarskipan Jerúsalem
og örlög palestínskra flóttamanna og
ísraelskra landnema á Vesturbakk-
anum og Gaza-svæðinu.
„Leiðtogarnir finna fyrir fullum
þunga sögunnar en að mínu mati
skynja þeir að þetta er augnablik í
sögunni sem þeir geta fullnýtt... Það
er augljóslega engin trygging fyrir
árangri, en mistök eru vís ef ekkert
er reynt,“ sagði Clinton við frétta-
menn við Hvíta húsið í Washington.
Sársaukafullum
málamiðlunum heitið
Ehud Barak kom til Bandaríkj-
anna snemma í gærmorgun eftir að
hafa naumlega staðið af sér van-
trauststillögu þeirra sem telja að
hann muni gera óviðunandi tilslakan-
ir í Camp David-viðræðunum. Hét
Barak því að gera „sársaukafullar
málamiðlanir“ á fundinum og lýsti
því jafnframt yfir að ísraelska þjóðin
myndi hafa úrslitavald í þessu tilliti.
Fulltrúar í samningnefnd Palest-
ínumanna lýstu í gær yfir efasemd-
um um árangur viðræðnanna og báru
því við að síðustu atburðir á ísraelska
þinginu yllu því að Bandaríkin og
ísraelska samninganefndin myndu
þrýsta mjög á Arafat um að gera
nauðsynlegar tilslakanú svo Barak,
yfirlýstur stuðningsmaður friðarferl-
isins, geti náð að halda tryggilega á
stjórnartaumunum í fsrael. Varað
hefur verið við því að upp úr kunni að
sjóða ef samningar náist ekki um við-
kvæmustu deiluefnin.
Fídjí-eyjar
Níu leyst-
ir úr haldi
GÍSLATÖKUMENNIRNIR á
Fídjí-eyjum leystu í gær níu af
27 gíslum sínum úr haldi og
munu leyfa þeim átján sem eft-
ir eru að yfirgefa þinghús
landsins á morgun, að sögn
talsmanna valdaræningjanna.
Mahendra Chaudry, forsæt-
isráðherra landsins, var þó ekki
á meðal þeirra er leystir voru
úr haldi í gær en hann og flestir
fulltrúar ríkisstjómar hans
voru teknir í gíslingu hinn 19.
maí sl. af George Speight og
fylgismönnum hans sem kröfð-
ust nýrrar ríkisstjómar með
aukinni þátttöku fmmbyggja.
■ Frumbvggjar/19
Noregur
9.000 millj-
arðar í sjóði
NORSKI olíusjóðurinn, sá hluti ol-
íugróðans, sem lagður hefur verið til
hliðar, verður kominn í 9.000 millj-
arða ísl. kr. í upphafi ársins 2002.
Dagsavisen segir að þetta hafi
verið reiknað út hjá norska alþýðu-
sambandinu og þar á bæ vilja menn,
að sjóðurinn verði hér eftir kallaður
„lífeyrissjóðurinn" svo ekki fari á
milli mála í hverra þágu hann eigi að
vera. Sjóðurinn hefur vaxið gríðar-
lega að undanfómu enda olíuverðið
hátt og spáir helsti hagfræðingur
norska alþýðusambandsins því, að
ein saman vitundin um þennan mikla
varasjóð muni verða til að auka á fyr-
irhyggjuleysið í opinberam útgjöld-
um. Því eigi að kalla hann „lífeyris-
sjóðinn" til að minna á, að í skjóli
hans geti Norðmenn lifað áhyggju-
litlu lífi í ellinni.
„Göngutíðin“
nær hámarki
Belfast. Morgunblaðið.
MIKIL spenna var í Belfast á Norður-írlandi
þegar líða tók á kvöld í gær en í dag nær
„göngutíð" mótmælenda árlegu hámarki sínu
þegar minnst er sigurs Vilhjálms konungs af Ór-
am'u yfír hinum kaþólska Jakobi Stúart við
Boyne-ána árið 1690. Kaþólikkar höfðu hægt
um sig og héldu sig flestir heima við. Mótmæl-
endur í Belfast og annars staðar í héraðinu
gerðu sér hins vegar glaðan dag og kveiktu víða
bálkesti í gærkvöld til að hita upp fyrir hátíðina
eins og þessi ungi sambandssinni sem stóð víg-
reifur fyrir framan bálköst í austurhluta Belfast
í gærkvöld. Óttuðust margir að til átaka myndi
koma milli mótmælenda og öryggissveitanna
þegar liði á nóttina en alls hafa 280 árásir verið
gerðar gegn lögreglunni undanfarna viku og
þar af var skotvopnum beitt þrettán sinnum.
Alls hafa 146 verið hnepptir í varðhald. „Við er-
um við öllu búnir og mótmælin hljóta að enda
einhverntíma," sagði Brian McCargo, yfirmaður
lögreglusveita Ulsters í gærkvöldi.
Var öllum verslunum og veitingastöðum í
miðbæ Belfast lokað um kl. 16 í gær, þriðja dag-
inn í röð, og fáir voru á ferli.
■ Samstarf/28
Mannskætt oliu-
slys í Nígeríu
Abuja. AP.
GASOLÍULEIÐSLA sprakk í loft
upp í suðurhluta Nígeríu í gær með
þeim afleiðingum að yfir eitt hund-
rað manns sem voru að safna olíu úr
lekri leiðslunni létu lífið. Hundrað
særðust í sprengingunni og all-
margra er enn saknað. Töldu sjónar-
vottar að allt að 250 manns kynnu að
hafa látist vegna sprengingarinnar
og að margir þeirra sem fórast hefðu
verið skólabörn og unglingar. Miklir
eldar loguðu á svæðinu í allan gær-
dag og lagði svartan reyk yfir.
Nígerískir embættismenn sögðu í
gær að leiðslan hefði sprangið er eld-
ur komst að henni nærri þorpunum
Adeje og Oviri-Court, um 20 km
norður af hafnarborginni Warri sem
liggur á hinu olíuauðuga fenjasvæði í
suðurhluta landsins. Ekki er enn vit-
að hver eldsupptök voru en sumir
sjónarvotta sögðu að ræningjahópar
hefðu áður eyðilagt leiðsluna í von
um skjótfenginn gróða.
Slysinu í gær svipar mjög til sams
konar slyss sem átti sér stað fyrir
tveimur áram þegar meira en 700
manns fórast. Síðan þá hafa stjórn-
völd í Nígeríu reynt að uppfræða
fólk um hættuna sem stafar af því að
safna saman olíu sem lekur með
samskeytum á leiðslunni en mikil ör-
birgð fólks hefur orðið til þess að það
tekur áhættuna sem þessu fylgir.
Doyin Okupe, talsmaður Olusegun
Obsanjano forseta Nígeríu, sagði í
gær að slysið væri harmleikur sem
hægt hefði verið að koma í veg fyrir
og kenndi óprúttnum kaupsýslu-
mönnum um að leika sér að ógæfu
fátæks fólks. „Þetta kemur til af ör-
birgð og græðgi. Þeir vita um áhætt-
una og það er erfitt fyrir okkur að
sannfæra fólk um hættuna.“
MORGUNBLAÐIÐ 12. JÚLÍ 2000