Morgunblaðið - 12.07.2000, Side 20

Morgunblaðið - 12.07.2000, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Kóreuríki ekki sam- einuð í bráð KIM Dae-jung, forseti Suður- Kóreu, sagði í fyrradag, að ólíklegt væri, að Kóreuríki sameinuðust næstu tvo ára- tugina. Nauðsynlegt væri að samtvinna efnahagslíf beggja ríkjanna áður en til sameining- ar kæmi en þau yrðu hins veg- ar að vinna að því að ná fullum sáttum strax. Sagði Kim, að efnahagslífið í Norður-Kóreu væri í molum og sameinuðust ríkin undir þeim kringum- stæðum, myndi það aðeins valda óánægju og erfiðleikum. Vísaði hann til reynslunnar af sameiningu Vestur- og Aust- ur-Pýskalands í því sambandi. Ríflegur afgangur í Svíþjóð BÚIST er við, að afgangur á fjárlögum sænsku stjórnarinn- ar verði allt að 783 milljarðar ísl. kr. á þessu ári og upp undir 435 milljarðar kr. á þvi næsta. Verður ríkisreksturinn á næsta ári betri en áður hafði verið spáð. Sænska ríkið hefur einnig hagnast vel á því að bjóða út hlutabréf í fjarskipta- fyrirtækinu Telia eða um 530 milijarða ísl. kr. Dýr mistök í prentun MISTÖK við prentun valda því, að auðveldara verður en ella að falsa nýja 100-evra seð- ilinn. Skýrði þýska blaðið Frankfurter Allgemeine Zeit- ung frá því í gær. Mistökin geta þýtt það, að prentvinna í hálft ár og rúmlega 2,3 millj- arðar ísl. kr. hafi farið í súg- inn. Varða þau svokallaða Omron-tækni, sem þróuð var í Japan, en hún kemur í veg fyr- ir, að unnt sé að ljósrita seðl- ana. Evran tekur við sem gjaldmiðill 1. janúar árið 2002 og talsmaður þýska seðla- bankans sagði í gær, að þá færu aðeins í umferð seðlar, sem væru fullkomlega öruggir. Bashar fékk 97,29% atkvæða BASHAR al-Assad var sam- þykktur sem '16. forseti Sýr- lands í þjóðaratkvæðagreiðslu í fyrradag og fékk hann 97,29% atkvæða. Mohammed Harbah, innanríkisráðherra Sýrlands, greindi frá þessu í gær og sagði, að nærri níu milljónir manna hefðu komið á kjörstað en það svaraði til 94,59% allra kjósenda. 22.439 manns voru andvígir Bashar, sem er 34 ára að aldri og tekur við af föður sínum, Hafez heitnum al-Assad. Skjálfti í Alaska ÖFLUGUR jarðskjálfti, 6,5 á Richter, varð í Alaska í gær og eru upptökin talin hafa verið nálægt Kodiak-eyju, 470 km suðvestur af Anchorage, höf- uðstað ríkisins. Ekki er vitað til, að skjálftinn hafi valdið nokkrum skemmdum. Mikil útgerð er frá Kodiak-eyju og þar búa nærri 14.000 manns. AP Þessar svissnesku kýr voru í gær á beit í haga í Splugenskarði í Sviss, rétt við ítölsku landamærin, þar sem hitastigið hafði lækkað verulega og snjólín- an færst niður í 1.400 metra. Margir vegir á þessum slóðum voru ekki færir nema bflum á vetrardekkjum. Kæfandi hiti, votviðri og sni ókoma í E vrópu Aþenu. Reuters. ÞÚSUNDIR hektara af skógiendi og ræktarlandi og hundruð heim- ila hafa brunnið upp í miklum skógareldum á Balkanskaga, ít- alíu, Tyrklandi og víðar í Suður- og Suðaustur-Evrópu. Þar hafa verið óskaplegir hitar að undan- fórnu en á sama tíma hefur verið kalt og vætusamt í norðanverðri álfunni. Sem dæmi um það má nefna, að miklum snjó kyngdi nið- ur í Alpafjöllum í gær. Aðeins í Grikklandi hafa um 150 eldar eyðilagt 10.000 hektara og á eynni Samos er um þriðjung- ur alls lands ein rjúkandi rúst. Þar brann inni nærri tíræð kona en eldarnir og hitarnir hafa kost- að tugi manna lífið á Balkan- skaga og í Tyrklandi. Hefur hit- inn verið yfir 40 gráður í meira en viku og horfur eru á nýrri hitabylgju í Tyrklandi. Annars staðar er kaidur loft- massi norðan úr Evrópu að binda enda á hitasvækjuna og svo mikil eru umskiptin, að í gær var farið að snjóa í Alpafjöllum, á Ítalíu og í Sviss. I Þýskalandi var júnímán- uður óvanalega heitur en það sem af er júlí hefur verið þar mjög vætusamt og kalt og einnig í norðanverðu Frakklandi og víðar. 5-6 gráðum undir meðallagi Sem dæmi má nefna, að í París hefur hitinn verið fimm til sex gráðum undir meðallagi síðustu daga. I austanverðri Evrópu, Rúmen- íu og Búlgaríu, er hitasvækjan heldur á undanhaldi og í fyrr- nefnda landinu er nú spáð rign- ingu í fyrsta sinn í langan tíma. Þessar veðuröfgar eru ekki bara bundnar við Evrópu því að í Arg- entinu gerði óvanalegt kuldakast í Cordoba-héraði í fyrradag og setti þá niður allmikinn snjó. Þar hafði ekki snjóað í mörg ár. Reuters Slökkviliðsmaður berst við skógarelda um 100 km frá Aþenu. Sjúklingar á Flórída höfða mál gegn bandarískum tóbaksfyrirtækjum Krefjast 12.000 milljarða króna í skaðabætur Miami. AFP. STEFNENDUR í málaferlum á Flórída gegn bandarískum tóbaks- fyrirtækjum hafa krafist þess að þau verði dæmd til að greiða sjúkl- ingum alls 154 milljarða dala, and- virði tæpra 12.000 milljarða króna, í skaðabætur vegna sjúkdóma sem tengjast reykingum. „Aldrei hafa jafn fáir valdið jafn mörgum svo miklum skaða á svo löngum tíma,“ sagði Stanley Ros- enblatt, lögmaður sækjendanna, þegar hann lauk málflutningi sín- um á mánudag. Hann bætti við að af þessum „mjög hófsömu" skaða- bótum ætti eitt tóbaksfyrirtækj- anna, Philip Morris, að greiða 75- 118 milljarða dala, andvirði 5.700- 9.000 milljarða króna. Stefnt fyrir hönd sjúkra reykingamanna Málið var höfðað fyrir hönd allt að hálfrar milljónar reykinga- manna á Flórída er hafa fengið sjúkdóma sem tengjast reykingum. Dómarinn í málinu hafnaði í vik- unni sem leið beiðni verjenda tóbaksfyrirtækjanna um að skaða- bæturnar yrðu takmarkaðar við 15 milljarða dala, andvirði 1.100 millj- arða króna. Sett hafa verið lög á Flórída sem kveða á um að ekki megi dæma fyrirtæki til að greiða svo miklar skaðabætur að þau verði gjaldþrota. Búist er við að dómur verði kveðinn upp í málinu fyrir lok mánaðarins. Tóbaksfyrirtækin höfðu áður samþykkt að greiða ríkjum Banda- ríkjanna 246 milljarða dala, tæpa 19.000 milljarða króna, vegna kostnaðar ríkjanna af sjúkdómum sem tengjast reykingum. Fyrir- tækin samþykktu einnig árið 1998 að veita 100 milljónir dala, andvirði tæpra sjö milljarða króna, í að- gerðir til að stemma stigu við reyk- ingum ungmenna. Rosenblatt benti á að á sama tíma og fyrirtækin veittu 100 milljónir dala í forvarnir eyddu þau sex milljörðum dala, 460 milljörðum króna, í auglýsingar. Hann gagnrýndi einnig forstjóra fyrirtækjanna fyrir að hafa aldrei beðist afsökunar á því að framleiða og selja vörur sem yllu alvarlegum sjúkdómum og neita því að þær væru skaðlegar heilsunni. „Þeir vissu 100% að afleiðingar blekkj- andi athæfis þeirra voru sjúkdóm- ar og dauði,“ sagði lögmaðurinn og bætti við að gróði fyrirtækjanna væri nú meiri en nokkru sinni fyrr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.