Morgunblaðið - 16.07.2000, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2000 9
Islandsmeistaramótið í svifflugi
Hálf öld á milli
yngsta og elsta
keppanda
Theodór Bl. Einarsson, flugstjóri hjá Flugleiðum og
Islandsmeistari í svifflugi árið 2000.
ÍSLANDSMEISTARI í svifflugi ár-
ið 2000 er Theodór Bl. Einarsson
með 2549 stig, í öðru sæti varð
Stefán Sigurðsson með 2169 stig og í
þriðja saeti varð Kristján Svein-
bjömsson með 1832 stig. íslands-
mótið í svifflugi var haldið á Hellu-
flugvelli dagana 1. til 9. júní s.l.
Islandsmeistaramót í svifflugi hafa
verið haldin á Helluflugvelli annað
hvert ár frá árinu 1958.
Keppni í svifflugi snýst um að
fljúga ákveðnar vegalengdir á sem
skemmstum tíma en verkefnin eru
ákveðin af mótstjóm í byrjum hvers
keppnisdags.
Keppt er um fimm verðlaunagripi.
Jóhannes Hagan bikar sem var
gefinn árið 1958 af þeim Arnóri
Hjálmarssyni, Asbimi Magnússyni,
Guðmundi Bjamasyni og Helga Fil-
ippussyni til minningar um Jóhann-
es Hagan, sem var meðal fmmherja í
sviffugu hér á landi, en hann lést af
slysförum í Kanada árið 1942. Bikar-
inn er farandbikar og hann hlýtur
Islandsmeistari í svifflugi.
Atlanta-bikar, geflnn af hjónunum
Arngrími Jóhannssyni og Þóm Guð-
mundsdóttur, eigendum Atlanta, til
eflingar svifflugs á íslandi. Bikarinn
er eignarbikar og hann hlýtur ís-
landsmeistari í svifflugi.
Ráðherrabikar gefinn af Ingólfi
Jónssyni samgönguráðherra árið
1963, en þann bikar, sem er farand-
bikar, hlýtur sá keppandi sem nær
bestum árangri í markflugi fram og
til baka.
Pfaff-skál, gefin af versluninni
Pfaff hf, Reykjavík, árið 1969. Pfaff-
skálin er farandgripur sem sá hlýtur
sem nær bestum árangri í 100 km
þríhyrningsflugi.
Olís-bikar, gefinn af Olís árið 1992.
Bikarinn er farandbikar og hlýtur sá
sem nær bestum árangri í POST-
flugi.
Svifflug mjög háð veðri
Svifflug er mjög háð veðurskilyrð-
um og til þess að fljúga lengri vega-
lengdir þarf öflugt hitauppstreymi
sem verður til á sólríkum sumardög-
um þegar hitastigið nær 18-25 gráð-
um.
Til að íslandsmót sé gilt þarf að ná
tveimur gildum keppnisdögum, en
keppnisdagur telst gildur ef 20%
keppenda ná að fljúga ákveðna
lágmarksvegalengd. Þrír gildir
keppnisdagar náðust á mótinu nú og
var unnið til allra ofangreindra verð-
launa nema OLÍS-bikarsins sem
ekki náðist að keppa um þar sem að-
eins náðust þrír gildir dagar.
Níu keppendur tóku þátt í mótinu:
Einar Bjömsson, Hafsteinn Jónas-
son, Kristján Sveinbjömsson, Magn-
ús Ingi Óskarsson, Sigmundur And-
résson, Stefán Sigurðsson, Steinþór
Skúlason, Theodór Bl. Einarsson og
Þórður Hafliðason. Til gamans má
geta þess að yngsti keppandinn var
18 ára en sá elsti 68 ára.
Islandsmeistari í svifflugi árið 200
er Theodór Bl. Einarsson með 2549
stig, í öðra sæti varð Stefán Sigurðs-
son með 2169 stig og í þriðja sæti
varð Kristján Sveinbjömsson með
1832 stig. Bestum árangri í fram og
til baka flugi náði Theodór Bl. Ein-
arsson og bestum árangri í 100 km
þríhyrningsflugi náði Steinþór
Skúlason.
Hingað til hafa keppendur þurft
að sanna flug sitt og staðsetningu við
hornpunkta með myndatöku, en nú
var sú nýbreytni tekin upp að GPS
staðsetningartækjum með feril-
skráningu var komið fyrir í öllum
svifflugum og því hægt að sjá feril
hvers og eins keppanda á íslands-
korti á tölvuskjá eftir hvert flug.
„Það auðveldaði vinnu mótstjómar-
innar í alla staði, flýtti fyrir úr-
vinnslu gagna og tryggði nákvæmni.
Áður varð að senda myndir í fram-
köllun eftir hvern keppnisdag og oft
reyndist erfiðleikum háð að greina
staðsetningu eftir ljósmyndum sem
teknar vora í mikilli hæð.
Hugbúnaðinn, forrit og GPS tæk-
in lánaði R. Sigmundsson. Olís hefur
verið styrktaraðili Islandsmóts í
svifflugi til fjölda ára. Einnig hefur
flugfélagið Átlanta verið traustur
bakhjarl mótstjómar. Öllum þessum
aðilum þakkar Svifflugdeild Fmí
ómetanlega aðstoð og stuðning.
I mótstjórn vora Bragi Snædal
mótstjóri, Þórður ívarsson, sem sá
um tölvuvinnslu, Skúli Sigurðsson
tímavörður og Ólafur Gíslason start-
stjóri. Undirbúningur og fram-
kvæmd vora í höndum Baldurs Jóns-
sonar formanns Svifflugdeildar
Flugmálafélags íslands,“ segir í
fréttatilkynningu frá mótsstjóm.
Vélarstærð Hestöfl ABS Loftpúðar
1800 cc 112 i 2
• • •
Hnakkapúðar
5
Hatalarar
4
Lengd
4,60 m
Breidd
1,77 m
Verð frá
1.659.000 kr.
Peugeot 406 er aðlaðandi bifreið hvernig sem á hana er litið. Sumir heillast af
frábærum aksturseiginleikum, aðriraf fágaðri útlitshönnuninni og öryggi bílsins
er í margra augum það sem skiptir mestu máli. Peugeot 406 er stór bíll á verði
smábíls, - kjörgripur á hjólum.
Gunnar Bernhard ehf.
Vatnagöróum 24 • s. 520 1100
Sýnmgar og prufubilar eru einnig á eftirtöidum stöðum: Akranes: Bílver s. 431 1985, Akureyri: Bilasala Akureyrar s. 461 2533,
Vestmannaeyjar: Bílaverkstæðið Bragginn s. 481 1535, Keflavík: Bílavík ehf. s. 421 7800.
PEUGEOT