Morgunblaðið - 16.07.2000, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2000 1 3
lega ofvirka og óábyrga blökku-
manni.“
Heilsugæslustöðvum lokað
Eftir að hafa séð vini og ættingja
fangelsaða, eitrað fyrir þá og þeir
jafnvel gerðir ófrjóir af hvítu lækna-
liði svo áratugum skipti lét þjóðar-
ráðið loka fjölda heilsugæslustöðva
eftir að það komst til valda. Stöðv-
arnar hefðu án efa síðar geta komið
sér vel við meðhöndlun og ráðgjöf
alnæmissmitaðra.
Hvítir ríkisstarfsmenn, sem Af-
ríska þjóðarráðið erfði frá tímum
aðskilnaðarstefnunnar, reyndust
síðan allt annað en hjálplegir við að
koma forvarnarstarfi gegn alnæmi í
framkvæmd. „Ekkert af þvi starfs-
fólki sem ég erfði vissi svo mikið
sem hvernig alnæmi smitaðist, né
hvernig mætti hindra smit, sagði
Quarraisha Abdool Karim, sem
fyrst fór með alnæmismál í Suður-
Afríku. Aðrir stjórnendur mættu
andúð ríkisstarfsmanna. „Við vorum
að vinna með fólki sem hefði ekki
getað staðið meira á sama um það
þótt blökkumenn dæju úr alnæmi,“
sagði Floyd, framkvæmdastjóri al-
næmismála í Pretoria og Johannes-
burg.
Þá notfærði Þjóðarflokkurinn,
stjórnarflokkur aðskilnaðarstefn-
unnar, sér hræðslu við alnæmi til að
grafa undan vinsældum Afríska
þjóðarráðsins. Dreifimiðum með
viðvörunum um útlaga sem flyttu al-
næmisveirunni var dreift um hverfi
blökkumanna. „Það setti okkur
vissulega í vörn,“ sagði Smuts
Ngonyama, talsmaður Afríska þjóð-
arráðsins. „Okkur var fullkunnugt
um að þetta var sjúkdómur sem við
urðum að takast á við. Okkur
gramdist þó líka að Þjóðarflokkur-
inn skyldi draga upp þá mynd af
okkur að við værum lauslátir. Ekki
síður en þá fullyrðingu að við vær-
um skæruliðar sem flyttum dauða
og sjúkdóma heim til fólks okkar.“
í fyrstu fjárlögum stjómar þjóð-
arráðsins voru þeir tæplega fimm
milljarðar króna sem forvamar-
nefnd Afríkska þjóðaráðsins hafði
mælt með til verksins skomir niður
í rúman milljarð. Forvarnarstarf
var síðan fært undir starfsmann
heilbrigðisráðuneytisins í stað þess
að það tilheyrði skrifstofu forseta
líkt og áætlanir gerðu ráð fyrir.
Helstu ráðamenn minntust þá helst
aldrei á sjúkdóminn að fyrra bragði
og það var ekki fyrr en árið 1997 að
Nelson Mandela, þáverandi forseti
Suður-Afríku, ræddi alnæmisveir-
una opinberlega á erlendum vett-
vangi - ári áður en það var gert
heima fyrir.
Staða þeirra Suður-Afríkubúa
sem greinst hafa með veiruna í dag
er allt annað en öfundsverð. Þeir
era gjaman hundsaðir af ættingjum
og nágrönnum, eiga á hættu að
missa vinnuna og hljóta jafnvel enga
umönnun.
F orvarnastarf í Suður-Afríku hef-
ur engu að síður verið aukið til
muna. 140 milljónum smokka hefur
verið dreift og yfir 10.000 kennarar
þjálfaðir til að alnæmisfræðslu.
Efnahagur landsins gerir þó ríkis-
stjóminni erfitt um vik með kaup á
kostnaðarsömum alnæmislyfjum er-
lendra fyrirtækja, sem hafa bragð-
ist illa við þeim hugmyndum Suður-
Afríkubúa að þarlend lyfjafyrirtæki
framleiði slík lyf fyrir heimamark-
aðinn. Þá hefur núverandi forseti,
Thabo Mbeki, vakið reiði virtra vís-
indamanna með því að draga tengsl
HlV-veirannar svonefndu og al-
næmis í efa.
Aukið forvamarstarf í Suður-Af-
ríku virðist þó skila takmörkuðum
árangri því í nýlegri skoðanakönnun
sögðust 86% íbúa ekki vita hvemig
alnæmisveiran bærist milli manna
og einungis 10% viðurkenndu að
hafa notað smokk við síðustu kyn-
mök.
Byggt á BBC, AP, AFP, Reuters.
33
-70% afsíáttur
15x15 sm veggflísar kr. 990- pr.m2
15x20 sm veggflísar frá kr. 1.080- pr.m2
20x25 sm veggflísar frá kr. 1.190- pr.m2
30x30 sm gólfflísar frá kr. 1.580- pr.r
Afgangsflísar allt að 20 m2
á kr. 850- pr.m2
DÆMI
Suöurlandsbraut 26, símar: 568 1950 / 581 4850
Orugglega gott útlit í sumar
HEKLA
- íforystu á nýrri öld!
IfW
Generation Golf
Golf Variant