Morgunblaðið - 16.07.2000, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 16.07.2000, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2000 15 Myndir í trú þjóðar Sýning á nótum, textum og myndum úr íslensk- um handritum stendur nú yfír í Skálholtsskóla. Pétur Pétursson fjallar hér um sýninguna sem lýkur 2. ágúst. UNDANFARIN fjögur ár hefur far- ið fram umfangsmikil skráning á tónlistarhandritum á vegum Colleg- ium Musicum sem eru samtök um tónlistarstarf í Skálholti. Við upphaf sumartónleikanna í Skálholtskirkju um seinustu helgi var efnt til ráð- stefnu í Skálholtsskóla um þann tón- listararf sem dreginn hefur verið fram á ný. Þar fluttu innlendir og er- lendir sérfræðingar á sviði handrita- fræði og kirkjutónlistar merk erindi sem sýna að á grundvelli þeirrar skráningar og frumrannsókna sem þegar liggja fyrir verður að endur- meta tónlistarsögu þjóðarinnar - og einnig myndlistarsögu. Við athugun á handritunum kom í ljós að þau hafa sum hver verið skrifuð af tónlistar- menntuðum mönnum og einnig myndlistarmönnum. Nótur og sálm- ar eru listavel skrifaðir og handritin skreytt og lýst myndum sem oftast hafa beina trúarlega skírskotun. Á vegum Collegium Musicum er hafin skráning á myndlist í handritum sem lítill eða enginn gaumur hefur verið gefinn og Ijóst er að sú vinna á eftir að skipta sköpum varðandi skilning á hlut myndlistar í íslenskri menningu og trúarhefð. Ein myndanna á sýningunni í Skálholtsskóla. Afrakstur fjögurra ára vinnu Coll- egium Musicum undir stjórn Kára Bjamasonar handritasérfræðings var afhentur Landsbókasafni-Há- skólabókasafni og Rannsóknarstofn- un í helgisiðafræðum í Skálholti við hátíðlega athöf í lok málþingsins. Daginn eftir opnaði Einar Sigurðs- son landsbókavörður sýningu í Skál- holtsskóla á nótum, textum, skreyt- ingum og myndum úr íslenskum handritum frá ýmsum tímum. Sýn- ingin ber yfirslaTft'fha: Myndir í trú þjóðar. Ljósmyndirnar hafa verið stækkaðar og hannaðar með bestu fáanlegri tækni og gefa góða sýn í þann myndræna fjársjóð sem hand- ritin hafa að geyma. Hönnuður sýn- ingarinnar er Ásrún Kristjánsdóttir myndlistarmaður sem notið hefur dyggs stuðnings tæknimanna frá fyr- irtækinu Hans Petersen. Rannsóknarstofnun f Helgisiða- fræðum í Skálholti á nokkrar myndir af nótnahandritum sem við hæfi þótti að tengja þessari sýningu og prýða þau veggi ráðstefnusalar skólans. Tvær myndir sem skólinn hefur að láni frá Listasafni Akureyrar til- heyra einnig þessari sýningu. Ekki eingöngu bundin við orðið Tjáning kristinnar trúar er ekki eingöngu bundin við orðið, sönginn og helgisiði. Hún er um leið myndræn og það er alvarlegur misskiln- ingur þegar því er haldið fram að þessi þáttur kristi- legrar boðunar og guðrækni hafi rofnað með siðbreyting- unni. Það sýnir og sannar þessi sýning svo ekki verður um villst. Tjáning trúar og trúarreynslu tekur á sig ýmsar myndir og Ijóst er að þeir sem rituðu umrædd sálma- og nótnahandrit túlk- uðu trú sína, trúarhug- myndir og reynslu í mynd- um. Þar má sjá samspil hinnar lærðu hefðar og táknmáls kirkjunnar sem stofnunar og handbragð og hugmyndir alþýðunnar. Skrifaramir og myndlistar- mennimir koma bæði úr röðum lærðra og leikra. Sýningin ber þess merki að útfærsla og túlkun táknheims kristn- innar í landinu var bæði fjölbreyttari og litríkari en menn hafa hingað til gert sér grein fyrir. í hinn myndræna táknheim sem sýningin í Skálholts- skóla opnar á kirkjan eftir að sækja markvíst til að kanna eigin hefð sér til endumæringar og endumýjunar og myndlistarmenn geta sótt þangað innblástur og efnivið um ókomin ár. Höfundur er prófessor {kenni- mannslegri guðfræði og rektor Skálholtsskóla. Tvær sitjandi konur og áhorfandi MAÐUR nokkur virðir hér fyrir sér eitt málverka spænska listamanns- ins Pablos Picassos Tvær sitjandi konur. Verkið sem er frá 1920 er á sýningunni „Meistaraverk frá Picasso til Beuys“ sem stendur þessa dagana yfir í ríkislistasafninu í Dússeldorf. Á sýningunni er einung- is að finna 20. aldar verk. ------------- Sýning framlengd SAMSÝNING Guðbjargar Lindar Jónsdóttur og Valgarðs Gunnarsson- ar i Listasalnum Man, Skólavörðu- stíg 14, hefur verið framlengd til laugardagsins 22. júlí næstkomandi. Listasalurinn Man er opinn frá kl. 10-18 á virkum dögum en til 14 síð- asta sýningardaginn, næstkomandi laugardag. 34

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.