Morgunblaðið - 16.07.2000, Side 42

Morgunblaðið - 16.07.2000, Side 42
*42 SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens EG FRETTI Ab PU HAFIR SVARIt) AFPÉR FREKARA SJÓNVARPSGLÁP 'ZS&L JU, EG ER BYRJAÐUR AÐ LESAAFTUR! J Grettir Ljóska Ferdinand Smáfólk BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík # Sími 569 1100 # Símbréf 569 1329 Mann- réttindabrot Opið bréf til sjávarútvegsráðherra og yfirmanna hans Frá Sigurði Vilhjálmssyni: STERK hefð er í minni ætt fyrir út- gerð smábáta á handfæraveiðum. Sá réttur minn að sækja lífsbjörg- ina í sjóinn mér og mínum til fram- færslu hefur ranglega verið af mér tekinn og öllum mínum afkomendum um ókomna tíð. Eftir meira en 1000 ára hefð fyrir handfæraveiðum án þess að nokkum tíma hafi til ofveiði komið er það gert með þeim rökum að skammta þurfi rétt manna til handfæraveiða, annars séu fiski- stofnamir í stórútrýmingarhættu og ýmsum öðmm falsrökum svo sem því að kvóta þurfi á handfærabáta eins og á skuttogara sem reyndar voru kallaðir ryksuguskip áður en við íslendingar fóram að nota þau og tel ég það vera rétt nafn á þessi skip. Reynslan hefur sýnt það að engir fiskibankar í heiminum þola þau til lengdar, enda era þau þurftafrekar risaeðlur og munu deyja út. Eg er mjög ósáttur við þessa þróun fisk- veiðimála og vil benda á rétt minn til fiskiveiða með handfæram í atvinnu- skyni í gegnum þá hefð sem skapast hefur í gegnum mína ættarsögu. Þorsteinn Gíslason langafi minn frá Meiðastöðum í Garði keypti sér sex manna far í atvinnuskyni. Afi minn Halldór Þorsteinsson frá Vörum í Garði réri þessum bát þegar það hentaði og fisk var að fá. Það gerði faðir minn Vilhjálmur Halldórsson frá Brekku í Garði líka. Ég, Sigurð- ur Vilhjálmsson, réri þessum bát síðastur til fiskveiða. Þessi sjósókn mín og minna langfeðra var til þess gerð að sækja lífsbjörgina í sjóinn þegar hún gafst og þörf var fyrir. Þessi bátur er enn til en ég má ekki róa honum til fiskveiða í atvinnu- skyni, heldur aðeins til að fiska í soð- ið fyrir mína fjölskyldu. Það er ekki fullnægjandi fyrir hinn venjulega vinnandi mann, því það kostar orðið mikla peninga að eiga bát, það opinbera sér til þess. Ég vil skora á Árna Mathiesen að leyfa hándfæraveiðar á allt að sex tonna bátum nú þegar og án allra takmarkana af hálfu stjómvalda, náttúra og veður sjá um það, og hætta þessari valdníðslu og mannréttinda- brotum strax. Ég veit að útgerðar- menn og þá sér- staklega verk- Sigurður smiðjuskipa Vilhjálmsson munu mæla móti þessu og gengur þeim það helst til að missa ekki írá sér hæfa sjómenn sem era orðnir langþreyttir á mikl- um fjarverum frá sínum fjölskyldum og geta ekki unnt þessum starfs- mönnum sínu þess hlutskiptis að hafa hugsanlega gott kaup á litlum bát og lifa heilbrigðu fjölskyldulífi. Þessi þáttur í fiskveiðistjórnkerfinu hefur orðið útundan í umræðunni um kvótann enda hefur sú umræða snúist mest um blindan kapítalisma og hann er ekki mannvænn. Skora ég því á stjórnvöld að sjá að sér í kvótamálum og í þessari misnotuðu frjálshyggju sem nú tröllríður þjóð- félaginu. Blindur kapítalismi á ekki að ráða lögum á Islandi, stefnum heldur að betra mannlífi og jafnari efnahags- legum kjöram fólks og munum að við eram allir íslendingar og eigum að vera jafnir fyrir lögum. Þeir sem era sama sinnis og ég í þessum efn- um, látið í ykkur heyra á opinberam vetvangi eða sendið mér bréf eða póstkort með nafni, kennitölu og heimilisfangi. Það ræðst af samstöðu okkar hvert framhaldið verður. Með þeirri ósk og kveðju að frelsi og jafn- rétti verði staðreynd fyrir alla ís- lendinga. SIGURÐUR VILHJÁLMSSON, Holtsgötu 42, Njarðvík Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Brúðhjón Allur boröbiínaöur - Glæsilcg gjafavara - Briiöhjönalistar r> VERSLUNIN Lnngavegi 52, s. 562 4244.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.