Morgunblaðið - 16.07.2000, Side 56
Jl
www.varda.is
Alvöru þjónusta
fyrir alvöru fólk
Landsbankin n
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNU, 103REYKJAVÍK, SÍMIB691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF 3010,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBLJS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 16. JULI2000
VERÐ I LAUSASOLU 150 KR. MEÐ VSK.
Joseph E. Stiglitz,
fyrrverandi ráðgjafi
Clintons
Oþarfur
ótti við
verðbólgu
JOSEPH E. Stiglitz, fyrrverandi að-
stoðarbankastjóri Alþjóðabankans og
aðalhagfræðiráðgjafi Clintons
Bandaríkjaforseta, segir að almennt
talað hafi væg verðbólga ekki slæm
áhrif á hagvöxt. Hægt sé að hleypa
verðbólgu lítillega upp og ná henni
niður aftur þegar aðstæður leyfi.
„Við, sem störfuðum í stjóm Clin-
tons, sannfærðumst um að hagfræði-
^hega er ekki hægt að réttlæta það að
einblína á verðbólguna og við sann-
færðumst einnig um að það er þess
virði að taka þá áhættu að verðbólga
aukist ef það er til þess gert að draga
úr atvinnuleysi. í ljós kom að þetta
var rétt skoðun og við komumst að
þeirri niðurstöðu að sá mikli ótti sem
er við verðbólguna sé alveg óþarfur,"
segir hann.
Stiglitz segir að nánast sé aiger
samstaða meðal hagfræðinga um að
verðbólga undir tíu prósentum hafi
.^.engin slæm efnahagsleg áhrif. Hann
segir að það sem máli skipti sé hversu
vel stofnanir þjóðfélagsins séu í stakk
búnar til að laga sig að verðbólgunni.
Háir vextir draga ekki
endilega úr verðbólgu
Stiglitz segir að háir vextir einir og
sér, án reglna á fjármálamarkaði, slái
ekki endilega á verðbólgu þar sem
þeir dragi meira fjármagn inn í landið.
Meira fjármagn geti örvað hagkerfið
og sú örvun sem stafi af umfram-
eftirspum sem valdi verðbólgunni.
Hann segir þó að vaxtahækkun hafi
nokkur áhrif, þar sem hækkun gengis
vinni gegn verðbólgu. Háir vextir
dragi ekki endilega úr heildareftir-
spum innanlands sé fjármagni leyft
•^að flæða afskiptalaust inn í landið.
■ Hófleg verðbólga/10
Morgunblaðið/Golli
Leyndardómar Snæfellsjökuls
EINIJ sinni datt mönnum ekki f hug að klífa fjöll. í dag láta menn sig ekki
muna um að setjast upp á vélsleða og bruna upp um fjöll og fimindi. Vin-
sælt er til dæmis að bregða sér upp á Snæfellsjökul og er næsta auðvelt að
ná tindinum á vélknúnum farartækjum. Spumingin er bara hvort það er
eins skemmtilegt eftir á og hvort menn verða þá af leyndardémum Snæ-
fellsjökuls.
Þrír menn í varðhald vegna lögreglurannsóknar á innflutningi amfetamíns
Mesta magn efna sem
náðst hefur í einu
ÞRÍR rúmlega tvítugir menn vom
úrskurðaðir í mánaðar gæsluvarð-
hald að kröfu fíkniefnadeildar lög-
reglunnar í Reykjavík í gær vegna
rannsóknar á innflutningi rúmlega 8
kílóa af amfetamíni í hraðsendingu
hingað til lands í vikunni. Aldrei hef-
ur meira magn náðst í einu lagi og
mest hefur verið lagt hald á 6,1 kíló
„ Fjöldi gesta fagnar
Islendingi í Brattahlíð
Brattahlíð. Morgunblaðið.
HÁTÍÐARHÖLDIN á Grænlandi
vegna iandafúndaafmælis hófúst í
Brattahlfð um miðjan dag í gær með
því að víkingaskipið Islendingur
kom til Brattahlíðar. Skipinu og
áhöfn þess var vel fagnað af fjölda
•^fgesta sem dreif að úr nágrannabæj-
um og nágrannalöndum, bæði vest-
an hafs og austan.
Meðal gesta vora Margrét Þór-
hildur Danadrottning og Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Islands.
Grænlendingar á kajökum og Umi-
ak-skinnbátum tóku á móti íslend-
ingi á Eiríksfírði og fylgdu honum
siðasta spölinn. í gær hófst víkinga-
inúítahátíð í Narsarsuaq og afsteypa
af Leifsstyttu var afhjúpuð í Bratta-
hlíð. Taka 45 víkingar frá átta lönd-
um þátt í víkingahátíðinni undir
sfjóm Jóhannesar Viðars Bjama-
sonar, veitingamanns í Fjörukránni.
í dag verða Þjóðhildarkirkja og
bær Eiríks rauða f Brattahlíð tekin
formlega í notkun og á morgun
verður kristnitökuhátíð í Görðum.
amfetamíns á einu og sama árinu.
Tollgæslan uppgötvaði á fímmtu-
dag að í hraðsendingu, sem kom frá
Þýskalandi, hefði verið komið fyrir
amfetamíni. Fíkniefnadeild lög-
reglunnar í Reykjavík handtók síðan
þrjá menn um tvítugt. Hafði einn
þeiira komið til landsins frá Kaup-
mannahöfn í vikunni. Lögreglan
krafðist í Héraðsdómi Reykjavíkur
gæsluvarðhalds yfir mönnunum til
10. ágúst nk. og samþykkti héraðs-
dómari það.
Ómar Smári Armannsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn í Reykjavík,
sagði lögregluna í Reykjavík hafa við
rannsókn þessa máls notið góðs sam-
starfs við tollgæsluna og lögregluna í
Hafnarfirði.
Ómar Smári sagði að svo virtist
sem lítið hefði verið til af amfetamíni
hér á landi að undanförnu. Það litla
sem til hefði verið hefði verið mikið
blandað og því hefði verðið ekki
hækkað þrátt fyrir skortinn. Aætlað
væri að amfetamín þetta hefði mátt
tvöfalda til þrefalda í magni áður en
það færi í umferð hér á landi. Hann
sagði að mesta magn amfetamíns,
sem lagt hefði verið hald á fram að
þessu síðan efnið sást fyrst hér á
landi árið 1975, hefði verið 6,1 kíló
samtals allt árið 1996, 5,5 kíló allt ár-
ið 1999 og 5,1 kíló allt árið 1995. Ekki
hefði því áður verið lagt hald á jafn
mikið magn amfetamíns hér á landi,
hvað þá í einni sendingu.
10 kíló amfetamíns á árinu
Það sem af er þessu ári hafa toll-
gæsla og lögregla lagt hald á tæp-
lega 10 kíló af amfetamíni. Auk
þessa, og þess sem lagt hefur verið
hald á vegna afskipta lögreglu af
fólki, var eitt og hálft kíló af amfeta-
míni tekið af manni og konu þegar
þau komu hingað í gegnum Leifsstöð
skömmu fyrir páska. í framhaldi af
því voru þrír aðrir handteknir.
„Framundan er ein mesta útisam-
komuhelgi ársins. Lögregla og toll-
gæsla eru þá jafnan á varðbergi því
reynslan hefur sýnt að þá er reynt að
nýta aðstæður til að koma efnum
sem þessum á framfæri. Yfirvöld
munu gera sem fyrr það sem þau
geta til að spoma við innflutningi eit-
urlyfja og halda uppi eftirliti en komi
til þess að einhverjum verði boðin
eiturlyf er rétt að minna á að þá gefst
þeim tækifæri til að hafna slíkum
efnum og draga þannig úr áhuga
manna á að flytja þau til landsins."
Tveir menn slasast í spreng-
ingu og eldsvoða í Njarðvík
Samferða í 70 ár
®BÚNAÐARBANKINN
Trwntur banki 170 tr
SPRENGING varð og eldsvoði í
Bílaréttingu Sævars Péturssonar við
Fitjabakka í Njarðvík laust fyrir há-
degi í gær. Tveir menn slösuðust og
voru fyrst fluttir í Sjúkrahús Suður-
nesja en síðan á Landspítalann við
Hringbraut í Reykjavík.
Tilkynnt var um slysið klukkan
11:50 til slökkviliðs Reykjanesbæjar
og var allt tiltækt lið sent á vettvang
en verkstæðið er í iðngörðum aust-
ast í Njarðvíkum.
Að sögn varðstjóra slökkviliðsins
er óljóst hvað sprengingunni olli en
vinna var í gangi í verkstæðinu þeg-
ar slysið varð. Slökkvistarfi lauk
klukkan 12 en eldur breiddist ekki út
í önnur fyrirtæki í húsinu og er það
þakkað því að þau eru vel einangruð
hvert frá öðru.
Morgunblaðið/Júlíus
Miklar skemindir urðu á verkstæðinu við sprenginguna.