Morgunblaðið - 01.08.2000, Side 1
STOFNAÐ 1913
172. TBL. 88. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR1. ÁGÚST 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Landsþing Repúblikanaflokksins sett í Ffladelfíu
Forskot Bush á
Gore fer minnkandi
SAMKVÆMT skoðanakönnun, sem
birt var í gær, hefur AI Gore, for-
setaefni demókrata í bandarísku
kosningunum í nóvember, saxað á
forskot George W. Bush, forsetaefn-
is repúblikana. 42% aðspurðra sögð-
ust ætla að kjósa Bush og 38% Gore.
Könnunin náði aðeins til fólks sem
er líklegt til að neyta atkvæðisréttar
síns í kosningunum. Munurinn er
meiri í könnunum sem ná til allra
skráðra kjósenda.
John Zoby, sem stjórnaði könnun-
inni, sagði hana benda til þess að
kosningabaráttan hefði lítið breyst
við það að Bush valdi Dick Cheney,
fyrrverandi vamarmálaráðherra,
sem varaforsetaefni sitt.
Landsþing repúblikana var sett
með pomp og prakt í Fíladelfíu í gær
og Bush var þá formlega útnefndur
forsetaefni flokksins. Ennfremur var
samþykkt stefnuskrá fyrir kosning-
amar í nóvember. Er þar tekin hóf-
söm afstaða í nokkmm málum en
flokkurinn heldur þeÚTÍ afstöðu
sinni að banna eigi allar fóstureyð-
ingar, jafnvel þegar líf bamshafandi
kvenna er í hættu.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
gagnrýndi Repúblikanaflokkinn í
gær og sagði hann fela „slæm stefnu-
mál“ í fögmm umbúðum landsþings-
ins.
■ Reynt að milda/27
Frambjóð-
andinn
George W. Bush, sem í gær var
formlega útnefndur forsetafram-
bjóðandi Repúblikanaflokksins í
Bandarfkjunum, heilsar stuðnings-
mönnum sfnum í Dayton í Ohio-ríki.
I gær ávarpaði hann samkomu í Há-
skólanum í Dayton, þar sem hann
ítrekaði boðskap sinn undir slag-
orðunum: „Við getum gert betur“.
Bush var ekki viðstaddur setningu
landsþings repúblikana í Fíladelfiu
í gær, þar sem útnefning hans var
formlega staðfest, en eiginkona
hans, Laura, hélt til þingsins og
flutti þar ávarp í gærkvöldi. Sagði
hún meðal annars að hvorki niður-
stöður skoðanakannana né svipti-
vindar stjórnmálanna myndu hafa
áhrif á grundvallarviðhorf eigin-
manns síns.
Rússland
Aukinn
hag-
vöxtur
Moskvu. AP.
UM 7% aukning mældist á hagvexti í
Rússlandi fyrstu sex mánuði ársins
að því er Viktor Khristenkó, fyrsti að-
stoðarforsætisráðherra landsins,
greindi frá á vikulegum fundi ríkis-
stjórnarinnar í gær.
Yfírlýsing Khristenkó er talin slá á
ótta Rússa um minnkandi hagvöxt þó
vissrar svartsýni gæti meðal nokk-
urra ráðherra stjórnarinnar. Að sögn
Khristenkó mældist verðbólga ekki
yfir 1% í júlí og kvað hann enn fremur
verðbólgu í ár mælast 18-20% sam-
kvæmt nýlegri spá í stað 35% líkt og
gert hafði verið ráð fyrir eftir verð-
hækkanirí júní.
Hagvöxtur í Rússlandi hefur aukist
undanfarið ár eftir efnahagshrunið
1998 en það átti sér stað í kjölfar
minnkandi hagvaxtar síðastliðins
áratugar. Hátt olíuverð og lágt gengi
rúblunnar hafa átt sinn þátt í þessari
þróun enda Rússar með stærri olíuút-
flytjendum. Undanfarið hefur rúblan
hins vegar hækkað gagnvart banda-
ríska dollaranum og vara sérfræðing-
ar nú við því að verð á olíu muni falla.
German Gref, ráðherra viðskipta
og verslunar, sagði til að mynda í við-
tali í gær að hagvöxtur árið 2001
myndi mælast minni en í ár. „Breyt-
ingar á hagvexti undanfarinna mán-
aða neyða okkur nú til að endurskoða
jöfnukerfíð sem notað er við mælingu
á verðbólgu hvers árs, hagvexti og
gengi rúblunnar fyrir fjárlög ársins
2001,“ sagði Gref í viðtali við dagblað-
ið Vedomosti.
Ráðgjöf
betri
en lyf
London. Reuters.
HJÓNARÁÐGJÖF er árangurs-
ríkari og ódýrari leið en lyfja-
meðferð til að takast á við þung-
lyndi, sainkvæmt niðurstöðum
nýrrar rannsóknar, er birtar eru
í dag.
Maki, eiginmaður eða eigin-
kona þess sem á við þunglyndi að
stríða getur veitt sjúklingnum
betri hjálp við að komast upp úr
þunglyndi og forðast frekari köst
en hefðbundin þunglyndislyf.
„Markmið ráðgjafarinnar er að
færa þungamiðjuna frá hinum
þunglynda og leggja áherslu á
sambandið," sagði prófessor Jul-
ian Leff, við Geðlæknamiðstöðina
í London.
„Hugmyndin er sú, að ef sam-
bandið batnar og makinn veitir
stuðning er líklegt að sjúklingn-
um fari að líða mun betur.“
Niðurstöðurnar eru birtar í
nýjasta hefti British Journal of
Psychiatry. Samkvæmt þeim
skiptir hvorki máli hvors kyns
þunglyndissjúklingurinn er né
hversu alvarlegt þunglyndið er.
Barak stóð naumlega
af sér vantrauststillögu
Jerúsalem. Reuters.
EHUD Barak, forsætisráðherra
ísraels, stóð í gær naumlega af sér
vantrauststillögu sem borin var upp
gegn stjórn hans af stærsta stjórnar-
andstöðuflokknum, Likud. Greiddu
50 þingmenn atkvæði gegn tillög-
unni og jafnmargir með henni. Atta
sátu hjá. Sextíu og eitt atkvæði hefði
þurft til að fá tillöguna samþykkta,
en 120 sæti eru á þinginu, Rnesset.
Hefði tillagan verið samþykkt
hefði ríkisstjórnin fallið og efna hefði
þurft til kosninga, og möguleikar
Baraks á að gera friðarsamkomulag
við Palestínumenn hefðu orðið að
nánast engu. Þetta var síðasta tæki-
færið sem þingið hafði til að greiða
atkvæði um vantrauststillögu áður
en það fer í sumarfrí sjötta ágúst.
Fréttaskýrendur telja að Barak
muni nota tímann þangað til til þess
að halda friðarumleitunum áfram og
tryggja stöðu samsteypustjórnar
sinnar. Aður en atkvæðagreiðslan
fór fram síðdegis í gær fór Barak
þess á leit við þingheim að hann legði
pólitísk bitbein til hhðar og samein-
aðist að baki stjórninni til þess að
tryggja frið og öryggi í landinu.
Moshe Katsav, nýkjörinn forseti
ísraels.
En leiðtogi Likud, Ariel Sharon,
svaraði því til, að Barak hefði brugð-
ist. Hann hefði snúið tómhentur
heim frá friðarviðræðum við Palest-
ínumenn í Bandaríkjunum og gefið
hættulegt fordæmi fyrir framtíð
Israels.
Katsav kjörinn forseti
Vantrauststillagan var borin upp
skömmu eftir að þingmenn höfðu
kjörið Moshe Katsav, frambjóðanda
Likud, forseta ísraels, en frambjóð-
andi stjórnarflokksins, Shimon Per-
es, varð undir. Peres er friðarverð-
launahafi Nóbels og fyrrverandi
forsætisráðherra í Israel. Hann er
ákafur stuðningsmaður friðarsamn-
inga við Palestínumenn.
Utanríkisráðherrann í stjórn Bar-
aks, David Levy, hafði hótað að segja
af sér nema Barak myndaði þjóð-
stjórn með hægrimönnum, en hótan-
ir hans urðu öllu veigaminni í gær
þegar hann gekkst inn á að greiða
ekki atkvæði með vantrauststillög-
unni. Hefur hann frestað því til
morguns að ákveða hvort hann segir
af sér ráðherraembætti, en þá mun
þingið taka fyrir tillögu um að boða
til kosninga.
Levy sat hjá í atkvæðagreiðslunni
um vantrauststillöguna í gær, og
nokkrir fyrrverandi meðlimir í
stjórn Baraks, fulltrúar Shas-flokks
bókstafstrúaðra, mættu ekki til
þingfundar þegar atkvæðagreiðslan
fór fram.
Barak hefur ekki útilokað mögu-
leikann á þjóðstjórn með þátttöku
Likud, en slíkt myndi tryggja að
hann yrði áfram forsætisráðherra.
En Likud-flokkurinn er andvígur
miklum tilslökunum í samningum við
Palestínumenn, og því myndi þjóð-
stjóm gera Barak erfíðara um vik að
ná friðarsamningum.
■ Nýr forseti/28
MORGUNBLAÐHE) 1. ÁGÚST 2000