Morgunblaðið - 01.08.2000, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
fflÁLIfllfSABUERSLAIflR
Verð á lítra
Hörpusilki, miðað við 10 lítra dós og hvíta liti
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
BÆJARLIND 6, KÓPAVOGI.
Sími 544 4411
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
SKEIFUNNI 4, REYKJAVÍK.
Sími 568 7878
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
STÓRHÖFBA 44, REYKJAVÍK.
Sími 567 4400
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
DROPANUM, KEFLAVÍK.
Sími 421 4790
__________VIÐSKiPTI______
V öruskiptaj öfnuð-
urinn óhagstæður
um 18,5 milljarða
VORUSKIPH
VIÐÚTLÖND
Verðmæti innflutnings og útflutmngs
jan. - júní 1999 og 2000 (fob virði í milljónum króna) 1999 jan.-júní 2000 jan.-júní Breyting á föstu gengi*
Útflutningur alls (fob) 72.595,5 71.031,6 +2,2%
Sjávarafurðir 50.902,7 47.135,7 -3,3%
Landbúnaðarafurðir 1.071,1 1.159,2 +13,0%
Iðnaðarvörur 16.543,4 21.168,4 +33,6%
Ál 10.273,5 13.555,0 +37,8%
Kísiljárn 1.431,1 1.736,7 +26,7%
Aðrar vörur 4.078,3 1.568,3 -59,8%
Skip og flugvélar 3.492,7 621,8 -81,4%
Innflutningur alls (fob) 83.357,7 89.568,7 +12,2%
Matvörur og drykkjarvörur 7.228,0 7.409,8 +7,1%
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 19.001,8 19.669,4 +8,1%
Óunnar 768,7 932,9 +26,7%
Unnar 18.233,1 18.736,6 +7,3%
Eldsneyti og smurolíur 3.481,8 7.732,7 +131,9%
Óunnið eldsneyti 99,0 217,3 +129,2%
Bensín, þ.m.t. flugvélabensín 700,0 1.736,1 +159,0%
Annað unnið eldsn. og smurolíur 2.682,8 5.779,3 +125,0%
Fjárfestingarvörur 20.922,4 20.643,7 +3,0%
Flutningatæki 17.633,8 17.984,3 +6,5%
Fólksbílar 7.379,6 6.744,0 -4,6%
Flutn.t. til atv.rek. (ekki skip, flugv. 1.790,8 2.680,2 +56,3%
Skip 2.863,7 1.975,5 -28,0%
Flugvélar 3.391,8 3.929,9 +21,0%
Neysiuvörur ót.a. 14.976,2 16.040,7 +11,8%
Vörur ót.a. (t.d endursendar vörur) 113,7 88,1 -19,1%
Vöruskiptajöfnuður 10.762,2 -18.537,1 -
* Miðað er við meðalgengi ávöruviðskiptavog; á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris í janúar-júní 2000 4,2% lægra en árið áður. Heimild: HAGSTOFA ÍSLANDS
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐURINN
var óhagstæður um 18,5 milljarða
króna á fyrri helmingi ársins en var
10,7 milljarðar fyrstu sex mánuðina j
fyrra, miðað við gengi hvors árs. Á
föstu gengi reynist hallinn vera um
8,2 milljörðum meiri en í fyrra.
Verðmæti vöruútflutningsins á
tímabilinu nam liðlega 71 milljarði
og jókst útflutningurinn um 2,2% á
föstu gengi.
Aukin hlutdeild iðnaðarvara
Utflutningur á sjávarfangi skilaði
47,1 milljarði króna en það er 3,3%
samdráttur miðað við sama tímabil í
fyrra. Utflutningur á iðnaðarvörum
skilaði 21,2 milljörðum króna eða lið-
lega þriðjungi meira en í fyrra og
munar þar langmest um aukinn út-
flutning á áli. Hlutdeild sjávarafurða
í vöruútflutningnum var 66,4%
fyrstu sex mánuði ársins en var rúm
70% á sama tíma í fyrra. Hlutdeild
iðnaðarvara í útflutningnum var
29,8% á móti 22,8% í fyrra. Útflutn-
ingur á áli jókst um tæp 39% og skil-
aði 21,2 milljörðum króna. Útflutn-
ingur á landbúnaðarvörum mælist
aðeins 1,63% af heild.
Munar mest um hækkun
á eldsneyti
Alls voru fluttar inn vörur fyrir
89,6 milljarða á fyrri helmingi ársins
og jókst innflutningurinn um 12,2% á
föstu gengi og munar þar Iangmest
um hækkun á eldsneyti. Alls var flutt
inn eldsneyti og olíur fyrir 7,7 millj-
arða króna á móti tæpum 3,5 millj-
örðum í fyrra, á gengi hvors árs, og
nemur aukning þegar leiðrétt hefur
verið vegna gengisbreytinga tæpum
132%. Rösklega þriðjung af aukning-
unni í innflutningi má rekja til hækk-
unar á eldsneyti en að öðru leyti er
um að ræða aukinn innflutning á
hrávörum, rekstrai’vörum, flutn-
ingatækjum og neysluvörum.
Verðmæti innfluttrar mat- og
drykkjarvöru jókst um 7,1% á föstu
gengi, innflutningur á flutningatækj-
um óx heldur meira eða um 6,5%. At-
hygli vekur að innflutningur á fólks-
bifreiðum dróst saman um 4,6%.
Uppboð á leyfum fyrir þriðju kynslóð farsíma í Þýskalandi
Bitist um stærsta
markað Evrópu
Financial Tiines, BBC
UPPBOÐ á leyfum fyrir þriðju
kynslóð farsíma hófst í Þýskalandi í
gær. Þýski farsímamarkaðurinn er
sá stærsti í Evrópu. I landinu búa
um 80 milljónir manna og var fjöldi
GSM símnotenda um síðustu ára-
mót um 23,5 milljónir. Áætlað er að
notendum fjölgi mikið á þessu ári
og að þeir verði orðnir um 48 millj-
ónir í árslok.
Einungis sjö af upphaflegum tólf
bjóðendum í farsímaleyfin í Þýska-
landi eru enn með í samkeppninni
um þau en það eru: T-Mobil, Mann-
esmann Mobilfunk, E-Plus, Viag
Interkom, MobilCom, Debitel og
3G Group. Mannesmann og T-
Mobil eru hvort fyrir sig með um
40% af GSMsímamarkaðnum í
Þýskalandi og er gert ráð fyrir að
þau séu best í stakk búin til að
bjóða hæst í uppboðinu þar sem
þau geti byggt á því skipulagi sem
núverandi símkerfi þeirra byggja á.
Vodafone AirTouch býður í gegnum
Mannesmann og Deutsche Telekom
í gegnum T-Mobil. Bakhjarlar E-
Plus, sem er þriðja stærsta GSM
símafyrirtækið í Þýskalandi, njóta
þess að fjársterk fyrirtæki standa
að baki því en það eru KPN í Hol-
landi og Hutchison Whampoa í
Hong Kong.
Ovissa um fjölda leyfa
Ríkisstjórnin býður upp á fjögur
til sex farsímaleyfi í uppboðinu.
Óvissan um fjölda leyfa stafar af
því hvernig uppboðið fer fram.
Bjóðendur keppa um tólf bil í tíðni-
sviðinu, með annaðhvort tvö eða
þrjú bil fyrir hvert leyfi. Ef niður-
staða uppboðsins verður á þá leið
að fjórir bjóðendur fá þrjú bil hver
verða leyfin fjögur. Fjöldi leyfanna
verður hins vegar sex ef jafnmargir
bjóðendur tryggja sér tvö bil hver.
Samkvæmt Financial Times gera
flestir sérfræðingar ráð fyrir að
fjöldi leyfa verði fjögur eða fimm og
að næsta víst sé að Mannesmann og
T-Mobil endi með þrjú bil hvort.
Meiri samkeppni en í Hollandi
Reiknað er með að meiri sam-
keppni verði um farsímaleyfin í
Þýskalandi en var í Hollandi fyrir
skemmstu er sex símafyrirtæki
kepptu um fimm farsímaleyfi. Bæði
kemur þar til hvað Þýskaland er
stór markaður og svo hvernig fyrir-
komulag uppboðsins er. Financial
Times segir að mikið muni ráðast af
því hvort E-Plus leiti eftir tveimur
bilum eða þremur. Ef E-Plus sæk-
ist eftir þremur bilum og spár ræt-
ast um að Mannesmann og T-Mobil
geri það einnig verður einungis eitt
þriggja bila leyfi eftir fyrir hin fjög-
ur fyrirtækin til að keppa um. Þá
megi reikna með mikilli samkeppni
um farsímaleyfin.
Spár manna um hve mikla fjár-
muni Hans Eichel íjármálaráð-
herra Þýskalands megi reikna með
að fá í uppboðinu eru allt frá því að
vera um 28 milljarðar Bandaríkjala,
sem jafngildir um 2.200 milljörðum
íslenskra króna eins og nefnt er í
fréttum frá BBC, og upp í um 42
milljarða Bandaríkjadala, eða um
3.300 milljarða íslenskra króna,
eins og fram kemur í fréttum
Financial Times. Lægri niðurstað-
an nægir til að þurrka út allan íjár-
lagahalla þýsku ríkissjórnarinnar í
ár.