Morgunblaðið - 01.08.2000, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ný skip og flutninga-
kerfí hjá Eimskip
Annað tveggja skipa Eimskips sem tekin verða í notkun í október.
EIMSKIP hefur ákveðið að gera
umfangsmiklar breytingar á flutn-
ingakerfi félagsins í Evrópusigling-
um, sem koma til framkvæmda í
október næstkomandi. Skipakostur
félagsins verður endumýjaður í
tengslum við þessar breytingar og
tekin verða í notkun stærstu og full-
komnustu skip sem félagið hefur
verið með í rekstri. Eftir breyting-
arnar fækkar skipum félagsins í
fostum áætlunarsiglingum úr níu í
sjö en engu að síður eykst flutnings-
getan.
Tvö nýleg systurskip með 1.457
gámaeininga burðargetu, verða tek-
in í notkun í október og leysa þau
fjögur skip af hólmi, þar af þrjú
leiguskip. Nýju skipin verða á nýrri
siglingaleið félagsins. Viðkomuhafn-
ir verða í Reykjavík, á Grundar-
tanga og Eskifirði hér á landi og er-
lendis í Færeyjum, Hollandi,
Þýskalandi, Danmörku, Svíþjóð og
Noregi. Skipin eru smíðuð í Orskov
Værft í Danmörku árið 1995. Burð-
argeta þeirra er nálægt 50% meiri
en í Brúarfossi, sem nú er stærsta
skip í rekstri félagsins. Lengd skip-
anna er 165,6 metrar og breidd 27,2
metrar. Skipin geta tekið á þilfari
11 gáma á breiddina í stað 9 á
Brúarfossi og verður Jakinn, gáma-
krani félagsins í Sundahöfn, lengdur
til að geta náð til allra gáma skip-
anna. Skipin henta vel til að sinna
fjölþættum flutningaþörfum við-
skiptavina félagsins, segir í fréttatil-
kynningu frá Eimskip, hvort sem er
í innflutningi eða útflutningi. Skipin
eru t.d. með um 400 frystigáma-
tengla og á ýmsan hátt sérhönnuð
til frystigámaflutninga og er hægt
að fylgjast með hitastigi og ástandi
frystigáma úr brú skipanna. Þau
eru einnig sérstaklega hönnuð með
það í huga að geta flutt hágáma í
lestum, en notkun slíkra gáma hefur
verið að aukast á undanfömum ár-
um. Á skipunum eru tveir 40 tonna
kranar, sem gerir lestun og losun
skipanna mögulega þar sem ekki
eru kranar í landi.
Skipin rista 8,95 metra fulllestuð,
sem er nokkuð meira en djúprista
núverandi skipa félagsins. Þrátt fyr-
ir það komast þau auðveldlega að
bryggju í Reykjavík og á öðrum
þeim höfnum sem siglt verður til
hér á landi og erlendis.
Aðalvél skipanna er MAN B&W
með um 21.000 hestöfl sem skilar
skipunum áfram með 20 sjómflna
hraða á klukkustund. Til saman-
burðar eru hraðskreiðustu skip fé-
lagsins nú með um 17 sjómflna
ganghraða. Gert er ráð fyrir 14
manna áhöfn á hvoru skipi en auk
þess aðstöðu fyrir a.m.k. sex far-
þega. Á skipunum verða íslenskar
áhafnir og þeim verða gefin fossa-
nöfn. Eimskip hefur tryggt sér
kauprétt á skipunum og er kaup-
verð þeirra beggja um 3,5 milljarð-
ar króna. Ekki hefur verið gengið
endanlega frá fjármögnun skipanna
en gert er ráð fyrir því að þau verði
fjármögnuð með leigukaupasamn-
ingi í stað beinna kaupa.
Aukin flutningsgeta
með færri skipum
í fréttatilkynningu Eimskips seg-
ir að markmiðið með þessum breyt-
ingum sé að auka hagkvæmni í
rekstri siglingakerfisins og styrkja
samkeppnishæfni félagsins með öfl-
ugri og afkastameiri skipakosti.
Undanfarin ár hefur Eimskip rekið
sex skip í siglingum til Evrópuhafna
sem hafa verið með flutningsgetu
frá 400 og upp í 1.000 gámaeiningar.
Tvö skip hafa siglt á „Suðurleið", til
Bretlands og Hollands með viðkomu
í Vestmannaeyjum, tvö hafa siglt á
„Norðurleið“, til Færeyja, Þýska-
lands og Skandinavíuhafna og tvö á
„Strandleið“, til Færeyja, Bretlands
og Hollands með viðkomu á Eski-
firði. Siglingakerfi félagsins br.eytist
þannig að í stað sex skipa á sigl-
ingaleiðum til Evrópu munu fjögur
skip annast alla gámaflutninga fé-
lagsins til og frá höfnum á megin-
landi Evrópu og Skandinavíu. Þrátt
fyrir fækkun skipa mun flutnings-
geta félagsins aukast nokkuð í sigl-
ingum milli fslands og Evrópu.
Áætlun skipa á „Suðurleið“, sem
sinnt hefur álflutningum frá
Straumsvík, ásamt útflutningi frá
íslandi og innflutningi frá Imming-
ham og Rotterdam, verður óbreytt.
Eitt skip verður áfram í vikulegum
strandflutningum við ísland og ekki
eru fyrirhugaðar sérstakar breyt-
ingar á hálfsmánaðarlegum Amer-
íkusiglingum tveggja skipa félags-
ins. í tengslum við þessar
breytingar verður leiguskipunum
Thor Lone, Hanse Duo og Hanse-
wall skilað úr leigu og Brúarfoss
verður settur á sölulista. Selfoss og
Lagarfoss verða í siglingum til
Immingham og Rotterdam og
Bakkafoss og Goðafoss í Ameríku-
siglingum. Mánafoss verður áfram í
strandsiglingum.
Breytingarnar á siglingakerfi og
skipastól Eimskip hafa verið í und-
irbúningi í nokkum tíma og eru lið-
ur í að auka flutningsgetu og hag-
kvæmni í rekstri og taka í notkun
yngri og fullkomnari skip.
Vélknúin hlaupahjól eru ný tískubóla - óvissa um notkunarreglur
Hjólin skilgreind
sem létt bifhj ól
, , .... Morgunblaðið/Kristinn
Alexander a velhlaupahjolinu.
NÝVERIÐ hófst sala á vélknúnum
hlaupahjólum hér á landi og fellur
notkun þeirra undir aðra grein
umferðarlaga. Að sögn lögreglu
eru hjólin skilgreind sem létt bif-
hjól og þurfa ökumenn hjólanna að
nota hjálm, Ijúka skellinöðruprófi
og vera fimmtán ára eða eldri.
Samkvæmt skilgreiningunni, sem
kom frá dómsmálaráðuneytinu í
vor, eru hjólin bæði skráningar- og
tryggingaskyld og má eingöngu
aka þeim á götum en hjólin ná allt
að 35 kílómetra hraða.
Nýlega var ökumaður á vél-
knúnu hlaupahjóli kærður fyrir
það að aka hjólinu hjálmlaus á
göngustíg án réttinda en sam-
kvæmt skilgreiningu dómsmála-
ráðuneytisins þurfti ökumaðurinn
að hafa skellinöðrupróf til þess að
aka hjólinu. Einnig gerðist hann
brotlegur fyrir að aka hjólinu á
göngustíg en það er bannað með
lögum. Að sögn lögreglu eru öku-
menn sem aka réttindalausir og án
þess að nota hjálm sektaðir og tek-
ið er á málinu eins og hverju öðru
umferðarlagabroti.
Meiri líkur á því að
slasa sig á línuskautum
Að sögn Einars Kára Möller,
sölumanns hjá Mótorsporti, hafa
fimmtíu hjól selst frá því að fyrir-
tækið hóf sölu á þeim fyrir rúmum
þremur mánuðum. Einar sagðist
ekki vita t.il þess að nein reglugerð
væri til um notkun hjólanna og
ökumönnum væri einungis skylt að
vera með hjálm.
Foreldrar Alexanders Hafþórs-
sonar tóku í sama streng en AI-
exander keypti vélknúið hlaupa-
hjól fyrir stuttu. Hann varð fjórtán
ára í gær og notar hjólið til þess að
heimsækja vini sína í Grafarvogin-
um og tekur það með í strætó þeg-
ar hann fer á knattspyrnuæfingar
með Fram.
„Ég nota hjólið helst ekki á ak-
vegum eða þar sem umferð er mik-
il,“ sagði Alexander í samtali við
Morgunblaðið í gær en foreldrar
hans taka það ekki í mál. Þau vilja
ekki að hann sé á skellinöðru og
telja meiri líkur á því að Alcxander
slasi sig á línuskautum en á hlaupa-
hjólinu. Að þeirra sögn vissu þau
ekki til þess að neinar reglur væru
til um notkun hjólanna.
„Þetta er gaman og sparar
manni tíma. Vinur minn á líka
svona hjól,“ sagði Alexander en að
hans sögn hefur hann aldrei lent í
neinum vandræðum þegar hann
hefur verið á hjólinu. „Maður pass-
ar sig bara og ég hef aldrei dottið.
Dekkin eyðast bara of fljótt,“ sagði
Alexander. Amma hans lánaði hon-
um fyrir hjólinu en þau kosta frá
76.000 krónum.
Um 26% Is-
lendinga vilja
búa erlendis
RÖSKLEGA 26% íslendinga segj-
ast vilja búa í öðru landi til frambúð-
ar, samkvæmt könnun Gallup. Þetta
er í þriðja sinn sem Gallup spyr þjóð-
ina að þessu og aldrei fyrr hafa jafn-
fáir viljað búa erlendis, en árið 1994
sögðust um 27% vilja það og árið
1995 sögðust tæplega 34% vilja það.
Næstum 28% þeirra sem nefna
land eða svæði sem þeir vilja búa á
nefna Danmörku og tæplega 14%
nefna Bandaríkin.
Einungis rúmlega 4% aðspurðra
sögðust helst vilja búa í Noregi en
fyrir fimm árum vildi um fimmtung-
ur landsmanna helst búa þar. Þá
nefndu mun færri Þýskaland og Sví-
þjóð nú en áður. Á hinn bóginn
nefndu fleiri Bretland, Spán og Ital-
íu.FIeiri karlar en konur vilja búa er-
lendis til frambúðar, eða um 29%
karla, en rúmlega 23% kvenna. Mik-
ill munur er hvort fólk vill búa er-
lendis til frambúðar eftir aldri svar-
enda. Þannig vilja næstum 43%
þeirra sem eru 18 til 24 ára búa er-
lendis en einungis rösklega 14%
þeirra sem eru 55 til 75 ára.
ISLAND
l#
Snæfellsnes
SNÆFELLSNES
Sérkort
1:100 OOO
Nýtt og nákvæmt
sérkort af Snæfellsnesi
í mælikvarðanum
1:100 000 með öllum
upptýsingum fyrir
ferðamenn.
Mál og mennincj
malogmanning.is
Laugavegi 18 • Sfml 515 2500 • Síðumúla 7 • Sfml 510 2500
Landspítalinn í Fossvogi
Verktaki greiddi 1,6
milljónir í dagsektir
FRAMKVÆMDUM við E-álmu
Landspítalans í Fossvogi, sem hóf-
ust fyrir þremur árum, er lokið en
þeim seinkaði nokkuð og þurfti
verktakafyrirtækið Háberg að
greiða um 1,6 milljónir króna dag-
sektir. Aðalsteinn Pálsson, for-
stöðumaður byggingardeildar
Landspítalans, sagði að dráttur
hefði orðið á steypunni á sjöundu
hæð álmunnar og að það hefði vald-
ið töfunum. Hann sagði að tafirnar
hefðu ekki raskað starfsemi spítal-
ans á neinn hátt.
Heildarkostnaður vegna fram-
kvæmdanna við E-álmuna er um
450 milljónir króna en í álmunni
eru m.a. gjörgæsla og skurðdeildir
sjúkrahússins. Aðalsteinn sagði að
verktakinn hefði átt að ljúka
steypuvinnu síðastliðið haust en
það hefði dregist fram að áramót-
um. Hann sagði að öðrum verk-
þáttum, m.a. frágangi utanhúss,
hefði lokið í sumar.
Næst ráðist í endurbætur
á A-álmunni
Aðalsteinn sagði að Landspítal-
inn í Fossvogi væri kominn vel til
ára sinna og að mikil endurnýjun
biði húsnæðisins. Hann sagði að
næst á dagskrá væri að ráðast í
endurbætur á A-álmunni og að þar
ætti m.a. að skipta um glugga og
gera við útveggi. Þá sagði hann að
einnig þyrfti að endurnýja inni á
deildum spítalans.
Aðalsteinn sagðist gera ráð fyrir
því að kostnaður vegna fyrirhug-
aðra utanhússviðgerða yrði rúm-
lega 300 milljónir króna og að
framkvæmdir ættu að geta hafist á
næsta ári ef fjárveiting fengist frá
ríkinu í verkið.