Morgunblaðið - 01.08.2000, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
„Bjössi er búinn að fá fimm,“ kölluðu félagar Sigurbjörns Sigurbjörnssonar þegar hann landaði þcssum.
Upprennandi aflakóngur
SIGURBJÖRN R. Sigurbjörnsson,
11 ára Vopnfirðingur, veiddi
hvern þorskinn á fætur öðrum
þegar börnin á leikjanámskeiði
Einherja fóru í fylgd leiðbein-
enda sinna niður á höfn í Vopna-
firði. Börnin keppa um ýmsa
titla, stúlkurnar vilja verða afla-
drottningar og drengirnir afla-
kdngar og allir keppast um að
veiða stærsta fiskinn og þann
minnsta.
Að sjálfsögðu voru þau öll í
björgunarvestum. Sigurbirni
gekk manna best meðan blaða-
maður staldraði við á bryggjunni,
veiddi á stuttum tíma fjóra
þorska, þar á meðal þann stærsta
sem á land var kominn, og einn
marhnút. Stefndi hraðbyri í að
hann yrði aflakóngur námskeiðs-
ins. Sigurbjöm sagði að best væri
að veiða eftir að skip hefði verið
að landa, þá kæmi þorskurinn inn
í höfnina. Svo háttaði einmitt til í
þetta skiptið, nýlega var búið að
landa kolmunna í bræðsluna.
Norðurlandamót í ökuleikni strætóbflstjdra í Reykjavík
Finnar unnu og
Islendingar í
öðru sæti
ÍSLENDINGAR lentu í öðru sæti
í keppni norrænna strætisvagna-
bílstjóra í ökuleikni sem haldin var
sl. laugardag. Finnar urðu Norð-
urlandameistarar.
Keppnin var haldin á íslandi og
fór fram á athafnasvæði Strætis-
vagna Reykjavíkur á Kirkjusandi.
Norðmenn urðu í þriðja sæti, Dan-
ir í því fjórða og lestina ráku
Svíar. Fengu þeir skammarverð-
laun, líkan af strætisvagni þar sem
bílstjórinn snýr aftur. Segir Kjart-
an Pálmarsson, talsmaður keppn-
innar, að vinni sama landið keppn-
ina fimm sinnum eignist það
verðlaunin. Segir hann Islendinga
eiga einn slíkan grip, klukku sem
gengur öfugt en eftir fremur slakt
gengi á fyrstu árum íslendinga í
keppninni hefur styrkur þeirra
eflst mjög. Þannig áttu þeir efsta
mann í einstaklingskeppninni í ár
og íslenskir bílstjórar voru einnig í
fjórða og fimmta sæti. Finni var í
öðru sæti einstaklingskeppninnar
og Dani í því þriðja.
Sex manna sveit frá hverju landi
tók þátt í keppninni. Lagðar eru
10 þrautir fyrir bílstjórana og seg-
ir Kjartan þær flestar mönnum
kunnar frá fyrri keppnum en
keppnishaldari kemur þó jafnan
með eina nýja þraut.
Næsta keppni verður haldin í
Finnlandi. Kjartan sagði fram-
kvæmdina hafa gengið vel enda sól
og blíða allan keppnisdaginn.
Morgunblaðið/Porkell
Ýmsar þrautir eru Iagðar fyrir í
keppni strætisvagnabflsljóra á
Norðurlöndum.
Tilvaliö i
tækifærisgjafir
óotsero
Borðdúka
úr'i'alið
er hjá okkur
Skiphofti í 7 a: \ 10 5 Reykfavík \Sími 5 5 í 2323
Vidurkenning fyrir frímerkjagerð
Gamla skild-
ingamerkið
fyrirmynd
Kristín Þóra Guðbjartsdóttir
NÝLEGA hlaut
Kristín Þóra
Guðbjartsdóttir
viðurkenningu írá Graphis
Design Annual 2000 lyrir
hönnun á frímerki sem gefið
var út í tilefhi af því að 125
ár eru liðin síðan fyrst var
gefið út fiímerki á íslandi.
„Frímerkið sem ég hlaut
viðm'kenningu íyrir kom út
1998 en fyrsta íslenska
frímerkið var gefið út 1873,“
sagði Kristín Þóra.
- Hvaða mynd var á frím-
erkinu sem þú fékkst viður-
kenningu fyrir?
„Hönnunin tók mið af
fyrsta skildingafrímerkinu
sem kom út 1873. Slík frí-
merki voru einlit til aðgrein-
ingar frá dönsku frí-
merkjunum sem voru tvflit.
Þessi fyrstu frímerki voru kölluð
skildingafrímerki því verðgildi
þeirra var í skildingum. Frímerkið
mitt er í bláum lit eins og fyrsta
gamla skildingafrímerkið var. í
grunninn skrifaði ég „copperplate",
sem var skrift sem fólk notaði fyrir
125 árum, það gerði ég til að vísa til
bréfasamskipta fyrri tíma. Gömlu
frímerkin þóttu mjög stflhrein að
gerð og sama máli gegnir með mitt
frímerki. Það var valið úr miklum
fjölda innsendra frímerkja alls
staðar að úr heiminum. Graphis
forlagið er alþjóðlegt forlag yfir
hönnun almennt, gefur út bækur
þar sem fjallað er um hönnun í graf-
ík, iðnhönnun, ljósmyndun ogfleira.
Það hefur höfuðstöðvar í New York
og Sviss og þykir mjög eftirsóknar-
vert að komast í þeirra bækur. Það
gleður sjálfsímyndina að fá svona
„klapp á bakið“.“
-Ert þú fyrsti íslendingurinn
sem hlýtursvona viðurkenningu?
„Já, fyrir frímerki að því er ég
best veit. Ég hef áður fengið viður-
kenningu fyrir hönnun á merki sem
ég teiknaði fyrir Póst og síma, póst-
þjónustumerkið fyrir hraðsending-
ar út á land, og komst þá í Graphis
Logo.“
-Hefur þú hannað mörg frí-
merki?
„Já, ég hef hannað tuttugu og eitt
frímerki fyrir íslandspóst. Fyrsta
frímerkið sem ég gerði var Olymp-
íumerkið fyrir vetrarólympíuleik-
anna í Nagano 1998, það voru tvö
merki og á þeim voru skíðaganga
og svig. Næsta merki var í sam-
bandi við mannréttindasáttmála
Sameinuðu þjóðanna og þar var
byggt á gömlum íslenskum máls-
hætti sem segir: „AUir
fingur eru jafnlangir, þá
þeir eru í lófann lagðir.“
Þemað var full mann-
réttindi fyrir alla. Það
má geta þess að þetta
frímerki fyrir Samein-
uðu þjóðimar og frí-
merkið fyrir 125 ára afmæli ís-
lenskrar frímerkjaútgáfu birtust
einnig í alþjóðlegu riti fyrir letur-
hönnun og skrift - Letter Arts Rev-
iew. Þá vil ég nefna frímerki sem ég
hef gert og sýna hvali við íslan-
dsstrendur.“
- Þegar þú færð svona verkefni
er þá myndefnið í þínum höndum ?
„Já, ég bæði myndskreyti og
hanna frímerkið. Þegar ég t.d.
hannaði frímerkið um hvalina þá
fékk ég senda beiðni frá Póstinum
um að gera merki með hvölum. I
upphafi fer fram mikil vinna við að
undirbúa og afla sér upplýsinga til
að nota í myndina. Ég fann mér
bækur og las mér til, hafði samband
við sérfræðinga á þessu sviði og síð-
an fór ég að rissa upp hugmyndir.
► Kristfn Þóra Guðbjartsdóttir
fæddist á ísafirði 28. nóvember
1960. Hún lauk prófi frá Mynd-
lista- og handíðaskóla fslands
1984 og fór siðan í
Fachhochschule f Hamborg og
var þar við nám í textflhönnun í
eitt ár. Lauk siðan fram-
haldsnámi við Myndlista- og
handíðaskóla fslands 1992 í graf-
ískri hönnun. Hún hefur starfað
að grafiskri hönnun frá því hún
lauk námi 1992 og er grafískur
hönnuður hjá Hvíta húsinu.
Kristín er gift Sigurði Stefáni
Jónssyni ljósmyndara.
Þegar búið er að gera tillögur þá
fara þær fyrir Frímerkjanefnd sem
ýmist samþykkir þær eða hafnar
þeim og þá þarf að byija upp á
nýtt.“
- En hvert er þitt aðalstarf hjá
Hvítahúsinu?
„Það er margt sem grafískir
hönnuðir gera á auglýsingastofu.
Þeir hanna merki og bæklinga,
vinna hugmyndavinnu fyrir auglýs-
ingaherferðir. Þetta er mjög skap-
andi vinna og getur gefið manni
mikið. Ég hef bara starfað hjá
Hvíta húsinu frá því í júní en var áð-
ur hjá auglýsingastofunum Góðu
fólki og Yddu. íslandspóstur er við-
skiptavinur Yddu og þannig má
segja að ég hafi komist í kynni við
frímerkjahönnun."
- Hvernig er grafísk hönnun á
vegi stödd hér miðað við erlendis?
„Mín skoðun er sú að við séu
nokkuð vel á vegi stödd. Við fylgj-
umst vel með því sem er að gerast
erlendis. Þegar maður er að vinna
við hönnun og mynd-
skreytingar finnst sum-
um að viðkomandi sé
bara að dútla eitthvað.
En þetta er mikil vinna
og krefst þess oft á tíð-
um að maður sinni löng-
um stundum í alls kyns
undirbúningi og viði að sér hug-
myndum. Hugmyndimar eru raun-
ar alls staðar í umhverfinu og mað-
ur verður víða fyrir áhrifum, en það
þarf að vinna úr þeim.“
- Hefur þú fengið fleiri verkefni
á sviði frímerkjagerðar?
„Nei, ekki enn, en vonandi verð-
ur það síðar. Fyrir utan þau merki
sem ég hefþegar tilgreint hef ég
hannað fimm frímerki í seríu sem
tengist náttúruvemd á ísiandi og
tvö frímerki sem em tileinkuð ár-
þúsundamótum - framtíð og fortíð.
Einnig má geta þess að á næsta ári
verða gefin út frímerki eftir mig á
næsta ári en ekki tímbært að segja
frá hvert þema þeirra er, það gerir
íslandspóstur þegar að útgáfu
kemur.“
Eftirsóknar-
vert ad kom-
ast í bækur
Graphis-
forlagsins